Heimasíða Ásgarðs |
||
Færslur: 2007 Október31.10.2007 01:12Sabine og Íris farnar-Hylling heim og Hrókur tekinn innEr ekki kominn tími á eitt gott blogg.Er enn að jafna mig á því að stelpurnar séu farnar,þær Íris og Sabine. 26 Október: Átti kallinn stórafmæli,varð sextugur.Innilega til hamingju gullið mitt:) Dagurinn var samt ósköp venjulegur en Sabine og Íris fóru í heimsókn að Hrauni í Grindavík og undu sér þar frameftir degi með henni Valgerði vinkonu. Við Hebbi fórum í verkin okkar og dunduðum heil ósköpin í skepnunum á bænum.Extruðum voðalega vel enda veitti kannski ekki af því eftir allt flandrið á kellingunni mér undanfarnar daga. Við færðum kindurnar í betri stíu því nú fer að koma að því að stóðhestar fari að koma hingað til vetravistunar og þá er nú gott að það séu ekki kindur í stóðhestastíunum:) Lömbin blása út þau sem fæddust núna í haust í óþökk fyrrverandi eiganda en ég gekk á milli hnífs og skinns þegar að átti að fara að fella þau greyin:)Alveg merkilegt hvað ég er orðin viðkvæm fyrir kindum! Reyndar er fyrrverandi eigandi kindarinnar og lambanna alveg miður sín þegar að ég er að fara að fella folöld hjá mér hehehehehehe............Það finnst mér hinsvegar ekkert mál enda löngu búin að skoða ganglag,byggingu og geðslag og búin að sættast á það að viðkomamdi gripur búi yfir meiri hæfileikum sem steik í ofni:) Eftir að öll verk voru búin þennan dag þá mætti Magga á svæðið og við brunuðum útí búð og ýmislegt keypt fyrir afmælis"barnið":)Við snöruðum fram þessari líka fínu kökuveislu og reyndar gerði ég þennan flotta heita rétt í ofninum líka:)Sko mig þetta gat ég:)Uhhhhh........takk kærlega fyrir hjálpina Magga mín! 27 Október. Vöknuðum á ókristilegum tíma eða klukkan 5:45 um morguninn og nú skildi brunað vestur á Mýrar. Fyrst fóru Sabine og Valgerður galvaskar LENGST útí mýri að skoða hross en við Íris og Hörður driver sátum í bílnum funheitum á meðan:)Þvílíkar hetjur þessar stelpur! Næst var farið í Borgarfjörðinn og stoppað í Skipanesi en þar er hann vinur minn Dímon Glampasonur að stíga sín fyrstu skref með knapa. Ekki hefur veðrið leikið þar við hann né knapa hans.Allt á floti úti og allt á floti inni líka en innitamingar aðstaðan á floti vegna vatnsveðurs undafarnar vikur! En góðir hlutir gerast hægt og Dímon er að verða búinn með fyrsta áfangann og næst kemur hann í smáhvíld í Ásgarðinn:) Hlakkar til að fá drenginn til mín:) Síðan var brunað áfram og stefnan tekin á Neðra-Skarð. Þar var fríður flokkur af fólki að smala saman stóðinu sem var að koma inn í ormalyfsgjöf og hófsnyrtingu. 28 Október Vaknaði aftur á þessum líka ókristilega tíma 5:00! Reyndar var engin smá snjókoma þennan morgunn! Aumingja Sabine sem ætlaði að ná snjómyndum af hrossum var að fara og ekkert hægt að gera. Við komumst heilu og höldnu alla leið en á heimleiðinni var ég næstum farin útaf en ég fór aðeins hraðar eftir að ég varð ein og missti vald á bílnum í hálkunni en tókst að rétta hann aftur við á veginum sem betur fer! Ég skreið aftur uppí og svaf til hádegis en þá komu galvaskar dömur úr Borgarfirðinum þær mæðgur Gro og Gunnhildur frænka og ein úr Höfuðborginni hún Inga frænka. Við drifum hrossin inní hesthús og fórum svo og fengum okkur kaffi. Í dag skildi fækka Öndunum svo um munaði.Við