Heimasíða Ásgarðs |
||
Færslur: 2009 Júní30.06.2009 01:44Hláturinn lengir lífið:)
Þetta sendi dóttir mín mér um daginn með þeim orðum"mamma mín," ég var nú stundum slæm en EKKI svona slæm!" Svo datt ég um þessar snilldarinnar setningar á vef sjúkraliða: Að höfðu samræði við lækni féllst hann á að koma sjálfviljugur inn. Á öðrum degi var hnéð betra og á þriðja degi var það alveg horfið. Daginn fyrir innlögn borðaði hún kvöldmat á eðlilegan hátt með kjötbollum. Eðlileg augnskoðun fyrir utan sérkennilegt andlitsfall. Fékk vægan verk undir morgunsárið. Hún hefur þroskast eðlilega framan til. Hún rann til á svelli og virðist að lappirnar á henni hafi farið í sitt hvora áttina í byrjun desember. Húðin var rök og þurr. Misnotaði áfengi í óhófi áður fyrr. Móðir getur látið barnið sitja með því að setja fæturna í hring. Nú er svo komið fyrir henni að hún getur að mestu hjálpað sér sjálf. Saga er fengin hjá uppgefnum ættingjum. Sjúklingur á vanda til að fara austur í sveit um helgar. Þar datt undan henni hestur. Sjúklingur var í morgun að drekka te og borða maís þegar að bar mann sem heitir Kristmundur. Skoðun við komu leiðir í ljós unglingspilt. Tekin var mynd af sjúklingi sem sýndi breytingar í Hafnarfirði. Við komu á spítalann var sjúklingur fljótlega skoðaður af undirrituðum og kemur þá í ljós að um er að ræða 46 ára karlmann sem er mjög þrekvaxinn og vöðvastæltur. Við rectal exploration fannst stækkaður skjaldkirtill. Við skoðun á sjúklingi kemur fram áberandi kyndeyfð. Við skoðun eru engar eitlastækkanir að gagni. Það sem fyllti mælinn var þvagleki. Það vottar fyrir gyllinæð hægra megin á kálfa. Þegar hann var lagður inn hafði ör hjartsláttur stoppað og honum leið betur. Þessi maður veit ekkert um skyldleika í ætt. Sjúklingur batnar ef lagst er ofan á hann. Sjúklingur borðar reglulegt mataræði. Sjúklingur er ekki þekktur fyrir að fremja sjálfsmorð. Vefur Sjúkraliðafélags Íslands Skrifað af Ransý 28.06.2009 22:48Astró frá Heiðarbrún mættur:) 27/6
Mön sem kastaði þann 15 Júní síðastliðinn var akkúrat tilbúin og náði honum á undan henni Stórstjörnu sem beið prúð og stillt þartil kom að henni í röðinni. Í dag 28 Júní gerði hún Skeifa Piltsdóttir sig líklega til lags við hann en annaðhvort er hún að byrja í hestalátum eða enda. Líklega er hún að byrja því hún var ögn blíðari við Astró í dag heldur en í gær. Hrókur unir sér vel fyrir ofan veg með sínum dömum og veit ég ekki af honum þar. Veðrið er búið að vera frábært síðustu daga og nú bíður maður bara rólegur á meðan grasið sprettur á túnunum. Það á að rigna (lítlsháttar) næstu daga og góður hiti með því þannig að sprettan verður frábær í ár en ekki veitir af að fá sem mest af hverju túni því nógu var áburðurinn dýr í ár!!! Skrifað af Ransý 26.06.2009 20:27Sokkadís köstuð 22 Júní
Skrifað af Ransý 24.06.2009 11:34Nafn á dömuna?
