Heimasíða Ásgarðs |
||
08.07.2008 01:07Mikið brallað og baukað hér:)Á meðan allir hestamenn landsins nutu sín í leti í brekkunum á LM stóðum Hebbi í ströngu. Hylling og Pamela að úða í sig grasinu. Keyrðum hryssum í nýja haga en hér er allt að brenna vegna þurrka og eitthvað varð að gera og það var sko gert.Golfvöllurinn milli Garðs og Keflavíkur allur brunninn. Nú bíðum við bara eftir úrhellingsrigningu líkt og fleiri hér á Suðurnesjum en sárast gráta líklega golfararnir en það er hryllingur að sjá golfvellina þrátt fyrir að reynt sé að vökva grasið.Draumur frá Holtsmúla. Það sem er mest spennandi sem skeði á meðan þið letihaugarnir ykkar (LM-farar taki það til sín,góðlátlegt grín og kannski SMÁ öfund:)láguð í brekkunum var að ég tók stóra og það risastóra U beygju hvað varðar ræktunarstefnu hjá okkur hér í Ásgarðinum.Nú skal búa til BAUK og það faxprúðann þarað auki. Hann er algjör Black Beauty. Henni Sokkudís Hróks var keyrt undir ORRASON hvorki meira né minna og þar réði miklu um umsögnin frá henni Valgerði vinkonu minni á Hrauni.Þú færð krafta úr kögglum Draumur minn". Geðslagið hreint út sagt úrval og ekkert mál að bæta á hann hryssu eftir hryssu í hólfið,minnir mig soldið á Hróksa minn ![]() Sko"ef ég segi ykkur leyndarmál og farið ekki með það lengra elskurnar mínar. Eitt sinn kom til okkar fyrrum Fetbóndinn og hvíslaði hann því að mér á sinn mjög svo kurteisann hátt og lá honum ekki hátt rómur (þeir skilja sem kallinn þekkja hnéhné .... ![]() Þarsem ég er afar þver og á það til að fara í þveröfuga átt við það sem mér er ráðlagt þá hunsaði ég þessa ráðleggingu en notaði nú samt stóðhest ættaðan frá honum og fékk glimrandi flott folöld enda sá stóðhestur gullfallegur og liturinn frábær og hugnaðist mér mikið frekar en Baukarnir sem í boði voru á víð og dreif. Nú nokkuð mörgum árum seinna spænir vinkona mín mig upp en hún Valgerður á Hrauni gæti fengið mig nánast útí allt,hún hefur einhver góð tök á mér og nær mér á flug og ég veit ekki fyrren ég er komin á kaf í það sem rætt er um yfir kaffibolla Hrauni! Hvaða Álfadropa skildi hún setja í kaffið???? Það fer semsagt lengra en bara í umræðuna yfir bolla og í hittefyrra nær hún mér á flug og ég veit ekki fyrren ég er komin með fullt af kindum sem ég ætlaði nú aldrei að fara að eltast við eftir að ég fékk nóg af þeim fyrir norðan sem unglingur! Issss.......sagði Valgerður"þú gerir bara svona og svona og þá verða þær stilltar og prúðar hjá þér.Og viti menn,gibburnar gera bara nánast það sem ég segi þeim að Valgerður sagði að þær ættu að gera! Með smá brauðhjálp ![]() Nú svo fór hún að tala um svartan stóðhest með glimrandi skap og ekkert mál að bæta hryssu á hann. Nú ekki var verra að hann var í hálftíma fjarlægð frá okkur svo Sokkudís var nú bara hent á kerru ásamt dóttur sinni Sæludís og sturtað inní hólfið hjá honum Draum frá Holtsmúla. Þannig að nú má eiga von á hágengum Bauk,faxprúðann og geðgóðann skulum við ætla. Ekki er það verra sem ég sá í Veraldarfeng en klárinn er undan hryssu frá Mánamanni sem ég lít mikið upp til enda sá maður með glimrandi flott hross. EN ef að hún Valgerður fer eitthvað að tala um Hákarl og Brennivín í sömu setningu þá er ég rokin útí veður og vind! OJJJJJJJJJJJ................BARASTA!!!! Gubb......gubbbb............ ![]() ![]() Verð að setja hér inn mynd því til sönnunar að hún Valgerður vinkona er eitthvað tengd Álfheimum en ég var að smella mynd af hryssu sem hún á og viti menn! Hvaða álfur skildi standa þarna á hryssunni? Ég bara verð að segja ykkur smá brandara sem skeði hérna í gær.Kallinn er á kafi í að gera upp traktora og í gær þá er hann að brasa við gamlan Zetor sem hér stóð á hlaðinu mér til mikilla ama en það er nú önnur saga. Hann þurfti að koma Zetornum gamla nær verkstæðinu og ekki var hægt að starta honum í gang svo kallinn bakkaði bara Massey Fergusyninum að honum og setti spotta á milli þeirra. Svo dró hann Zetorinn af stað en veit ekki af því fyrren Zetorinn ríkur í gang en hann hafði steingleymt að taka hann úr gír og það endaði með því að hann fékk hann aftan á Fergusoninn! Það hafa ekki allir keyrt aftaná sig hehehehehehehehehe.............:) En Zetorinn fæst gefins án dekkja og fyrstur kemur og tekur hann af hlaðinu fær hann! Fullt af fínum varahlutum í honum. Hægt verður að lyfta honum uppá kerru fyrir áhugasamann Zetor mann/konu. Skrifað af Ransý 03.07.2008 01:12Lm á Hellu og litapælingarAllt á fullu í sölu á folöldum og renna þau út einsog heitar lummur. Bara gaman að því og skemmtilegt að fá aftur kaupendur til sín sem eru ánægðir með það sem héðan hefur komið. En að öðru sem heitir Landsmót. Ég þakka bara pent fjölmiðlum sem eru að standa sig heldur betur vel og þar finnst mér hestafréttir.is standa uppúr enda með framúrskarandi fréttaflutning og alltaf eitthvað nýtt í fréttum á sinni forsíðu hvað sem maður kíkir þar oft inn á dag. Ég hreinlega gleypi í mig hvert orð af skjánum og hverja mynd sem þar er. Gott fyrir þá sem heima sitja og komast ekki frá bústörfunum. Á Lm er hryssa okkur tengd en það er hún Dögg frá Hellu sem er undan henni Heilladís frá Galtanesi sem ég stundum kalla LM Sokku en hún var líkt og dóttir sín er í dag í barnaflokki á LM. Dögg frá Hellu ásamt knapa sínum Það er virkilega gaman að fá fréttir af henni og ekki síður skemmtilegt að fá senda glænýjar myndir af henni og knapa hennar sem er að standa sig frábærlega vel á hryssunni.![]() Mona Kensik er stödd á Hellu með cameruna sína og er að taka myndir af flestum börnum/unglingum/ungmennum og setur seinna á netið á sölu til útprentunar. Hávi litli bróðir Daggar í veðurblíðunni. Ég var að skoða folöldin í dag og náði í rassinn á honum Háf Heilladísarsyni og viti menn,hann er ekki litföróttur og nú er ég með þá 99% öruggt að hann er undan Dímoni Glampasyni.