Heimasíða Ásgarðs

21.07.2011 10:32

Embla frá Sjávarborg og folald til sölu/for sale


Embla er seld/sold!


IS2003257248  Embla frá Sjávarborg

 er til sölu ásamt hestfolaldi.


Verð saman 100.000-

Prize for both together 600-EUR.


Ætt Emblu:

Faðir:Kjarval frá Sauðárkróki

Móðir:Katla frá Sjávarborg


Ætt hestfolaldsins:

Faði: Boði frá Múla

FF:Roði frá Múla


Embla er bandvön og hefur verið á húsi.

Frekari upplýsingar í netfangið


ransy66@gmail.com

21.07.2011 00:15

Heyskapur og brakandi þurrkur


Það er brakandi blíða og við á fullu í heyskap.

Fyrst gekk þetta hálf brösulega,sprakk á tætlunni okkar og þá fengum við lánaða tætlu hjá nágrannanum og tókst mér að missa hana aftanúr traktornum á ferð!

Rosalega brá konunni!

Sem betur fer þá varð ekkert tjón á tætlunni og málunum reddað hið snarasta.

Svo sprengdi ég einnig dekk á lánstætlunni og það kom svo rosalegur hvellur að ég missti næstum heyrnina á öðru eyra restina af deginum.

Kallinn var líka að tjónast með sláttuvélina og var hann meira og minna með hana inná verkstæðinu.Svo loksins þegar að við vorum tilbúin að rúlla og pakka þá fór þetta að ganga einsog smurt og rúlluðum við Móhús,Nýja-Bæ,Móakot og Meiðastaði og virðist sem heyfengur sé mjög svipaður og í fyrra.Á morgun á að rúlla Kothús og Rafnkelsstaði og svo á að fara að rigna sem betur fer.Hér er allt að skrælna og beitarmál í miklum ólestri en gróður kemst bara ekki upp vegna þurrka.

16.07.2011 12:59

Gulltoppur frá Ásgarði til sölu/for sale





IS2010125870 - Gulltoppur frá Ásgarði

F:Hrókur frá Gíslabæ

FF:Kormákur frá Flugumýri II
FM Best frá Brekkum 2

M:Freisting frá Laugardal

FF:Sörli frá Stykkishólmi
FM:Kvika frá Hvíteyrum

Gulltoppur er A vottaður

Verð/price 300.000- ISL 1.800-EUR

More info at stormhestar.de

For further information please contact
ransy66@gmail.com 

10.07.2011 22:45

Gróðrastöðin Glitbrá í dag:)



Ég skrapp til Ásu í Gróðrastöðina Glitbrá í Sandgerði
í dag að kíkja á blóm og matjurtir og var með cameruna með mér.

Þarna gerði ég góð kaup í vor þegar að ég var að starta matjurtaræktuninni í fiskikörunum en moldina verslaði ég þar,fræin og ýmislegt fleira og í dag kom ég heim með fullan bíl af matjurtum en ég klikkaði á að forrækta meira því sum körin eru að losna og um að gera að nota sumarið í að rækta eitthvað grænt og hollt:)

Dúfa með nýuppteknu grænmeti úr Ásgarðinum.

Ofurradísurnar vega allt uppí tæp 150 grömm stykkið!

Málið er hjá okkur að rækta allt sem á diskinn fer og ekkert minna!


Úrvalið í blómunum hjá Ásu er geggjað og ég missti mig alveg á camerunni og hér er afraksturinn!

Dvergtópakshorn

Flauelsblóm

Milljónbjalla

Skjaldflétta

Bláhnoða

Nellikka

Flauelsblóm

Brúðarstjarna

Og hvað skildu nú öll þessi fallegu blóm heita?

Takk fyrir öll nöfnin á blómunum stelpur!

05.07.2011 02:07

Hylling köstuð 4 Júlí



Hylling Brúnblesadóttir kom með þessa líka fínu Hróksdóttur handa kallinum og gladdist hann mjög yfir nefskrautinu á þeirri stuttu.

