Gunnar frá Sandfellshaga kom að fósturtelja hjá okkur og bað ég hann um að stilla tækið aðeins betur en hann gerði í fyrra en af 18 kindum sem haldið var þá voru 6 þrílembur.Það er ágætt að hafa þær bara flestar tvílembdar því að meðalvigtin dettur niður hjá manni í fjárhúsinu með svona margar þrílembur en aftur á móti skilar hver kind kannski fleiri kílóum eftir sumarið heldur en hún hefði verið tvílembd.Meðalvigtin var tæp 15 kg í haust og er það svosem ásættanlegt en við girtum upp stórt heimahólf og höfðum þrílemburnar heimavið á sérábornu túni með úthaga í bland.Allt gert fyrir þessar elskur sem eru í frjósamara lagi hér á bæ. En að talningunni í ár,Gunnar spýtti bara í og réði ég ekkert við hann á fósturteljaranum.
Svona er þetta hjá okkur núna:
Engin geld Engin einlemba 9 tvílembur 6 þrílembur ( 1 af þeim kannski fjórlembd).
5 af þessum 6 þrílembum voru einnig þrílembdar í fyrra. Sú sem fer útaf listanum er hún Fröken Óþolinmóð og í staðinn fyrir hana fer inn hún Kráka. Bondína stolt með sín 3 lömb.
Ég hef smá áhyggjur af henni Bondínu sem er á 9 vetri en reyndar var hún sú sem stóð sig einna best í fyrra með sín 3 lömb ölll jöfn og falleg og hún var í flottum holdum frameftir en svo fór hún að flóðmjólka af sér holdunum. Um haustið skilaði hún lömbunum sínum svo fallegum að ég setti á 2 gimbrar undan henni en hrússinn fór í SS. Í ár var ætlunin að setja á undan henni hrút og það er eins gott að hún komi þá ekki með 3 gimbrar. Hún fékk við Badda sem er Laufasonur en á bakvið hann er gríðarleg frjósemi en það var nú kannski ekki það sem ég var að eltast við heldur er verið að reyna að koma upp góðum hrút sem hægt er að nota á flestar kindurnar í húsinu án þess að úr verði stórt ættarmót hjá þeim í Desember.
Ég er með hestabakteríuna ógerlegu einsog svo margir aðrir.Náði mér í bónda og fór að búa með honum Hebba mínum í Ásgarði 1998.Muna að kvitta í gestabókina!Njóttu.