Það er svo margt sem bendir til þess hvað varðar bygginguna.Hér voru tveir Dímonarsynir gestkomandi með mæðrum sínum sem voru að hitta Hrók og má segja að þeir séu ansi líkir honum Hávi. Ég fékk sendar myndir frá Sigrúnu í Danmörku en hann Óðinn Hróksson var að verða pabbi og eignaðist hann myndarinnar strák. Falegur Óðinssonurinn og liturinn spez En við Sigrún erum að furða okkur á því hversvegna hann er með hálfhring eða vagl í auga???![]() Þetta getur ekki verið folaldablámi! Ég verð nú að viðurkenna það að ég trúði ekki alveg henni Sigrúnu minni í símanum og taldi þetta vera folaldabláma í auganu í folaldinu en það getur átt það til að rugla fólk í ríminu fyrst þegar að þau eru nýfædd.Eina ferðina enn verð ég að biðla til ykkar þarna úti og nú spyrjum við Sigrún,hvernig má það vera að augað í folaldinu virðist vera með vagl eða hring að hluta til þegar að hvorugt foreldrið er þannig???? Faðirinn er Óðinn (brún/litföróttur með stjörnu) undan Hrók (dökkjarpur)og Eðju (móvindótt/litförótt). Móðirin Vök frá Víðivöllum fremri (rauðtvístjörnótt) undan Gaum frá Sveinatungu (Moldvindóttur) og Rót frá Víðivöllum fremri (brún). Hryssan komst ekki nærri neinum öðrum stóðhesti og er að kasta á réttum tíma. Fljótlega fæ ég sendar myndir af Dímonarsyni/dóttur en Sigrún er með jarpvindótta hryssu sem komin er á steypirinn eftir hann ![]() Skrifað af Ransý 26.06.2008 16:15Sölufolöldin 2008 frá Ásgarði/VíðihlíðJarpskjótt hestfolald frá Ásgarði. Móðir Fjalladís frá Drangshlíð (Skjóna mín:) Faðir Hrókur frá Gíslabæ Nóg af mjólk hjá Skjónu mömmu. Mjög háfættur og fallegur foli með forvitna lund. Hann fer um á brokki og töltið er laust. Verð:150.000- Dúfa frá Ásgarði Móðir Eðja frá Hrísum Faðir Hrókur frá Gíslabæ Dúfa er sótrauð/litförótt og með eindæmum fallegt folald. Hún sýnir allan gang líkt og móðir sín. Flottur frampartur á þessu folaldi. Verð:180.000- Dúfa frá Ásgarði er SELT/SOLD! Himinglæva frá Ásgarði. Móðir Stórstjarna frá Ásgarði Brúnblesadóttir 943 Faðir Óðinn Hróksson frá Ásgarði Háfætt,bollétt og flott byggð. Himinglæva er rauðblesótt/litförótt. Verð 180.000- Hávi frá Ásgarði. Móðir Heilladís frá Galtanesi Faðir :Hávi á tvo feður í augnablikinu en Dna verður tekið úr Háva fljótlega og þá fær hann verðmiðann sinn ![]() Hann "lúkkar "vel og framparturinn geysilega flottur. Svartstjörnótt merfolald frá Ásgarði. Móðir Freisting frá Laugarbóli Faðir Hrókur frá Gíslabæ Folaldið er SELT/SOLD!. Folöld til sölu frá Víðihlíð Vindótt skjótta merfolaldið frá Víðihlíð er SELT/SOLD!. Brúnsokkótt m/væng hestfolald frá Víðihlíð Fallegur frampartur með skásettum bógum. Hin hliðin á drengnum. Verð 80.000 Staðgreitt. Móðir: Lukka frá Uxahrygg IS1999281035 Faðir: Rauður frá Uxahrygg IS19AC181130 Flott merfolald frá Víðihlíð. Með Drottningu mömmu minni. Spænska sporið æft ![]() Hin hliðin á dömunni. Sibbin í góða veðrinu. Bara krúttlegust ![]() Sú jarpskjótta er SELD/SOLD! Nóg af tölti í dömunni og gott brokk með góðri lyftu. Verð 100.000-staðgreitt Móðir: Drottning frá Uxahrygg MF:Eitill frá Hala Bygging 7.75 Hæfileikar 8.15 MM: Díla frá Uxahrygg Faðir: Lykill frá Varmalandi FF: Tígull frá Gígjarhóli 1v Bygging 8.65 Hæfileikar 8.65 FM: Síða frá Halldórsstöðum Bygging 7.75 Hæfileikar 7.86 Skrifað af Ransý 23.06.2008 02:16Litförótt+litförótt = litförótt:)16 Júní Komum heim að norðan um kvöldið þann 16 Júní og var þá ekki hún Mön búin að kasta og þarmeð er ég hætt að trúa þeirri gróusögu að tvö litförótt hross geti ekki átt saman afkvæmi. Sú stutta undir vökulum augum hennar mömmu Ég bara varð að prófa að leiða saman tvö litförótt hross og í fyrra þá setti ég Mön hjá Óðni sem er brúnlitföróttur stóðhestur undan Hrók og Eðju.![]() Teygja vel á eftir góðann lúr Ég fylgdist grannt með þeim og eftir að Mön hleypti Óðni á sig í fyrrasumar þá gekk hún aldrei upp og skilaði okkur í ár bráðhugglegu merfolaldi rauðstjörnóttu að lit og tel ég hana vera litförótta að auki.![]() Efast reyndar ekki um það vegna þess að hún er með silfur litann undirfeld líkt og systir sín Dúfa Eðjudóttir er með. Mön hefur átt mér vitandi 6 afkvæmi og öll eru þau litförótt. Hinsvegar skil ég þá kenningu að arfhreint fóstur undan tveimur litföróttum drepist fljótlega á fósturstiginu. En nú er ég með spurningu til ykkar allra þarna úti sem eruð svo fróð um þessi mál. Er það tilviljun ein sem ræður því að Mön kemur ALLTAF með litförótt afkvæmi??? Skrifað af Ransý 10.06.2008 15:11Folaldablogg10-06-08 Folöldin dafna og stækka og stækka enda vorið búið að vera með eindæmum gott fyrir ungviðið að koma í heiminn. Og enn bætast hryssur hjá Hrók og eru þær orðnar 18 talsins,þaraf gestahryssur 8 talsins. Skrautleg gestahryssa sem er búin að lofa fallegum lit næsta vor ![]() Þær eru reknar saman við stóðið hver á fætur annari og mikil hamingja hjá þeim þegar að þær eru byrjaðar í hestalátum og átta sig á