Heimasíða Ásgarðs |
||
02.02.2008 02:10Hrókur og Suddi járnaðir
Þegar að öll heimaverkin voru búin þá dreif ég þá Sudda og Hrók uppá kerruna,sóttum Beggu vinkonu í Garðinum því nú skildi láta járna gæðingana og fara æfingarrúnt í höllinni inná Mánagrund. Á meðan að Högni járnaði þá fórum við Begga smá hestahúsarúnt að sníkja okkur kaffi og hittum við hana Sunnu Siggu sem var búin að leggja á hryssuna sína Millý frá Feti. Eftir að Eymundur var svo vænn að gefa okkur heitann kaffisopa þá kíktum við á Högna og hrossin og auðvitað var drengurinn búinn að járna klárana fyrir okkur á alvöru skeifur með sköflum í.Þýðir víst ekkert að lemja hausnum í og bíða eftir að hláni. Hróksi var nýbúinn að pissa á gólfið þarsem hann var bundinn og gat ekki hreyft sig úr pollinum Næst lögðum við Begga á og fórum niður í Höll að æfa allskonar trix og snúninga og ég veit bara ekki hvað. Kemur ekki Högni einsog hendi væri veifað að aðstoða okkur dömurnar og lét ljós sitt svo óspart skína að flúorperurnar í loftinu hreinlega roðnuðu af skömm yfir sínum auma geisla:) Lónseraði okkur dömurnar á Hrók,hægri vinstri og ég veit ekki hvað! En takk æðislega fyrir hjálpina Högni minn:)Bara gaman hjá okkur Beggu:) Er að rjúka á námskeið í fyrramálið inní Víðidal! Verð að fara að sofa smá í minn vitlausa haus:) 01.02.2008 01:39Brrrr.......kalt úti!!!!Það er komin svo löng runa af commentum að ég verð að blogga áður en commenta dálkurinn springur:) Ég æddi út í gær í bítandi frosti með cameruna og tók myndir af nýju merunum tveim.Þær eru alveg yndislegar að hafa í stóði og láta einsog þær hafi alltaf verið hér. Folalda tamningar standa hér yfir á fullu og er voðalega gaman hjá mér í hesthúsinu síðan að Hrímfaxi kallinn fór útí rúllu.Alveg logn í hesthúsinu og hin folöldin mun rólegri enda enginn Hrímfaxi stöðugt að æpa "Úlfur úlfur að koma að gleypa okkur"þegar að ég birtist í húsinu. Flottur Trymbilssonur er alveg kominn og má ég fara að hætta að vinna mikið meir í honum áður en hann verður að algjörum dekurdreng sem heimtar klapp við hvert tækifæri.Allt er gott í hófi. Systir hans hún Blíða Trymbilsdóttir er alveg frábær en enn soldið kítlin við mig.Finnst burstinn voðalegt tæki en lætur sig þó hafa það:)Algjör dúllan og bráðhuggulegt folald. Var nú búin að setja ættina að henni hérna neðar en hún er undan Trymbil frá Akurey 2 sem er sonur Rósinkrans frá Álfhólum sem er undan Þokka frá Bjarnarnesi. Móðir Blíðu er Lísa frá Þórunúpi sem er undan Stíg frá Kjartansstöðum sem er undan Náttfara frá Ytra Dalsgerði. Blíða er fallega byggt alhliða gengt folald.Hennar litur sést nú ekki alveg í vetrafeldinum en hún er leirljós blesótt. Verðið á Blíðu er 60.000- Það er laust pláss fyrir hana hér í Ásgarðinum til 1 Júni gegn gjaldi.Hafið samband í herbertp@simnet.is eða í Gsm 869-8192. Stella (Trymbilseigandi) og Valgerður kíktu í heimsókn í gærkveldi og auðvitað tókum við beint strik niður í hesthús að heimsækja "ömmubörnin"hennar Stellu:) Og við allar þrjár í kór"afhverju keypti ég ekki hann Flott Trymbilsson"!!!! Ég hefði ekki hikað við ef hann hefði verið meri!Þá hefði ég keypt hann strax. Núna dauðsé ég eftir því að hafa ekki keypt hann því hann er svo gæflyndur og stabíll og þægilegt folald með flottum hreyfingum........og allt hitt sem hest á að prýða:) 29.01.2008 01:192 Hryssur keyptar og Loki farinn heim til sínHvað haldiði að ég hafi verið að gera! Ég á eftir að rölta út á morgun og ná almennilegum myndum af þeim stöllum:)Birtan í dag var að stríða mér og camerunni. Loki frá Ásgarði sá frægi (umtalaði á http://hestafrettir.is/:)fór í dag austur til nýrra eigenda.Reyndar eru þær stöllur ekkert nýir eigendur en þær keyptu Loka rétt í þann mund sem að hann snerti jörðina og var hann enn blautur á bakvið eyrun þegar að hann fór úr minni eigu. Innilega til hamingju með Loka "litla" og nú pantar maður nýjar myndir af drengnum reglulega stelpur!!!! Stutt og laggott í dag,meira á morgun af bulli frá mér dúllurnar mínar:) 26.01.2008 23:50Klikkað veður og ekkert námskeið:(