Röskva: er systir Þjálfa. Hún fylgir Þjálfa sem þjónn Þórs. Foreldrar hennar og Þjálfa unnu sér það til lífs að bjóða Þór að fá þau í stað sem þjóna. Skrifað af Ransý 21.06.2009 16:54Hrókur í vinnunni sinni:)
Næturgamanið getur teygst óhóflega fyrir eldri dömurnar og þessi Dalaprinsessa ætlaði úr kjálkaliðnum einn daginn...............Eitthvað hefur gamanið verið á þeim. Svo er legið á meltunni og maginn bakaður í sólinni á milli,eða þannig. Ég ætla að skella inn cirka dagsetningum á þessar hryssur hvenær þær hleyptu Hrók að sér svo ég týni nú ekki dagsetningunum einsog vanalega þegar að ég hripa þær niður á miða. Hann minnir mig á gamla góða Brúnblesa 943 frá Hoftúnum sem var hér í 3 sumur en hann hafði líka þennan háttinn á,var ekkert að sóa sopanum í vitleysu heldur sinnti hryssunum þegar að von var á að þær myndu festa fang. Það má bæta við 2 hryssum á Hrók ef einhver vill fá toll á viðráðanlegu verði 25.000- með öllu fyrir utan sónar en það verður fólk að sjá um sjálft því það er of dýrt að fá dýralækni hingað á Suðurnesin til að sóna kannski 4-5 hryssur. Hér eru svo upplýsingar um hann Hrók sem gefur viðráðanleg og auðtamin hross fyrir mjög breiðann hóp af fólki. Astró kemur svo á næsta Sunnudag eða Mánudaginn en hann ætlar að keppa á Íslandsmeistaramóti barna og unglinga í Mosfellsbæ fyrst og svo verður honum sleppt í hryssurnar niður á bakka. Skrifað af Ransý 17.06.2009 23:54Mön frá Litlu Ásgeirsá köstuð 15 Júní
Öll hennar folöld hafa verið litförótt en Mön hefur átt 6 afkvæmi fyrir utan glænýju dömuna sem er 7 unda en ég get ekki verið fullkomnlega viss um að hún sé litförótt fyrr en hún fer að fella folaldahárin seinna í sumar. Hún má ekki klikka á því næsta vor að koma með litförótta dömu því hún verður undan honum Astró og verður sett á fyrir okkur. Astró kemur líklega til með að skila jafnfótaháu og Hrókur gerir ávalt með henni Mön. Reyndar finnst mér á köflum þau skila of fótaháu og það tók mig ansi langann tíma að sætta mig við hvað hún Rjúpa mín er hrikalega háfætt og stór sem er undan þeim Mön og Hrók! Það jaðrar við að það sé orðið of mikið af því góða. Maður hleypur ekkert í hnakkinn þegar að Rjúpa er annarsvegar! Ég margmældi hana aftur og aftur og ætlaði ekki að trúa þessu en þetta var um Páska og um sumarið stækkaði hún enn meira! Hér eru svo myndir af nýju dömunni hennar Litlu Lappar sem er með mön eftir bakinu og svo rosalega ljós á skrokkinn en höfuðið er dökkt og brún hár inní eyrunum sem segja mér að hún verður brún. Rosalega er nú gott að hafa hana Freyju til að útskýra þetta allt saman fyrir manni:) Folaldahár geta verið ansi strembin hvað varðar framtíðarlitinn á skepnunni sem gerir þetta allt saman svo miklu meira spennandi. Skrifað af Ransý 16.06.2009 14:26Kaníndagurinn Hvanneyri 13 JúníHaldinn var á Hvanneyri þann 13 Júní Kanínudagurinn og þangað stormaði ég með 3 kanínukalla með mér svo fólk gæti barið augum hvað ég er að gera og rækta á mínu kanínubúi.
Nú svo hélt ég líka smá fyrirlestur um mitt kanínulíf og held ég barasta að fólk hafi verið ánægt með þetta hjá mér. Þessi dagur var rosalega vel heppnaður og margt var um manninn og mikið að sjá og skoða fyrir fólk.
Aðalsprautan varðandi þennan dag var hún vinkona okkar hér á blogginu hún Loðkanínu Sigrún.
Hún er með síðustu Angórakanínurnar (líklega einn aðili annar líka á landinu) sem til eru í landinu og ef ekkert verður að gert þá deyr þessi stofn út!!!! Mér finnst þetta alveg hrikalegt því það er hægt að vinna svo mikið af Angórakanínunni og er það þá helst fiðan af henni sem er að gefa vel af sér í ýmisskonar handverk.
Allt sem að Sigrún nær að framleiða er fyrirfram uppselt til handverkskvenna í Ullarselinu á Hvanneyri og þó að fleiri vilji kaupa fiðu þá er hún hreinlega ekki til í landinu. Á fundinn kom merkur maður hann Jón í Vorsabæ 86 ára gamall og lét það ekki eftir sér að halda heillanga ræðu og var mikið gaman að fá að hitta þennan fróða,þrælskýra og skemmtilega mann. Í lok dagsins var stofnað nýtt Kanínufélag KRÍ (Kanínuræktarfélag Íslands)og voru stofnendur 13 talsins.
