Ég stend varla í fæturnar eftir síðust tvo daga því þegar að kanínurnar vilja fara á stefnumót þá verð ég að hlýða kalli náttúrunnar og opna búrin hjá dömunum og flytja þær yfir í karlalínuna og skoða ættir og finna út óskyldann eða fjarskyldann herra handa þeim.
Nú svo þarf að skúra og skrúbba og bóna búrin á fæðingarganginum svo þær geti nú skilið við kallana eftir fjörið því það er ekki hægt að bjóða þeim uppá að vera hjá þeim í marga daga eins óstýrlátir og þeir verða á þessum tíma . Nú svo er maður á höttunum eftir hænueggjum (frjóum:)og nú er svo komið að stóra útungunarvélin fer í gang enda búið að safna allmörgum eggjum í hana. Ég fékk hátt í 50 egg úr þessum flottu dömum. Hér er svo annar pabbinn að eggjunum en hinn var vant við látinn að kroppa eftir ormum og öðru góðgæti í veðurblíðunni í gær.
Núna liggja ansi margir yfir stóðhestablaðinu og hvar sem maður kemur inná kaffistofur er verið að vega og meta hvaða stóðhestur/ar eigi nú að verða fyrir valinu í sumar.
Ég sá einn flottan í vikunni og slef..................... Hvernig var lagið aftur "ef ég væri ríkur"dararararararara.........
Ég er með hestabakteríuna ógerlegu einsog svo margir aðrir.Náði mér í bónda og fór að búa með honum Hebba mínum í Ásgarði 1998.Muna að kvitta í gestabókina!Njóttu.