Í morgun komst hann hinsvegar gangandi útí stóðhestahús og allir fengu tugguna sína.Hann náði gröfunni út og byrjaði að moka sköflunum frá húsunum en þeir náðu sumir uppá þak! Hann var í eina 4 tíma að moka útfrá og hingað heim þartil hægt var að ná bílunum útúr sköflunum hér. Ég stökk út þegar að ég heyrði að hann var að komast nær og tók myndir í gríð og erg af öllum snjónum og bílunum sem fenntir voru nánast í kaf. EN ÉG AULINN.......eyddi þeim út af myndavélinni fyrir algjörann klaufahátt.Arg........arg...... Þannig að ég náðu bara myndum af sköflunum þegar að búið var að moka þeim upp í haug:) Ég fékk mér göngutúr útí stóð til að kanna ástandið og var ég nú bara montin með hve vel þau litu út og voru hress eftir öll veðurlætin. Hrossin voru að krafsa snjó ofanaf heyinu sem fennt hafði yfir og hef ég aldrei séð fenna yfir hey hjá okkur fyrr hér á Suðurnesjunum.Vanalega fýkur það bara á haf út í rokinu en núna fennti það í kaf:) Það var soldið fyndið að sjá rassana á hrossunum standa uppúr heyholunum:) Ég er búin að vera að handleika og frumvinna folald sem ég var að vonast til að gæti orðið að hrossi í framtíðinni.Hann er alger gaur og ekki alveg á því að gefa sig að manninum. Þetta er hann Hrímfaxi sporfallegi sem er nú kominn á válistann hjá mér.Hann er semsagt í stórkostlegri útrýmingar hættu þó fallegur sé. Ég ætla að gefa honum nokkra daga enn og svo ákveð ég endalega hve örlög hans verða. Ég nenni ekki að standa í svona til lengdar,koma í hesthúsið og hann spriklar um allt einsog vitleysingur þegar að maður nálgast hann.Svo þegar að hann er kominn í gúmmíkallinn þá dettur hann á dúnalogn. Þá er hann burstaður í bak og fyrir og hann étur tugguna sína á meðan. Eftir 5 mínútur þá tryllist hann aftur og tætist um allt og kannast ekkert við það sem honum var kennt 5 mínútum áður. Svona er þetta búið að ganga dag eftir dag. Ég tók annað folald (Flott frá Víðihlíð:) og setti á það múl og batt og burstaði á alla kanta og þetta var ég að gera í fyrsta sinn,sko að bursta það. Reyndar var það rakað um daginn en þvílíkur munur að umgangast það folald miðað við hann Hrímfaxa kallinn. Þið heyrið það að ég er orðin gömul og nenni ekki þessu stríði eða er vaxin uppúr því.Nema bæði sé Annaðhvort detta þessi grey á dúnalogn eða ég nenni ekki að eyða tíma í þau. Við Suðurnesjagellurnar 3 komumst ekki á námskeiðið hjá Sigrúnu Sigurðar aðra helgina í röð.Bara fúlt............þetta er nefnilega gaman og manni langar svo virkilega að standa sig. Veit einhver Mánamaður/kona hvort hægt sé að leigja/lána okkur höllina kannski einu sinni í næstu viku??? Einhver þarna úti sem er í Mána og veit þetta og kíkir hér inn?? Please commenta!!!! Ég setti inn að gamni 2 vídeó af Hrímfaxa og vini hans Flotti frá Víðihlíð að montast í snjónum í dag.Ég fékk að rölta smá í dag það get ég sko svarið.Folöldin voru ekki alveg á því að koma inn aftur.Ég ætla að setja þau í minna leikhólf á morgun.......... Farið varlega í öllum veðurlátunum elskurnar mínar:)
25.01.2008 01:30Vorfílingur í snjó:)
Útigangurinn lítur bara vel út og er hinn hressasti.Ætla samt að fara að gauka að þeim smá Síld sem ég luma á:) Eftir að hafa sinnt útiganginum og hugsað um folöldin í heimahesthúsinu þá fór ég útí stóðhestahús og setti út Hrók og þá bræður Glófaxa og Völustein.Bætti svo við einum geldingi sem er hér í pössun í óákveðinn tíma. Hrókur tók vel á móti honum eins og hann gerir við öll hross.Völusteinn skoðaði hann og fór svo að reyna að leika við Glófaxa stóra bróður en það var bara ekki viðlit að ná sambandi við hann! Hann var alveg niðursokkinn í að stilla upp þessum nýja gestahesti og reyna að fá hann til við sig hehehehehehe......Alveg bara ástfanginn upp fyrir haus hann Glófaxi:) Það er kominn vorfílingur í okkur hérna í Ásgarðinum. Fashaninn og Qualinn farinn að verpa á fullu en það var nú ekki ætlunin að láta fasahænurnar fara að verpa svona snemma. Við kveiktum nefnilega ljós hjá Qualnum svo hann færi að verpa og nær það yfir til fashænanna sem byrjuðu líka að verpa:)Verðum að setja upp eitthvað svo ljósið nái ekki til þeirra því annars verpa þær í allan vetur og stoppa svo bara í vor.Ekki gott mál það. Svo gaut ein Castor Rex læðan óvænt.........eða þannig.Hún hafði verið í búri með karli síðan í sumar og vildi ekki parast við hann en skyndilega tók ég eftir því um daginn að hún var orðin svo afundin við kallinn og það var farið að urra og væla í henni.Það hljóð þekki ég voðalega vel en þá eru læðurnar óléttar og jafnvel stutt í got. 22.01.2008 02:17Snjór snjór snjór...........
