Heimasíða Ásgarðs

Færslur: 2010 September

30.09.2010 01:58

(Vinnu)...dagur í lífi Buslu

Nýjasta æðið á frúnni í Ásgarði er að hamra saman á lyklaborðinu allskyns video brot og setja við þau lög.
Hér er það nýjasta sem ég gerði með hjálp dóttlunnar í kvöld.





Tobba Anna að leika við Buslu gömlu.

Svo eru hvolpar við það að koma í heiminn en hún Tobba Anna og Púlli (albróðir Buslu úr sama goti) urðu svona líka ástfangin norður á Hornströndum þarsem þau voru við minkaveiðar.

Við vorum búin að reyna að para þau saman fyrir ári síðan en það gekk ekki en núna er tíkin komin á steypirinn og bíðum við spennt ásamt fleirum en það eru nokkrir að bíða eftir hvolpum frá okkur.
Hvolpurinn kostar jafnvirði 10 minkaskotta eða 30.000- krónur.
Hafið samband ef áhugi er fyrir kaup á hvolpi í netfangið
Ransy66@gmail.com


24.09.2010 23:58

Selveiðar í Ásgarðinum

Hér er allt í góðum gír í Ásgarðinum.
Kirsten vinkona mín er í heimsókn hjá okkur og erum við búnar að vera að bralla ýmislegt hestatengt.

Í gærkveldi skelltum við okkur austur fyrir fjall í Ölfushöllina á hestasölusýningu og þar voru nú nokkrir gæðingar sem ég var alveg til í að lauma í vasann og fara með heim.
Það er gaman að sjá svipinn á útlendingnum þegar að maður fer með þá á svona staði.
Hún hreinlega gapti af undrun yfir öllum fínheitunum í Ölfushöllinni og leðursófsettunum og ekki minna virði fannst henni hvað þarna var hlýtt og notalegt að vera.

Karsten maðurinn hennar skrapp hingað uppá skerið líka en ekki voru það hrossin sem drógu hann hingað heldur íslenskt náttúra og veiðar.

Í fyrradag náði hann sel og það var heldur betur veisla fyrir hann og allt af dýrinu nýtt skal ég ykkur segja.

Síðasta reynsla okkar hjónanna af selaáti var svo slæm að inná fínu veitingarhúsi varð ég að ulla útúr mér í servíettu selabita sem ég smakkaði á!
Þvílíkur vibbi sem kjötið var og grunar okkur að kokkinum hafi tekist að eyðileggja það kjöt á einhvern undarlegann hátt því þegar að ég var barn þá borðari ég selkjöt með bestu lyst.


Selslundir í hvítvínssósu.

Nú en aftur að selnum sem veiddur var í Ásgarðsfjörunni.

Karsten tók úr honum lundirnar og matreiddi hann þær á flottan hátt og úr varð að ég smakkaði og það var ekki aftur snúið.
Ég fékk mér aftur á diskinn og kallinn minn þrisvar sinnum!

Lambakótiletturnar sem ég grillaði voru bara rauðar af öfund (hefðu mátt vera meira grillaðar:) og enduðu inní ískáp sármóðgaðar.

Þær verða bara borðaðar seinna með bestu lyst:)

20.09.2010 22:31

Þórkötlustaðarétt 19-09-10





Alltaf stuð í Grindavíkinni og margt um manninn í réttunum.Allt fór miklu betur fram í ár heldur en í fyrra þegar að réttin fylltist af malbikshausum sem vildu ólmir hanga í ullinni og hornunum.Fjárbændur höfðu allt á hornum sér og upphófst æðisgenginn leikur í almenningnum við að handsama kindur og hausana af malbikinu og endaði þetta nánast inní Hæstarétti Íslands í fyrra áður en yfir lauk. Í ár sá maður varla neinn hanga í kind en þó varð maður var við einn og einn sem annaðhvort gerði sér það að leik að bregða fæti fyrir kindurnar og lömbin og svo skríkti í viðkomandi eða að maður sá örmagna lömb liggjandi á maganum með krakka sitjandi ofaná sér hlægjandi. Semsagt þetta fór miklu betur fram í ár en í fyrra. Batnandi fólki er best að lifa og vonandi að maður sjá minna og minna af svona hegðun að ári.

14.09.2010 22:43

Haustverkin hafin

Þá eru fyrstu gripirnir komnir ofaní frystikistuna þetta haustið.

Kátur Flankasonur kallinn minn góði.

Kátur Flankason var einn af þeim en hann var orðinn alltof skyldur kindunum og hefði orðið atvinnulaus blessaður.