rákum þær inní hesthús og flokkuðum það sem átti að fara til lífs og það sem á að stækka og fitna meir og svo var brunað með þær greyin útí sláturhús og þar fengu þær að hanga á meðan við fengum okkur smá meira kaffi. Ég plataði hana Gunnhildi frænku mína til að fara niður á tún að sækja hann Hrók en nú átti að setja kall inn enda gestahross farin að streyma í Ásgarðinn og ekki gott að ofra neinu með stóðhest úti þó rólegur sé. Gunnhildur átti bágt með að finna hann en hann var einsog einn af stóðmerunum að hennar sögn hehehehe....... Hrókur var rétt kominn á hús þegar að Felix hennar Huldu Geirs mætti á svæðið.Felix átti að fara niður á Vinkil en þar verða ellismellirnir í vetur. Dimmt var orðið og ekki gott að setja hann útí myrkrið á ókunnugum stað þannig að hann var settur inn við hliðina á Hróksa. Hann hneggjaði og spólaði í hringi í stíunni og varð ekki rótt fyrren Hrókur kom aftur inn og ekki var viðlit að fá hann Felix til að éta heyið sín megin heldur tróð hann hausnum í gegnum milligerðina og át svo hæstánægður tugguna með Hrók:) Bara krúttlegir vinir:) Af öndunum er það að segja að þær tíndu tölunni og voru teknar 44 þennan dag og munar um minna að fóðra skal ég segja ykkur:)
25.10.2007 11:11Meiri rigning:(Ekki er veðrið að leika við þýskurnar mínar.Þetta er ekki sniðugt!Allan þennan hálfa mánuð sem þær eru hérna hefur ringt uppá hvern einasta dag! Reyndar hafa þær sýnt ótrúlega þolinmæði og reynt að skilja veðurguðina hér á landi en þetta er bara ekki hægt.Við fórum aftur austur að kíkja á Sokkudís og Loka.Hittum Heklu og var gaman að sjá hrossin hjá henni. Fórum svo í Reiðholtið að reyna að mynda hross en þau eru ansi spök og þyrfti helst að nota fjardráttarlinsu á þau blessuð:) En þegar að þau voru orðin alveg viss um að ekki leyndist einn einasti brauðbiti í Fagra-Blakk bílnum mínum þá fóru þau að hegða sér eins og hross og fengum við sýningu hjá þeim hvernig best er að velta sér.Hvert á fætur öðru hrundu þau niður á veginum fyrir framan okkur og veltu sér óspart. Mér datt í hug að kíkja á kassann með saltsteinunum sem við Hebbi settum þar fyrir 12 dögum síðan og rak ég á rogastans! Á tæpum hálfum mánuði voru þau ekki farin að fatta saltsteinana! Allir ætluðu að fá sér salt í einu og úr varð myndalegur haugur af frekjudollum að slást og slást og gáfu þau sér minnstan tíma til að fá sér salt! Hinir sem höfðu aðeins meira vit í kollinum stóðu hjá og biðu róleg eftir að röðin kæmi að þeim. Ég er búin að vera með trippi á húsi sem slasaðist í vírgirðingu og auðvitað var Biskupinn tekinn inn með því sem félagsskapur. Allt hefur gengið vel með trippið en hún er öll að koma til og alveg ótrúlega þolinmóð við mig og sterk að kveinka sér ekki meir í löppinni en hún hefur gert. Í fyrradag fékk hún að fara smá út með Biskup og fékk ég líka þessa flottu sýningu hjá henni en hún stígur flott í fótinn og greinilegt að allar sinar eru í lagi:)Sem bretur fer:) Í dag fór hún svo aftur út með Biskup og tókum við þá myndir af henni að montast um hólfið:) Ég tók inn fleiri hross um daginn en mér var farið að ofbjóða vatnsveðrið á reiðhrossin hér á bæ og setti inn Sudda,Vordísi og Væntingu Hróks líka. 23.10.2007 01:53Rigning og rok!Rigning og rok alla daga og ekkert myndavélaveður fyrir okkur