Heimasíða Ásgarðs

Færslur: 2011 Janúar

19.01.2011 23:26

Hrossastúss og fleira.......


Rjúpa Hróks haugblaut síðasa Sunnudag.

Útigangurinn 16 Janúar 2011
Pictures of the horses 16 Januar 2011

Ég er ekki alveg dottin út héðan en ég er farin að eyða alltof miklum tíma í Face Bookið.

Málið var að ég var farin að halda að ég væri að missa af svo miklu og líka missa ykkur héðan og yfir á Fésið en þá bara átta ég mig á því að ég er næstum búin að yfirgefa mína eigin síðu!

Nú og svo eru hjá mér fullt af fólki sem ekki eru á fésinu og líður bara ágætlega með það og þeim verður að sinna:)

En hér er það helsta úr fréttum héðan.

Dóttirin er að detta inní hestamennskuna aftur eftir áralanga pásu.
Hún fór fyrir nokkrum árum á hestbak með vinkonu sinni fyrir austan og það endaði afar illa.

Hestarnir ruku heim á leið og dóttlan mín datt af baki á harðastökki og festi fót í ístaðinu og dróst með hestinum.

Hún fékk höfuðhögg og rotaðist og fann fólk hana liggjandi utan vegar með brotinn hjálm á höfðinu.

Hún var lengi að jafna sig bæði líkamlega og andlega en hún skaddaðist á hné og baki og varð að fara í aðgerð á hnénu en það hefur háð henni síðan og ekki lagast mikið.

Djákni og Krissa

Fyrir nokkrum dögum fékk hún lánaðann gamlann höfðingja og nú er burstað og puntað og dekrað við Djákna og svo er hún að æfa sig að leggja við hann og príla á bak og af baki.

Núna bíðum við eftir betra veðri til að fara út og prófa gæðinginn.

Allt verður þetta tekið í hænuskrefum enda engin ástæða til að æða af stað og missa þann litla kjark sem er að koma.

Allt er hey í harðindum sagði beljan og át heyvagninn.

Ég segi"allt er kjöt í harðindum og einn af hönunum er á leið í ofninn".

Reyttur og sviðinn hani

Er ekki tímabært að prófa heima alinn hana úrþví þeir eru svona gríðarlega vænir og fallegir í stað þess að láta þá bara hverfa en það koma alltaf alltof margir hanar úr eggjum miðað við hænur svo að maður er í standandi vandræðum að fóðra þetta allt saman.

Nú fyrir utan öll slagsmálin og lætin þegar að karlkynið fær náttúruna.
Ussssssss.........Hænugreyin eru bara fegnar að losna við eitthvað af þessum umfram ólátabelgjum.

Freisting frá Laugardal

Ég tók inn stóðið síðastliðinn Sunnudag og gaf þeim í nýju stallana í hesthúsinu og í kör fyrir utan í skjóli fyrir veðurlátunum.

Það er svakalega gaman að sjá hve trippin eru að þroskast og stækka.
Við erum með 3 veturgamlar undan Hrók og eru þær þvílíkt faxprúðar og flottar.
Það eru Nótt Stórstjörnudóttir,Þrúður Litlu Lappardóttirog Laufey Pameludóttir.

Nótt Hróksdóttir til sölu/for sale


Þrúður Hróksdóttir til sölu/for sale


Laufey Pameludóttir og Himinglæva til sölu/for sale rauðblesótt á bakvið.

Svo eigum við 1 tveggja vetra gamla en það er hún Himinglæva sem er rosa stór undan Stórstjörnu og Aski Stígandasyni.

Embla Hróksdóttir pregnant after Astró frá Heiðarbrún
til sölu/for sale.
Mynd frá í haust.


Og svo eigum við 1 þriggja vetra en það er hún Embla Hróks/Heilladísar frá Galtarnesi.
Hún er með staðfest fyl undan Astró frá Heiðarbrún og verður gaman að sjá folald það í vor ef hún verður ekki seld.

Ég er að átta mig á því að þetta eru ekki svo mörg hross óseld úr yngri deildinni.

Það stoppaði nánast salan í sumar útaf kvefpestinni og gosinu en vonandi að þetta lifni allt við með hækkandi sól.

Útlendingurinn verðu að átta sig á því að kvefpestin var ekki útaf gosinu.
Enda kom kvefpestin á undan gosinu.
Svolítið sorglegt að heyra svona kolrangar fullyrðingar.

Sem betur fer þá er það komið á hreint hvað skeði og það hafa áður fallið hross hér á landinu vegna ýmissa veikinda en íslenski hesturinn hefur alltaf risið upp aftur og jafnað sig.

Hafið það sem allra best elskurnar mínar:)



09.01.2011 21:53

Fyrstu hrossin tekin á hús




Ég gær var nýmálaða og fína hesthúsið fyllt af hrossum og þau tekin inn sem áttu að koma inn.


Vilji litli Astró/Sif sonur er greinilega hættur á spena og er kominn á innigjöf og nú skal kýla fóðri í hann jafnt og þétt.

Ingimar Sveinsson í formi bókar verður lesinn spjaldanna á milli en þá bók fékk ég í jólagjöf frá kallinum mínum og þar eru nú mörg gullkornin varðandi fóðrun á folöldum og ungviði:)

Appollonía Spalardóttir var líka tekin inn sem félagsskapur en hún er alveg að standa sig í rúllu úti en ekki finnst mér gott að hafa bara eitt folald inni.

