Heimasíða Ásgarðs |
||
10.09.2006 18:13Tangó mættur í Ásgarðinn!Ég var búin að pikka alveg helling í gær og svo gerði ég eitthvað og allt týndist! En núna ætla ég að passa mig að vera ekki að fikta svona ógurlega í tölvunni því það er svo svekkjandi að vera búin að pikka heil ósköpin öll og svo úpppppsss....allt farið En hann Tangó mætti á svæðið í gær með eigendum sínum og er þetta hinn myndarlegasti foli,stór og vænn.Hann er ekkert smá krúttlegur þegar að maður kemur í hesthúsið að gefa.Ég fékk ekkert smá mikið hnegg og kumr þegar að ég mætti í hesthúsið og hlýnar manni um hjartaræturnar að fá svona móttökur:)) Allt var með kyrrum kjörum og Askur er greinilega góður nágranni því þeir voru ekkert að vesenast hvor í öðrum á milli stíanna enda var sett rafmagn á í gærkveldi.Það var nú svolítið fyndið í gær þegar að Tangó var kominn en ég hafði ekki náð að koma Aski útí stóðhestahús þannig að ég greip hana Freistingu sem var með Rjúpu og Toppu gömlu í girðingu við hliðina á húsinu og setti ég hana Freistingu í þarnæstu stíu við hann Tangó.Þegar að ég kom aftur út þá var hún Toppa alveg óð og búin að brussa sér yfir rafmagnsþráðinn og var að leita að henni Freistingu! Það var sko ekki nóg fyrir hana að hafa hana Rjúpu sem er nú greinilega bara 3 vetra krakkaskítur í hennar augum.Við urðum að setja þær tvær líka inn á meðan við fórum heim að gefa fólkinu kaffi og spjalla um hesta og allt sem þeim viðkemur. Það komu 12 manns í heimsókn í gær og eitthvað af þeim eru varla taldir til gesta en það eru svokallaðir heimalningar sem koma hingað svo oft að það liggur við að maður láti bara smíða lykla handa þeim Askur kominn á hús og hinn ánægðasi með tugguna sína.Reyndar þurfti ég að gefa hey frá í fyrra í dag, því að þetta seinslegna hey óáborið var aðeins of sterkt og þáðu hrossin gamla heyið frekar og tóku líka í hálminn sem á að vera undirburður.Hálmurinn er flottur að því leiti að þau borða hann með ef að heyið er of sterkt. Í dag eru ekki margir búnir að koma.Einn heimalningur að nafni Jónas Andrésson er hér og svo komu Guðrún frænka með litlu frænku og Snorra sinn en þau voru að koma með fellihýsið sitt í geymslu fyrir veturinn.Aníta litla frænka var alveg óð að sjá ho ho og gefa þeim hamborgarabrauð sem fylgdi honum Tangó:)) Tangó var alveg til í að fá smá brauð og Askurinn líka og pössuðu folarnir sig að bíta ekki í litlu puttana á frænkunni minni. Ég bara verð að bæta smá við bloggið hérna fyrir kvöldið.Það er nú ekki oft sem ég sýni snilldartakta í eldhúsinu en núna verð ég bara að monta mig smá Grillaður Fashani A La Ransý Einn Fashani reyttur og sviðinn.Hann vigtaði 900Gr. Hver 300Gr þurfa 15 mín í ofni. Fashaninn fylltur með Lárviðarlaufi,Skessujurt,svörtum Piparkornum.Salt og pipar nuddað vel utaná Fashanann.Þræddur uppá tein og skellt í grillið í ofninum. Sósan:Smjörbolla búin til.Ég notaði olíu og fínt Spelthveiti og bjó til bollu úr því. Soðið sem lekur af fuglinum er sett saman við (sigtað áður).Matreiðslurjóma bætt við,Bláberjamauki (sykurlaust) frá Himneskri Hollustu bætt útí og Soysósa (glútenfrí) til að fá góða sósubragðið.Ég hefði sett útí líka Gráðost ef hann hefði verið til,geri það bara næst:)) Kartöflurnar hitaði ég á pönnu og hellti smávegis af Agave Syrup útá í staðinn fyrir að búa til sykurbráð og steikja þær uppúr því.Agave Syrup er náttúruvara og unnin úr Kaktus.Mun hollara en hvíti sykurinn og alveg dísætt fyrir bragðlaukana. Svo er bara að hafa það grænmeti sem hver og einn kýs sér.
