Það er aldeilis að góðir hlutir gerast hægt hjá manni. Lítið sem ekkert að gerast á nýju síðunni sem ég startaði fyrir tæpu ári síðan en aftur á móti þá eru heimsóknir inná þessa síðu alveg merkilega margar á hverjum sólahring. Ætla að athuga hvort ég nenni ekki að pikka hér inn eitthvað af og til og jafnvel birta myndir ef hægt er en þessi síða virðist vera að missa einhvern mátt og erfitt að koma myndum inn og ef þær koma inn þá stundum hverfa þær. Takk fyrir að líta hér inn þó ég sé ekki að standa mig varðandi bloggið gott fólk.
Ég er með hestabakteríuna ógerlegu einsog svo margir aðrir.Náði mér í bónda og fór að búa með honum Hebba mínum í Ásgarði 1998.Muna að kvitta í gestabókina!Njóttu.