því að það er þarna einn með öllu og láta hann Hróksa ekki í friði þá. Hann passar vel uppá það að hann fái hvíld á milli og neitar þeim óspart um þjónustu sína þegar að honum finnst nóg komið.Enda er hann ekki að setja í þær "just for the fun of it"bara þegar að mestar líkur eru á að folald verði til. Um daginn sá hann við þeim en þá voru tvær mjög aðgangsharðar við hann og lallaði hann sér þá bara inná tún og lagði sig en skildi þær eftir niður á bakka og var rafgirðingin á milli þeirra hehehehehehe..... ![]() Þarna héngu þær og mændu á hann græðgisaugum en hann svaf bara vært og hvíldi sig sá gamli. Nú eftir góðan svefn og kærkomna hvíld stóð minn upp og æddi af stað með miklum látum endurnærður á líkama og sál og afgreiddi dömurnar niður á bakka. Það er gaman að fylgjast með öllum þessum folöldum sem eru undan þremur stóðhestum og það fer mest fyrir Stællsdótturina henni Sæludís Sokkudísardóttur. Sokkudísar-Stælsdóttirin á harðahlaupum. Það er enginn smá kraftur í henni og hún getur alveg endalaust hlaupið og leikið sér daman. Ef hin nenna ekki að hlaupa með henni þá bara hleypur hún um af krafti alein og þarf sko ekki á neinum leikfélögum að halda. Hraunsbræður eru miklir vinir Dímonar synirnir frá Hrauni halda sig voðalega mikið saman með mæðrum sínum og sprella í kringum þær á milli þess sem þeir kljást hvor við annan.![]() Þetta eru alveg svakalegir boltar enda snemmfæddir og mæðurnar hinar mestu mjólkurkistur. Óðins afkvæmið hún Himinglæva er ennþá voðalega ný en hún er dugleg að hlaupa í kringum móður sína á löngu köngulóar leggjunum sínum. Himinglæva og Litlu Lappar-Hróksdóttir að kljást. Ég er enn að furða mig á því hvernig hún Stórstjarna kellingin gat komið með svona langleggjað og fótahátt folald!?Hávi Heilladísarsonur að sperra sig í veðurblíðunni. Palli að safna gögnum á cameruna sína. Páll Imsland kom hér um daginn og var eins og alltaf mikið skrafað og pælt um liti og erfðir þeirra.Mikið gaman að fá hann í heimsókn og spjalla um hinar og þessar ættlínur en kallin er hreint út sagt hafsjór af fróðleik um ættir ![]() Við skelltum okkur norður um daginn og tók ég myndir fyrir vin okkar Val í Víðihlíð en hann er með nokkrar vel ættaðar hryssur í folaldseignum og hér er gullfalegt vindskjótt merfolald sem stakk mig verulega ![]() ![]() Til sölu/for sale this great looking marefoal! Flott vindskjótt merfolald. Sætust þessi dama. Kattliðug sú stutta. M:Depla frá Þórunúpi MF:Sleipnir frá Vindási MM:Þruma frá Þórunúpi F:Lykill frá Varmlandi FF:Tígull Gýgjarhól FM:Síða frá Halldórsstöðum Þetta fallega vindskjótta fer um á flottu tölti og sýnir brokk líka. Hún er til sölu á 100.000- Hafið samband við Val í síma GSM 895-5300 Nú ef þið eruð eitthvað feimin þá hafið þið bara samband við mig í staðinn hehehehe..... ![]() Knús þartil næst ![]() Skrifað af Ransý 10.06.2008 03:01Folalda nöfn óskast/úr Goðafræðinni:)Fórum í höfuðborgina í dag til að versla fóður og ýmislegt fyrir skepnurnar á bænum. Ég keypti Vítamín fötu fyrir hrossin en það verð ég að viðurkenna að ég hef ekki gert það áður. Hef látið saltsteina nægja í hagann og hana nú. Ekki fannst mér þau vera neitt sérstaklega spennt fyrir fötunni eða innihaldi hennar en flest smökkuðu þó en síðan röltu þau bara aftur útí hagann að kroppa í sig grængresið. Hrókur er iðinn við merarnar en það virðast bara vera tvær að ganga og þær ganga hreinlega endalaust! Eða honum finnst það gamla "manninum:) Það er alveg sama hvað hann reynir að skipta sér á milli þeirra en hann hefur þann háttinn á að æða skyndilega af stað og hneggja hátt og snjallt einsog hann sé að spyrja"vill einhver af ykkur dömunum dr...tt??? Ein jörp og ein svört æða þá á móti honum og enn er barist um hver nær að fanga athygli hans í það skiptið. Hrókur í hvíld á milli verka ![]() Ég bætti á hann 4 hryssum um daginn og var gaman að sjá hann taka á móti þeim. Það er nóg að kalla nafnið hans og þá veit hann hvað er að ske! Nýjar dömur að koma í hólfið hans........jibbý! Hann kom hlaupandi og ég sleppti merunum niður á tún og hann var fljótur að átta sig á því að 2 þekkti hann vel og 2 voru nýjar. Ein af þeim þekkti ekki alveg réttu leiðina niður á bakka en hann sýndi henni þolinmæði og stuggaði henni rólega í rétta átt. Eina sem er leiðinlegt við að bæta inn nýjum hryssum á hann í hólfið er að horfa uppá hvað hinar merarnar sem fyrir eru geta verið leiðinlegar við þær nýkomnu. En allt róast þetta nú og eftir smá stund þá hættu gömlu breddurnar að eltast þetta og fóru að sinna sínum hugðarefnum,nefnilega að éta og éta:) Mér finnst ég hafa misst af stórum parti í sumar en við vorum á rölti niður í fjöru í gær og okkur krossbrá þegar að við sáum Æðarfugl með fullt af ungum í flæðarmálinu! Hvernig má þetta vera! Rosalega hefur fuglinn verið snemma í ár að koma upp ungum! En sætir eru þeir vaggandi í sjónum undir verndarvæng mæðra sinna ![]() Hér eru í gangi rannsóknir á Kríunni og getur hún sagt mikið til um það sem er að ske í sjónum í kringum landið og þá varandi Sílið sem hún lifir á. Ég öfundaði hreint ekki manninn sem er hér við rannsóknir hjá okkur þegar að hann fékk að fara inní aðalvarpið hjá okkur! Sá kom goggaður og útskitinn EN alsæll til baka því þetta lítur bara mjög vel út í ár að hans sögn. Mikið af Síli greinilega sem segir manni það að nóg æti er í hafinu í kringum landið og er það einn stór hlekkur í fæðukeðju margra fiska sem við byggjum afkomu okkar á. Í kvöld komu hér tvær flottar tíkur í heimsókn.