Hrókur er einlitur og Hylling er með pínku ponsu litla stjörnu í enninu.

Þetta hefur verið nóg til að setja þessa líka fínu nös á folaldið.
Hryssan litla er flott og móðirin er hæst ánægð með folaldið sitt og vonandi að það verði brattara en folaldið hennar frá í fyrra en það drapst vegna hestapestarinnar orðið nokkurra vikna gamalt.

04.07.2011 19:08

Sif köstuð 3 Júlí



Sif kastaði 3 Júlí klukkan 02:40 nákvæmlega niður á bakka og allt leit vel út en ég horfði á það gerast í kíkinum útm gluggann.


Eina sem ég sá var að folaldið virtist vera lítið en það stóð upp eftir að hafa oltið um koll nokkrum sinnum sem er nú bara eðlilegt hjá nýfæddu folaldi.

Næsta dag þá fór ég niður eftir að kyngreina og taka myndir einsog venjulega en sé þá að þetta folald var ekki alveg í lagi.


Sú stutta er minni en venjulegt nýfætt folald,fætur voru gleiðir og gekk hún um í hringi og hallaði undir flatt.


Annað augað var aðeins bólgið.

Hún var greinilega búin að fá vel af mjólk og var með mjólkurskegg og var hlýtt.

4 Júlí

Hebbi fór niður á bakka í dag til að athuga með folaldið en þá hafði það skrúfast á eftir móður sinni í hringi og endað í grjótvarnargarðinum og var Hebbi í svolitla stund að finna það.

Það lá í hnipri á milli steina og hélt kallinn eitt augnablik að það væri dautt en svo þegar að hann tók það upp þá lifnaði yfir því.

Hann lagði hana niður fyrir framan mömmuna og eftir innan við hálfa mínútu var sú stutta komin á fætur og brölti á spenann.

Mjólkin flæddi úr merinni og yfir allt andlitið og uppí augað á því en hún saug spenann sem var fjær fyrst litla skinnið:)

Ég fór niður á bakka seinnipartinn í dag og var hún þá að drekka úr mömmu sinni og svo lagðist hún niður og vildi ekkert við mig tala.
Ég reyndi að koma henni á fætur til að sjá hvernig hún hreyfði sig en hún bara lét sem að hún tæki ekki eftir mér enda sofnuð og vildi ekki láta trufla sig eftir sopann sinn.


Hún er greinilega búin að fá vel af broddmjólk sem er henni mjög nauðsynleg í þessm veikindum en það leynir sér ekki á broddskitunni.

Hún gengur beinna í dag og er það í rétta átt.

Ég er búin að tala við dýralækna og búið er að tala við þá hjá Keldum en ég vil að það verði tekin sýnataka úr folaldinu hið fyrsta svo hægt sé að negla niður hvað sé að ske.

Þetta er ekki fyrsta folaldið sem svona fæðist á Íslandi í vor og ætla ég að blogga um málavöxtu þrátt fyrir að margir séu á móti því vegna slægrar sölu en betra er að finna strax hvað er að svo hægt sé að tækla hlutina núna og bjarga folöldum í sumar með lyfjagjöf ef hægt er en ég veit að það er hægt.

Ég frétti af folaldi í dag og fékk sendar myndir af því frá Danaveldi en það folald var flutt út í móðurkviði frá Íslandi í fyrra og fæddist með mjög svipuð ef ekki eins einkenni og folaldið hér á bæ.

Tenór sonurinn útí Danmörku

Með snarræði og frábærri umhyggju tókst að bjarga því folaldi en það kostaði líka ofboðslegar fjárhæðir.

Folöld eru að drepast úr þessu fullyrði ég og veit og ætla ég ekki að segja hvað mig grunar að þetta sé til að valda ekki múgæsing en bið fólk um að veita eftirtekt nýfæddum folöldum sem að virðast fæðast lítil,ganga skrykkjótt og halla undir flatt.

Læknar tala um heilbjúg/heilahimnubólgu en það poppar nú ekki bara sísona upp á milli þúfna útí haga heldur er það líklega afleiðing af veikindunum sem skall hér á hrossastofninn í fyrra.

