Heimasíða Ásgarðs |
||
Færslur: 2008 Nóvember29.11.2008 15:23Allt er hey í harðindum:)
I remember when you and Gemma was almost pucing Here it is in there scrotum híhíhíhí................ Going to put some sheeps head in the Salatmaster and going out to feed the animals. Skrifað af Ransý 26.11.2008 14:06Stálöruggur hestur til sölu/for sale!
Flugar is really secure and bombproof horse. Þessi hestur hentar frábærlega þeim sem þarf að bæta við kjarkinn hjá sér af einhverjum orsökum eða er að byrja í hestunum. Hann er mjúkur og þægilegur á töltinu og ber sig vel.Ekkert mál heldur að fara á bak honum berbakt Gæti jafnvel hentað í léttari keppnir í barnaflokki. 100%öruggur og góður klár hann Flugar. Þetta er akkúrat hesturinn sem margir eru að leita að! Ég hefði viljað eiga þennan hest ef ég ætti ekki svona mikið af hrossum Ég setti inn nokkur video af Beggu og Flugari þarsem þið getið séð hann.Tek það fram að Flugar er járnalaus og spikfeitur í vídeoinu þannig að hann á mikið inni með þjálfun og á járnum. Ef áhugi er fyrir því að fá að skoða hestinn og prófa þá er það ekkert mál. Hafið samband í netfangið busla@simnet.is eða beint í Beggu í síma:8207093 Skrifað af Ransý 25.11.2008 00:10Loksins fundin!
Skrifað af Ransý 16.11.2008 00:25Mótmælendur í Ásgarðinum í dag!
Mótmælendur í Ásgarði héngu í andaslitrunum eftir atburði dagsins í dag. Bull er þetta í manni alltaf hreint Í dag mætti hér hópur af þrælduglegu fólki til að aðstoða okkur við hina árlegu Andslátrun. Það er viss léttir að vera búinn að þessu enda er þetta engin smá vinna! Ég má vera svakalega stolt af frændfólki mínu ofanúr Borgarfirði en sá yngsti sem mætti hingað og sat og reytti án þess að kvarta í fleiri klukkustundir var 10 ára gamall frændi minn hann Björn Hákon. Systir hans hún Gunnhildur kom líka og reytti sem mest hún mátti en hún er rétt innan við fermingu. Nú dóttirin á bænum mætti líka og var ekki lengi að pikka út Öndina sem mamma á að elda um Jólin. Þyngsta Öndin takk fyrir og vóg hún ein 2,4 kg komin úr fiðrinu og búið að taka innan úr henni og snyrta. Helga Skowronski mætti á svæðið með sínar Endur þannig að hennar Jólasteik er þá bara klár í kistunni. Nú þegar að heim kom var Saladmasterinn búinn að sjóða fullan pott af sviðum og úr varð heljarinnar góð sviðaveisla í lokin. Þakka ykkur öllum kærlega fyrir hjálpina í dag og kvöld elskurnar mínar! Margar hendur vinna létt verk átti vel við í dag. Skelli inn albúmi á eftir með öllum myndunum frá í dag. Skrifað af Ransý 13.11.2008 19:39Týndur hundur á Suðurnesjum!
Skrifað af Ransý 12.11.2008 15:17Nýtt netfang/new E-mail adress!!!Ég fiktaði svo mikið í tölvunni í fyrradag að Outlook Expressinn hrundi og ég týndi fullt af pósti og upplýsingum! herbertp@simnet.is Skrifað af Ransý 10.11.2008 22:56Melódía seld til SwedenMelódía frá Kvíarhóli var að seljast til Svíþjóðar.Hún er fylfull við Hrók okkar og vonandi að nýji eigandinn fái eitthvað fallegt í vor undan þessum tveimur fallegu einstaklingum. Ég er búin að vera drullulasin og situr þessi fj......pest enn í mér. Ég ætla að fara að gefa út núna fyrstu rúlluna í hrossin á allra næstu dögum. Hylling Brúnblesadóttir hans Hebba hangir nú ekki á hor riminni og eina ferðina enn er makkinn á henni orðinn grjótharður af spiki og faxið farið að standa uppí loftið einsog á strákústi. Nú er gott að vera búandi með veiðimanni sem á fullt af veiðimönnum að félögum sem koma færandi hendi við og við með villibráð. Ég var/er svo gamaldags í hugsun að mín stefna hefur verið í gegnum tíðina að kaupa helst ekkert nema að geta staðgreitt það og núna er það að skila sér tilbaka. Skrifað af Ransý 07.11.2008 16:14Dúfan er flottust:)"Hvað ertu búin að gera Ransý".................! Vinkonan hélt áfram með öndina í hálsinum"sérðu ekki að hún er jarp vindótt litförótt! Úppppsssss..................ég starði á myndina og jú það var mikið rétt. Eftir mikið grúskt í Verladargfengnum góða þá komumst við að því að Dúfa verður eina skráða jarpvindótta litförótta hryssan í dag en einn hestur er til með þessum lit skráður í Fenginn. Og nú verð ég að éta það ofaní mig og afsaka mig í bak og fyrir "Helga Skowronski þú hafðir rétt fyrir þér með litinn á folaldinum nýköstuðu! Ég sem stóð fastar á þeim fótunum að Dúfa væri rauð litförótt. Ég er búin að vera drullulasin og er enn.Hálsbólga,eyrnaverkir,hiti og beinverkir. Kallinn er í Apótekinu að versla eitthhvað handa mér því núna er ég að brjálast á slími og kítli í hálsinum á nóttunni og get ekki sofið fyrir þessu Varð samt að skella inn smá bloggi því ég er farin að sakna ykkar þarna úti og commentanna frá ykkur Farið varlega og klæðið ykkur vel svo þið endið ekki uppí rúm með þessa bévuðu pest............! Skrifað af Ransý 01.11.2008 14:40Hross sótt í Reiðholtið
Skrifað af Ransý
|
Um mig Nafn: Ingibjörg Rannveig Ingólfsdóttir (Ransý)Farsími: 869-8192Tölvupóstfang: ransy66@gmail.comAfmælisdagur: 25 JúlíHeimilisfang: ÁsgarðiStaðsetning: 250 GarðiHeimasími: 422-7363Önnur vefsíða: http://www.123.is/kaninur/Um: Ég er með hestabakteríuna ógerlegu einsog svo margir aðrir.Náði mér í bónda og fór að búa með honum Hebba mínum í Ásgarði 1998.Muna að kvitta í gestabókina!Njóttu.Bankanúmer: 0157-05-400339Tenglar
Eldra efni
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is