Þær eru af Terrierkyni sem lætur best að eltast við Mink og fást þessar tíkur gefins á góð heimili. Eigandinn og ræktandinn hann Palli í Norðurkoti svarar í síma 698-4784 fyrir þær ![]() Nú þarf ég að finna nöfn á folöld sumarsins en við höfum haft þann háttinn á að nota nöfn úr Goðafræðinni. Hér eru þau fyrstu sem eiga að fara á sölulistann. Dúfa frá Ásgarði. Litförótt merfolald undan Eðju frá Hrísum og Hrók frá Gíslabæ. Ofsalega flott folald sem ég varla tími að selja. Himinglæva frá Ásgarði. Rauðblesótt merfolald (gæti orðið litförótt) undan Stórstjörnu frá Ásgarði og Óðinn frá Ásgarði. Sama folald,ekkert smá lappalöng og flott byggð. Hávi frá Ásgarði. Gullfallegt hestfolald undan Heilladís frá Galtanesi og Dímoni Glampasyni. Sama folald. Endilega hjálpið mér að finna nöfn hið fyrsta svo hægt sé að auglýsa þau í söludálkinum með nafni en ekki NN.Þartil næst,fariði vel með ykkur dúllurnar mínar ![]() Skrifað af Ransý 06.06.2008 16:01Stórstjarna og Heilladís kastaðarSmá blogg á milli hestaferða.Erum að keyra í stóru sveitina (austur:) þeim hrossum sem þar eiga að vera framá haustið í frelsinu. Ásgarðurinn er að tæmast af hrossum en í staðinn fyllist hér allt af fuglalífi en hjá okkur er Friðlýst Æðarvarp. Alveg merkilegt hvað fólk er farið að átta sig á því að að hér eigi ekki að æða innfyrir girðingar og ræna og rupla eggjum! Skildi það vera útaf nýja flotta skliltinu sem var sett hér upp fyrir nokkrum dögum? Held að það hjálpi alveg svakalega til ![]() En að hrossunum ![]() 2 Júní. Stórstjarna Brúnblesadóttir kastaði rauðblesóttu merfolaldi afar háfættu og fallegu undan honum Óðinn frá Ásgarði. Alltaf gott að fá merfolöld og nú er að krossa fingur og vona að daman verði litförótt einsog pabbinn ![]() 3 Júní Það kom að því að Heilladísin frá Galtanesi (LM Sokka:) kastaði. Hún var hjá honum Dímoni Glampasyni síðastliðið sumar og kom heim reyndar í hestalátum og beint í hólf hjá Óðinn Hrókssyni þannig að það gæti orðið faðernismál með þetta flotta hestfolald. Strengur frá Ásgarði??? ![]() Eitthvað segir mér samt að Dímon eigi þennan grip. Allt kemur þetta samt endanlega í ljós þegar að Dna verður tekið úr því í haust. Eitthvað var naflastrengurinn lengi að detta en að lokum datt hann af sem betur fer. Hin hliðin er næstum eins og sokkar á öllum fótum Ekki gott að dröslast með svona aukahlut á eftir sér lengi en kannski er hann bara búinn að læra að "draga taum".........hnéhnéhné.![]() Hrókur í tannröspun hjá Bjögga og yfirhalningu. Það stóð ekki á honum Björgvin dýralækni að heilbrigðisskoða hann Hrók og fékk klárinn tíma strax og var hesturinn drifinn í spattmyndatöku líka þó svo hann hafi ekki þurft þess vegna aldurs.Stóðhestar fæddir 1998 og eldri þurfa ekki að fara í spattmyndatöku en Hróksi er einmitt fæddur 1998. Klárinn flaug í gegnum alla skoðunina og reyndist 100% heilbrigður og spattfrír ![]() Strax næsta dag hringdi ég inní VÍS og lét tryggja hann í bak og fyrir. Halló kelling! Á ekki að fara að sleppa mér í dömurnar??? Hann var ekki lítið spenntur að fá að fara í merarnar sínar niður á bakka en hann vissi alveg hvað var að ske þegar að við fórum með hann í heimahesthúsið að draga undan honum skeifurnar.Ég var ekki minna spennt þegar að ég var að baksa við að ná fjöðrunum á meðan kallinn hélt löpp en hesthúsið var hreinlega yfirfullt af Hunagnsflugum sem hlussuðust þarna allt í kringum okkur!OJJJJJJJJJJ.......barasta! Ég þurfti að hlaupa nokkrum sinnum út öskrandi vitlaus við verkið og kallinn bara hló að mér!!! ARRRRRGGGG.......ég er bara skíthrædd við þær ![]() Mættur á svæðið og tilkynnti það með ógurlegum hávaða! Dömurnar alveg slefuðu og tvær slógust um hann og tók það hann dágóðann tíma að ákveða hvor ætti að fá hann fyrst ![]() Pamela náði að vera fyrst og var mjög sátt með dr.......inn ![]() Farin aftur í hestaflutninga. Sjáumst dúllurnar mínar! Smá viðbót! Eftir mikla útreikninga hjá mér og Sigurði Dæmon grúppgæja þá er það víst að Dímon kallinn á þetta flotta hestfolald með henni Heilladís. Sigurður hallast mest að því að Heilladís þyki bara svo gott að fá í kroppinn að hún hafi ekki getað stoppað þegar að heim kom aftur í Ásgarðinn og notið ásta líka með honum Óðni kallinum. Þetta er víst ekki óalgengt að hryssur gangi aftur þó þær séu fengnar ![]() Skrifað af Ransý 31.05.2008 23:55Öll Hróksafkvæmi fæddÞað má með sanni segja að Hrókur hefur ekki verið lengi að fylja hryssurnar í fyrra því öll afkvæmi hans í ár litu dagsins ljós núna í Maí. Verð nú samt að viðurkenna það fyrir ykkur það að klárinn var settur í hryssurnar 1 Maí í fyrra þannig að það er kannski ekki skrítið að folöldin fæðist snemma. En hvað um það,klárinn bíður spenntur að hitta dömurnar og átti að setja hann í þær á morgun en það tefst aðeins vegna þess að ég var búin að gleyma því að ég var búin að lofa klárnum því að láta heilbrigðisskoða hann og tryggja í ár fyrir vertíðina. Hann er nú einu sinni búinn að fá slæmt spark í "litla Hrók"þannig að blæddi mikið úr en sem betur fer þá greri það fínt og hefur ekkert háð honum. Og vinurinn er teinréttur og ekki þarf að stýra fyrir hann líkt og þá stóðhesta sem ekki voru svona lánsamir eftir spark í vininn. 