Heimasíða Ásgarðs |
||
Færslur: 2008 Febrúar29.02.2008 00:06Stóðhestaskot.......
Þannig að ég ætla að spyrja ykkur sömu spurningar og ég "klaufaði"á Hér kemur hún:Hvaða gangtegund er tvítakta með fjórum hreyfistigum? OG KOMA SVO...... með svörin ófeimin Maður er svo gamall í hettunni að maður kann ekki á svona nýyrði og hefði frekar átt að nota eitthvað í líkingu við td. Hvað er bitill? Eða hvað er meint með því þegar að sagt er að Ransý hafi riðið SKILVINDUREIÐ þegar að Gustkonur heimsóttu eitt sinn Fákskonur að vori og við allar hleyptum á harðasprett á Kjóavöllum? Annars var ég að rölta um netið og rakst á þessa líka skemmtilegu grein http://www.sogusetur.is/Greinar/GO1.htm um tamningu hesta hér á árum áður. Það má segja að nánast allt í þessari grein sé "inn" í dag og gaman að sjá hve tamning á hesti er svipuð í dag og var í denn. Annars er allt gott að frétta héðan og ég get vart hreyft mig úr húsi nema að hafa með nýju cameruna með og svo dúndra ég bara niður takkanum og vola!!!! Hér er árangur síðustu daga en stóðhestar eru núna í uppáhaldi hjá mér og Súsý litlu sem hjálpar mér óspart
27.02.2008 00:21Mugg og Stóru Bögu vantar nýjar eigendur:)
Mjög kurteis og barngóður hundur,vinnuglaður og var mikið til í að fá mig til að henda einhverju fyrir sig niður í fjöru.Þægur í bíl og var kyrr afturí en smá spenna í honum þegar að hann fann það á sér að hann ætti að fá að fara út að leika.Skiljanlega,hvaða hundur verður ekki spenntur að fá að spretta úr spori og leika sér.
Hér eru myndir af dömunni og ættin hennar ásamt lýsingu frá eiganda. Fallegt, stórt mertryppi til sölu, fífilbleik stjörnótt, microchipped, mjög flott fimmgangstryppi, sýnir gott tölt og brokk og er með gott geðslag! Ætt: Hún er staðsett í Ásgarði. Hafðu samband í info@gaedingur.com 24.02.2008 23:50Gestagangur og Hesting farin
24.02.2008 02:31Litaspöguleringar og enn að æfa mig á cameruna:)
Ég held að hann langi til að eiga sum hrossin hér og ég tók eftir því að hann reytti sérstaklega mikið af henni Rjúpu minni Hróksdóttur og ef hann heldur svona áfram með hana þá tekur það hann ekki nema örfáar heimsóknir í viðbót að klára hana og koma henni heim með sér í nokkrum umslögum hehehehehe.......... Það er alltaf gaman þegar að Palli kemur,þá er nú skrafað og pælt í litum og ættum hrossa fram og tilbage:) Hitt og þetta kom í ljós,td er það komið á hreint að hann Veðjar kallinn er ekki litföróttur.Því miður en það hefði verið hrein snilld:) Annað trippi náði Palli að seilast í og tróð hann vænum slurk af hárum í poka til nánari skoðunar þegar að heim kæmi. Það kom fljótt svar til baka,líklega er trippið litförótt!Gaman fyrir þann sem á það en það er ekki í minni eigu. Palla leist alveg svakalega vel á hann Undra Dímonarson frá Hrauni enda afar sérstakur á litinn og vindhárin á honum öll hvít og það er svo flott að sjá hann svona líkt og hann sé hrímaður á skrokkinn. Páll gat sagt mér ýmislegt um cameruna og komið mér niður á jörðina en ég er þannig gerð að ég þarf alltaf að geta allt strax og ekki um annað að ræða en að taka STRAX myndir sem eru ekki síðri en hjá alvöru cameruköllum og konum:) Verð að róa mig aðeins hehehehehe........ Set hér inn eitthvað af myndum frá í dag og kvöld en ég er óspart að æfa mig.Reyndar held ég að þær séu soldið stórar og vilja þær annaðhvort teygjast upp eða út til hliðanna ef ég set þær á desktopið.......? Þið verðið bara að afsaka ef að hrossin eru eitthvað teygð á myndunum,ég er enn að reyna og gefst ekki upp:) 22.02.2008 01:12Nýja cameran prufukeyrð:)![]() Súsý stopp eitt augnablik................. Þá er best að blogga smá með myndum úr nýju camerunni. Stærri linsan var miklu miklu skemmtilegri að vinna með og eftir að Boggi sagði mér af stillingunni með hlaupakallinum þá fór þetta allt saman að virka betur og hrossin hlupu sem óð um öll hólf! Doreen kom í dag einsog alla daga og mokaði útúr hesthúsinu og lét folöldin út að viðra sig í leikhólfinu.Hér eftir verður hún kölluð yfirhirðirinn í heimahesthúsinu Ég átti að vera að moka upp glerinu eftir að gróðurhúsið sprakk hér um allt hlað en átti voðalega bágt og endaði á því að hlaupa eftir camerunni og "skjóta"nokkrum skotum á folöldin. Ég má ekki vera að því að blogga mikið meira í bili,stórar konur eiga að vera sofnaðar Er að fara á hestbak á morgun á Hrók og með verður sonur hans sem er að stíga sín fyrstu skref sem reiðhestur. Smá viðbót til að fá álit sérfræðinganna en það virðist sem Auto stillingin dugi mér ekki hehehehehe...... Hætt að leika mér í dag og er að fara að taka til í kofanum,ekki veitir af 18.02.2008 01:31Hross að seljast
Blíða frá Víðihlíð að kveðja. Þá eru 8 hrossum færra í Ásgarðinum.3 seld og 5 felld. Hrókur með styttur í taglinu. Hrókur er ekkert voðalega flottur svona en sem betur fer þá lét folaldið stellið hans vera Það gengur svakalega vel á námskeiðinu og mikið stuð á okkur stelpunum:) Einstaka vitleysu er maður nú samt að gera og eftir síðasta tíma er ég handviss að ég kem ekki til með að ríða Dívu prógrammið á næstu árum:) Hrókur gerir allt sem ég bið hann um og er það ekki við klárinn að sakast ef einkunnirnar verða ekki í lagi! Ég get sjálfri mér um kennt ef illa fer:) En svona má maður ekki hugsa! Fyrsta prófið er að skella á og er það sem betur fer skriflegt.Smá skrekkur í manni en það sýnir bara að manni er ekki sama hvernig fer:) Nú er búið að rigna eldi og brennistein síðustu daga og ekki er gaman að taka hestamyndir í þessu veðri. Ég heimsótti stóðin í dag með Eygló og vorum við að skoða hrossin og auðvitað mynda þau í leiðinni. Sokkadís alveg sprungin á því Gammur sendir mér auga Miklu skemmtilegra þegar að kalt og stillt er en Gammur gamli sem vinkona mín á er orðinn vægast sagt hvekktur á þessari glampandi kellingu sem æðir um allt og hrekkur glampi öðru hverju úr hausnum á henni! Skrítinn haus á þessari kellu Enn hef ég ekki gefið mér almennilegann tíma í að handleika nýju cameruna.Þori varla að taka hana upp eða gera nokkurn skapaðann hlut Súsý litla fékk að æfa sig með dauðann Mink um daginn.Sú var dugleg að hrista hann og tæta þrátt fyrir að hann vigtaði næstum helminginn af henn sjálfri:) 14.02.2008 14:33Loksins logn og blíða
Loksins kom langþráð blíða með stillulogni. Ég var ekki lengi að drífa mig út og fá mér göngutúr til hrossanna á bænum og vita hvernig allir hefðu það eftir fárvirðið sem gekk hér yfir um daginn. Allir voru sælir og ánægðir með lífið og tilveruna. Það kom meira að segja smá vorfílingur í mann þegar að ég heyrði Mávana garga!Hlakkar ekkert smá til vorsins:) En enn voru skaflar hér um allt himinháir og bíð ég spennt eftir því að þeir bráðni svo ég komi folöldunum í stóra hesthúsið úteftir en það er erfitt að hafa þau í heimahesthúsinu hjá hinum. Úpppsss........verð að hætta þessu bulli og koma mér að verki hið snarasta! Ná saman stóðinu og taka aðeins til í því. Vorum að kaupa áburð og hnífurinn var kominn á loft þegar að við sáum hvað við borgum fyrir hann í ár miðað við í fyrra! Það sem við greiddum fyrir 11 sekki í fyrra fáum við ekki nema 6 sekki í ár! Þannig að ekki þýðir að láta lifa það sem ekki kemur til með að borga fyrir tugguna sína. Ekki er ráð nema í tíma sé tekið. Ég ætla ekki að standa uppi með með x hross næsta haust og x rúllur og vera á taugum.