Við Garðgellurnar komumst ekki á námskeiðið í Víðdalinn um daginn vegna mikls skafrennings og veðurláta. Ég er farin að finna fyrir vorspenningi og er það alltof snemmt.Samt er ég að fara að hugsa um að setja niður fræ og láta spíra því það styttir alveg ótrúlega biðina að sjá litlar plöntur vaxa uppúr moldinni. Ég virðist öll að vera að hressast því ég var að átta mig á því að ég er farin að moka heimahesthúsið einsog ekkert sé og finn ekki til í bakinu! Ég er með 5 folöld hér heima og eru 3 þeirra rökuð og það munar ekkert smá á því hve miklu duglegri þau eru að éta og ánægðari eru þau greinilega. Sprikla alveg svakalega þegar að þeim er hleypt út á daginn og stundum ekki alveg á því að koma inn aftur. Ég sá við þeim og núna fá þau ekki eitt strá að éta fyrren ég er búin að moka og sagbera hesthúsið og þá er ekki erfitt að fá þau inn aftur blessuð:) En þarsem ég er að verða svona hress þá er ég að hugsa um að taka inn eitthvað af trippum og fara að vinna í þeim. Það eru nú reyndar ekki mörg hross sem um ræðir því það er búin að vera góð sala og ekkert lát á henni. Talandi um söluhross þá er ein hérna gullfallegt leirljóst blesótt merfolald til sölu.Vel ættað og fer á fallegu sviffallegu brokki.Ég efast ekki um að hún eigi eftir að sýna allan gang í framtíðinni miðaða við ættina. Fæðingarnúmer IS2007255336
Við fórum með Bogga og Eygló að sækja hrossin þeirra en veðrið er farið að verða svo leiðinlegt og færðin þannig að ekki er alltaf hægt að treysta á það að hægt sé að fara með hey í útigangshross. Annars er lítið að frétta héðan og allir við góða heilsu. 15.01.2008 21:04Hrímfaxi Hróksson taminn.......
Toppa Anna og Skvetta vinna svo vel saman að þetta á ekki að vera neitt mál.Málið er nefnilega það að maður á svo bágt með að sleppa hendinni af besta gripnum við vinnu og gildir það bæði um hundana og hrossin hér á bæ. Það er viss kúnst að kunna sig og hemja þegar að reiðhestunum kemur og td eins og gömlu kallarnir sögðu "maður á að hafa vit á því að stíga af baki hrossunum þegar að best gengur". Eða einhvernveginn þannig var það. Nú verð ég að fara að læra að treysta yngri tíkunum á veiðunum og læra að lesa þær betur. Nú er Tara farin yfir móðuna miklu og fundum við fyrir því um daginn.Hún staðsetti Minkinn svo vel og örugglega. Busla er líka góð í að staðsetja og þverari og finnur Minkinn á miklu meira dýpi en allir hinir hundarnir okkar.Ef hún fer að grafa þá er alveg örugglega minkur undir. Skvetta dóttir hennar getur hinsvegar orðið svo spennt að hún fer að grafa alveg óð og höfum við endað niður á lítilli saklausri mús!Tímafrekt og svekkjandi í meira lagi! Tobba Anna vinkona Skvettu er hinsvegar enn óráðin,en virkilega spennandi verkefni að vinna með í framtíðinni. Ég vona að hún fari nú ekki að apa það upp eftir Skvettu að grafa upp allar hagamýsnar í framtíðinni hehehehehe.....Þessvegna væri voðalega gott að geta farið með Busluna nokkrum sinnum í viðbót á veiðar á meðan að Tobba Anna er að átta sig á því almennilega að hverju er verið að leita:) Jæja þá erum við búin að fella slægu Gránu en ég endaði sem eigandi hennar og folaldsins hennar sem er gríðarfallegur Hrókssonur sem var skírður Hrímfaxi á blogginu rétt fyrir Jólin. Ég tók Hrímfaxa inn og er að vinna í honum aðeins til að koma í veg fyrir að hann fari að vera með vesen enda vel ferskur og gaman að fást við,alla vegana á meðan hann er svona lítill:) Það gekk svolítið mikið á hjá okkur í dag en ég ákvað að fara með hann á lónseringarstaurinn og leyfa honum að pústa þar í nokkra hringi enda veitti honum ekki af að fá að sprikla því hann er gríðarlega kraftmikill og hraustur strákur. Ég gleymdi mér aðeins og lokaði ekki einu hliði og rölti út með hann.Í kaðli sem brennir hendurnar! Og Hrímfaxi tók þennan líka sprett og ég hékk í kaðlinum og vildi sko ekki missa hann enda ekki góð byrjun á tamningum. Kaðallinn reif og tætti upp á mér putta svo sá í kjöt en ég sleppti samt ekki.