09.09.2006 14:19Fyrsti stóðhesturinn að komaJæja þá gott fólk.Eg nennti ekki að blogga í gær þannig að ég geri það bara í dag.Við erum enn svolítið tuskulega eftir heyskapinn um daginn enda var það alveg svakaleg törn á okkur og ekki var það betra að vera tognuð á handleggnum við það.Ég er loksins núna að lagast og er bara einn putti dofinn af þremur áður og held ég að þetta sé að koma. Fyrsti stóðhesturinn er að koma að norðan til mín og verður hér í geymslu í vetur.Það var kannski ekki alveg ætlunin að taka strax á hús en hvað gerir maður ekki þegar að fólk er í vandræðum og ég tala nú ekki um svona almennilegt og skemmtilegt fólk einsog þau sem eiga hann Glófaxa hjá okkur.))Þessi foli er nefnilega hálfbróðir hans Glófaxa og hlakkar mig virkilega til að hitta kappann Í gær kom kanínukaupandi og verslaði síðustu Loop ungana sem ég má missa frá mér.Það vantaði meira að segja einn uppá en það varð bara svo að vera.Sauðanesvita kanínurnar sem ég sótti norður eru virkilega búnar að sanna sig sem mjög frjósamar og duglega mæður.Kannski full frjósamar en þær hafa verið að koma með 9-10 unga í goti sem er óþarflega mikið.Í dag og á morgun eiga nokkrar kanínur að gjóta og eru þær búnar að gera flott hreiður í kassana sína og reyta sig. Ég er farin að halda að ég hafi hlaupið á mig þegar að ég sagði að einhver hefði hent út kanínuunga hér um daginn en Tara og Skvetta eru alveg brjálaðar núna undir járnplötum niður við hesthús og er alveg næsta víst að þar er annar kanínuungi á ferð! Þannig að kanínurnar sem ég sá lausar við Hafurbjarnarstaði og voru búnar að dreifa úr sér og gjóta um allt á Kolbeinsstöðum er líklegast að flæða yfir okkur núna hérna í Ásgarðinum:( Þetta er slæmt mál fyrir mig að fá villtar kanínur hér um allt í kringum kanínubúið mitt. Það eru margir að spá í hvernig hófurinn að henni Orku lítur út í dag.Orka er merin sem sést í Myndaalbúminu undir "ýmislegt sem skeður á bænum"og er Egill dýralæknir búinn að skafa hófinn upp til að komast í veg fyrir gröft og lítur hófurinn út einsog klauf á belju.Orka hefur það fínt hvað varðar fótinn og hófurinn er að verða einsog venjulegur hófur og allur gröftur á bak og burt.En hún missti tvíburafolöld í sumar og líklegast hefur eitthvað skeð með mjaðmagrindina í henni því þegr að hún hleypur þá setur hún vinstri afturfót út til hliðar á hlaupunum en samt getur hún skellt rassinum í næstu merar og slegist án þess að finna til að manni virðist.Annað sem ég er ekki sátt við er það að hún gengur alltaf upp hjá stóðhestinum og virðist ekki festa fang,þannig að það er spurning hvað á að gera við hana blessunina. Farin út að vinna gott fólk 07.09.2006 23:57Busla búin í viðgerð!Hér er mynd síðan í vor en þarna er Busla með Skvettu dóttur sinni að tæta í sundur barð en þar var minkur undir. Þá erum við Busla komnar heim úr Reykjarvíkurferðinni en við vöknuðum um 9:00 í morgun og brunuðum af stað í bæinn.Það var vel tekið á móti okkur inná Dýraspítala og Busla sett í búr á meðan hún beið eftir að röðin kæmi að henni að fara á skurðarborðið.Ég fór á bæjarrölt en ég var búin að ákveða að kaupa annan GSM handa kallinum mínum en það varð úr að ég fékk mér nýjan GSM því minn bókstaflega trylltist í bænum og fór að gera allar hundakúnstir.Td.þegar að dýralæknirinn hennar Buslu hringdi í morgun í okkur þá lá síminn í sætinu á milli mín og tíkarinnar og svaraði hann sjálfur (síminn) og dýralæknirinn heyrði bara drunurnar í bílnum og tónlistina á Bylgjunni! Svo þegar að ég var sjálf búin að ná að hringja í hann Hebba minn þá heyrðist bara stöðugt bíp (símanum en ekki Hebba:) í honum og þegar að ég var búin að æpa í gegnum símann að ég ætlaði að kaupa mér annann síma og skella á þá hringdi síminn minn aftur og aftur í Hebba? Ég margslökkti á honum en hann byrjaði bara aftur að hringja í kallinn og það endaði með því að ég varð nánast að rífa hann í tætlur svo hann hætti þessum kúnstum! Það vildi ég óska að ryksugan léti svona! Eftir að ég var búin að versla eitt og annað í Elko og Rúmfatalagernum þá plantaði ég mér í pössun hjá henni Helgu Skowronski en ég ætlaði ekki heim Buslulaus og einhverstaðar varð ég að vera og Helga var alveg til í að hafa mig. Við skröfuðum um stóðhesta og kynbótahryssur í gríð og erg og svo enduðum við uppí Stardal en þar er hún með verðandi gæðingana sína í hagagöngu á virkilega stóru og góðu landi.Gaman að sjá tryppin hjá henni eða það sem í þau sást fyrir spiki:)) Bara flott:)) Næst var að sækja hana Buslu sem var að vakna úr aðgerðinni en hún var ansi völt á fótunum en samt gat þessi elska skrölt á móti mér örfá spor þegar að hún heyrði í mér.