Heimasíða Ásgarðs |
||
10.11.2009 00:45Fyrsti (stóð) hesturinn minn hann FuniEinu sinni var stelpa sem átti sér þann draum heitastann að eignast hest. Ég hinsvegar eignaðist stóðhest sem minn fyrsta hest. Kannski ekki alveg það skynsamasta fyrir 15 ára gamla stelpu og þarsem folinn bæði beit og sló þá varð þetta aðeins meiri vinna fyrir mann svona óharðnaðann í tamningunum. Nú fyrsta veturinn var hann bundinn á bás og látinn berja stoð þartil hann uppgafst. Nú um vorið fórum við norður í sveitina og þar hélt "tamningin" áfram. Okkur þótti mest gaman þegar að hann prjónaði og lét illa því þannig hlaut það að eiga að vera,minnsta kosti sá maður það í kúrekamyndunum í sjónvarpinu! Einn daginn vorum við einar stelpurnar og prófuðum nýja aðferð og tókst okkur að fá klárinn til að elta ef við vorum með köggla í vasanum. Þá var það bara næsti kafli að demba sér á bak og auðvitað hnakk og beislislaus útí haganum. Klárinn þaut fram og aftur og niður brekku og ég flaug aftur og aftur af honum þartil að folinn fór að fara varlegar niður þessa brekku því hann virtist hafa gaman af þessum leik. Næst var fá bóndann á bænum til að teyma undir mér útá hlaði. Ekki þótti honum nú þetta nógu spennandi og fór að kippa aðeins í folann og vita hvort hann myndi nú ekki hrekkja mig smá hehehehehe........... Ekki var hægt að hafa okkur ríðandi um allar sveitir með kúlurnar dinglandi og allt fullt af fínum stóðhestum með hryssur í grenndinni! Daginn eftir að klárinn var geltur þá var fullorðna fólkið ekki heima og ákvað ég að leggja hnakk á nýgeltann folann og fara ríðandi niður að póstkassa og sækja póstinn á honum. Auðvitað gekk það einsog í lygasögu enda var aumingjans hesturinn slappur eftir geldingna og fór þetta bara fetið. Nú krakkarnir kjöftuðu þessu í fullorðna fólkið og fékk ég svosem ekki miklar skammir EN afturámóti fékk ég leyfi til að halda áfram með "tamningna"á honum eftir vinnu á kvöldin. Ég held að bóndinn hafi verið orðinn svolítið forvitinn að vita hvað ég kæmist upp með á folanum. Fyrst var bara riðið í móum og inná túnum og þegar að klárinn fékk þá flugu í höfuðið að fara að hlaupa með mig þá beindi ég honum í keldur og lét hann hafa fyrir því þar. En það er skemmst frá því að segja að ég reið honum um allar sveitir og fór með strákunum niður að Skinnastöðum í fótbolta við krakkana þar og þeir hjóluðu en ég reið klárnum. Hann beið rólegur á kroppinu á meðan við spiluðum og svo var kapp heim og við Funi unnum alltaf Um haustið fór ég aftur heim á Suðurnesin og klárinn kom svo um áramótin suður. Þessi vetur var hrikalega erfiður því klárinn vildi ekki vera einn í reið eftir að hafa kynnst að fara með öðrum hrossum og ég fékk margar bylturnar. Hann rauk heiftarlega og eitt sinn blindrauk hann og náði ekki beygjunni almennilega á ferðinni og endaði úti stórum skafli og festi þar framfæturnar og flaug í kollhnís með mig og ég spýttist eitthvað útí skalfinn. Ég fékk rosalegt höfuðhögg en missti nú ekki meðvitund (fékk heilahristing) og náði með herkjum að koma klárunum restina að húsinu og inná bás. Restina af vetrinum fór ég með rútu í bæinn og labbaði langar leiðir til að komast á hestbak nærri því 5 daga vikunnar. Þennan vetur gekk ágætlega með klárinn en hann var kargur oft á tíðum og eitt sinn var hann í svo grautfúlu skapi að hann datt með mig í kollhnýs af FETI! Annað skiptið rauk hann niður brekku og ég fór að reyna að tosa og gera eitthvað og þá blindlá hann niður alla brekkuna og ég alveg að skíta á mig af hræðslu! Næsta vetur eftir dvölina í Gusti þá vorum við inná Mánagrund. Eftir einhver ár þá loksins var hann farinn að stillast og á endanum var hann orðinn svo stilltur að slegist var um hann í reiðskólanum hjá Mána. Ég sé ekki eftir öllum okkar byltum,rokum og útundarhoppum því eitt dýrmætt kenndi þessi fyrsti hestur mér og það er hvað ég vil EKKI eiga eða rækta. En ég má heldur ekki kenna honum um þetta allt því ég átti megnið af allri vitleysunni því ekki bað hann um að verða taminn og notaður sem reiðhestur í öll þessi ár. Skrifað af Ransý |
Um mig Nafn: Ingibjörg Rannveig Ingólfsdóttir (Ransý)Farsími: 869-8192Tölvupóstfang: ransy66@gmail.comAfmælisdagur: 25 JúlíHeimilisfang: ÁsgarðiStaðsetning: 250 GarðiHeimasími: 422-7363Önnur vefsíða: http://www.123.is/kaninur/Um: Ég er með hestabakteríuna ógerlegu einsog svo margir aðrir.Náði mér í bónda og fór að búa með honum Hebba mínum í Ásgarði 1998.Muna að kvitta í gestabókina!Njóttu.Bankanúmer: 0157-05-400339Tenglar
Eldra efni
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is