Á einhvern óútskýranlegann hátt myndaðist lykkja á kaðalinn í látunum og rann á undan brenndu hendinni og endaði sem hnútur á endanum!!! Og ég sem annars hefði misst folann rykkti duglega í og Hrímfaxi sveif uppí loft og fór í stórum boga aftur á bak og datt um koll. Þarna lá hann kylliflatur og þorði sig ekki að hreyfa og ég náði andanum og lokaði versta sárinu á puttanum og fann myndavélina í rólegheitum og smellti af honum þar sem hann lá dauðadæmdur á hliðinni blessaður. Síðan dró ég hann á hliðinni í snjónum hálfa hestlengd og fékk hann til að standa upp. Á staurinn fór hann og fékk ég að sjá hve fallega hann getur brokkað og hve langt afturfóta skrefið er í honum og flott fótlyfta. Þarna dunduðum við okkur þartil hann skildi hvað hann átti að gera og þartil hann gaf merki um samstarf og undirgefni. Ekkert mál var að teyma hann inn eftir þetta og þar fékk hann tuggu og var kembdur hátt og lágt á báðum hliðum. Hann er orðinn voðalega duglegur að standa bundinn en herra gúmmíkalli fékk hann að kynnast um daginn. Þar varð alveg gríðarleg orusta sem Hrímfaxi tapaði. Frábær hjálpartæki þessir gúmmíkallar:)Stórminnka álag á hálsliði og eins múla og bönd. Mér hefur gefist vel að hafa gúmmíkarl á lónseringarstaurnum líka. Einn daginn eignast ég hringgerði og get sleppt staurnum en það er mun auðveldara að nálgast trippin á þeirra tungumáli í hringgerði en á staur. Næsta skref verður að binda hann utaná Biskup og fara í labbitúr með þá.Mikið hlakkar mig til þess því það er svo gaman að vinna með ungviðið. Smá við bót við bloggið! 14.01.2008 15:01Busla aftur í aksjón!Ég er ekki fyrr búin að blogga um það að Busla sé komin á eftirlaun og annað kemur í ljós. Nú átti að ná "Ljóta"en það er orðið yfir Mink hér á bæ. Upp hófst mikill gröftur en Minkurinn var slóttugur og gaf hvorki frá sér hljóð né lykt og rann um allt undir fótum okkar og það var sama hve mikið var grafið hann var alltaf búinn að skjótast lengra og lengra í undirgöngum neðajarðar. Busla og Skvetta staðsettu hann aftur og aftur með gelti og eftir að við ákváðum að nú væri tímabært að nota ýlu og þá skaust kvikindið út og var þetta heljarinnar högni! Hebbi náði ekki skoti á hann fyrst og jörðin gleypti hann aftur og enn var grafið og pikkað og potað. Enn skaust hann upp og hundarnir alveg að missa sig á eftir honum og eina ferðina en náði hann að skjótast niður á milli steina í gamalli hleðslu. Ekki vildum við hrófla við henni enda afar flott gerð og búin að standa þarna frá örófi alda. Ég reyndi að pikka í Minkinn öðru megin frá með járnstaur á meðan hundarnir voru hinumegin alveg brjálaðir og geltu og geltu sem er merki um að Minkurinn sé beint við nefið á þeim. Enda endaði það með því að Tobba Anna fékk sitt fyrsta bit í nefið og kom út með skaðræðis góli! Hún var fljót að jafna sig á þessu og hélt áfram að gelta og á endanum gat ég rekið staurinn í Minkinn sem kom þjótandi útúr grjóthleðslunni og loksins kom Hebbi skoti á hann og hundarnir tuskuðu hann ljóta til í dágóða stund og eignuðu sér verkið:) Þarna var allt í fuglshræjum sem hann var búinn að draga að og troðast með í holurnar sínar. Það sem fer verst í mig hvað varðar Minkinn eru þessi endalausu dráp í dýralífinu sem þjóna litlum sem engum tilgangi. Minkurinn drepur sér til skemmtunar og safnar í holur sínar mörg hundruð fuglshræjum. Menn hafa grafið upp í kringum 600 Æðarkollur úr Minkagreni og þá voru þeir bara cirka hálfnaðir með að telja það sem eftir var! Minkurinn étur ekki nema brota brot af því sem hann drepur og get ég bara ekki vorkennt honum á okkar veiðum.Fyrir mér er hann réttdræpur alstaðar og eru veiðar á honum löglegar allt árið um kring. Veðrið er búið að vera dýrlegt síðustu dagana.Hrossin hafa náð að leggjast niður útí haganum og legið um allt steinsofandi og gaman að sjá þau njóta sín svona á þurri jörðinni. Við vinkonurnar af Suðurnesjunum fórum á knapamerkjanámskeiðið inní Víðidalinn til Sigrúnar Sigurðar og skemmtum okkur alveg konunglega og fannst mikið gaman. Reyndar var kannski ekki mikið gaman að uppgötva hve þollaus maður er á hlaupunum og flugu ýmsar hugsanir um kollinn á okkur á hlaupunum! Ég hugsaði um fyrst"eiga hestarnir ekki að hlaupa með okkur en við ekki með þá"! Svo fór ég að verða þreyttari þá kom"afhverju borðaði ég svona mikið um jólin"! Svo þegar að ég var við það að gefast upp"ég skal ekki verða sú fyrsta sem gefst upp"hehehehehehehehehehehe.............Djö......hafði maður gott af þessu:) Hrókur er að virka fínt á námskeiðinu og ég himinlifandi með klárinn.Ég þyrfti samt að laga til á honum toppinn (EKKI MEÐ SKÆRUM:) svo hann sjái mig á hlaupunum og sjái hvað ég er að gera og allar bendingarnar hjá mér.Hann verður að geta lesið mig einsog ég hann. Nóg bull í dag,allt á kafi í snjó og best að fara að galla sig upp og koma sér í verkin. Smá spurning til ykkar þarna úti! Er með kaupanda að móálóttu folaldi eða trippi (má kosta:)sem er hátt í blöbbinu og flottur gripur! Eigið þið eitthvað svoleiðis gott fólk??? Það vantar út til útlandanna. 10.01.2008 22:14Busla í dekri.........