stelpurnar.Aðalega er maður nú að pæla í henni Sabine sem kom nú í þeim erindagjörðum að ná sem flestum hestamyndum af okkar yndislega gæðing sem íslenski hesturinn er,úti í guðgrænni náttúrunni. En það sem helst hefur á daga okkar drifið er þetta: Föstudagurinn 19. Þá var nú glatt á hjalla og skemmtilegt fólk í meira lagi sem kom í Ásgarðinn að fá sér að borða úr pottunum góðu og renna því niður með bjór af öllum tegundum. Pottakonan "mín" kom og eldaði hvern réttinn á fætur öðrum og flugu spurningar á víxl og aðalega var það eldhress gaur úr Borgarfirðinum sem sendi óspart spurningu úr "sal"en eldhúsið mitt rúmaði ekki allt þetta fólk þannig að við vorum nokkur svolítið aftarlega eða í "salnum":) Ég vil þakka öllum fyrir komuna þetta kvöld,það var ekkert smá gaman að fá ykkur elskurnar mínar! Laugardagur 20 Æddum uppí Grindavík með lömbin okkar fjögur því nú átti sko að rústa Grindjánum á Hrútasýningunni!Mín var með sigurglampa í augum þegar að þau voru dregin uppá vigtina EN............hvað skeði eiginlega!Sá sem var á vigtinni var ekkert að hafa fyrir því að setja upp gleraugun eða á ekki gleraugu og vigtuðust mín lömb alveg niður fyrir öll sigurmörk!Þar fór bikarinn! Ég ætla nú ekki að fara nánar útí það hvernig hans lömb vigtuðust en líklega voru þau gerð úr gulli þannig að ég mæli með því að maðurinn sá arna selji einsog eitt stykki gullamb og kaupi sér gleraugu á nefið:)Eða bara stjörnukíki................! Þarsem ég er keppnis manneskja mikil OG mér lá við hreinlega köfnun af hneykslan yfir þessari vitlausu mælingu þá dröslaði ég tveimur hrússum aftur á vogina og hafði mér til halds og traust ábyrgann mann til að vigta og þá kom hið sanna í ljós! Annar Hrússinn minn var vigtaður 39 kg en var tæp 50 kg! Hinn var vigtaður 30 kg en var 45 kg!!!!! Þeir stiguðust ágætlega og var ég sátt við allar tölurnar sem þeir fengu og hann Flanki minn frá Gísla og Siggu á Flankastöðum fær að lifa um ókomin ár sem aðal stöddinn í mínu fjárhúsi:) Einhvernveginn held ég að ég leyfi þessum sjóndöpru Grindjánum að halda áfram að rækta sín gull lömb í friði framvegis. EN líklega fær einn af Grindjánunum send gleraugu í pósti fljótlega frá mér hehehehehehehe.........Taki þeir það til sín sem eiga:) Eftir Hrútasýninguna var mér enn heitt í hamsi(tólginni:)og gerði ég allt vitlaust sem ég mögulega gat.Við vorum boðin í mat til Sillu og Nonna og vorum við orðin svolítið sein fyrir en okkur hafði langað mikið til að hitta þau í hesthúsinu fyrst því að þar inni eru tveir drengir sem ég "á" nokkur strá í.Glófaxi og Völusteinn voru komnir inn en því miður þá gátum við ekki barið þá augum í þetta skiptið. En hvað um það,ég hentist í sturtu og í föt og í skó og útí bíl.Svo var brunað af stað í bæinn ég Hebbi,Sabine og Íris.Ég var eitthvað svo ómöguleg í fótunum og bölvaði sjálfri mér í hljóði fyrir að hafa keypt svona stóra skó sem voru ekki að virka nema í ullarsokkum. Dísus kræst!Ég er fáviti! Haldiði ekki að ég hafi verið í skónum hans Hebba míns númer 46!!!!!