Stemningin á kvöldin hér á Garðskaga er búin að vera ótrúleg á kvöldin.Ég gat ekki stillt mig um að hlaupa út með cameruna um daginn og smella af þegar að sólin lék eldrauðum logum sínum um Snæfellsjökulinn. Morgunroði vætir,kvöldroði bætir.
Jökullinn hefur aldrei nokkurn tíma klikkað með spá fyrir veðri næsta dag og förum við algerlega eftir honum þegar að við erum í heyskap. Biskup,Snót,Rjúpa og Geisli fyrir aftan.
Snót er komin heim aftur og nú er bara að krossa putta að hún sé fengin við honum Glófaxa Parkersyni.
Það gæti komið flottur litur undan þeim tveimur.
Fyrstu gestahryssurnar eru að fara héðan frá Ásgarði í dag og um helgina en þá fækkar verlulega hjá Hrók og Astró.
Ein gekk upp hjá Astró (ekki hans sök en hryssan hefur áður gert þetta).
Og ein gekk upp hjá Hrók (líklega vegna spiks:) en nú á hún að vera orðin fyljuð við honum en hún gekk ekki upp í annað sinn hjá honum.
Allar hinar eru fengnar og hafa báðir stóðhestar staðið sig frábærlega vel.
Báðir afar rólegir og góðir við hryssurnar,folöldin og ekki snert á girðingunum.
Enda hef ég sofið róleg á nóttunni og haft það verulega gott í sumar.
Ég er með hestabakteríuna ógerlegu einsog svo margir aðrir.Náði mér í bónda og fór að búa með honum Hebba mínum í Ásgarði 1998.Muna að kvitta í gestabókina!Njóttu.