Síðasti hvolpurinn hennar úr 9 hvolpagotinu var nefnilega að seljast og fer hann norður í Skagafjörð líkt og hann Máni bróðir hans gerði.Verða þeir tveir notaðir þar sama sem minkaveiðihundar. Máni er nefnilega farinn að sýna hvað í honum býr og er í algjöru uppáhaldi hjá sinni fjölskyldu. Máni og eigandi hans voru á labbinu og skyndilega sér eigandi Mána að hann var að snusa í einhverju og ekki að ræða það a hann hlýddi að koma. Eigandinn fór að aðgæta hvað hvolpurinn væri að gera og þá sér hann að hann er að hnusa í fuglshræi undir steini. Eigandinn togar í fuglshræið sem togar í á móti! Hann togar þá fastar og út úr holu kemur Minkur sem ekki vill sleppa feng sínum! Nú æsast leikar og eftir smá læti og hlaup þá nær hann skoti sem hæfir minkinn og Máni ekki nema 8 mánaða tók þátt í þessu öllu og hristi og tætti hræið og ætlaði aldrei að geta hætt að monta sig eftir fyrstu reynsluna á Minkaveiðunum. Núna er búið að panta hann Zorró norður en hann fer eftir cirka hálfann mánuð að læra listina að verða veiðihundur af Mána bróður sínum. Það er gaman að heyra af ánægðum hundeigendum sem hafa verslað hjá okkur hvolpa og þeir hafa lukkast svona vel. Aftur að Buslu dekurdollu. Við fórum í Keflavíkina í gær nánar tiltekið í Dýrabúðina og þar mátaði Busla hundabæli í gríð og erg.Við fundum bæli sem passaði hennar stærð og hægt er að taka áklæðið utanaf og skella í þvottavélina.Svakalega flott fannst henni og löngu tímabært að fjárfesta í svona löguðu handa fyrir Busluna.Súsý hvolpurinn hennar er nefnilega búin að hertaka hundstólinn framá gangi og síðan hún stækkaði svona mikið þá er erfitt fyrir þær báðar að liggja þar. Busla er svo mikil drottning að hún fær að koma inn og sofa í bælinu sínu fyrir framan svefnherbergis dyrnar hjá okkur.Þangað fá nú ekki allir að koma og vaninn hjá mér hefur verið að hafa hundana framá gangi eða helst úti í sérstakri hundagirðingu og í búrum inni á nóttunni þegar að þeir eru ekki í vinnu. Busla gleymir því ekki svo glatt hvernig hún var dekruð undir vökulum augum okkar á meðan hún stóð í fótbrotinu sem enn er ekki búið að sjá fyrir endann á. Jæja"ég fer alltaf út fyrir efnið sem ég er að skrifa hehehehe...... Busla mátaði líka hálsól og göngutaum í stíl með endurskini allan hringinn. Næst fórum við til Hrundar á Dýralæknastofu Suðurnesja í allsherjar læknisskoðun og einnig var fóturinn hennar röngen myndaður.Enn er ekki gróið fótbrotið og fleiri skrúfur að ganga út úr plötunni.Platan virðist líka vera heldur of löng og það gæti hugsast að hún sé að rekast í og meiða tíkina og hindra það að hún noti fótinn. Verst að vita ekki hvort hvort eða hversu mikið hún finnur til í fætinum sínum.Hún var sett í fyrra tímabundið á sterkt verkjalyf en það breyttist ekki mikið göngulagið og við gátum varla séð að hún notaði fótinn meira en vanalega.Hann er notaður til að klóra sér á bakvið eyra og svona spari spari þegar að hún fer hægt yfir. Þessir svokölluðu minkaveiðihundar eru alveg agalegir naglar þegar að sárssauka kemur. Buslan er komin á eftirlaun og á það sannarlega skilið.Nú verður hún í dekri í bak og fyrir enda afar auðvelt að hafa hana innandyra.Hún sefur 23 tíma sólarhringsins ef ekkert annað er í boði fyrir hana blessaða. 07.01.2008 14:36Hross sótt í ReiðholtiðÉg er farin að skammast mín fyrir að hafa ekki sett hér inn fréttir handa ykkur elskurnar mínar:) 3 Janúar. Er ekki best að byrja á degi í síðustu viku en það ringdi hreinlega eins og hellt væri í fötu og 20 metrar á sekúndu með. Dagskrá dagsins þann daginn var að ná heim aðalstóðinu og taka úr þeim hársýni til rannsóknar. Páll Imsland ásamt Freyju Imsland dóttur sinni voru hér mætt galsvösk.Allir drifu sig í kuldagalla og út fórum við. Ég náði merunum heim í hús með brauðmútum en allar voru þær á kafi í heyrúllum sem gefnar höfðu verið deginum áður.Ég segi nú bara sem betur fer þá er hægt að stjórna þeim með skrjáfi í plasti annars hefðu þær ekkert bifast frá heyinu. Næst voru tittirnir reknir heim og hársýni tekið úr þeim flestum.Aðallega vildi Freyja úr litföróttu hrossunum sem eru nokkur hér á bæ. Það var vægast sagt hundblautt fólk sem skreið inní bæ eftir þennan dag skal ég segja ykkur. 