Himinglæva Ask/Stórstjörnu dóttir (tveggja vetra) kom einnig inn í smá frumtamningu.
Ég þarf líka að láta athuga uppí hana en það er þvílík pest útúr hrossinu!

Vonandi er þetta bara fóður að úldna á milli tanna en ekki eitthvað tengt kvefpestinni.

Hún étur vel,er flott í holdum og er mikið hress að sjá.
Gæti verið eitthvað tengt tanntökunni.

Hún er orðin rosalega há og falleg hryssan en ég þarf að mæla hæðina á henni til að sjá hvort hún sé að nálgast stærstu hross sem hér eru á bæ.

Eitt af ræktunar áheyrslunum eru stór hross en það eru takmörk fyrir öllu.

Biskup og Suddi eru stopp í bili inní hesthúsi til halds og traust fyrir ungviðið.

Svo mega þeir bráðlega fara á járn svo maður geti farið að skottast aðeins á bak.

Ég og dóttlan á bænum erum búnar að berja saman video brot af hrossunum en þessi vinna er búin að standa yfir nánast þrotlaust síðan í gærkveldi.

Vá.............hvað það er erfitt að koma þessu saman einsog maður vill hafa það nákvæmlega!

Annars er allt gott að frétta á nýju ári þrátt fyrir nístingskulda og ofsaveður hér í fyrradag og daginn þaráður.

Allt fraus niður í hesthúsi í miðjum viðgerðum á brynningartækjunum en sem betur fer þá tókst okkur að fá vatnið þar í gang aftur.

Allar vatnsleiðslur hjá kanínunum eru frosnar og þarf ég að handvatna öllum.
Þær fá volgt vatn daglega og allir fuglar líka.

Veðurfræðingarnir lofuðu okkur snjó í dag en sviku það og enn lofa þeir snjó á morgun.

Það væri gaman að fá soldinn snjó til að gera allt svo hvítt,hreint og fallegt aftur.

Vitlausa veðrið jós hér yfir mold og ösku og sést vart útum glugga fyrir drullu og allt er svo skítugt úti núna.

Svo er svo erfitt að taka myndir á þessum árstíma,myrkrið mikið og cameran ekki að ráða við þetta almennilega.

En öll él birta upp um síðir einsog einhver sagði:)

Þar til næst........passið ykkur á kuldabola og klæðið ykkur vel!

01.01.2011 00:32

Gleðilegt nýtt ár




Gleðilegt nýtt ár elskurnar mínar og takk fyrir öll fallegu commentin á árinu og hérna fyrir neðan á jólakveðjublogginu.

Mikið agalega hlýnar manni um hjartaræturnar að vita af ykkur kíkja hér inn regulega.
Án ykkar myndi ég eflaust ekki nenna að drepa niður putta á lyklaborðið.


Þá vitið þið það!

Þið eru ekkert smá dýrmæt og skiptið máli:)

Og nei............ég er ekki búin að fá mér í glas,bara oggu ponsulítið rauðvínstár í pínku litlu staupi.

Einn góður úr sveitinni í lokin til að létta lundina eftir sorglega ekki fyndið skaup.

Bóndahjón lágu uppí rúmi eitt kvöldið, húsbóndinn strauk um brjóst konunnar og sagði:"Ef það fengist nú mjólk úr þessum miðað við stærð þá gætum við losað okkur við kýrnar." Svo strauk hann neðar á konu sinni og sagði:"ef
þetta gæti nú gefið af sér egg, þá væri hægt að losa sig við hænurnar."
Konan hans strauk bónda sínum frá bringu og niður og sagði: "Ef þessi gæti harðnað þá gætum við losað okkur við bróðir þinn."

Og þessi verður að fá að fljóta með:

Nonni litli opnaði dyrnar að hjónaherberginu og sá að pabbi lá á bakinu og mamma hossaði sér uppi á honum. Um leið og mamma kom auga á Nonna hætti hún, klæddi sig og fór fram. Þegar Nonni sá hana spurði hann "Hvað voruð þið pabbi eiginlega að gera?"

Mamman alveg vandræðaleg og ekki tilbúinn að útskýra þetta fyrir Nonna.  "Já", segir hún, "Þú veist hvað hann pabbi þinn hefur stóran maga. og ég þarf stundum að hjálpa honum við að fletja hann niður!"

"Það er algjör tímasóun hjá þér", sagði Nonni litli, alltaf þegar þú ferð í Kringluna á fimmtudögum þá kemur konan í næsta húsi, fer niður á hnén og blæs pabba upp aftur!"




  • 1

Um mig

Nafn:

Ingibjörg Rannveig Ingólfsdóttir (Ransý)

Farsími:

869-8192

Afmælisdagur:

25 Júlí

Heimilisfang:

Ásgarði

Staðsetning:

250 Garði

Heimasími:

422-7363

Um:

Ég er með hestabakteríuna ógerlegu einsog svo margir aðrir.Náði mér í bónda og fór að búa með honum Hebba mínum í Ásgarði 1998.Muna að kvitta í gestabókina!Njóttu.

Kennitala:

250766-4839

Bankanúmer:

0157-05-400339

Tenglar

Fána teljari

free counters

Eldra efni

Flettingar í dag: 50
Gestir í dag: 13
Flettingar í gær: 309
Gestir í gær: 57
Samtals flettingar: 295126
Samtals gestir: 33891
Tölur uppfærðar: 20.4.2024 02:16:50