Ég tók nokkrar myndir af honum áður en hann fór blessaður og satt best að segja þá sakna ég hans.

Altaf gaman að kalla á hann því hann svaraði altaf með löngu jarmi á meðan hann rölti til manns til að fá klappið sitt:)

Tvö lömb fengu faraleyfið í kistuna en annað þeirra tolldi illa innan girðingar en það var hún Unnur litla Forystu/Kátsdóttir.

Hún vóg 14 kg en hitt var undan Brynju Beauty og Fork frá Stað og vóg það 18.5 kg.

Góður tvílembingur það og spennó að vita hve þungt hitt lambið á móti verður.

Karenar dætur eru að stimpla sig vel inn og er mjólkurlagnin og góðir móðureiginleikar sem þar ber hæðst.

Nú eitthvað á hann Forkur frá Stað í þessu líka en ég er svo hrifin af lömbunum undan honum að ég ætla að setja eitt stykki kollóttan flekkóttan lambhrút á undan honum og Sibbu Gibbu Karenardóttur.

Sibba Gibba með sín fyrstu lömb.


Tveir Forkssynir á beit.

Ekki amalegt að fá svo Forkinn hingað í einsog 1-2 sólahringa um fengitímann en þessi flotti flekkótti hrútur stigaðist mjög vel í fyrra og náði góðum fyrstu verðlaunum.


10.09.2010 01:59

Örmerking,dna og ormahreinsun


Gulltoppur frá Ásgarði

Í dag kom Gísli dýralæknir og örmerkti folöldin ásamt því að taka dna sýni úr þeim og í restina voru þau öll sprautuð með ormalyfi.


Ægir frá Ásgarði dasaður eftir átökin:)

Þetta gekk alveg ótrúlega vel enda ekki mörg folöld ásamt mæðrum sínum inni og vorum við snögg að þessu.


Alltaf flottastur þessi:)

Pestin er í rénun hér á bæ en við urðum fyrir því að missa eitt folald úr pestinni um daginn.

Hann Þrymur Astró/Hyllingarsonur fékk niðurgang og það var ekki aftur snúið og hann drapst.

Ég er farin að hafa opið hesthúsið fyrir hrossin allan sólahringinn en aldrei þessu vant þá eru þau farin að standa inni en ekki útundir vegg einsog vanalega.

Eitthvað virðast þau þiggja ylinn í hesthúsinu og þurrka sig á milli þess sem þau eru á beit.

Ég hef komið niður í hesthús á kvöldin og talið allt að 12 hausa inni en hesthúsið rúmar 14 stykki á básum.

Röskva Astró/Heilladísardóttir hress í dag.

Gaman hjá dömunni.

Sprikli...........sprikl..........:)

Ekki veit maður nákvæmlega hvernig maður á að hegða sér varðandi þessa pest en ég er að hára í hrossin tuggu í stallana og er nýbyrjuð að setja smá lýsi yfir heyið í von um að það veiti þeim einhverja vörn.

Vítamínfata var opnuð og eins hafa þau aðgang að saltsteini.

Nú svo þarf ég að hreinsa þetta gamla hesthús og verður það ekki auðvelt verk.

Allt í hrukkum og skorum en húsið er sambland af steyptum veggjum og timbri og allt í glufum hingað og þangað.

Ég tók nú smá rispu á hesthúsinu í fyrradag og henti og henti gömlum reiðtýgjum og allskonar drasli og taldi það 6 ruslapoka sem fengu að fjúka.

Ég dansaði þarna stríðdans reglulega þegar að kóngulóa hlussur þustu af stað!

Þær fengu hverja gusuna af annari yfir sig af klór en samt hlupu þær bara hraðar!
Skrítið............!:)

Alltaf á haustin breytist fuglalífið hér á bæ og núna er tími smáfuglanna sem að dúndrast reglulega á rúðurnar og rota sig eftir að Fálki eða Smyrill er búinn að vera að hrella þá.

Þessi litli fugl sat á tröppunum í kvöld og hreyfði sig ekki þó ég tæki hann upp.

Ég gat ekki séð að hann væri brotinn neinsstaðar og setti hann aftur niður en eftir klukkustund þá var hann enn á stéttinni og tók ég hann með mér útí kanínuhús og fær hann að vera inni í hlýrri kaffistofunni þartil á morgun.

Vonandi lifir hann og kemst á flug á morgun:)

07.09.2010 14:32

Kálið tekið upp og smal


Blómkálið og hvítkálið.

Mín er búin að vera á kafi í sultu og hlaupgerð með dótturinni sem kom hingað færandi hendi með allskonar ber sem hún týndi fyrir austan.