Ég bar hana útí bíl og þar lagðist hún bara útaf og svaf áfram.Hún er búin að fá mikið hrós frá dýralæknunum á Dýraspítalanum en það haggar henni bókstaflega ekkert,sama hvað er verið að krukka í henni.Aldrei hefur hún sýnt það að ætla að verja sig eða glefsa í einn eða neinn enda ekki hennar karakter að sýna mannfólkinu neitt illt.Margir hrökkva frá henni þegar að ég segi að hún sé minkaveiðihundur en fólk er sem betur fer fljótt að sjá að þarna er tík sem er treystandi og er ekkert nema elskulegheitin.Geðbetri hund er vart hægt að finna.Núna liggur hún á teppinu sínu og er búin að bæði drekka vel og borða smá þurrfóður.Fóturinn er réttur núna að sjá og búið að setja plötu sem er fest með 6 skrúfum.Dýralæknarnir þurftu að sækja beinkurl í framfótarbeinið og flytja það í afturfótinn til að flýta fyrir að beinið grói.Eða svona skildi ég það minnsta kosti.Maður er orðinn svo ruglaður í hausnum eftir þetta allt saman að ég á það stundum til að lokast alveg þegar að ég er í þessum Reykjavíkurferðum með tíkaræfilinn minn.Ég týni bókstaflega öllu á þessum dögum og virðist aldrei ætla að komast útum dyrnar því ég gleymi öllu:)) Núna ætla ég að gera tilraun til að fara með hana út í rólegheitum til að pissa fyrir nóttina svo hún verði nú ekki í spreng í fyrramálið.)) 07.09.2006 00:03Góður dagur og gestagangurÞau geta verið svolítið fyndin þessi folöld þegar að fullorðið hross nálgast þau:) Fara að kjamsa alveg ógurlega og það skín úr augunum á þeim,vertu góð(ur) við mig.Hér er hann Þór Ögrasonur að kjamsa við hann Hrók. Þetta var frekar rólegur dagur og hinn skemmtilegasti.Deidrie kom og Helga Skowronski og auðvitað var gengið á milli hólfa og hross skoðuð og metin.Einsog endra nær þá vakti Dímon Glampasonur mestu athyglina en hann var voðalega stillur í dag og kippti engum buxum niður um gestina í dag:))Hann var látinn hlaupa svolítið og sýna mont takta og var hún Helga sammála mér í því að folinn er óvenjulega þroskaður og minnir margt um hann Hágang bróður sinn frá Narfastöðum.Hún meira að segja sló sér á lær og skammaðist yfir því að hafa haldið öllum merunum sínum í sumar:)) Það verður virkilega gaman næsta vor að sjá hvað kauði gefur okkur. Ég var svo dugleg í gær í kanínuhúsinu að það hálfa hefði verið yfirdrifið.Enda veitti ekki af eftir að hafa verið í heyskap alla síðustu viku og gaf ég mér varla tíma til annars en rétt henda heyið í þær greyin.Mín fór að smúla stéttar og þegar að ég er á annað borð byrjuð að sulla þá get ég ekki hætt.Ég smúlaði og smúlaði og á endanum náði ekki slangan lengra og gemsinn hringdi (getur það verið!) Þá hætti ég loksins og labbaði heim.Já"þið lásuð rétt,nú labba ég alveg einsog ég get til að verða ekki skilin eftir einhverstaðar í Fagradalsfjallinu í leitunum hehehehe. Í kvöld fór ég í göngutúr með Töru gömlu og Skvettu sem er dóttir hennar Buslu.En fyrst baðaði ég þær og gerði fínar en það tók því víst ekki því þær voru ekki lengi að stökkva útí sjóinn að sulla.Skvetta er svo dugleg að synda og sækja hluti útí sjó og er ég hæst ánægð með það því að þá getum við sent hana eftir mink sem er að reyna að stinga af í vatni. Buslufréttir. Það á ekki af tíkinni minni að ganga.Fljótlega eftir að teinarnir voru teknir úr fætinum á henni þá gaf beinið sig aftur og er hún þá enn fótbrotin.Þessi elska liggur bara á teppunum sínum og skröltir út af og til til að gera stykkin sín.Á morgun á að gera aðra aðgerð á henni sem er sú aðgerð sem ég hélt að væri alltaf gerð við svona beinbrot en núna verður teinaðferðinni ekki beitt heldur á að gera þetta almennilega og setja plötu og bolta beinið saman.Mig hálfkvíður fyrir þessu fyrir hönd tíkarinnar en hún stendur sig einsog hetja sú stutta og er afar stillt og þolinmóð við þessar mannverur sem eru alltaf að krukka í skrokknum á henni og hún er sem betur fer gengin róleg og stillt með afbrigðum þannig að þetta á allt saman að verða betra núna.Sendið okkur góða strauma í fyrramálið gott fólk 05.09.2006 17:01Heyskap að ljúka:))Jæja gott fólk,nú er heyskap næstum lokið hjá okkur Hebba mínum en við erum búin að vera alla síðustu viku hossandi á traktorunum milli túna og í gær þá fór (loksins:) að rigna þannig að við erum stopp enda öll mikilvægustu túnin búin.Við gerðum talningu í gær og erum við komin með 325 rúllur í plasti.Mikið verður gaman þegar að allar rúllurnar eru komnar heim og þá verður nú falleg stæðan hér á hlaðinu:))Við fáum lánuð tæki til að koma rúllunum heim og stefnt er á næstu helgi og vonandi verður veðrið gott eða minnsta kosti túnin þurr svo að þau sporist ekki út eftir vélarnar. Ég er pínulítið fúl í dag vegna þess að líklega hefur eina ferðina enn einhver komið með kanínuunga og sleppt honum lausum á hlaðið hjá mér.Tara og Skvetta voru alveg brjál niður við hesthús og hlupum við Hebbi niðureftir því lætin í Töru voru slík að það hlaut að vera minkur undir timburstaflanum sem hún var að róta í.Hebbi var tilbúinn með byssuna og ég rótaði í timbrinu og þá skaust kanínuungi út lafhræddur og Skvetta náði honum undireins en við öskruðum á hana að sleppa og hún sleppti og enn rauk unginn af stað og Tara náði honum næst og tókum við hann af henni alveg lamaðann af hræðslu. Ég ætla að gefa honum einn sólarhring áður en við lógum honum ef einhver skildi lesa þetta og vilja bjarga honum.Það er regla hjá mér að lóga svona dýrum því þau geta borið smit með sér inná kanínubúið hjá mér.Reyndar hefur verið vesen á næstu bæjum við okkur vegna villikanína sem var sleppt þar en þær hafa gotið einhver ósköpin öll í sumar og eru að grafa allt í sundur á næstu bæjum.