Ég nota sko 39!!!! Nonni og Silla!Tókuð þið ekki eftir neinu? Aumingja Sabine og Íris fannst ég svolítið skrítin í þessum skóm en þorðu ekki að móðga mig með athugasemdum um stærðina á þeim hehehehehehehehehehehe...........Héldu að íslenskt kvenfólk væri bara svona lappastórt! Sunnudagurinn 21 Elsku "litla"dóttir mín er orðin 18 ára í dag! Boggi,Eygló,Högni og frú birtust hér um hádegið með fulla kerru af gæðingum sem voru að koma í vetrapössun í Ásgarðinn.Gaman gaman hjá okkur og sú gula farin að skína eftir smá stund. 19.10.2007 00:00Austurferð-Hraun og Hringur seldur!Við fórum austur í Reiðholt aftur um daginn til að sækja slasaða trippið og koma því heim í hjúkrun og aðhlynningu.Sárið er ljótt en ekkert sem má ekki laga sýnist mér.Eitt skil ég samt ekki,hvernig getur skepnan verið svona sterk og dugleg með svona stórt sár á fætinum ? En áður en að Reiðholtinu kom þá tókum við vinkil beygju til Heklu sem er að passa Sokkudís okkar og hann Loka Dímonarson.Hekla var ekki heima þannig að við fórum niður í hagann til hrossanna og fengum stórt knús að launum frá honum Loka sem var alveg viss um að hann væri aðalnúmerið þarna í haganum og við værum bara að koma og heimsækja hann:) Næsta dag vöknuðum við snemma eða ég um 7:45 og stelpurnar þær Sabine og Íris hafa ábyggilega verið vaknaðar uppúr 5:00!Þannig að í þeirra huga hef ég sofið yfir mig hehehehehehe............ Nú var ferðinni heitið til Valgerðar á Hrauni sem beið með morgunkræsingar að vanda og svo var rokið út að mynda hross í skemmtilegu landslagi með fjöllum og grasi grónu hrauninu. Ég var líka alveg svakalega skotin í honum Merlin "litla" sem er ekkert lítill lengur.Og svo leynist þarna hjá henni vinkonu minni verðandi græja og er ekki vafi með það en hann Hamar er orðinn heljarinnar skrokkur og stæltur eftir því aðeins þriggja vetra gamall.Bara flottur foli! Eftir miklar myndatökur og meira kaffi var stefnan tekin á RVK en ég þurfti að fara í Lífland og sækja fóður og svo er hann Hringur minn víst seldur og þurfti ég að ljúka þeim viðskiptum.Skrítin tilfinning að hann skuli vera farinn í hendurnar á nýjum eigendum.Ég var pínulítið leið fyrst í hjartanum því hesturinn er búinn að vera í okkar eigu frá því hann var folald og svo núna er hann skyndilega farinn í nýjar hendur.EN það hressti mig verulega við að vita að hann fór í frábærar hendur og nýi eigandinn er alveg í skýjunum með klárinn:) En aftur að Krísuvíkur ferðinni okkar með Valgerði sem farastjóra.Maður má sko skammast sín fyrir að eiga heima hér og þekkja ekki þessa almennu stoppustaði ferðamanna hér rétt við bæjardyrnar!
16.10.2007 00:09Sabine og Íris komnar!Þá eru dömurnar Sabine og Íris lentar á Íslandinu kalda.Mikið var gaman að hitta þær aftur! Nú erum við að reyna að skipuleggja okkur því ferðinni er heitið norður í land og auðvitað líka austur að hitta Skvísu,SSSól og alla hina hestana í Reiðholtinu.Eins förum við að hitta hana Heklu sem passar vel uppá hana Sokkudís og Loka Dímonarson. Þær dömurnar voru komnar á fætur í morgun klukkan 6:00!!!!!EKKI ég hehehehehehe...........ég svaf:) Annars erum við bara að vinna svolitla tölvuvinnu með myndir og byrjaðar að vinna fyrir hann Val sem borgaði okkur svo vel fyrirfram í fyrra með vali á fallegum folöldum úr sínu stóði sem fyrirframgreiðslu.Eins gott að standa sig í þessu:) Folöldin hjá honum Val eru lappalöng og falleg og ætti ekki að vera mikið mál að selja þau.Tvö eru seld og er annar eigandinn í Afríku!Ætli Krissa og Gunni komi til með að flytja það þangað?