24 maí Skrámu/Hróksdóttir í góða veðrinu. Skráma hennar Möggu kastaði um daginn gullfallegri háfættri hryssu undan Hrók.Innilega til hamingju Magga með flottan grip:)Nú sama dag kastaði Tinna hennar Möggu hestfolaldi undan Stæl frá Neðra Seli. Hann er virkilega spennandi á litinn en okkur sýnist hann vera einhvernveginn bleikálóttur eða ljósmóálóttur með sokka á minnsta kosti þremur fótum. Það er erfitt að sjá sokkana en þeir koma betur í ljós þegar að hann fer að fella folaldafeldinn. Þess má geta að Stæll er líka faðir hennar Sæludísar Sokkudísardóttur sem Sabine á en hún er jarpsokkótt á öllum fótum! 28 Maí Frestingar/Hróksdóttir að teygja sig eftir lúr. Freisting hans Hebba kastaði bikasvartri hryssu undan Hrók með stóra stjörnu í enni.Hún var ekki lengi að koma sér á fætur og ekki var hún þornuð þegar að hún var farin að hlaupa í kringum mömmu sína.Enginn smá kraftur í henni og gaman að sjá hlaupagleðina í henni en sú stutta er alveg óstöðvandi. 29 maí Litla Löpp var alveg að fíla folaldið sitt í grön Litla Löpp kastaði einlitri jarpri hryssu undan Hrók.![]() Það munaði ekki miklu að við Magga og Inga sæjum það þegar að hryssan kastaði en við vorum einhverjum mínútum of seinar. Það er gaman að fylgjast með ungviðinu standa á fætur og leita eftir spena með ylvolgri mjólkinni.Ég tala nú eki um broddinn sem er þeim lífsnauðsynlegur. Oft langar manni að hjálpa en það er alveg bannað en það getur ruglað folöldin í því hver hin raunverulega móðir þeirra er og farið að elta manneskju í stað móður sinnar. Heilladís frá Galtanesi uppáhaldið mitt er hreinlega að springa. Þá eru bara 3 hryssur ókastaðar í Ásgarði og eru þær allar fylfullar við Hróksyninum Óðinn frá Ásgarði sem er brúnstjörnóttur litföróttur undan henni Eðju frá Hrísum sem er móvindótt litförótt.Það verður ekki langt í að þær kasti og ekki langt á milli þeirra heldur. Allar byrjaðar að stálma verulega vel og nú er bara að krossa fingur og vona að allt gangi vel hjá þeim sem ég reyndar efast ekki um. Lítill "áburðardreifari" á flugi. Ég var að leika mér að taka myndir af litlu "áburðardreifurnum mínum" Kríunum um daginn.Alveg mesta furða hvað þær tókust vel og er ég bara pínulítið montin með þær.Krían skiptir okkur verulegu máli hér og gott er að hafa hana niður á túni og inná stykkjunum sem beitt eru á haustin en Krían ber alveg svakalega vel á túnin svo þau verða iðagræn og spretta vel. Ef hún fær að vera í friði þá líka er hún ekki að verpa nærri íbúðarhúsinu og truflar okkur þarafleiðandi ekki neitt. Það versta sem hægt er að gera er að láta fólk óáreytt inná landareigninni við eggjatínslu því þá færir hún sig bara nær húsinu okkar og þá er nú ekki gott að hengja út þvott eða bara ganga um hlaðið. Það eru nefnilega ekki margir sem átta sig á því að Krían verpir allt að 5-7 sinnum ef alltaf er tínt undan henni og það segir sig sjálft að ungar sem koma seint úr eggi eru skildir eftir um haustið og veslast bara hér upp og þeir sem ekki deyja úr hungri gleypir mávurinn lifandi og það er ekki gaman að horfa uppá það. Hingað kom ung stúlka frá Háskóla íslands og fékk leyfi hjá okkur að fara niður í tún í sumar til að rannsaka Kríuna og hvernig henni reiðir af með varp og unga í ár. Það er orðið vinsælt að koma til okkar og skoða varpið og rannsaka það en Náttúrufræðistofa Suðurlands hefur sent hingað fólk síðustu árin til þess. Við höfum bara gaman af því en síður gaman að þeim sem vaða hér í óleyfi yfir girðingar og ræna hana eggjunum. Það voru hér unglingar um daginn að ræna eggjum af Kríunni og óðu hér yfir girðingar og stukku svo einsog byssubrenndir inní bíl þegar að þeir sáu okkur koma keyrandi og reykspóluðu í burtu. Ég er farin að taka niður númerin á bílunum að beiðni Lögreglunnar og hér ætla ég að birta númerið á blogginu ef það skildi verða til þess að þessir eggjaperrar hætti að koma og ræna eggjum sem þeir nota svo til að grýta í bíla og hús. Ég veit það fyrir víst að þeir borða þau ekki eða það hefur verið reynslan undanfarin ár. Þessi bíll var af tegundinn Pajero dökkgrænn MY 286. Skrifað af Ransý 26.05.2008 02:36Folalda/trippatamingarFolöldin fengu aldeilis kennslustund hjá okkur Möggu í fyrrakvöld. Ekki vorum við alveg einar við þá vinnu en Hrókur aðstoðaði okkur töluvert og létti mikið fyrir okkur með kröftum sínum. Það er alveg frábært að hafa hest sem er traustur og stabíll til að hengja utaná svona spriklandi ungviði. Eins gott að vera búinn að handleika þau áður en þau fara í stóra hagann í sveitinni. Það skeði nefnilega í fyrra að það fóru trippi héðan í stóru sveitina sem voru ekki alveg fullunnin og fékk maður að kenna á því í haust og vetur.Ekki gaman að eltast við þetta í "aðeins"100 hektara stykki! Þau sem voru frumunnin í fyrrakvöld voru þau Embla,Hefring,Sleipnir og Týr öll sömul undan Hrók og var pabbi gamli bara hinn ánægðasi með barnahópinn sinn ![]() Embla Hróksdóttir með pabba gamla. Embla Hróks var í hestalátum og sést það vel á fermingar"bróður hans Hróksa sem gægðist út hehehehehe....... ![]() Sleipnir Hróks setti allt í bremsu svo pabbi gamli varð að taka á sínum stóra. Tvö í viðbót fengu líka að dingla utaná honum en það voru þær Skutla og Kátína.Hrókur fékk verðlaun eftir dugnaðinn við uppeldið á börnunum sínum. Kátína Rösk/Illingsdóttir stóð sig mjög vel utaná og fylgdi nánast átakalaust með. Þær eru