4 Janúar. Ég var svo spennt þennan dag því ég hélt að ég væri að fara á Knapamerkjanámskeið inní Víðidal næsta morgunn og gerðum við allt klárt og höguðum gjöfinni á öllum skepnunum hér samkvæmt því til að létta aðeins á deginum og frá smá "frí"part úr degi okkur til gamans. Þarna græddum við góðan dag og breyttum aðeins til og ákváðum að drífa okkur austur í Reiðholt og ná í 4 hross sem þar hafa beðið í allt haust eftir því að vera sótt. 5 Janúar. Við brenndum austur um morguninn og byrjuðum á því að hitta góða vini okkar á Hellu þau Huldu og Helga hjá Helluskeifum. Mikið var gaman að koma í hesthúsið hjá þeim og hitta "barnabörnin" í formi hrossa:) Ég get svo svarið það að trippið er langt yfir 1.50 á herðakamb!Hann er stærri en Dropi Litlu-Lappar /Hróksson sem er monster í hestlíki! Næst var farið í Reiðholtið og var nóg að flauta með bílflautunni á hrossin en okkar hross þekkja bílinn og vita að það er alltaf eitthvað gott sem hlýst af því að koma en í dag voru það salsteinar í kassann þeirra sem var vel þeginn. Hrossin eru öll vel feit eftir allann veðurbarninginn í haust en hnjúskar eru í sumum þeirra þrátt fyrir gott fitulag.Þau hafa varið sig misjafnlega vel og þau sem hafa lagt af (eru samt feit) eru með hnjúska en önnur sem hafa verið akfeit hafa varið sig alveg af hnjúskum. Jafnvel tveggja vetra trippin líta mjög vel út og kom það mér verulega á óvart! Reiðholtið er mjög góð hestajörð,mikið gras og skjólgott frá náttúrunnar hendi EN eina sem vantar er aðhald til að ná styggu trippunum sem ég asnaðist til að setja þarna í vor.Þau þóttust ekkert við mig hafa að tala og undu bara snúðug uppá sig þegar að ég ætlaði mér að klófesta þau. Ég sótti Rjúpu Hróksdóttur og setti hana inná hestakerruna og á meðan Hebbi var að setja slána við hana þá beið ég með Feilstjörnu Nökkvadóttur tilbúna. Kemur ekki Sóley askvaðandi (hún átti að koma líka:)og reyndi að komast framhjá bóndanum en hann baðaði út öllum öngum og rak hana frá en ég sagði við hann að hún ætti líka að koma og um leið þá smeygir hún sér framhjá honum og stökk uppí hestakerruna!!!Snilld þessi hryssa:) Ég setti á hana múlinn uppá kerrunni og batt hana,svo kom Feilstjarna sem er bara tveggja vetra á þriðja og hegðar sér einsog tamið hross og síðast var settur hestur sem er nú bara óþekktarormur á leið í tunnu.Hann verður taminn með hníf og gaffli í vetur. Næst var brennt á Selfoss og þarsem ég má ekki sjá sjoppu eða eitthvað álíka þá var stoppað á Kentucky og fengum við okkur í svanginn. Þarsem nægur tími var enn og ekkert aðkallandi beið eftir okkur heima þá renndum við niður í Gaulverjabæ til Ragga Fashanabónda með meiru. Þar fengum við höfðinglegar móttökur og eftir að hafa skoðað þar húsakynni og fuglana í öllum regnbogaslitum var haldið heim með hrossin sem biðu þolinmóð á kerrunni. Við fórum fyrir skepnurnar í stóðhestahúsinu og gáfum fénu og héldum heim með hrossin og hýstum þau í heimahesthúsinu. Þegar að við vorum búin að raða þeim á básana þá sáum við hvað Sóley og Feilstjarna eru búnar stækka rosalega í sumar!!! Ég brá á þær (band)máli og eru þær báðar cirka 1.47 á herðakamb tveggja vetra gamlar! Sóley er afmynduð af spiki og ekki einn einasti hnjúskur í skepnunni.Spáið í þessu tveggja vetra flykki! Feilstjarna er með smá hnjúsk öðru megin við taglið.Þetta bráðmyndarlega trippi er til sölu Rjúpan mín var líka mæld og er hún 1.50 og má ekki stærri vera.Hún er hinsvegar búin að leggja af en er enn feit en það verður ekki settur á hana hnakkur um sinn vegna hnjúska. 6 Janúar. Í dag er búinn að vera alveg svakalegur gestagangur en flestir að fá að koma og njóta veðurblíðunnar og náttúrunnar. Silla og Nonni komu með krakkana sína og gott betur en það.Hjálparhendur/bak við að raka af 3 folöldum sem komu hingað fyrir rúmri viku en þau höfðu verið í hesthúsi þarsem aðbúnaðurinn var ekki alveg eins og gerist best. Við gáfum þeim ormalyf í annað sinn á stuttum tíma og nú ættu þau að blómstra og verða flott. 31.12.2007 20:39Gleðilegt nýtt ár elsku bestu ættingjar og vinir!
