
Muggur er kominn á gott heimili!!!
.......
Hann Mugg vantar gott heimili og ábyrgann eiganda.Hann kom í Ásgarðinn í dag í myndatöku og líst mér bara vel á gripinn.Hann er tveggja ára gamall fæddur 17 desember 2005 og er kominn frá Gunnarsholts ræktun http://asp.internet.is/schafer/inngang.htm.

Mjög kurteis og barngóður hundur,vinnuglaður og var mikið til í að fá mig til að henda einhverju fyrir sig niður í fjöru.Þægur í bíl og var kyrr afturí en smá spenna í honum þegar að hann fann það á sér að hann ætti að fá að fara út að leika.Skiljanlega,hvaða hundur verður ekki spenntur að fá að spretta úr spori og leika sér.
Ekki fór hann langt frá manni og var duglegur að gegna því að koma og fara aftur í bílinn.
Þannig að ef einhver þarna úti hefur tíma,húsnæði og fjárráð í að ala svona stórann og fallegan strák,vinsamlegast hafið samband við Sigurjónu í síma 898-3743.

Stóra Baga hennar Sabine er til sölu.
Hér eru myndir af dömunni og ættin hennar ásamt lýsingu frá eiganda.

Fallegt, stórt mertryppi til sölu, fífilbleik stjörnótt, microchipped, mjög flott fimmgangstryppi, sýnir gott tölt og brokk og er með gott geðslag!
Ætt:
F: Snær von Bakkakoti
FF: Orri von Þúfu (8.34)
FM: Sæla von Gerðum (8.11)
M: Muskunótt von Reykjahlíð
MF: Safír von Viðvík (8.35)
MM: Von von Hemlu
Hún er staðsett í Ásgarði.
Hafðu samband í info@gaedingur.com
Sabine skilur íslensku mjög vel og skrifar hana líka þannig að verið ekki feimin við að senda henni fyrispurnir
.