Þær fara undir húsin og gera göng um allt! Við höfum verið kölluð út með hundana til að veiða þær og vitum við um fleiri minkahunda eigendur sem eru að fá útköll á ýmsa staði þarsem kanínur eru að gera usla.Ástandið er að verða hrikalegt vegna þessa opg áfram heldur fólk að versla sér kanínur og henda þeim svo út þegar að áhuginn fyrir þeim dvínar. Þessa skemmtilegu mynd sendi hún Diedrie mér þegar að hún var að vinna við hrossin hér á bæ og ég að heima á traktornum:))Heilladís frá Galtarnesi hugsar voðalega vel um bæði folöldin sín og mjólkar einsog belja.Hún er sko ekkert venjulega góð þessi hryssa og verður hún sko fyrst af öllum til að fá rúllu til sín í haust þegar að grasið fer að sölna. Og hér eru fallegar myndir af litríkum folöldum hjá okkur.Heljar og Sókrates sem eru báðir mjög sérstakir á litinn. Það var svakalega skemmtileg smalamennska á okkur hjónunum í gær en ég ákvað að reka endurnar aftur á tjörnina sína í gær en þær eru búnar að vera útvið bú síðan að við urðum að loka þær inni síðastliðinn vetur vegna yfirvofandi fuglaflensu.Við fengum "góða"hjálp frá honum Dímon sem passaði vel uppá að þær færu nú ekki styðstu leið í gegnum hagann hans og niður í tjörn heldur gekk hann meðfram girðingunni og beið spenntur eftiur því að búa til andastöppu ef einhver þeirra vogaði sér með sundfit innfyrir girðinguna 31.08.2006 23:29Heljar seldur!Heljar frá Ásgarði er seldur.Innilega til hamingju Deidrie með Heljar.I hope that he will by a great stallion in the future in Ohio:)) Loksins lægði vindinn hér á Suðurnesjum (rok á Suðurnesjum!) og í gær náðum við að rúlla 45 rúllum af melnum svokallað hjá Gulla áður en myrkur skall á og náttfallið kom í logninu:))Veðurguðirnir hér hjá okkur geta ekki ákveðið sig og er annaðhvort í ökkla eða eyra hvað varðar vindstigin þessa dagana. Í morgun kláruðum við melinn og man ég reyndar ekki hvernig talan endaði á rúlluvélinni en þetta er allt að hafast.Reyndar fékk ég svo nokkuð gott frí í dag frá traktornum sem ég þarf víst á að halda því ég tognaði á öxl um daginn við að ná múlnum af honum Hjartan kallinum.Eitthvað hefur hann lært samt af því að dingla í gúmmíkallinum góða því annars hefði hann líklega slitið af mér handlegginn en ég tel mig vera þokkalega handsterka en hann er mjög öflugur folinn.Mín varð að fara til læknis í fyrrakvöld alveg sárkvalinn af verkjum og með náldofa í þremur fingrum.Doksi hótaði mér því að ef ég lofaði ekki að vera stillt og hvíla mig framyfir helgi þá myndi hann setja handlegginn í fatla! Issss.....það er heyskapur og ég fékk svo rosalega góð verkjalyf sem heita Vóstar-S og eru þau svo góð að ég þarf ekki að taka gigtalyfin mín áður en ég fer að sofa því þau verka svona svakalega vel á gigtina líka:)) Í dag sló Hebbi Arnahól og er alveg kafagras þar núna en í sumar þegar að við vorum að rúlla og pakka fyrir Gísla við hliðina á Arnahólnum þá var varla gras að sjá á túninu sem er vel sprottið núna.Á morgun skal rúlla þar og pakka og svo rjúkum við áfram í Fuglavíkina.Hún lítur ágætlega út en mér sýnist samt að þar sé grasið eitthvað í minna lagi en í venjulegu ári.Við sjáum til hvað verður. I have to tell people about what Dímon did today Deidrie! It was sooooo.....funny:)) Þannig var að ég Deidrie og vinkona hennar voru hér í dag að skoða sölufolöld og ég notaði náttúrulega sénsinn og gætti að öllum girðingum hvort allir væru í lagi í hverju hólfi.Þegar að við vorum búnar að skoða í hólfinun hjá Dímon og vorum að labba aftur heim þá læðist hann Dímon á eftir okkur einsog skuggi og fyrirvaralaust beit hann í buxurnar hjá Deidrie og var næstum búinn að taka þær niður um hana hehehehehehehe:)))Og ég náði þessu atviki næstum á mynd en þarna er hún Deidrie rétt búin að snúa sig útúr kjaftinum á klárnum hehehehehe.Svo eftir að hún skammaði hann þá hljóp hann til Orku og afgreiddi hana með stæl beint fyrir framan stelpurnar sem göptu af undrun yfir þessari náttúrulegu athöfn sem fór bara fram í ósótthreinsuðum haganum! Þessu eru þær ekki vanar og fannst mikið til koma:)) Ég verð samt að setja eina fallega mynd af henni Deidrie svo hún lemji mig ekki næst þegar að hún kemur í heimsókn hehehehe.This is a very good picture of her and Stórstjörnu who never let my touch her face but Deidrie was ok! 29.08.2006 02:16Fullt af gestum og heyskapur (Buslufréttir)Í gærmorgun hófst dagurinn á því að við hjónin ætluðum að vakna snemma og taka á móti Ragga Skúla (fyrrum torfærutappa á Galdra Gul:) en hann ætlaði að sjóða eitthvað fast framan á "nýju" fínu Toyotuna okkar.Auðvitað sváfum við eitthvað frameftir aðalega ég samt en Raggi var sko búinn að vera úti að vinna hér án þess að við hefðum hugmynd um og bankaði hann uppá hjá okkur uppúr tíu í gærmorgunn.Eitthvað fannst honum skrítið með hana Buslu þarsem hún lá á teppinu sínu en annar teinninn í afturfætinum var genginn eina 10-12 cm útúr henni og stóð þarna þráðbeinn uppúr skepnnunni! Djö.....var ógeðslegt að sjá þetta! Ekki heyrðist boffs í tíkaræflinum frekar en fyrri daginn og út fór hún og pissaði.