14.10.2007 01:00Reiðholt heimsótt og Ikea martröð!Við skruppum austur um daginn með Black Beauty bílinn okkar í allsherjar skoðun á Ljónsstaðina.Nú skal eina ferðina enn yfirfara hann blessaðann fyrir veturinn svo hann gangi nú eins og klukka og ég tala nú ekki um að hann skili mér,Sabine og Íris norður yfir heiðar og til baka í heilu lagi. Ég yrði nú ekki hissa þó að kallarnir á Ljónstöðum fari að veðja um það hvort Blakkur lifi eitt árið enn en hann er orðinn soldið lúinn en ekki búinn hehehehehe...... Við héldum för okkar áfram austur og komum við í Reiðholtinu með saltsteina handa stóðinu og svolítð af brauði.Alltaf gaman að geta kallað í þau í staðinn fyrir að þurfa að ganga þarna um alla þessa 100 hektar og leita að þeim! Öll komu þau hlaupandi og þáðu brauðið af mikilli áfergju,hvað annað. Allir litu vel út nema einu trippinu hefur tekist að slasa sig á afturfæti með því að brölta á girðinu og verð ég við fyrsta tækifæri að sækja hana blessaða. Við hjónin æddum af stað inní Ikea en stóra fína hvíta kommóðan eða hirslan sem við höfum beðið svo lengi eftir að væri til var nú alltíeinu til og það ein 4 stykki. Hebbi ætlaði að vera sniðugur og bað afgreiðslumanninn um að taka eina frá fyrir okkur í cirka þennan hálftíma sem það tæki okkur að keyra inneftir en það var allsekki hægt! Þá spurði hann hvort að konan (ég:) gæti ekki borgað hirsluna í gegnum heimabankann til að tryggja okkur hana en þá kom aftur þvert NEI"!!!!! Við máttum ekki versla hana í gegnum heimabankann heldur urðum að keyra í ofboði inneftir og stökkva eins og vitleysingar eftir öllum örunum í gólfinu og staðgreiða hana á staðnum! Ég hafði ekki við kallinum sem enda sentist þarna á undan mér og þarsem hann er sveitavargur hinn mesti og ekki alinn upp við boð og bönn td að ekki megi ganga á grasinu og annað slíkt í höfuðborginni þá þeyttist hann út fyrir örvarnar í gólfinu og gekk allstaðar á veggi og skildi hvorki upp né niður í þessu óskipulagi þarna í þessari verslun! Á endanum týndi ég honum og þá rölti ég bara eins og hlýðinn Reykvíkingur (ég er RKV-ingur:) eftir örvunum og alla leið inní mötuneytið og keypti mér eina ískalda Maltöl eftir öll hlaupin á eftir kallinum og beið róleg eftir því að hann tæki eftir því að hann væri búinn að týna konunni sinni. Viti menn"hann tók eftir því!EN ekki fyrren hann var búinn að festa sér hirsluna góðu hehehehehehehe......... Næst var eitthvað smálegt sett í körfu og á endanum var hún orðin ansi þung og erfið viðureignar.En út komumst við með allt heila klabbið en þá kom babb í bátinn/bílinn!Þegar að minn elskulegi maður var búinn að troða öllu inn í litla bílinn okkar þá var ekkki pláss fyrir mig!!!! EN ég varð að taka hárklemmuna úr hárinu og setja hana í hanskahólfið því plássið var bóksstaflega ekkert fyrir bæði mig og hana! Heim komumst við með allt og hef ég varla getað náð sambandi við Hebba Byggir sem skrúfaði og nelgdi í gríð og erg og nú er mublan komin upp og ég sko búin að fylla hana af allskonar dóti sem mig vantaði hirslu fyrir. 