Það kom að því að hún Elding seldist,ég er svo ánægð og hún er seld innanlands og fær gott heimili. Það getur verið erfitt að vera BARA rauður (nösótt reyndar líka:) en þau hross vilja verða soldið útundan hér á bæ og lítið sem ekkert spurt um þau.
Á morgun á að vera gott veður en kalt og núna er kjellan að hugsa um að rísa úr rekkju og hætta þessu veikindavæli og ná heim stóðinu og flokka það svolítið niður og koma merum og folöldum inná vetrarhagann þarsem þau verða frammá vor.
En fyrst fá folöldin fyrstu kennslu í hesthúsinu og verða ormahreinsuð áður en þau fara yfir á nýja beit.
Beitin er að minnka á haust stykkinu en enn er svolítið eftir af beit á túnunum og mega þau sem eftir verða klára það. Mikið hlakkar mig til að takast á við þau en eins gott að grófflokka hópinn fyrst úti svo að ég komi inn hópnum sem á að ormahreinsa núna.
Hin fara bara beint niður á tún og inná hausthagann aftur og bíða þar þartil þeirra örlög verða ákveðin en það er tiltekt framundan.
Svo á að verða kolvitlaust veður strax aftur á mánudaginn,ég er ekki að nenna þessu veðri:(
Ég er með hestabakteríuna ógerlegu einsog svo margir aðrir.Náði mér í bónda og fór að búa með honum Hebba mínum í Ásgarði 1998.Muna að kvitta í gestabókina!Njóttu.