nokkuð margar sem eru búnar að panta hjá honum og hlakkar hann mikið til að sinna þeim ![]() ![]() Allt um Hróksa kallinn er að finna hér fyrir ofan undir STÓÐHESTAR:) Við fengum góða einkunn um daginn eftir Knapamerkja námskeiðið í vetur hjá henni Sigrúnu Sigurðar. Við fengum tæplega 9 í (meðal)einkunn fyrir verklega kaflann og segi ég að klárinn eigi aldeilis stóran þátt í þeirri einkunn því hann er allur af vilja gerður að þóknast knapanum. Bóklega einkunin hefði líklega verið hærri ef ég hefði fengið hjálp frá klárnum við lesturinn líka hehehehehe.... ![]() En við náðum þessu öllu saman þrátt fyrir að seinna bóklega prófið hafi verið mjög erfitt og alltof naumur tími sem okkur var skammtaður til að svara öllum spurningunum í prófinu! Ég sem var að óttast það í vetur að þurfa að skipta um reiðhest á námskeiðinu en ég var hrædd um að trufla kannski hina nemendurnar með því að mæta á fullorðnum stóðhesti. Ekki aldeilis og má ég bara vera stolt af okkur báðum og er það.(Ein að klappa sér á bakið hnéhné ![]() Blogga ekki aftur fyrren eftir marga daga elskurnar mínar! Heyri ég "dæs ![]() ![]() Er að fara í hörku hestaflutninga og þeir sem eiga hér hross útí í rúllu/beit mega fara að huga að því að týna þá heim eða hvert sem þeir blessaðir eiga að fara eftir vetradvölina hér í Ásgarðinum í vetur. Ég miða við 1 Júní en það eru víst komin græn grös um mest allt landið ![]() Knús til ykkar allra ![]() Skrifað af Ransý 23.05.2008 23:37Hrókur fer 1 Júní í hryssurnar Engin folöld að fæðast í augnablikinu og kannski bara gott því veðrið er hundfúlt til myndatöku þó hlýtt sé.Rok og rigning og ekkert gaman að fara niður á tún að taka myndir af nýjustu folöldunum. Má bjóða þér einn snöggan Toppa mín? Glófaxi stendur sig einsog hetja í merunum og fyllir á þær reglulega sem það vilja.Ég bjóst nú við því að hann myndi missa einhver kíló við þessa iðju sína fyrstu dagana en það haggast ekki á honum holdin stráknum. Hann fær nú reyndar að hafa hesthúsið opið með tuggu í stallinum á meðan það er svona mikið rok en það er ekki viðlit að setja út rúllu,heyið fyki bara á haf út. Alveg finn ég það á mér að þær eru eitthvað að bralla merarnar mínar niður á túni! Hrókur er inni og bíður spenntur að fá að taka við hryssunum niður á túni en það fer að styttast í að Glófaxi fari aftur uppí stóðhestahús og Hrókur fari niður á tún í staðinn.Þær sem eru fengnar við Glófaxa eru þær Skjóna mín,ein gestahryssa,Sokkadís er alveg að fara að ganga og svo gæti hún Eðja náð að fá hann Glófaxa til við sig áður en hann fer aftur uppí hús. Ég bara hlýt að fá eitt stykki hryssu undan klárnum næsta vor og er ég voðalega spennt að sjá hvort úr þeirri ósk minni rætist. Flottur litur verður það ábyggilega því að Glófaxi fær eingöngu hryssur í lit undir sig. Hrókur og Freisting að sinna kalli náttúrunnar í fyrra.Sonur þeirra Sleipnir fyrir framan. Þeir sem hafa hug á því að koma hryssu undir Hróksa í sumar endilega hafið samband við mig í netfangið herbertp@simnet.is eða hringið í síma 869-8192 Ransý svarar fyrir Hrók ![]() Klikkið á stóðhestar hér fyrir ofan til að fá fleiri upplýsingar um Hrók. Tek það fram að það skiptir ekki máli þó klárinn sé kominn í merarnar,hann tekur glaður á móti þeim og fylgir þeim kurteislega í stóðið sitt. Ég er að verða alveg snar á því að geta ekki tekið myndir úti vegna veðurs. Sleipnir Hróksson frá Ásgarði. Skellti samt camerunni um hálsinn og fór með hana útí stóðhestahús og tók myndir þar af folöldunum þegar að þau voru búin að sprella úti og komu inní matinn sinn.Týr Hróksson frá Ásgarði. Kátína frá Katanesi. Á morgun er ætlunin að temja þau sum hver pínulítið áður en þau fara í sumarhagana.Eins gott að maður nái þeim aftur í haust og þau kunni að teymast. Skrifað af Ransý 19.05.2008 17:04Sokkadís og Eðja kastaðarFlott folaldið hennar Sokkudísar. Í gær 18 Maí kastaðí hún Sokkadís Hróksdóttir gullfallegu merfolaldi undan Stæl frá Neðra Seli.Flottust þessi dama. Sabine Sebald á þetta flotta folald og má vera hæstánægð með litinni á því og ganglagið er ekkert nema tölt og svo tekur það í skeið þegar að mikið liggur við.Ekkert nema lappirnar þessi folöld Innilega til hamingju með nýju kynbótabombuna Sabine mín!![]() Bara glæsilegt! Eðju-Hróksdóttir hissa á myndatökunni. Í dag kastaði svo Eðja merfolaldi undan Hrók og nú var ég aldeilis hissa en það virðist sjást í því litföróttur litur en það grillir allstaðar í grátt undir feldinum þegar að það hreyfir sig og er einsog það sé allt hrímað.Þarna sést líklega litförótti liturinn fyrir ofan taglið. Aðalliturinn er pínkulítið að vefjast fyrir mér en mér sýnist þessi dama vera sótrauð eða dreyrrauð.Papparassinn hún Ransý alltaf á eftir manni Hvað segir okkar litaspegúlant hún Freyja Imsland?![]() Er þetta merfolald sótrautt litförótt eða dreyrrautt litförótt? Ég hef ekki áður séð í nýsköstuðu svona hrímgrátt undir aðalitnum áður sem bendir sterklega til að folaldið sé litförótt. Glófaxi stendur sig einsog hetja í stóðinu en hann er að fylla aftur á hryssurnar og eru þær Skjóna mín og önnur til í stuði þessa dagana. Hann er að æfa sig fyrir norðurferðina en þar bíða hans nokkrar flottar hryssur á Stórhóli. Gott í dag,er að fara í hrossaflutninga og nóg að gera framundan í þeim málum. Bless elskurnar mínar þartil næst ![]() Skrifað af Ransý 16.05.2008 02:26Hermína borin og hestagestir:)Hermína bar loksins síðastliðinn 5 maí tveimur bráðmyndarlegum gimbrum.Sama dag kom Fjármálastjórinn minn hún Valgerður á Hrauni ásamt fylgdarliði og nú var ætlunin að kenna okkur að marka gibburnar okkar og setja í eyrun fínu löglegu eyrnamerkin svo allt verði nú ekki vitlaust hjá Sýslumannsembættinu. Þetta gekk allt saman bráðvel hjá mér eftir góða tilsögn og ég var farin að marka alveg á fullu nýja markinu okkar sem er Heilhamrað hægra,umskorið vinstra........