10.10.2007 01:11Vetrarhagar opnaðir og ormahreinsunÉg er byrjuð að gefa út litlu tippunum á bænum þeim Aski Stígandasyni,Pálma Silfrasyni og Heljari Ögrasyni.Ekki leiðist þeim það að fá að standa í heyrúllu allann daginn og éta á sig gat.Sem betur fer þá eru þeir voðalega rólegir og þægilegir þarna í litla hólfinu sínu. Ég er líka byrjuð að tína úr hross og setja í vetrahagana.LM-Sokka og litla dóttir hennar hún Embla fengu ormlyf ásamt Halastjörnu og hennar dóttur,Ságu Hróksdóttur.Embla mætti þroskast betur en ég hef móður hennar grunaða um að halda uppteknum hætti og gefa þeim folöldunum sem vilja að drekka með sínu eigin afkvæmi. Sem betur fer þá gerði hún það í fyrra þegar að ein hryssan í hópnum varð bráðkvödd frá sínu folaldi en þá var LM-Sokka fljót að hleypa móðurleysingjanum á spena. Hún ætlar greinilega að halda þessum upptekna hætti því ég sá Sleipnir Hróksson teiga mjólk úr henni á meðan ég stóð við hlið hennar úti! Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þetta skeður hjá okkur að folöld fari að stela sér aukasopa og er að virðist ansi algengt fyrirbæri. Halastjarna fékk sérmeðferð en tvisvar á ári þarf að greiða niður dautt hár úr faxinu á henni til að létta á henni makkann sem stundum vill hallast undan öllum faxinu.Sú gamla er orðin ansi eitthvað lúin finnst mér.Lét mig mýla sig úti en hún er ekki vön að láta mig taka sig svo auðveldlega og mátti ég strjúka hana alla og meira að segja mjólka hana smá án þess að þessi stygga ótamda hryssa maldaði í móinn! En Sága dóttir hennar er mjög stór og feit og pattaraleg er hún.Hún var spræk í ormahreinsuninni og eina folaldið sem ég lét dingla í gúmmíkallinum góða.En hún var fljót að læra að gefa eftir. Hin voru ekkert nema elskulegheitin og held ég að þetta sé auðveldasti folaldahópurinn sem ég hef kynnst frá því við byrjuðum að rækta hross hér í Ásgarðinum. Hvað haldiði að ég hafi verið að láta gera núna um daginn!Kellingunni datt í hug að láta járna 3 stykki hross.Biskup,Vordís og Suddi voru sett á járn og komu hingað galvaskir drengir úr Borgarfirðinum og voru ekki lengi að smella skeifum undir gripina. Auðvitað lét ég bara setja sumarskeifur undir þau því það er ekkert vetrarveður lengur hérna á Suðurnesjunum fyrir utan það að þau verða nú ekki svo mikið hreyfð frameftir haustinu.Bara svona smá leikaraskaður. Enn eru til 3 hvolpar undan Buslu okkar og eru þessir 3 einstaklega spennandi sem verðandi minkaveiðihundar.
04.10.2007 23:11Hrókur vandræðalegur við heimkomuna:)
Hún steig trylltann dans en uppskar bara flótta frá honum enda komið haust í klárinn og þá er hann vanur að draga upp kúlurnar sínar og "breytast í gelding".
|
Um mig Nafn: Ingibjörg Rannveig Ingólfsdóttir (Ransý)Farsími: 869-8192Tölvupóstfang: ransy66@gmail.comAfmælisdagur: 25 JúlíHeimilisfang: ÁsgarðiStaðsetning: 250 GarðiHeimasími: 422-7363Önnur vefsíða: http://www.123.is/kaninur/Um: Ég er með hestabakteríuna ógerlegu einsog svo margir aðrir.Náði mér í bónda og fór að búa með honum Hebba mínum í Ásgarði 1998.Muna að kvitta í gestabókina!Njóttu.Bankanúmer: 0157-05-400339Tenglar
Eldra efni
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is