Í gær áskotnaðist mér gimbur í sjaldgæfum lit og var ég snögg að sækja hana ásamt Fjármálaráðgjafa mínum henni Valgerði vinkonu. Þreifingar í fjármálum .Vóv.....sú er væn! Kolótt er hún og afar samarekin og þykk lítil gimbur. Alveg úrvals ræktunargripur að sögn Valgerðar og ég var ekki lengi að smella nafni á gripinn en hún heitir Valmína. Fé lagt til hliðar . Við eyddum löngum tíma í kindakofanum við fjárþreyfingar og mal enda þegar að tvær kindarlega konur koma saman þar er gaman . Er hún ekki fín hún Valmína ! Ég er svo stolt af nýja gripnum að ég bara varð að skella inn myndum af dömunni. Sem Valgerður á http://www.123.is/hrauni/ tók! Takk fyrir myndirnar . Bara stutt í dag elskurnar mínar .
Ég er með hestabakteríuna ógerlegu einsog svo margir aðrir.Náði mér í bónda og fór að búa með honum Hebba mínum í Ásgarði 1998.Muna að kvitta í gestabókina!Njóttu.