Heimasíða Ásgarðs |
||
18.05.2009 17:39Skjóna köstuð 17 Maí,kindur bornar og gotsprenging hjá kanínum
Ég sem ætlaði að fá hryssu undan honum Glófaxa. Myndarinnar gripur með langar lappir en ég ætla ekki að birta mynd af honum á fótunum sínum fyrren "hófkransinn" er dottin undan hófunum hans. Í dag voru kransarnir ekki enn dottnir af en þeir detta nú yfirleitt fljótlega af folöldunum. Í fyrra þegar að ég birti mynd af svona hófkrans þá vorum við búin hér á blogginu að finna út flott íslenskt nafn á þetta fyrirbæri sem ver fæðingaveg hryssunnar á meðan að framfætur folaldsins er á leið út. Ef ég man rétt þá var hún Freyja Imsland komin með rosalega íslenskt og gott nafn á fyrirbærið. Hvað var það aftur Freyja??? Nú ef einhver sem les bloggið veit hvað þetta kallast þá endilega commenta hér undir og það þarf ekkert að vera nafn með,bara nafnlaust ef þið eruð voðalega feimin:) Karen kind er borin og við hjónin klúðruðum þessu algjörlega fyrir henni og bæði lömbin (hrútlömb)drápust. Aðgæsluleysi að okkar hálfu og þetta er nokkuð til að læra af en næsta vor verður sett upp Vef camera yfir burðarstíunum þannig að hægt verður að fylgjast með þeim heima beint úr tölvunni. Nágranni okkar greip þessa hugmynd hjá mér um daginn og framkvæmdi! Nú Forysta var að bera í fyrsta sinn og kom hún með tvær fínar og nettar gimbrar. Við erum nokkuð sátt með útkomuna,10 kindur báru 19 lömbum (1 einlemba og rest tvílembur) en við misstum 3 lömb og það voru allt hrútar. En skiptingin á kynjunum er 5 hrútar á móti 14 gimbrum. Kanínurnar eru að gjóta á fullu og brjálað að gera hjá þeim að útbúa flott hreiður úr fiðu sem þær reyta af sér í gotkassana. Ég taldi að gamni hjá fyrstu læðunni og er hún með 8 unga got sem er kannski heldur mikið. Ég er sátt með 5-7 unga í goti en þá mjólka þær vel í skarann. Það er í lagi en ungarnir verða aldrei eins stórir og í minni gotunum. Farin út í góða veðrið að slá blettinn og undibúa grillmatinn fyrir kvöldið. Folaldalærisneiðar á grillið því ekkert fær maður hollara og betra og ekki verra af heimaræktuðu. Ég veit að þið trúið því ekki hvað þetta kjöt er meyrt og gott.Ég fitusnyrti það og skelli því í mareneringu (BBQ Oil Original fæst í öllum búðum) í nokkrar klukkutíma inní ískáp. Þetta er alveg magnað og með því ferskt salat og grillkartöflur með hvítlaukssmjöri. Má ekki gleyma heldur hvað það er brjálæðislega gott að setja heilan hvítlauk í álpappír og grilla! Svo bara að kreista hvítlaukinn úr hýðinu og borða. Skrifað af Ransý |
Um mig Nafn: Ingibjörg Rannveig Ingólfsdóttir (Ransý)Farsími: 869-8192Tölvupóstfang: ransy66@gmail.comAfmælisdagur: 25 JúlíHeimilisfang: ÁsgarðiStaðsetning: 250 GarðiHeimasími: 422-7363Önnur vefsíða: http://www.123.is/kaninur/Um: Ég er með hestabakteríuna ógerlegu einsog svo margir aðrir.Náði mér í bónda og fór að búa með honum Hebba mínum í Ásgarði 1998.Muna að kvitta í gestabókina!Njóttu.Bankanúmer: 0157-05-400339Tenglar
Eldra efni
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is