Árið 2007 er búið að vera viðburðarríkt en það sem verður manni mest minnistæðast eru veðurbreytingarnar sem hafa orðið. Haustið rigning og rok útí eitt.Og ekkert smá rok og rigning!!! Nú er bara að óska sér stillu og frosts svo hægt verði að hreyfa gæðingana utanhúss. Reyndar eru margir búnir að byggja sér Reiðhallir og gaman að sjá hve landinn er duglegur að bjarga sér og lætur ekki veðráttuna á sig fá. Þetta er stórt skref framá við hvað varðar frumtamningar á hrossum en útlendingurinn hefur talið Íslendinginn kolbrjálaðann að fara á hrossin LAUS og ríða svo bara blint útí náttúruna.Snarvitlaust fólk á þessu skeri:) Gestagangur hefur verið mikill á þessu ári bæði menn og skepnur rennt hér í hlaðið bæði til lengri og skemmri dvalar.Takk allir fyrir innlitið og útlitið:) Í fyrradag fór hann Dímon Glampasonur vinur minn að Borg til Elku og Jóa í tamningu.Siggi eigandi hans var að gantast með það að hann þyrfti að yngja upp! Sama dag komu Hulda Geirs og fjölskylda í heimsókn en Felix er í þeirra eigu og í geymslu í Öryrkja hólfinu svokallaða. Með þeim var sonur þeirra sem verður að öllum líkindum líffræðingur eða eitthvað því skylt. Hann varð að fá að sjá innum allt og svo þegar að hann var að skoða fiðurreytingarvélina þá varð honum að orði"Ransý hvers vegna þarftu að drepa svona margar Endur? Fjúkið hægt um gleðinnar dyr og rignið ekki niður í næsta ræsi elskurnar mínar.Eigum við ekki að óska okkur betra veðurs á næsta ári:)!? 27.12.2007 23:07Jólasnjór og glens í stóðhestunum:)Enginn fór í jólaköttin hér á bæ enda yrði sá köttur ekki langlífur hér ef að Busla og hinar tíkurnar fengju ráðið einhverju um það. Útigangurinn fékk heyið sitt,kanínurnar heyið og kornið sitt,fuglarnir brauð og korn og nú nenni ég bara ekki að tuða þetta áfram en semsagt allir voru/eru saddir og sælir. Loksins kom snjórinn sem er alveg ómissandi á þessum árstíma.Mikið betra að hafa hann heldur en þetta eilífa rok með úrhellisrigningu. Það var soldið flott að sjá stóðhestana ösla útí snjóinn en þeir þurftu að hafa fyrir því og ætluðu alveg að gugna að fara yfir skaflana hehehehehe.........En yfir þá fóru þeir. Dímon Glampasonur er að fara frá Ransý "ömmu" en hann er að fara í tamningu og nú hefst alvaran hjá kalli fyrir alvöru.Það verður spennandi að vita hvernig hann kemur út og vonandi fær maður fréttir af honum reglulega:) Í dag hefur verið gestagangur einsog venjulega en samt var þessi gestagangur ekkert venjulegur því í eitt skipti þegar að bankað var og Hebbi fór til dyra þá heyrði ég rödd sem ég kannaðist svo við! Þessa rödd átti ég að þekkja en hana hafði ég ekki heyrt lengi!Eða í ein 5 ár! Ég sagði ykkur frá því að ég ásamt tveimur vinkonum af Suðurnesjunum erum að fara á knapamerkjanámskeið 1-2 kannki 3 ef við verðum duglegar (erum að vonast til að geta spýtt í lófana og skyrpt úr hófum:) Ég náttúrulega er búin að leggja á Biskupinn og máta hvort ég kemst á bak "vitlausu" megin og auðvitað gat ég það en fæ kannski ekki alveg 10 í einkunn hehehehehe..... Hrókur slapp við þessar æfingar hjá mér í þetta sinn en næst verður hann tekinn og látinn æfa það sem hann kann en ég var að spá í að fara með Biskupinn stóra bróðir Hróks á námskeiðið en held að hann henti kannski ekki alveg þó hann kunni nú helling af þessum krúsindúllum öllum.Hann er skapmeiri og erfiðari en Hrókurinn. 24.12.2007 14:37Gleðileg Jól elskurnar mínar!
Ekkert stress á hlutunum og við búin óvanalega snemma að öllu sem heitir gjafainnkaup og matarinnkaup. Við ákváðum að gefa út daginn fyrir Þorlákssmessu og það aðeins ríflega enda öll hross komin á fulla gjöf og ekkert því til fyrirstöðu að gefa þeim vel að borða. Annars var ég að lesa pistilinn hans Magga Lár um Jólamat Skjóna Þannig að nú er um að gera að missa sig ekki í góðmennskunni við dýrin okkar heldur halda sama takti í fóðruninni en smá brauðmoli gerir nú kannski ekkert til svo okkur líði nú kannski betur hehehehehehehe..... Því er nefnilega þannig farið með okkur mannfólkið að við erum að þessu aukadekri oft við dýrin svo OKKUR líði nú betur:)Hmmmm......hér tala ég af eigin raun:) En nú eru Jólin að bresta á og ég er himinlifandi með þessa snjóföl á jörðinni og vonast til að hún haldist aðeins lengur og rigni ekki burt. Jæja elsku blogglesendur mínir,nú er um að gera að setja jólalögin á og byrja að stússast í matnum og pakka inn restinni af gjöfunum.Það ætla ég að gera. Kallinn ætlar að fara í útiverkin að gefa kindunum,kanínunum, Eigið frábær Jól með ástvinum ykkar,ættingjum og vinum. 18.12.2007 14:17Veður að skána og allar kindur fengnar 15 desember (Vonandi:)
