Friðrik Benónýsson frændi skrifaði þetta aftaná myndina.
Þuríður Benónýsdóttir sitjandi t.h hinar að líkindum samverkakonur í Viðey.
Sit
og skanna inn löngu látið fólk á gömlum myndum. Aftaná sumum þeirra er
texti og má líkja þeim myndum við andlitsbók þess tíma en það tók aðeins
lengri tíma þá að skrifa texta og senda hann með myndinni svo til
viðkomandi og fá svo fréttir síðar af viðbrögðunum.Er búin að rekast á
ein skilaboð aftaná mynd frekar sorgleg er varðar andlát ungrar
stúlku.Bíð spennt í hvert sinn hvað kemur í ljós þegar
að ég er búin að ná myndunum varlega út með flísatöng:) Og þökk sé
íslendingabók sem er góð hjálp núna við að leysa útúr þeim ættarflækjum
sem upp koma við að reyna að finna útúr öllu þessu fólki í þessu
eldgamla albúmi sem ég er að skanna uppúr. En þetta er rosa gaman og loksins hafði ég mig af stað í þetta skemmtilega verkefni.
Ég er með hestabakteríuna ógerlegu einsog svo margir aðrir.Náði mér í bónda og fór að búa með honum Hebba mínum í Ásgarði 1998.Muna að kvitta í gestabókina!Njóttu.