Það er ekki minn stíll. 13.02.2008 01:33Folaldasýning hjá AndvaraVið skelltum okkur í bæinn síðastliðinn Laugardag í heldur kuldalegu veðri. Ætlunin var að ná á útsöluna í Byko en kallinn þurfti nauðsynlega að versla þar Loftpressu fyrir tækin útí bílageymslu.Það kemur fyrir að dekkin á traktorunum og heyvinnuvélunum eru vindlaus þegar að síst skildi. Eftir að kallinn var búinn að æða um allt í Byko (og hann týndist ekki og ég ekki heldur:) þá drifum við okkur á Folaldasýninguna hjá Andvara. Þar voru folöld sem við könnuðumst við,hana gná undan Trymbli Rósinkranssyni hennar Stellu. Við hittum Sillu og Nonna við stíurnar þarsem gersemarnar biðu spenntar eftir að fá að sýna sig í salnum. Silla var ekkert að tvínóna við þetta og mætti með 3 folöld og skemmst er frá að segja að Gná Trymbilsdóttir lenti í úrslitum á móti geysilega fallegu folöldum undan Keilir og Orra. Sérstaklega stungu þau í auga afkvæmin undan Keilir en þau voru gríðarlega hreyfingarfalleg og glæsileg byggingin á þeim. Eitt vil ég setja útá þessa annars góðu sýningu og það var að tvö folöld voru yfirleitt sett saman í salinn og sýndust þau ekki eins vel einsog þau sem sett voru ein. Tvö saman fóru yfirleitt á stökki og skondruðu áfram og fífluðust.Gaman hjá þeim en erfitt að dæma þau. Þegar að eitt folald var sett í salinn þá fór það um á tilþrifa miklu brokki eða tölti oft með stertinn á lofti og sýndi sig mun betur:) Við gáfumst reyndar upp vegna kulda áður en sýningin var búin og kallinn bauð mér á Hróa Hött í heita súpu og lambasteik ummmm........nammi namm. Síðan héldum við heimáleið á flughálli Reykjanesbrautinni! Ég hef sjaldan séð eins mikla hálku þarna og er skýringin líklega sú að daginn/kvöldið áður var brautin lokuð vegna óveðurs og salt/skafbílarnir hafa ekki haft undan þennan dag. Rétt þegar að við vorum komin framhjá Vogaafleggjaranum komu 3 lögreglubílar æðandi og einn lagði þvert fyrir okkur og á eftir þeim komu 2 Sjúkrabílar. Það hafði orðið 3ja bíla árekstur í þrenginu og einn bílinn á hliðinni. Þarna biðum við með blá blikkandi ljósin í augun í rúma klukkustund og fylgdumst við með því sem fram fór. Einn bílstjórinn aftar í röðinni missti þolinmæðina og keyrði framúr allri halarófunni og ætlaði að troðast meðfram þarsem sjúkraflutningmennirnir voru að bera slasað fólkið um borð í sjúkrabílana!!! Við áttum ekki til orð yfir frekjunni í manninum! Lögreglumennirnir þustu í veg fyrir hann og sneru honum við. Þetta var rútukálfur sem utaná stóð Þingvellir og var bílstjórinn einn í bílnum.Honum lá ekkert á inní heitum bílnum og gat alveg gefið sjúkraflutningsmönnum frið við að ná fólkinu útúr bílhræjunum í blindhríð sem skall reglulega á. Reyni að blogga meir á morgun elskurnar mínar:) Ps.Er við það að verlsa mér Canon EOS 400D myndavél með tveimur linsum 18-55 mm f/3,5-6,5 og 55-200 mm f/4,5-5,6 og batterý grip með. Ég mun aðalega nota þessa vél við að ná hestamyndum,hvað annað 08.02.2008 23:00Nú er fokið í flest skjól!