Hann má skammast sín sá sem að varð valdur af því að bera þetta inní landið.

Ég er reið,ekki bara útaf mínu folaldi heldur öllum folöldum sem eru að fæðast dauð/veik núna í vor og sumar!

Framhald á morgun...........

6 Júní

Litla Skjóna er komin á sterka pencillín gjöf og tekið var saursýni og sýni úr nösum en þau eru farin til rannsóknar innað Keldum.

Batinn er hægfara í rétta átt en nú vonast ég að hún fái bata spark í litla rassinn sinn við pencillínið.

Litla Skjóna fékk broddskitu ræpu á háu stigi og tapaði miklum vökva en var sem betur fer mjög dugleg að drekka og Sif mamma alltaf með fullt júgra af móðurmjólk/broddi.

Nú er hún orðin 3 daga gömul en eftir cirka viku byrjar móðir hennar í hestalátum og þá má ég eiga von á því að Litla Skjóna fái meiri niðurgang en það er ansi algengt í kringum 7-10-14 daga aldurinn hjá folöldum.

Ég er búin að vakta folaldið til 06:00 á morgnana og hef þurft að stökkva út af og til þegar að hún er búin að koma sér í ógöngur.


Þarna var hún búin að koma sér í klandur og þekkti ekki leiðina upp.

Það er ekki viðlit fyrir mig að hafa mömmuna fjarri stóðinu en hún fer í feita fýlu og hangir við girðingarnar og auðvitað er Litla Skjóna með henni og ekki lengi að skrúfast í hringi og í gegnum girðingarnar og svo kemst hún ekki tilbaka.

Ég meira að segja reyndi að hafa Skjónu og hennar folald með þeim inná túni en það endaði allt í logandi slagsmálum.

Það var bara heppni að sú litla varð ekki undir í látunum!

Þannig að þær mæðgur fengu að fara aftur niður á bakka en nú er Litla Skjóna farin að verða duglegri að ganga beint af augum og fylgir mömmu sinni miklu betur.

Á morgun tek ég þær heim og set í annað hólf ásamt Emblu systur hennar Sif og vonandi mun það ganga upp.

9 Júní


Litla Skjóna er blind......:(

Mig var farið að gruna þetta fyrir einhverjum dögum en núna er ég alveg viss.
Ég setti keðju á múlinn hjá Sif mömmu svo að Litla Skjóna vissi betur hvar mamma sín er stödd í haganum.

Henni gengur vel að nema hljóð en er samt óörugg og tryllist ef að hún heyrir í vinnuvélum nærri sér og öðru þvíumlíku og er alveg sorglegt að sjá hana bruna á skeiði og stökki áfram staurblinda og lenda svo á giðingunum.

Við gerum ekki annað en að hafa auga með henni og stundum kemur það fyrir að við verðum að sækja hana þegar að hún er búin að troða sér útúr hólfinu.

Ég tók rafmagnið af girðinunum hér þegar að Litla Skjóna fæddist og eru hin hrossin við það að átta sig á því.

Góðu fréttirnar  af Litlu Skjónu eru semsagt þær að hún er ekki lengur með niðurgang-er að verða kraftmeiri-drekkur mjög vel og ég sá til hennar um daginn þarsem hún var að reyna að leika sér í kringum mömmu sína.

Leiðinlegu fréttirnar eru auðvitað þær að hún er blind-er komin með brakhljóð í öndunnarfærin-hor lekur úr nösum-mjólk lekur líka úr nösunum og útlit fyrir gott líf þverrur með hverjum deginum sem líður.

Pencillín fær hún í stórum skömmtum en það gerir sitt gagn en lagar ekki blinduna eða það stórefa ég.

Það er gustukaverk að fella þetta grey en ég ætla samt að fá álit dýralæknis áður en það verður gert úr því Litla Skjóna er enn að braggast í rétta átt hvað varðar þrek og styrk en hún er að verða erfiðari og sterkari eftir því sem dagarnir líða og ekki auðvelt að gefa henni pencillínið nema með hjálp.