Takk fyrir daginn allir sem ég hitti á Hvanneyri..........Þetta var langur en frábær dagur....... Skrifað af Ransý 15.06.2009 00:48Litla Löpp kastaði 11 JúníLitla Löpp frá Galtarnesi lét öllum illum látum daginn sem hún kastaði einsog síðastliðin 3 ár en ég breytti aðeins til með staðsetninguna á hryssunum á köstunartíma og eru þær sumar ekki enn sáttar við mig um staðarval. Hún vill komast niður á bakka og niður að tjörninni en þar er mjög vinsæll staður fyrir köstun hjá þeim. Hún sem sagt óð meðfram girðingunni og kastaði sér svo niður við hliðið og var komin að því að kasta og ég hljóp eftir camerunni til að ná þessu öllu saman á mynd. Ég settist niður róleg í hæfilegri fjarlægð og beið átekta. Kemur ekki Eðja æðandi á brokki til að forvitnast og stuggaði ég henni frá! Ekki gaf hún sig og kom aftur og aftur þartil Litlu Löpp var nóg boðið og reis hún upp og lentu dömurnar í hörkuslag!! Folaldið sem var að koma í heiminn ýttist inn aftur! Nú kom kallinn þrammandi niður tún og hann sá um að halda henni Eðju frá og öðrum forvitnum og Löppin gat lagst aftur niður róleg og haldið áfram að koma folaldinu sínu í þennan heim. Myndirnar segja meira en nokkur orð svo hér er syrpan af öllu saman
Skrifað af Ransý 10.06.2009 02:41Astró frá Heiðarbún
Astró frá Heiðarbrún heitir kappinn sem ætlar að sjarmera hryssurnar uppúr skeifunum í sumar og stíga trylltan dans hér niður á bakka á meðan Hrókur klórar sér í ennistoppnum og reynir að átta sig á því hvar allar gömlu dömurnar hans séu? Astró ætlar að fá þessar gömlu góðu uppáhaldshryssurnar á bænum og er ætlunin að reyna að fá úr þeim merfolöld sem verða sett á fyrir okkur en ekki seldar. Fyrir þá sem langar að halda undir stórglæsilegann 1 verðlauna hest (skeiðlaus) þá eru einungis 4-5 pláss laus undir hann og verða hryssur að vera komnar í hólfið 26-27 Júní. Astró frá Heiðarbún er undan hinum geðþekka Smára frá Skagaströnd og Fjöður frá Heiðarbrún. Það má segja að hann sé öflugri útgáfan af honum Hrók mínum og það er þetta geðslag sem ég er að eltast við. Sköpulag Það voru að birtast glænýjar myndir af Astró og Alexander sem voru teknar fyrir nokkrum dögum á Gæðingarmóti Harðar en þar voru þeir efstir með einkunina 8.61 og hinsvegar frá Gæðingamóti Fáks en þar voru þeir í þriðja sæti með einkunina 8.50.
Innilega til hamingju með árangurinn Alexander Ef þið hafið áhuga á að skella hryssu undir hann Astró þá endilega sendið mér línu á ransy66@gmail.com eða hringið í mig í síma 869-8192. Nú af honum Hrók er það að frétta að hann fékk til sín í gær tvær Dalaprinsessur og ekki voru nú lætin í honum við þær. Skrifað af Ransý 06.06.2009 00:48Fiðrildi á ferðalagi!
Skrifað af Ransý
|
Um mig Nafn: Ingibjörg Rannveig Ingólfsdóttir (Ransý)Farsími: 869-8192Tölvupóstfang: ransy66@gmail.comAfmælisdagur: 25 JúlíHeimilisfang: ÁsgarðiStaðsetning: 250 GarðiHeimasími: 422-7363Önnur vefsíða: http://www.123.is/kaninur/Um: Ég er með hestabakteríuna ógerlegu einsog svo margir aðrir.Náði mér í bónda og fór að búa með honum Hebba mínum í Ásgarði 1998.Muna að kvitta í gestabókina!Njóttu.Bankanúmer: 0157-05-400339Tenglar
Eldra efni
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is