Þegar að hún kom inn aftur þá hlammaði hún sér á rassinn og beint ofaná teininn sem stakkst aftur á kaf inní beinið eina cirka 8 cm og virtist hún ekki finna fyrir þessu eða er svona svakalgega hörð af sér.Ég athugaði hvaða dýralæknir var á neyðarvaktinni en þarsem "hennar"læknar voru ekki við þá gaf ég henni verkjalyf og ákvað ég að bíða framá mánudagsmorguninn. Eftir að Raggi fór þá komu í heimsókn Hulda og Helgi frá Hellu og Gauja vinkona úr hestunum.Einnig komu Beggi og frú með sínhvora dótturina.Eftir mikið kaffiþamb og spjall þá stikaði ég niður tún í verkin mín þ.e.a.s færa strenginn hjá Hrók og merum og athuga hvort all væri í lagi í öllum hólfum.Helgi,Hulda og Gauja fóru með mér til að sjá folöldin og vakti hún Heilladís mestu athyglina með sín tvö folöld þær Sif Hróksdóttir sem er hennar eigið afkvæmi og Von Ögradóttur sem er fóstudóttir hennar.hryssan virðist mjólka þessum báðum folöldum mjög vel og er spikfeit og pattaraleg.Hún er reyndar ekkert glöð með að ég skildi taka hana frá Hrók og hinum merunum og kemur hlaupandi þegar að ég færi strenginn hjá Hrók og heldur að hún sé að missa af bestu beitinni! Hér er Heilladís frá Galtarnesi með folöldin "sín".Ég verð að geta þess að dóttir Heilladísar Dögg Sæsdóttir frá Hellu hækkaði á yfirlitinu og er komin í 7.82 og er það nokkuð gott hjá fimm vetra hryssu sem ekki er búin að vera í margra mánuða tamningu hjá þeim "fremstu". Stóðhestefnin hér á bæ voru heldur betur hressir í rokinu í kvöld þegar að ég gekk um hólfið hjá þeim! Það var kuldahrollur í þeim enda yfir 20 mertar á sekúndu í hviðunum.Hér er hann Glóðar Feykir Þengilsson á harðastökki. Og þessi er sko kaldur kall! Lét sig ekki muna um að stökkva létt yfir gamla grjótgarðinn og hikaði ekki! Þekkir einhver þennan verðandi gæðing? Í dag sló Hebbi Nýja-Bæ,Móhús og Miðhúsamelinn.Vonandi fýkur ekki heyið burt í öllu rokinu en við létum það vera að rúlla því upp í rokinu í dag enda nægur þurrkur framundan.Ég afturámóti fór með Buslu mína í bæinn og var hún þá orðin einum tein fátækari því snemma um morguninn sá ég hinn bókstaflega detta útúr löppinni! Dýralæknirinn tók hinn teininn úr líka og ég get ekki betur séð en tíkinni hafi létt við að losna við þessi ósköp úr löppinni sem eru greinilega búin að vera að trufla hana allann tímann.Hún heldur áfram á pencillíninu og vonandi er beinið orðið nægilega gróið svo hún geti farið að stíga aftur í fótinn fljótlega.Hún heldur fætinu alveg á lofti og hefur nánast ekkert stigið í hann allann tímann frá aðgerðinni.Matarlystin hefur ekki verið uppá marga fiska síðustu daga en núna í kvöld loksins þá sýndi hún matardallinum mikinn og góðann áhuga.Helst vill hún fá mat frá ákveðnum aðila úr bænum en hún Magga hefur verið afskaplega spennandi manneskja hjá tíkunum hér á bæ en hún er svoooooo........góð kona finnst þeim því hún vinnur í Mötuneyti! Hér er þessi elska að sleikja dallinn sinn og þrífa einsog hún er vön að gera en hefur ekki gert lengi.Greinilegt batamerki á Buslunni minni.ég ætla að hlífa ykkur og fleirum við myndunum sem ég tók í gær þegar að teinninn var við það að fara útúr henni.Núna hlýtur þetta að vera að takast og mun ég krossa fingur og vona að allt verði gott og tíkin hætti að finna til.
27.08.2006 01:09Frigg seldHún Frigg er seld og fer í hendurnar á góðum eiganda en hún Magga mín keypti hana í dag.Hún bara stóðst ekki freistinguna enda folaldið virkilega fallegt og vel ættað báðumegin frá.Innilega til hamingju með hana Frigg Magga mín Það er ekki á hverjum degi sem að heil rúta kemur í hlaðið í Ásgarðinum en það gerðist í dag og enginn venjulega flottur ökumaður um borð! Sigrún"rosalega er hún mamma þín töff á þessum trukk!!! Og það var sko bakkað eftir speglunum! Við erum klár í næsta þurrk og ef vel heppnast þá eigum við að ná einum þremur túnum eftir helgina.Það spáir þurrki og á hann að haldast í einhverja daga.Jóel vinur minn fyrir norðann er víst að verða búinn að ná öllu sínu í plast eða ég býst fastlega við því að hann sé að senda okkur hér fyrir sunnan þurrkinn svo við getum klárað líka.Takk fyrir það Jóel og Guðrún
25.08.2006 00:28Seinna gangmál hjá Dímon!Dímon Glampasonur varð hryssunni ríkari í kvöld en hans seinna gangmál hófst með komu Pamelu Náttarsdóttur.Henni fylgdi auðvitað sonurinn Sókrates og gekk mikið á hjá henni Pamelu súperofurmömmu þegar að hún var sett í hólfið.Ekki munaði miklu að eigandinn fengi að slóðardraga allt hólfið á eftir merinni sem rauk af stað með heljarinnar látum og skeytti engu um þótt mannvera héngi á taumnum.Hún skildi sko passa uppá krílið sitt og enginn önnur meri í hólfinu fengi að þefa af því! Það bókstaflega flæðir úr henni mjólkin og sá stutti verður sko ekki stuttur lengi með svona mjólkurframleiðslu hjá móðurinni. Hér er Sókrates frá Höfnum,ekkert smá krúttlegur með mjólkurskeggið sitt:)) Það gekk alveg ótrúlega vel að setja Glóðar Feykir út í hagann með hinum stóðtittunum 6 en mér finnst langbest að setja allt saman inn í hesthús í nokkrar klukkustundir og láta hrossin kynnast í rólegheitum og setja svo út saman undir eftirliti.