30.06.2011 22:23

Eðja köstuð 30 Júní


Eðja með Astró soninn

Eðja kom með strák undan Astró frá Heiðarbrún handa okkur í ár og ef ég er ekki alveg galin þá gæti þetta verið litföróttur strákur en við skulum bíða og sjá til þartil folaldahárin fara að falla af honum síðar í sumar.


Hún er alltaf jafnstygg og hrædd við allt fyrstu dagana en mér tekst nú alltaf að fikra mig að henni og tala hana til þartil ég næ taglinu upp á folöldunum til að kíkja á kynið.

Eitthvað var að trufla Eðjuna en það var nú bara kallinn í regngallanum hehehehe........:)

Reyndar treystir hún mér ágætlega síðan ég hjálpaði henni með hann Óðinn litla fyrir nokkrum árum en hann óx of skart í móðurkviði vegna offóðrunar á merinni að það kom svo mikil beygja á hrygginn á honum að merin var alveg dauðuppgefin við að koma honum í heiminn.

Ég var í fleiri klukkustundir að koma honum á spena því hann var alveg í L.
Ég varð að styðja við aðra hliðina á honum á meðan að hann stóð og teygaði í sig fyrstu móðurmjólkina en það fékk hann ekki fyrren Eðja var farin að skilja að ég var að hjálpa henni en ekki taka af henni folaldið.

Stóðið var svo spennt yfir þessu og virtist skynja að eitthvað var að.
Hrókur stóð sig vel og reyndi hvað hann gat til að stugga hinum hryssunum frá á meðan ég kom Óðinn litla á fætur.

Það var frábær tilfinning þegar að Eðja skildi að við tvö vorum að hjálpa henni en ekki öfugt og Hrókur stóð á milli stóðsins og okkar þriggja og varnaði forvitnum hrossum aðkomu að okkur.
Vanalega stendur hann vörð á meðan að hryssurnar kasta en þarna var hann aðeins ákveðnari en venjulega.
Gaman að kynnast og þekkja einstaklingana í stóðinu sínu og finna traustið sem myndast og eflist ár frá ári.



29.06.2011 03:01

Váli í húsnotkun og gengur vel


Steinsofnuð eða hvað...........:)?

Hér eru mörg störfin og verkin sem vinna verður og er eitt af þeim að halda gestahryssum á húsi en Váli hefur verið að sinna sínum skyldum og gengur það bara ágætlega.


Ég tók frá honum tvær folaldshryssur í fyrradag og sótti tvær ungar dömur þær Himinglævu frá Ásgarði og Kapellu frá Katanesi.

Himinglæva var að seljast út til Þýskalands og vildi kaupandinn hafa með í pakkanum litafolald og valdi Vála sem vænsta kostinn af þremur mögulegum kostum.

Hrókur hefði sett í hana einhverja af þessum hefðbundnu litum og svo er hann Astró frá Heiðarbrún hér í pössun en hann hefði nú getað gert eitthvað sniðugt.
En Váli hafði vinninginn og þar verða litatúpurnar notaðar villt og galið:)

Laust er undir Vála ef áhugi er og kostar tollurinn 20.000-

Hér er rok og þurrt en veðurfræðingarnir lofa öllu fögru um helgina en þá eigum við að fá rigningu .....LOKSINS!

25.06.2011 13:44

Sauðburði lokið endanlega:)


Sóley frá Stað og dóttir.

Lengi er von á einum segir orðatiltækið en hér fæddist lamb "óvænt" þann 15 Júní.


Við fengum gefins kind í vetur sem að sónaðist tóm og átti að fella.

Ákveðið var að geyma hana og skíra hana Sóley en hún er áberandi gul blessunin og fallega feit er hún.

Ég margtók undir hana í vor en var ekki viss,júgrað var frekar stórt en gat hafa verið fitujúgra enda kindin mun feitari en hún Hermína okkar sem hefur slegið hér öll met í holdafari og áti.