úppssss.....biti framan vinstra vildi ég hafa sagt ![]() Eitthvað þurfti bóndinn á bænum að hjálpa til við þetta og hélt ég á tímabili að ég fengi eitt stykki merki í mitt eyra en kallinn þarf að fá sér ný gleraugu hið fyrsta eða minnsta kosti fyrir næstu mörkun. Allt hefur gengið vel í sauðburðinum fyrir utan að við misstum eina kind en undan þessum 8 skjátum okkar fengum við 15 lömb.Við ættum ekki að svelta næsta vetur:) Annars er það reglan að setja allt á þartil að hausta tekur þá endurskoðum við þetta allt saman. Krían kom 7 Maí og það leið ekki langur tími þartil hún var sest á túnin og farin að stíga trylltan dans en kallinn verður að færa kerlu Sandsíli ef hann á að fá eitthvað do do..... ![]() Ég náði þessari mynd í gengum traktors gluggann af karli að gera hosur sínar grænar fyrir kerlu en við Busla vorum að slóðadraga og mátti ekki miklu muna að þær lentu í slóðanum svo mikill dans var stiginn. Busla voðalega hátíðleg yfir þessu öllu saman. Óskýrður Skjónu/Hróksson. Svona í leiðinni kíkti ég niður á bakka til hryssnanna og var alltílagi með alla og folöldin tvö sem komin eru frísk og kát.Bakkinn er óðum að grænka og verða flottur en þær hafa líka rúllu sem þær narta í inná milli grænu grasanna. Annars eru hrossin farin að svelta sig fyrir nálina og fara illa með heyið sem liggur í haugum og gulnar bara í góða veðrinu.Þau taka bara það besta úr og skilja hitt eftir,ég myndi líka gera það á þessum árstíma ef ég væri hross. Gunnhildur á jörpum og Ólöf á brúnni hryssu. Ólöf þarf ekki hnakk en hjálm notar hún Það hefur verið skemmtilegur gestagangur hér síðustu tvo daga en þær stöllur Sunna Sigga og Ólöf komu í fyrradag ríðandi frá Mánagrund og í gær aftur og með þeim var líka hún Gunnhildur.![]() Sunna Sigga á rauðum gæðing. Reiðvegurinn á milli er víst alveg snilld að þeirra sögn og nú verð ég að fara að prófa færið en fyrst væri nú gott að pota skeifum undir klárana.Ekki þótti nú klárunum þeirra neitt leiðinlegt að komast á grænt og sprella svolítið fyrir okkur áður en þeir gáfu sig allan í kroppið. Glófaxi notaður sem barnastóll,Gígja á öðru ári og Glófaxi 3 vetra. Í dag var ég mest bara að leika mér í bænum en ég fór með honum Glófaxa vini mínum og Sillu inní Víðidal til að smella af honum nokkrum myndum og vera viðstödd þegar að fékk sinn fyrsta byggingardóm. Allt gekk þetta bráðvel og dómurunum leist bara vel á gripinn enda bráðhuggulegur foli þarna á ferð með einstakt geðslag. Skrifað af Ransý 11.05.2008 01:02Skjóna og Hera kastaðarÚpppppsss......ég sullaði niður! Ég hélt að Hebbi væri að skrökva að mér í morgun þegar hann sagði að tvö folöld væru fædd.Skjóna og Hera hafa átt sín tvö folöld með mjög stuttu millibili en líklega hefur hún Hera kastað á undan en það sýndist manni á folöldunum. Því Skjónusonur var enn með hóf...... sem að er á neðaverðum hófnum til að verja fæðingarveginn fyrir hnjaski þegar að við komum niður á tún en Heru Skjóni var búinn að missa sitt hófskraut. Hóf"skrautið" hans Skjónu Skjóna Ég stend alveg á gati hvað þetta heitir en hef séð þetta oft og nú óska ég eftir því að einhver af mínum dyggum lesendum hér setji það inn á commentið hér fyrir neðan(bara undir nafnleynd ef vill:) hvað þetta heitir???????![]() Heru-Hrókssonur Mynd Magga. Þessi mynd er hreint augnakonfekt! Myndasmiður Magga. Auðvitað drifum við okkur niður á tún til að kyngreina gripina og eftir miklar vangaveltur og myndatökur þá var hið sana komið í ljós,þetta voru tveir myndarlegir Hrókssynir.Nú á eftir að skýra Skjónana en ég er öll í Goðanöfnum enda hæfir það vel við bæjarnafnið Ásgarð. Nokkrar af hinum merunum eru farnar að stálma og er ég voðalega spennt að vita hvað Hróksonurinn litförótti kemur með undan Mön sem er líka litförótt. Talandi um litförótt,hún Rjúpa mín er komin heim í smá pásu frá tamningum og var heldur betur kát að komast aftur til vina sinna í hólfið í dag. Rjúpa búin að finna systur sína hana Væntingu.Mynd Magga. Það gekk aldeilis vel með hana hjá Eygló og þegar að við sóttum hana inná Mánagrund um daginn þá var Eygló að koma á henni úr reiðtúr og fengum við að sjá hvað hryssan hefur bætt mikið jafnvægið með mann í hnakknum en nú er hún ekki lengur einsog hundur í sokkum hehehehehehe.....![]() Hún er farin að stíga töltið á hægu og svo bregður hún fyrir sig fimmta gírnum (lulli:)og er hin þægasta innanum allan skarkalann og umferðina.Brokkið er víst alveg rosalegt og ekki ásetugott en mikil yfirferð á því og flott fótlyfta.Vonum að það mýkist með meiri tamningu. Eygló vill fá hana aftur til sín og halda áfram með hana því hún finnur sitthvað spennandi í hryssunni. Ég var bara montin með árangurinn hjá bæði Eygló og Rjúpu og ánægð með vinnubrögðin á henni. Munið að setja inn hvað þetta hóf.....heitir sem að folöldin fæðast með en dettur svo af þegar að þau fara að þorna!!!! Þartil