Skaflar uppá þök og bílarnir okkar að lokast inni hvað eftir annað. Litli bíllinn má alveg lokast inni en verra er ef Black Beauty kemst ekki með okkur útí stóru hús en það er heldur langt að labba þangað í gegningarnar en í heimahesthúsið. Ég er líka búin að hugsa oft hlýlega til hans Ragga sem gerði bílinn svo voðalega öruggan fyrir veturinn og ekki spillir hvað miðstöðin er öflug og góð.Knús til þín Raggi minn:) Við komumst semsagt í húsin í gær en ekki var mokað út úr heimahesthúsinu en það má svosem bíða. Við vorum fljót og drifum svo bílinn í skjól en á aðeins einni klukkustund hafði fennt svo rosalega að það var ekki viðlit að komast inná hlaðið hjá okkur aftur! Veðrið fór uppí 67 metra á Sekúndu í hviðum við Garðskagavita þennan dag! Ég átti bágt með að sofa síðastliðnu nótt vegna veðursins en svo loksins sofnaði ég. Ég rak upp stór augu þegar að ég sá Jarðýtu brölta í gengum skaflana hjá okkur og gera einbreiða rönd inn hlaðið! Mikið vorum við ánægð að fá mokað hjá okkur en vanalega hefur Hebbi þurft að kalla til mann í verkið eða séð um að moka sjálfur. Sandgerðisbær fékk stórann + í kladdann fyrir verkið hjá okkur:) Enn vitlausara varð veðrið í dag og með herkjum komumst við niður í heimahesthúsið labbandi,gáfum,ýttum skítnum út flórinn og sagbárum undir skepnurnar. Hrikalegt að geta ekki hleypt þeim út að velta sér og sprella smá. Ekki var betra að komast til baka og heim en vindurinn var á móti og svo sterkur að rigningardroparnir voru einsog ísnálar í andlitið! En heim komumst við og nú var bara að bíða og sjá hvort eitthvað fyki hér í Ásgarðinum meir en farið hefur í vetur. Ljósin fóru að blikka og ég var ekki lengi að kveikja á kertum til að vera viðbúin ef rafmagnið færi. Næst heyrði ég skruðninga úti og þá fór eitthvað af stað tengt gróðurhúsinu sem var orðið ansi illa farið eftir öll hin veðurlætin. Aftur heyrði ég skruðninga úti og núna sýndist mér að gróðurhúsið væri farið að lyftast! Nei"nei Ransý mín sagði Hebbi og maldaði í móinn sallarólegur við Imbann.Alltaf sama stressið í þessum kellingum....... Eftir smá stund þá kom hvellur og ég þaut upp og þá var gróðurhúsið lagst á hliðina! Síðan brotnaði það í mél og fór að dreifast úr því hitt og þetta um allt hlað. Þá var mér nóg boðið þessi rólegheit í kallinum og skipaði ég honum að ræsa út Björgunarsveitina áður en brakið myndi brjóta stofugluggana með tilheyrandi leiðindum. Datt svona í hug að þakið færi þá mjög auðveldlega af kofanum! Líklega hefði kallinn bara beðið um Regnhlíf og ríghaldið sér í stólinn við imbakassann.Karlmenn......... Það komu 3 bílar fullir af vöskum strákum úr Björgunarsveitinni Ægi í Garði og voru þeir ekki lengi að pakka leyfunum af gróðurhúsinu saman og fergja það upp við íbúðarhúsið! Takk æðislega strákar,þið eruð nú meiri hetjurnar:) 07.02.2008 00:41Kátína,Klökk og Týr tekin undan
Ég rak augun í frétt af hvalreka og haldiði ekki að þessi gríðarlega stóra skepna sé ekki í fjörunni okkar 05.02.2008 00:21Salfisk á diskinn minn:)Hrossin voru hissa í dag þegar að við komum á traktornum með kör af salti handa þeim.Ég ætlaði að salta Síld sem ég á en hætti við þegar að ég leit í karið og sá að það var hellingur af Saltfisk afskurði með. Eldri hrossin voru samt fljót að átta sig á því að í karinu var eitthvað sem átti að smakka á. Það var snusað og potað í þau með litlu snoppunu og var ég hreinlega að gefast upp á því að taka mynd af þeim þegar að þau myndu uppgötva saltið ofaní körunum. En loksins tókst henni Emblu Hróks að koma hausnum utanaf karinu og koma því ofaní karið og þá varð hún meira en lítið hissa á innihaldinu.Þetta var ekki einsog venjulegu saltsteinarnir heldur margir,alveg ofsalega margir pínku ponsu steinar! Eftir mikil rassaköst,slagsmál og hví þá misstu hrossin áhugann á körunum og fóru aftur í rúllurnar sínar. Ég ætlaði að skella mér á hestbak í dag og gallaði mig upp.EN hætti við þegar að ég kom út,skítkalt og ROK! Dagurinn var því bara eins einfaldur og hægt var,skepnurnar fóðraðar og þrifið hjá þeim og sett sag undir þær:) Við vorum komin inn óvenju snemma eða um 18:00. Núna langar mig alveg svakalega í Bollur!!!! Nokkrum tímum síðar............... Vá"afhverju át ég svona margar bollur??? Púfff.....græðgin í manni alltaf:) Farin í bælið gott fólk 02.02.2008 02:10Hrókur og Suddi járnaðir