Sóley var svo sett út með hinum kindunum og var ég með annað augað á henni og svo var hún komin einn daginn þegar að ég kallaði í þær í brauðið með pínkulítið lamb (miðaða við hin lömbin:)en sú stutta var gripin og bólusett,sprautuð með Selen,vigtuð og mörkuð.

Hún er flottur einlembingur 5.5 kg.

Hér er allt að skrælna úr þurrki og veðurblíðan að drepa mann dag eftir dag.

Það sprettur ekkert að ráði og hagarnir eru að reyna að kreista upp stráin en það gengur hægt.

Það sárvantar hér rigninguna en það er ágætlega hlýtt eða damlar í tveggja hita tölum dag eftir dag með logni og eða gjólu.

Við fórum með 15 kindur með lömbum og tvo hrúta þann 20 Júní  uppí sumarhólfið sitt sem er ágætlega sprottið enda vel áborið og friðað alveg framtil 10 Júní í ár.

Heima erum við með 4 kindur sem við viljum hafa nærri okkur og hygla en það eru þær:

Fröken Spök með Litlu Svört sem að fótbrotnaði og systur hennar.

L-Svört sem vóg ekki nema 900 grömm þegar að hún fæddist en er komin yfir 10 kg núna:)

Sóley með litlu gimbrina sína síðbornu.

Forysta með sína þrílembinga stráka.

Og Sibbu Gibbu  þrílembingar,tvær gimbrar og einn hrússi.

23.06.2011 14:30

Váli að verða verkefnalaus


Váli frá Ásgarði IS2009125861 A vottaður.
F: Hrókur frá Gíslabæ (A 7.66 B 7.95 H 7.47)

FF: Kormákur frá Flugumýri(A 8.30 B 8.23  H 8.37)

FM: Best frá Brekkum 2

M: Eðja frá Hrísum 2

MF: Hrókur frá Stærri-Bæ ( A 8.01 B 8.18 H 7.89)

MM: Kvika frá Hrísum 2

Váli sýnir allan gang og er með góð gangskil. Lundin er traust og yfirveguð. Folinn er orðinn gríðarlega stór aðeins tveggja vetra og þroskast mjög vel. Váli tók fyrstu meðhöndlun vel og var auðveldur að eiga við í allri frumvinnu.
Váli frá Ásgarði verður verkefnalaus eftir cirka 10-14 daga,ef einhver vill fá lánaðann vindótt/litföróttan tveggja vetra fola í nokkrar merar þá er hann laus og liðugur og til í tuskið.Hann er þægilegur við að eiga,virðir girðingar enda alinn upp í góðum rafgirðingum.
Get tekið hann aftur snemma tilbaka.
Ransý 869-8192 eða senda skilaboð:)

21.06.2011 14:50

Stórstjarna köstuð 21 Júní


Stórstjarna og Hróksson:)

Stórstjarna kom með rauðblesóttan Hróksson en núna virðist sem að strákastrollan sé að koma útúr hryssunum hér á bæ.

Hann var svo nýkominn í heiminn þegar að við komum niður á bakka að hann var ekki enn kominn á spena og alveg rennandi blautur í norðangarranum.

Það kólnaði skyndilega þetta kvöld en hér hefur verið blíða og sólskin dag eftir dag og nánast logn alla daga.

Rigninguna vantar algerlega en úthagar eru að verða ansi þurrir og mesta furða hvað grasspretta er í þessum þurrki.

Það væri alveg eftir því að það fari að rigna þegar að heyskapur hefst!

15.06.2011 20:09

Hrókur og Váli komnir í merar


Spennan að verða óbærileg hjá Hróksa.......:)

Hvar eru dömurnar:)?

Hrókur var settur í merar í dag og var hann mikið kátur að komast loksins út á græn grös.

Þetta er rétta lyktin:)

Ég var ekki síður glöð enda leiðinlegt að loka þessi grey inni á vorin en veður hefur ekki verið spennandi og allt skeður miklu seinna en í venjulegu árferði.