næst,fariði vel með ykkur ![]() Skrifað af Ransý 06.05.2008 18:05Flekka borin....... heimalningum:(Sauðburði að verða lokið á þessum bæ og komin 10 lömb í heiminn.Enn er von á fleirum samt sem áður en Hermína er einsog skrímsli í laginu en ekkert bólar á lömbunum hennar enn. Ein kindin hjá okkur varð veik um daginn og hélt dýralæknirinn að hún hefði verið barin svona illa af annari kind en hún varð hölt og á endanum lagðist hún niður. Henni voru gefnir sterar og sló það verulega á verkina en hún missti nú ekki matarlistina sem var í góðu lagi. Svo í fyrri nótt þá loksins kom að því að hún færi að bera. Fyrst kom lítill hrútur í heiminn ansi sprækur. Hrússi litli karaður í bak og fyrir. Svo kom stór dama sem var ekki alveg á því að lifa og var hún ekki með miklu lífsmarki og vildi ekki anda til að byrja með.Mér leist ekkert á dömuna því hún var "löt" að draga andann og vildi ekkert gera nema liggja flöt og fjara út. Ég útbjó grind til að lyfta kindinni upp svo hægt væri að koma henni aftur á lappirnar. Hrússi litli var fljótur að koma sér á spenann og teigaði í sig broddinn á meðan mamman stóð upprétt og drakk og át. Kindin var ekkert nema hamingjan með þetta allt saman og drakk og át hey og kumraði af og til ánægju kumri yfir afkvæmum sínum. Í þessu var ég að brasa alla nóttina og það var ekki fyrren klukkan var að verða 06:00 um morguninn að ég gafst uppá að koma lífi í gimbrina útfrá sem var að kólna upp og vafði hana inní handklæði og fór með hana með mér heim. Hún var sett upp við ofninn í eldhúsinu og sneri ég henni reglulega við svo hún hitnaði nú um allann kroppinn. Útbjó svo lítið "fangelsi"við ofn í stofunni og ákvað það að nú væri ég búin að gera allt sem ég gæti og nú yrði sá uppi að ráða för. Nú næsta morgun þá vaknaði Hebbi upp við jarm og trítl á parketinu í stofunni og var þá ekki daman vöknuð glor soltin! Vel spræk og ákvað að lifa hún Lukka Einhvern veginn hafði henni tekist að brjóta sér leið úr aðhaldinu og var farin á flakk um allt.![]() Eftir volgann sopa af mjólk þá dreif ég mig með dömuna útí fjárhús svo hún gæti fengið mömmu sína aftur en er þá ekki kindin steindauð í stíunni! Þannig að nú eru komnir tveir heimalningar í Ásgarðinn sem heita Lukka og Láki. Spánska sporið hva.... Stóðhestafréttir eru þær helstar að hér er étið,leikið og sprellað þvílíkt enda vor í lofti.![]() ![]() Setti alla stóðtittina út með Hrók um daginn og nennti hann nú ekki að sprella mikið enda orðinn 10 vetra nú í vor og svoleiðis höfðingjar eru nú ekki að eyða orkunni í áflog heldur geyma sína krafta handa hryssunum í sumar. Glófaxi og Heljar að tuskast. Gefstu upp Pálmi? Heljar Ögrasonur/Glampasonar. Pálmi Silfrasonur. Ég er með tvo titti heldur glannalega blésótta þá Heljar og Pálma og ég er ansi hrædd um að ég sé búin að týna eigandunum að þeim!Deidre Pierce"ef þú lest þetta endilega hafðu þá samband við mig. Eða ef einhver veit eitthvað um hana Deidrie þá endilega hafið samband við mig eða getur sagt mér hvað hægt sé að gera þegar að maður hreinlega týnir eiganda hrossa sem maður geymir. Er búin að reyna að senda henni netpóst en fæ ekkert svar. Skrifað af Ransý 04.05.2008 00:02Askur í sundi á Hólum!Flugsyndur kappinn Askur er byrjaður í sundi á Hólum.![]() Ekki nóg með það þá er tamingarmaðurinn með honum í sundi líka en hann kallar ekki allt ömmu sína hann James Bóas sem skellti sér útí með klárnum og syntu þeir saman.James í blautbúning og Askur í sumargallanum enda var víst vel heitt í veðri í Skagafirðinum í dag. James synti skriðsund á móti straumnum....... Askur fær mikið lof frá tamingarmanninum sem segir hann vilja allt fyrir sig gera.![]() Semsagt hann Askur Stígandasonur er orðinn vel reiðfær og það vantar ekki áfram viljann í klárinn sem sýnir bæði brokk og tölt,allt laust frá upphafi tamingar. Það er gaman að fá hverja símhringinuna á fætur annari frá tamningarmanninum sem er í skýjunum í hvert sinn sem hann stígur úr hnakknum. Nú er ekki um annað að ræða en að bruna norður sem allra fyrst og hafa með cameruna og mynda þá félaga saman. En ekki fyrren allar kindurnar eru bornar og komnar útí grænann gróðurinn sem spýtist hér upp svo það liggur við að maður heyri bresti í grasinu. Ekki verður leiðinlegt að fá rigningu með hlýindum sem hann spáir næstu dagana. Ætli maður nái ekki að fyrna svolítið í ár af heyi og kemur það sér vel að eiga fyrningar fyrir innihrossin næsta vetur. En er ekki best að láta myndirnar tala sínu máli sem sýna Ask og James í flottustu hestasundlaug sem ég hef séð útí hinni einu sönnu íslensku náttúru ![]() James og Askur að ræða saman um næstu sundtökin. Frábær samvinna manns og hests. Er maður ekki bara flottastur í náttúrulegri sundlaug ![]() Stelpur! James er EKKI með kút og kork eða eitthvern torkennilegann hlut undir hendinni ![]() ![]() Skrifað af Ransý |
Um mig Nafn: Ingibjörg Rannveig Ingólfsdóttir (Ransý)Farsími: 869-8192Tölvupóstfang: ransy66@gmail.comAfmælisdagur: 25 JúlíHeimilisfang: ÁsgarðiStaðsetning: 250 GarðiHeimasími: 422-7363Önnur vefsíða: http://www.123.is/kaninur/Um: Ég er með hestabakteríuna ógerlegu einsog svo margir aðrir.Náði mér í bónda og fór að búa með honum Hebba mínum í Ásgarði 1998.Muna að kvitta í gestabókina!Njóttu.Bankanúmer: 0157-05-400339Tenglar
Eldra efni
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is