Þá er mesta spennan farin úr hrossunum og nýju aðkomuhrossin hlaupa ekki alveg tryllt og á allar girðingarnar.En djö.....var hann flottur! Hann sprellaðist um allt og hélt nú aldeilis að hann ætti heiminn þar til Hrókur kom æðandi að girðingunni þá hrundi alveg veröldin og hann gapti einsog Þorskur á þurru landi og það skein úr augunum hans "ekki berja mig,ég er bara lítill foli! Eftir smá stund þá sá Hrókur að hann var ekkert að skrökva sá stutti og hélt til hryssnanna sinna og skipti sér ekki meir að tittunum. Við hjónin vorum dugleg í dag,kallinn hamaðist við að gera sláttuvélarnar klárar fyrir næsta þurrk og ég færði til öryggislínu og setti upp á Vinkilinn en þangað ætla ég að færa hana Heilladís með folaldið sitt hana Sif Hróksdóttur og Von Ögradóttur hennar Röggu vinkonu en hún Heilladís er alveg búin að taka hana Von að sér sem sitt eigið folald.Nú er um að gera að gera vel við Heilladísina sem er orðin 16 vetra og ætlar að mjólka vel ofaní þessi tvö folöld framá haustið. Ég var alveg óð með cameruna í dag enda gott veður og gaman að taka myndir.Á ferð minni um hagana smellti ég og smellti af hinum og þessum hrossum.Hér er ein af mæðgunum Eðju og Frigg.Og Frigg er til sölu:))
24.08.2006 00:37Folar ormahreinsaðir og hrossaflutingarÞað er búið að vera nóg að gera í hrossastússi hér á bæ síðustu daga.Tvær gestahryssur fóru frá Hrók og til síns heima og Toppa gamla Náttfaradóttir fór upp fyrir veg til Rjúpu og Freistingar til að bíta þar grasið græna sem við höfum ekki nýtt okkur hingað til.Við erum byrjuð að girða þar og er alveg lúmsk beit þarna fyrir ofan veg.Toppa gamla tók vel í grasið enda mathákur mikill einsog sést á þessum myndum:))Gamla brýnið orðin 22 vetra og er aðallega uppá punt hér hjá okkur en alltaf hefur hún gaman af því að vera hjá stóðhesti á sumrin og tókum við það ekki frá henni í vor og fékk hún að vera hjá honum Hrók svona honum og henni til mikillar gleði þó hún hafi eflaust ekki fest fang frekar en síðastliðin 3 ár. Rjúpu minni fannst ekkert smá sport að fá þá gömlu til sín og fór í loftköstum um allt hólfið:)) Í fyrradag þá tók ég inn ungfola og ormahreinsaði,ekki voru þeir mjög hrifnir af þessu uppátæki hjá kellingunni og þurfti að hafa meira fyrir sumum en hafði ég bara gaman af að slást pínulítið við þá.Þetta má nú ekki allt saman standa grafkyrrt,það verður að vera smá fútt í þessu! Ef þið mætið þessu tveimur perrahrútum leitið þá skjóls á öruggum stað og bíðið uns þeir eru horfnir.Gimbrarnar mínar eru alveg búnar á því og erum við hér í Ásgarðinu búin að setja upp Gimbra athvarf niður í hesthúsi.Tara fór ekki varhluta af árás þeirra og stoppaði ég för þeirra á eftir tíkinni þegar að hún kom hlaupandi innum dyrnar með þá á hælunum og inn allann ganginn og skondraði hún á annari hliðinni inní stofu! Tíkarræfillinn þarf líklega að fara í klippingu því hún er nú einu sinni Puddle-Terrier blendingur og gæti alveg verið grá gimbur.En hvað um það þá eru þessir spræku heimalningar frá næsta bæ ástsjúkir á eftir lömbunum okkar og bíð ég nú bara spennt hve lengi fram eftir hausti þeir fá að lifa,kannski verða þeir settir á! Hjálp!!!!! Við hjónin fórum í bæinn í dag og skildi kallinn mig eftir í Kringlunni með gjafabréfin frá systkinum hans og nú skildi mín sko kaupa sér föt! Ekki fannst mér ég fá merkilega þjónustu í fyrstu tveimur búðunum þannig að ég sneri mér annað og hætti ekki fyrren ég fann buxur einsog ég vil hafa þær og lágu þrennar í valnum þegar að ég gekk út.Boli fann ég líka og er ég alsæl með þetta,komin með þessar fínu buxur á mig sem ég er sátt við.Ég er svo agaleg þegar að ég fer að versla mér föt.Ég vil helst að ég geti keypt mér svipuð eða eins föt ár eftir ár.Ég þoli td afar illa þessar víðu buxur sem allir eru með á hælunum,það er einsog ungdómurinn sé enn með bleyju og gleymst hafi að skipta um í marga daga! Í kvöld kom afskaplega fallegur foli til mín í pössun og er hann undan hinum fræga Þengli frá Kjarri sjálfum.Ég tók bara andköf þegar að ég sá litinn á folanum,auðvitað var hann glófextur EN rauði liturinn á búknum er algert æði! Ég held að þarna sé bara Þengill heitinn kominn aftur og verður spennandi að fylgjast með þessum fola í framtíðinni:) 20.08.2006 21:08Tara fælir innbrotsþjófa frá!Ég var ekki að skilja lætin í henni Töru í dag en hún var í hundaðstöðunni útí kanínubúi ásamt Skvettu barnabarni sínu að passa uppá að Refur og Minkur komi ekki að taka frá okkur smádýrin sem þar eru.Hún gelti og gelti og var ég að hugsa hvað í ósköpunum gengi að tíkinni! Hún virtist vera ofsalega reið og æst en ég sem var um allt annað að hugsa hélt bara áfram því sem ég var að gera.Það kom svo í ljós þegar að Hebbi fór úteftir að gefa og líta til með skepnunum að einhver(jir) höfðu sparkað upp hurðinni á bakvið og farið þar inn.Eitthvað hefur þeim litist illa á lætin í tíkinni því ekkert var horfið og ekki hreyft við neinu.Eins hafði ekki verið gengið um kanínusalinn eða geymsluna okkar.Við viljum þakka það að ekkert var skemmt eða tekið hve tíkin gelti rosalega og var reið og ill.Hún er alveg einstök hvað varðar að passa uppá allt hér í Ásgarðinum og stundum er hún svo bíræfin að hleypa ekki fólki útúr bílunum nema að við séum útivið til að samþykkja gestkomandi fólk þó svo hún þekki það vel.Góð Tara mín! Það var sko engin smá matarveisla sem þau heiðurshjón Boggi og Eygló héldu í nýja flotta Hjólhýsinu sínu á Sólseturshátíðinni og vorum við boðin í Lambalæri og Rauðvín sem var þegið með þökkum.Veðrið var frábært og margt af skemmtilegu fólki sem við hittum þ.