
Hrókur frá Gíslabæ
Tekur á móti hryssunum sínum og verður sleppt í hólfið Sunnudaginn
5 Júní 2011.
Folatolli er stillt í hóf 35.000-fyrir fengna hryssu með girðingargjaldi.
Sónar
er ekki innifalinn en ef hryssa hefur verið sónuð með fyli úr hólfi
hér og missir fyl þá á hryssueigandinn rétt á að koma aftur með
hryssuna.
Hér
er mjög gott eftirlit með stóðinu,rennandi vatn í körum og hey gefið
með beitinni fyrst um sinn á meðan hrossin eru að venjast grængresinu.
Salt og steinefni eru einnig hjá stóðinu.
6 pláss eru laus hjá Hrók og ekkert mál er að bæta inná hann hryssu þó hann sé kominn í hólfið.
Hafið samband í netfangið
ransy66@gmail.com

Váli frá Ásgarði veturgamall vorið 2010
Verður sleppt í hólfið sitt með aðgengi að hesthúsinu Sunnudaginn 5 Júní 2011.
Vindótt/litföróttur
F: Hrókur frá Gíslabæ (A:7.66 B:7.95 H:7.47)
FF: Kormákur frá Flugumýri II (A:8.30 B:8.23 H:8.37)
FM: Best frá Brekkum 2
M: Eðja frá Hrísum 2
MF: Hrókur frá Stærri-Bæ (A:8.01 B:8.18 H:7.89)
MM: Kvika frá Hrísum 2
Váli sýnir allan gang og er með góð gangskil. Lundin er traust og yfirveguð.
Hann fer aðallega um á brokki en stutt er í töltið og nóg af skeiði (alvöru) hefur hann sýnt á góðum degi.
Folinn er orðinn gríðarlega stór aðeins tveggja vetra og þroskast mjög vel.

Váli tók fyrstu meðhöndlun vel og var auðveldur að eiga við í allri frumvinnu. Hann er spakur án þess að vera með nokkurn yfirgang.
Nú þegar er búið að taka niður pantanir fyrir fyrstu hryssurnar sem að Váli kemur til með að sinna vorið 2011.
Váli verður heima í Ásgarði í húsnotkun og verður folatolli stillt í hóf eða 20.000- fyrir hryssuna en sónar er ekki innifalinn.
Sónar
er ekki innifalinn en ef hryssa hefur verið sónuð með fyli úr hólfi
hér og missir fyl þá á hryssueigandinn rétt á að koma aftur með
hryssuna.
5 pláss eru laus undir Vála.
Váli er laus í seinna gangmáli ef þú átt handa honum nokkrar hryssur og góðann haga.
Hafið samband í netfangið
ransy66@gmail.com
Ps.Við áskiljum okkur þann rétt að taka frá hryssur og senda heim sem að sýna grimmd eða trufla í stóðinu með óæskilegri hegðun.