Þegar að öll heimaverkin voru búin þá dreif ég þá Sudda og Hrók uppá kerruna,sóttum Beggu vinkonu í Garðinum því nú skildi láta járna gæðingana og fara æfingarrúnt í höllinni inná Mánagrund. Á meðan að Högni járnaði þá fórum við Begga smá hestahúsarúnt að sníkja okkur kaffi og hittum við hana Sunnu Siggu sem var búin að leggja á hryssuna sína Millý frá Feti. Eftir að Eymundur var svo vænn að gefa okkur heitann kaffisopa þá kíktum við á Högna og hrossin og auðvitað var drengurinn búinn að járna klárana fyrir okkur á alvöru skeifur með sköflum í.Þýðir víst ekkert að lemja hausnum í og bíða eftir að hláni. Hróksi var nýbúinn að pissa á gólfið þarsem hann var bundinn og gat ekki hreyft sig úr pollinum Næst lögðum við Begga á og fórum niður í Höll að æfa allskonar trix og snúninga og ég veit bara ekki hvað. Kemur ekki Högni einsog hendi væri veifað að aðstoða okkur dömurnar og lét ljós sitt svo óspart skína að flúorperurnar í loftinu hreinlega roðnuðu af skömm yfir sínum auma geisla:) Lónseraði okkur dömurnar á Hrók,hægri vinstri og ég veit ekki hvað! En takk æðislega fyrir hjálpina Högni minn:)Bara gaman hjá okkur Beggu:) Er að rjúka á námskeið í fyrramálið inní Víðidal! Verð að fara að sofa smá í minn vitlausa haus:) 01.02.2008 01:39Brrrr.......kalt úti!!!!Það er komin svo löng runa af commentum að ég verð að blogga áður en commenta dálkurinn springur:) Ég æddi út í gær í bítandi frosti með cameruna og tók myndir af nýju merunum tveim.Þær eru alveg yndislegar að hafa í stóði og láta einsog þær hafi alltaf verið hér. Folalda tamningar standa hér yfir á fullu og er voðalega gaman hjá mér í hesthúsinu síðan að Hrímfaxi kallinn fór útí rúllu.Alveg logn í hesthúsinu og hin folöldin mun rólegri enda enginn Hrímfaxi stöðugt að æpa "Úlfur úlfur að koma að gleypa okkur"þegar að ég birtist í húsinu. Flottur Trymbilssonur er alveg kominn og má ég fara að hætta að vinna mikið meir í honum áður en hann verður að algjörum dekurdreng sem heimtar klapp við hvert tækifæri.Allt er gott í hófi. Systir hans hún Blíða Trymbilsdóttir er alveg frábær en enn soldið kítlin við mig.Finnst burstinn voðalegt tæki en lætur sig þó hafa það:)Algjör dúllan og bráðhuggulegt folald. Var nú búin að setja ættina að henni hérna neðar en hún er undan Trymbil frá Akurey 2 sem er sonur Rósinkrans frá Álfhólum sem er undan Þokka frá Bjarnarnesi. Móðir Blíðu er Lísa frá Þórunúpi sem er undan Stíg frá Kjartansstöðum sem er undan Náttfara frá Ytra Dalsgerði. Blíða er fallega byggt alhliða gengt folald.Hennar litur sést nú ekki alveg í vetrafeldinum en hún er leirljós blesótt. Verðið á Blíðu er 60.000- Það er laust pláss fyrir hana hér í Ásgarðinum til 1 Júni gegn gjaldi.Hafið samband í herbertp@simnet.is eða í Gsm 869-8192. Stella (Trymbilseigandi) og Valgerður kíktu í heimsókn í gærkveldi og auðvitað tókum við beint strik niður í hesthús að heimsækja "ömmubörnin"hennar Stellu:) Og við allar þrjár í kór"afhverju keypti ég ekki hann Flott Trymbilsson"!!!! Ég hefði ekki hikað við ef hann hefði verið meri!Þá hefði ég keypt hann strax. Núna dauðsé ég eftir því að hafa ekki keypt hann því hann er svo gæflyndur og stabíll og þægilegt folald með flottum hreyfingum........og allt hitt sem hest á að prýða:)
|
Um mig Nafn: Ingibjörg Rannveig Ingólfsdóttir (Ransý)Farsími: 869-8192Tölvupóstfang: ransy66@gmail.comAfmælisdagur: 25 JúlíHeimilisfang: ÁsgarðiStaðsetning: 250 GarðiHeimasími: 422-7363Önnur vefsíða: http://www.123.is/kaninur/Um: Ég er með hestabakteríuna ógerlegu einsog svo margir aðrir.Náði mér í bónda og fór að búa með honum Hebba mínum í Ásgarði 1998.Muna að kvitta í gestabókina!Njóttu.Bankanúmer: 0157-05-400339Tenglar
Eldra efni
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is