á.m Frikki hestatemjari,Högni járningakappi með frú og hund og svo ekki síðast og síst,Jenni Dalaprins og Maja frúin hans.Það sem hægt var að skrafa um hesta og aftur hesta.Auðvitað kemst ekkert annað að þegar að svona hrossabrestir einsog við hittumst.Einhverntímann um nóttina þegar að mín var búin að innbyrða einhver ósköpin öll af dýrindis kræsingum sem runnu ljúft niður með hinum og þessum tegundum af hmmmm..........nefnum það ekki,mig langar ekki svoleiðis alveg strax á næstu dögum Hvernig er annað hægt en að ljóma svona í framan með nýkastað folald í höndunum.Þetta fallega folald fæddist í dag og voru þau Boggi og Eygló lengi búin að bíða eftir því og reyndar var Eygló búin að gefa út þá yfirlýsingu að merin væri bara svona feit og hana nú! En þessi fallega liti foli er nú enginn fituklumpur úr mömmu sinni heldur jarpblesóttur-sokkóttur að aftan og hringeygður á báðum!!!Þvílíkur litur á einni skepnu! Innilega til hamingju með gripinn vinir mínir Buslufréttir. Við Busla fórum eina ferðina enn í bæinn síðastliðinn Föstudag en teinarnir voru eina ferðina enn að ganga útúr henni.Þó hreyfir þessi elska sig næstum ekkert,fer rétt út til að gera stykkin sín og það á þremur fótum.Þetta gekk vel og tók dýralæknirinn sem annaðist hana mjög vel á móti henni og fékk tíkin vel af verkjastillandi og verður áfram á Baytrilinu vegna þess að hún ælir upp Dalacininu nær samstundis og hún tekur það inn.Það eru tæpar tvær vikur eftir en þá má taka þessa bölvaða teina úr henni.Ég krossa bara fingur og vona að þeir hreyfist ekkert en ég verð ekki hissa þó þeir poppi upp eina ferðina enn.Þá verður að skera Busluna mína aftur og brjóta beinið aftur upp en það virðist ekki gróa alveg rétt saman.En þá verður líka að bolta allt saman með skrúfum eða hvað þetta nú heitir.Ég ætla bara rétt að vona að hennar kvölum samfara þessu öllu saman fari að linna. 17.08.2006 23:57Fyrstu Fashanaungarnir!Fyrstu Fashanaungarnir litu dagsins ljós í Ásgarðinum í dag.Þeir voru óvenjulega hressir og kátir og komust sjálfir úr eggjunum án nokkurrar hjálpar.Þeir eru undan fuglum frá Bjarna og Þuru en okkar fuglar voru hættir að verpa eftir að hafa byrjað alltof snemma að verpa í ár.Nú er um að gera að reyna að halda lífinu í krílunum en það getur verið býsna erfitt.Á einhver góð ráð handa okkur varðandi Fashanarækt??? Ég var svolítið heppin í dag þegar að ég lagði af stað á Sæunni(traktorinn minn).Ég var rétt lögð af stað og var að renna út hlaðið þegar að annað framdekkið brotnaði undan henni.Það var eins gott að ég var ekki komin útá veg þarsem ég hefði verið á meiri hraða og kannski að mæta bíl! Hebbi var ekki lengi að kippa þessu í liðinn og svo var haldið áfram við að hirða túnið sem við slógum fyrir Gerðahrepp en þeir vildu endilega að við hreinsuðum eitt tún fyrir þá sem og við gerðum.Fengum við 13 rúllur af því í dag. 16.08.2006 23:15Rafnkelstaðatúni kláraðVið hjónin kláruðum Rafnkelstaðatúnið í dag og vorum snögg að því! Mig minnir að rúllufjöldinn hafi verið 36 rúllur.Þá á ég að vera komin með það magn af heyi sem okkar hross þurfa,Möggu hross þurfa og það sem ég var búin að lofa fólki.Allt umfram fer í útigangsstæðuna sem verður vonandi stór og stæðileg einsog í fyrra.Reyndar fór kallinn að slá eftir að við kláruðum inní Garði en það er Sólseturhátíð í Garðinum á næstu helgi og vorum við beðin um að slá dágott stykki til að hafa allt sem flottast á leiðnni niður á Vita.Það verður rúllað á morgun og flutt heim. Rjúpa og Freisting eru komnar upp fyrir veg en þar eigum við svolítið land sem við höfum ekki nýtt áður.Síðustu árin höfum við borið kanínuskítinn á móann þarna og hefur han vægast sagt sprottið upp með látum,fagurgrænn og fallegur.Þetta er flott fyrir hana Rjúpu sem er bara 3ja vetra dama en kannski ekki alveg óskahaginn fyrir hana Freistingu sem þyrfti að beita á malbik:))Líklega er hún fylfull eftir hann Hrók minn en Freisting hefur fest fang en ekki haldið það út að fullganga með fylin heldur látið þeim fljótlega eftir að hún fyljast.En í vor þá var hún skoluð út hjá Björgvin dýralækni og vona ég svo innilega að þetta takist hjá henni núna. Ég er svo þreytt og sólbrennd í framan(þreytt í framan,dö....) að það hálfa væri nóg.Sem betur fer þá verður skýjað á morgun þannig að ég ætti ekki að verða að brunaösku í traktorssætinu.En gott fólk! Ég gerði svolítið af mér í dag:) Sigrún vinkona mín í Danmörku hringdi og eftir langt og skemmtilegt spjall þá var ákveðið hvað ég ætlaði að panta af kanínum í gegnum hana.Hún ætlar að sækja þær fyrir mig til ræktandans sem er að selja gullfalleg dýr og flott ræktunardýr fyrir mína starfsemi.Ég pantaði tvær Castor Rex læður,eitt par af Chincilla Rex,og eitt par af hvítum Rex.