Súsý litla hvolpurinn hennar Bulsu er hin mesta veiðkló og er einsog köttur.Kemur með mýsnar inn og færir mér hróðug.Hún er svo asskoti snögg sú litla að sneggra hundkvikindi hef ég ekki kynnst.Hún verður góð einn daginn í minknum. Gleymdi alveg að segja ykkur frá því að Súsý og Busla náðu loksins villikanínunni sem var hér í allt haust. Nú er maður að setjst á skólabekk takk fyrir.Fékk bækur að glugga í og er bara búin að lesa eina tvær blaðsíður og fyrsti tími er í kvöld! Hitt á það til að fara innum eitt og útum hitt ef ég segi nú ykkur bara einsog er:) Farin út að reyna að gera eitthvað fyrir skepnurnar á bænum,ekki keyra þær sjálfar rúllunum í sig eða bera undir sig spænirnar:) 14.12.2007 01:00Klikkað veður og allt á hvolfi!Veðurfréttir úr Ásgarðinum og tjónaskýrsla! Mér er svo mikið niðri fyrir núna að puttarnir virka varla á lyklaborðinu! Í gær þann 13 des þá ákvað ég eftir vægast stormasama nótt að fara út og skoða skemmdir hjá okkur.Ekki var spurning um hvort eitthvað hafi skemmst heldur hvað. Eftir að hafa skoðað gróðurhúsið og íbúðarhúsið sem stóð þetta af sér allt saman þá var haldið niðureftir til að kíkja á hesthúsið.Þar var hurð kengbogin inn og stórir timburflekar sem hafa verið geymdir hér árum saman á vagni voru einsog tannstönglar um allt hlaðið! Næst var að aðgæta skepnurnar og var allt í stakasta lagi í hólfinu fyrir eldri hross og minnimáttar:) Tittirnir voru í fínu standi enda með afbrigðum skjólgott hólf sem þeir eru í. Sömu sögu var ekki hægt að segja af aðalstóðinu en þar voru tvær hryssur sem höfðu orðið að öllum líkindum fyrir einhverju í veðurhvellnum eldsnemma í morgun. Í nótt var svo brjálað veður að ég hreinlega vaknaði um 6:00 og gat ekki sofnað aftur fyrr en seint og síðar meir.Ég hélt að rúðan á svefnherberginu ætlaði að springa yfir okkur svo mikil voru lætin.Enda frétti ég að því að í verstu hviðum (uppá Keflavíkurflugvelli) hafi vindurinn farið í 71 metra á sekúndu!!!! Á morgun á að drífa út traktorinn og gefa rúllu á línuna og svo verða aumingja hrossin að koma sér í skjól fyrir næsta hvell.Best að koma einhverju í greyin á milli lægða en eina leiðin til að fóðra þessa dagana er að rúlla út rúllu og láta þau éta hana þannig að allir fái í sig. Helga Skowronski kom hingað um daginn með næstum fullan vörubíl af önduðum öndum.Þær önduðust í höndunum á Ásgeiri hennar manni um morguninn og nú var komið að okkur að reyta og plokka og gera þær að flottum jólasteikum:) Allt gekk þetta vel hjá okkur og alveg vorum við merkilega fljótar að þessu.Það ýtti kannski á okkur að litlan hennar hún Gígja var með og var sú stutta ekki alveg að átta sig á því að mamman hennar gat ekki haft hana í kjöltunni og gefið henni sopann sinn á meðan hún var að reyta endurnar:)Helga er svo mikil hetja að vera mjólkandi móðir með ungann sinn með í öllu mögulegu. Eftir að hafa reytt og gert að öndunum þá klikkti hún út með því að prófa fyrir mig,gömlu stirðu konuna móálótta hryssu sem mér áskotnaðist í fyrra:)
Ég er ekki sátt við sjálfan mig núna.Finnst ég vera að stirðna meira en vanalega þrátt fyrir fínu gigtarlyfin sem ég er á.Ég er ekki mikið fyrir pillur en verð að nota þær því annars kæmist ég líklega ekki útúr rúminu. Eða þannig var það á tímabili á meðan ég var ógreind og ég ekkert að pæla í því hvers vegna ég var svona í bakinu.Hélt bara að svona ætti þetta að vera þegar að maður eltist og að allir væru svona. Það er svo mikið gigtarslit í mér vinstra megin í mjaðmagrindinni að það er heilt kvalræði ef ég gleymi að taka lyfin mín. Nú ef ég tek lyfin og allt er einsog það á að vera þá er ég fljót í fimmta gírinn og gleymi mér þá stundum og enda á kvöldin einsog spítudúkka. Ég er að reyna að læra að gíra mig niður og vinna jafnar yfir daginn og komast yfir öll verkin í rólegheitum. Djö.........er erfitt að sætta sig við að geta ekki gert allt einsog maður gat fyrir einhverjum árum! Hugurinn stefnir alltaf í að gera einsog þá og skrokkurinn reynir að fylgja hlýðinn eftir þartil maður getur ekki meir. Ussssssssss...........hver nennir að lesa svona vælublogg! Best að skella inn hestamyndum af hrossunum síðan 13 Desember
|
Um mig Nafn: Ingibjörg Rannveig Ingólfsdóttir (Ransý)Farsími: 869-8192Tölvupóstfang: ransy66@gmail.comAfmælisdagur: 25 JúlíHeimilisfang: ÁsgarðiStaðsetning: 250 GarðiHeimasími: 422-7363Önnur vefsíða: http://www.123.is/kaninur/Um: Ég er með hestabakteríuna ógerlegu einsog svo margir aðrir.Náði mér í bónda og fór að búa með honum Hebba mínum í Ásgarði 1998.Muna að kvitta í gestabókina!Njóttu.Bankanúmer: 0157-05-400339Tenglar
Eldra efni
|
© 2023 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is