Rifsberjahlaup er komið á krukkur,krækiberjasaft og sulta.

Sólberja/bláberjasultan er hreint út sagt himnesk hjá okkur og tókst langbest af öllu.

Síðastliðna helgi dreif ég mig útí kálgarð til að bjarga restinni af grænmetinu en ég er búin að vera í hörkusamkeppni við sníglana í sumar.

Hvítkálið blanserað og frosið.

Sigga á Flankastöðum nágranna kona mín er alveg snillingur í ræktun hverskonar matjurta og með alla sína 10 putta fagurgræna kenndi mér að blansera grænmetið svo hægt sé að frysta það með góðum hætti og nota nánast ferskt uppúr frystikistunni í vetur.

Blómkálið komið í umbúðir.

Þetta tók dágóðann tíma en tókst að ég held með ágætum.


Eitt appratið lofa ég hástöfum á mínu heimili á haustin en það er vacum pökkunarvélin mín góða sem ég hreint út sagt elska.
Þessa vél keypti ég í Esjugrund.

Sykurbaunirnar tilbúnar í kistuna.

Ég er komin uppá lag með að láta hana stoppa rétt áður en hún er alveg búin að lofttæma pokana en þannig þarf það að vera með lausfrysta grænmetið svo það fari ekki í klessu.


Ég er komin með glænýja tölvu!

Loksins eftir að hafa verið að tjasla endalaust uppá gömlu tölvuna sem keypt var árið 2000 þá var keypt ný núna sem ég er voðalega ánægð með.

Siggi besti frændi er búin að sýna frænku sinni í sveitinni ómælda þolinmæði með þá gömlu en hann er búinn að taka hana reglulega á gjörgæslu og blása nýju lífi í hana og kannski bara endurnýja hana smátt og smátt og kannski var þetta ekki lengur gamla talvan sem fór héðan út um daginn með honum heldur fullur turn af samtýningi og varahlutum:)

En nú þrælvirkar nýja talvan sem var sett upp með það fyrir augum að ég geti unnið á hana við allt sem ég er að gera varðandi hestasölu,vinna myndir og annað slíkt.

Við erum búin að smala hóflið sem við erum með ásamt 3 öðrum bæjum.

Kjarkur og Þjarkur Kráku/Forksynir 17 Júní.

Þetta átti að taka örskotstund enda hólfið ekki stórt (cirka 150 hektarar)en allt frá því við vorum mætt á svæðið og komin heim með okkur skjátur liðu 5 klukkustundir og var bæði mér og kallinum mínum oft hugsað til Svans í Dalsmynni og smalahundana hans!


Dísus kræst................ hvað nokkrar voru óþekkar!

Ég sem skildi Buslu mína eftir inní bíl dauðsá eftir því þegar að ég sá nokkra af hinum smölunum með hunda (í bandi:) en rolluskjáturnar virtu smalana miklu betur sem voru með hunda en okkur hin hundlausu.

Auðvitað voru þetta allskonar hundar sem vart höfðu séð kind áður en þarna var einn sem bar af öðrum en það var Springer Spaniel sýningarhundur en hann stóð fastur fyrir þegar að óþekkustu ullarpöddurnar ætluðu að smeygja sér framhjá okkur smölunum!

Við tókum öll lömb heim og tvær óþekktar skjátur sem þurfti að eltast við en það voru þær Sibba Gibba og Kráka með sitthvorum 2 lömbunum.

Þetta var líka svona í fyrra,tvævetlurnar voru einnig með óþekkt þá við okkur.Ætli það geti verið að þær séu of spakar hjá okkur og þori þessvegna að brúka sig við okkur smalana?

Já..............Sjaldan launar kindin okkur ofeldið:)


Eða var það kálfurinn?
 emoticon

  • 1

Um mig

Nafn:

Ingibjörg Rannveig Ingólfsdóttir (Ransý)

Farsími:

869-8192

Afmælisdagur:

25 Júlí

Heimilisfang:

Ásgarði

Staðsetning:

250 Garði

Heimasími:

422-7363

Um:

Ég er með hestabakteríuna ógerlegu einsog svo margir aðrir.Náði mér í bónda og fór að búa með honum Hebba mínum í Ásgarði 1998.Muna að kvitta í gestabókina!Njóttu.

Kennitala:

250766-4839

Bankanúmer:

0157-05-400339

Tenglar

Fána teljari

free counters

Eldra efni

Flettingar í dag: 105
Gestir í dag: 9
Flettingar í gær: 284
Gestir í gær: 41
Samtals flettingar: 502185
Samtals gestir: 55204
Tölur uppfærðar: 7.2.2025 05:43:53