Og svo Castor Rex einsog ég er búin að rækta í mörg ár.Ekkert smá flott dýr. 15.08.2006 23:59Meiðastaðir búnir.Þessir tveir eru alltaf að metast hvor er stærri:))Sá skjótti hann Týr er alveg viss um að hann sé alveg nógu stór til að tuskast í honum Glófaxa en hann hefur bara gaman af þessum og leyfir Týr að vinna þennan ímyndaða bardaga af og til,þó ekki alltaf! Veturgömlu tittirnir eru alveg til fyrirmyndar og ekkert mál að hafa þá.Þeir stigu ekki einu sinni yfir línuna sem við vorum að taka þó svo að græna grasið hinumegin hafi freistað.Nei"við ætlum ekki að fá í okkur stuð af þessu kelling! Svo biðu þeir þartil línan var tekin og þá var nú gaman að spretta úr spori inná nýju beitina. Við erum búin að vera á traktorunum í allan dag og kláruðum við að garða,rúlla og pakka Meiðastaðatúnið.Við fengum ekki nema 55 rúllur af því og segir það helling um hvað sumarið er búið að vera lélegt hvað varðar sprettu.Við treystum okkur ekki til að halda áfram í kvöld enda orðin vel þreytt og bíður heyið eftir okkur á Rafnkelsstaðatúninu þartil á morgun en sem betur fer þá á veðrið að vera gott áfram.Við ætlum að vera þakklát fyrir það hey sem við fáum því við höfum heyrt að margir bændur í Þingeyjarsýslu séu ekki komnir með eina einustu rúllu! Þetta er ekki eðlilegt hvernig sumarið er búið að vera. Ég fékk góðar fréttir af einu "ömmubarninu"mínu í kvöld frá Huldu vinkonu en Dögg Sæsdóttir undan Heilladís minni frá Galtarnesi var sýnd í dag af honum Sigga Sig og er hún komin í 7.78 og á enn eftir að bæta sig.Þetta tosast allt uppá við:)) 14.08.2006 23:57Heyja heyja heyja halelúja!Nú verð ég að reyna að muna síðastliðna daga,úfffff. Síðastliðinn Sunnudag þá kom Valgerður vinkona að sækja hana Stjörnu sína sem hefur varið sumrinu hjá honum Dímon Glampasyni.Hún Stjarna er svolítið sérstök,hefur fengið brauð og snúða reglulega hjá okkur og hef ég reynt að vingast við hana einsog öll önnur gestahross hér á bæ.En "nei takk kelling,gefðu mér bara brauðið á jörðina og reyndu ekki að snerta mig! Svona hefur hún haft þetta í sumar og þegar að Valgerður kom þá sagði hún við mig"ég fer bara með múlinn niður í haga og tek hana.Ég: vertu ekkert að reyna það Valgerður mín,ég rek þau bara öll í réttina.Valgerður: Ok gerum það.Svo förum við niður í haga og hvað haldið þið að hún Valgerður geri! Auðvitað labbaði hún bara að merinni og tók í hökuskeggið á henni og bað mig um að rétta sér múlinn! Ég sem að er vön að geta hænt að mér og náð öllum hrossum!Bíddu bara Stjarna næst þegar að ég er með snúð og gotterý,já" bíddu....lengi hehehehehe:)) Seinnipartinn kom Hafdís hesta"kelling"og hjálpaði hún mér að koma honum Dímon á tamningarbásinn þarsem hann var bundinn og var hann alveg viss um að nú væri lífið búið.Þar stóð hann einsog dauðadæmdur þessi elska á meðan við fórum heim í kaffi og að sækja ormalyfið.Er ekki Siggi Dímonareigandi á hlaðinu!Auðvitað var hann drifinn inn í kaffi og með því og svo var stikað niður í hesthús að kíkja á folann.Við Siggi erum alveg viss um að þarna sé ein mesta kynbótabomba framtíðarinnar og það skal enginn segja okkur annað þangað til annað kemur í ljós. Síðan færðum við Hebbi öryggislínuna yfir í hausthagann og hleyptum Dímon og merunum hans ásamt folöldunum þangað en þá var farið að rigna talsvert og við orðin holdvot í gegn. Er hún ekki flott hún Sif Hróksdóttir!Þessa ætla ég að eiga sjálf og er þetta eina folaldið sem er ekki til sölu í ár hjá okkur.Heilladís mamma hennar Sif var svo væn að taka að sér móðurlausa folaldið sem er undan Sylgju hennar Röggu vinkonu.Ég er óskaplega fegin að Von litla skuli vera á móðurmjólk hjá henni Heilladís en ekki þurrmjólk hjá mér úr pela sem kemur alsekki í staðinn fyrir kaplamjólkina.Sif er stundum að malda í móinn yfir þessu en hún er ekki eins svakalega reið og hún Þrá hennar Manar en Von ætlaði að fá sér sopa um daginn úr Mön sem stóð kyrr en þá varð hennar folald alveg brjálað og réðist með látum á hana Von! Þau eru alveg merkileg þessi folöld,vita að þau eru að missa sopann ef annað folald reynir að súpa úr mömmum þeirra.Ég ætla að taka hana Heilladís frá þegar að hausta fer og setja hana snemma í rúllu og algert dekur með þessi tvö folöld.Hún er algjör hetja að bjarga þessu folaldi henni Von. Þennan stórglæsilega högna verslaði ég mér um daginn en hann er úr ræktun stelpnanna í Framtíðarræktun.Hann er undan Glæsir mínum gamla sem nú er fallinn frá og læðu frá stelpunum.Ég var óskaplega fegin að ná þessum högna til mín þarsem ég átti ekkert eftir af þessari flottu Looplínu.Nú er bara að finna nafn á drenginn? Ég er mikið að pæla í að flytja inn nýtt blóð frá Danmerkunni og fór hún Sigrún vinkona fyrir mig til gamallar konu sem er með mjög góðan Castor til sölu og er ég alveg veik að versla mér dýr af henni.Ég veit bara ekki hvað ég á að gera,mig langar í par af Castor Rex og annað par af Chincilla Rex.Þessa myndi sendi Sigrún frá Danaveldi og margar margar flottar! Þetta er Chincilla Rex. Við erum á fullu í heyskap og er kallinn búinn að vera á traktor í allan dag eða í 12 tíma nánast samfellt.Hann kom einu sinni heim að laga sláttuvélina og næra sig og svo beint aftur útá tún að slá.Ég er búin að elta hann á milli stykkja með tætluna og er alveg brjálaður þurrkur.Við kláruðum Meiðastaðatúnin og Rafnkelsstaðatúnin.Á morgun á svo að raka saman ,rúlla og pakka.Það verður einhver sprengur á okkur enda erum við bara tvö sem verðum á hlaupum á milli þriggja traktora! Issssss.........við reddum þessum:))
|
Um mig Nafn: Ingibjörg Rannveig Ingólfsdóttir (Ransý)Farsími: 869-8192Tölvupóstfang: ransy66@gmail.comAfmælisdagur: 25 JúlíHeimilisfang: ÁsgarðiStaðsetning: 250 GarðiHeimasími: 422-7363Önnur vefsíða: http://www.123.is/kaninur/Um: Ég er með hestabakteríuna ógerlegu einsog svo margir aðrir.Náði mér í bónda og fór að búa með honum Hebba mínum í Ásgarði 1998.Muna að kvitta í gestabókina!Njóttu.Bankanúmer: 0157-05-400339Tenglar
Eldra efni
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is