Myndafyrirsætan frá því áðan er hún Eldey frá Ásgarði.Gamlársdagur
Öll dýrin á bænum eru komin á sinn stað og eins örugg og hægt er og
vonandi að vindáttin breytist því að sprengingarnar og lætin úr Kelfavík
og Sandgerði óma hingað.Einn og einn getur ekki beðið og er að bomba
upp dóti.
Enn h
alda Garðmenn í sér:)
Útigangurinn var færður á milli hólfa en það voru tilbúnar rúllur handa
þeim inná Vinklinum svokallaða og færði ég vatnið líka yfir.Ein
aðkomuhryssa þar er óróleg og líður illa yfir látunum og horfir stöðugt í
átt að Keflavík.Hún röltir á milli hrossana í rúllunum og hnusar af
þeim og lítur svo upp og er ekki alveg að skilja hversvegna allir eru að
borða og enginn er að hafa neinar áhyggjur af skruggnum sem drynja í
loftunum.
Á endanum þá kom hún greyjið röltandi til mín og
vildi fá smá stuðing og eina sem ég gat gert var að klappa henni og tala
rólega til hennar.
Folöldin standa áhyggjulaus við hlið mæðra sinna
sem hafa fínar taugar á Gamlárskvöld en hér hefur stóðið alltaf staðið
af sér lætin og ekki hreyft sig úr rúllunum nema í eitt skipti þegar að
haginn fylltist af reyk en þá fóru þau aðeins af stað en engin með
látum,voru aðallega hissa.
Ég tók inn nýju gestahrossin 5 og gaf vel á stallana og rúgbrauð ofaná.
Þau voru aðeins orðin spennt greyin og það þurfti svolítið til að koma
þeim inn en hún Ólína reddaði þessu með mér og með hjálp brauðpoka:)
Núna hlusta þau á Bylgjuna og hafa ljós hjá sér í nótt.
Kindurnar fengu sinn mat og kanínurnar bæði hey og bygg.Hrókur og
folarnir tveir þeir Lúxus og Nói eru komnir inní stíurnar sínar með
heynet og gott í munn en þeir slá ekki hóf á móti smá brauði frekar
aðrir hé á bæ.
Allir með ljós í því húsi og tónlistin var hækkuð aðeins í græjunum.
Þá er bara að fara að hugsa um matinn í okkur Hebba minn.