Stórstjarna tók smá dans.

Hryssur á mínum bæ halda folöldunum sínum í sér eins og þær geta,gróður er seinn til og  meira að segja kanínurnar halda í sér ungunum lengur en vanalega sem er MJÖG óvenjulegt!

Hrókur gat ekki minni verið og missti sig í ræl og tjútt....

Fuss og svei...engin dama í látum hér.....ég er farinn....!

En loksins fyrir 3-4 dögum tók gróður verulega góðann kipp og það liggur við að maður sjái grösin stækka.

Váli fór einnig í sínar merar og er laust undir hann og kostar tollurinn 20.000-.

Einum tolli er óráðstafað undir Hrók frá Gíslabæ og er ekkert mál að bæta við hryssum í hólfið hans og kostar tollurinn 35.000-

ransy66@gmail.com

Myndataka Íris:)

09.06.2011 19:56

Mön köstuð 9 Júní


Fyrsta Hróksfolaldið í ár mætt á svæðið og er það enn ein hryssan og sú fjórða í röð.

Að sögn litaspegúlanta þá eru yfirgnævandi líkur á að folaldið sé litförót en ég sé það ekki fyrir víst fyrren hún fer að fella folaldahárin seinna í sumar.

Og einsog altaf með folöldin undan Hrók og Mön þá er þetta folald lofthátt og fallegt.

Það er alveg undravert hve vel þessi tvö parast saman og gaman að sjá hvað þau koma altaf með flott folöld.

Tvær alsystur þessarar jörpu hafa verið í úrslitum á folaldasýningum,Hefring frá Ásgarði varð í 3 sæti á folaldasýnginu hjá Mána og alsystir hennar Völva frá Ásgarði varð í 1 sæti á folaldasýnignu útí Sviss og var dómarinn voðalega skotinn í henni þar.

Sú jarpa fer fljótlega á sölulistan en ég verð að ná betri mynd af henni þegar að hún fer að rétta úr sér og þora að fara aðeins frá mömmu sinni en þau hanga alveg föst í pilsfaldinum á mömmunum fyrstu dagana og erfitt er að ná góðum myndum af þeim svona nýjum.

08.06.2011 00:52

Litla Löpp köstuð 5 Júní


Bleikálótt Astró dóttir og er það þriðja folaldið í ár og allt merfolöld:)

Litla Löpp hefur altaf sama háttinn á eftir að við hættum að opna bakkann svokallaða fyrir fylfullu hryssurnar í byrjun maí.

Hún veður meðfram girðingunni alveg brjáluð og reynir allt hvað hún getur til að komast niður á bakka en þar er stór laut sem að hún hefur notað sem skjól á meðan hún er að kasta.

Þessi laut er afar vinsæl og þykir hryssunum hér á bæ súrt að þurfa að kasta inná túni þessi síðustu ár eftir að ég breytti beitarfyrirkomulaginu hér.

En svona er nú lífið og ekkert annað í boði en að láta sér það nægja en bakkinn þarf á friðun að halda eitthvað frammí Júní svo að hann sé þokkalega vel grösugur til að taka á móti þeim með folöldin sín og stóðhesti.

Um mig

Nafn:

Ingibjörg Rannveig Ingólfsdóttir (Ransý)

Farsími:

869-8192

Afmælisdagur:

25 Júlí

Heimilisfang:

Ásgarði

Staðsetning:

250 Garði

Heimasími:

422-7363

Um:

Ég er með hestabakteríuna ógerlegu einsog svo margir aðrir.Náði mér í bónda og fór að búa með honum Hebba mínum í Ásgarði 1998.Muna að kvitta í gestabókina!Njóttu.

Kennitala:

250766-4839

Bankanúmer:

0157-05-400339

Tenglar

Fána teljari

free counters

Eldra efni

Flettingar í dag: 243
Gestir í dag: 18
Flettingar í gær: 2545
Gestir í gær: 25
Samtals flettingar: 294042
Samtals gestir: 33731
Tölur uppfærðar: 16.4.2024 15:44:24