Heimasíða Ásgarðs |
||
31.10.2007 01:12Sabine og Íris farnar-Hylling heim og Hrókur tekinn innEr ekki kominn tími á eitt gott blogg.Er enn að jafna mig á því að stelpurnar séu farnar,þær Íris og Sabine. 26 Október: Átti kallinn stórafmæli,varð sextugur.Innilega til hamingju gullið mitt:) Dagurinn var samt ósköp venjulegur en Sabine og Íris fóru í heimsókn að Hrauni í Grindavík og undu sér þar frameftir degi með henni Valgerði vinkonu. Við Hebbi fórum í verkin okkar og dunduðum heil ósköpin í skepnunum á bænum.Extruðum voðalega vel enda veitti kannski ekki af því eftir allt flandrið á kellingunni mér undanfarnar daga. Við færðum kindurnar í betri stíu því nú fer að koma að því að stóðhestar fari að koma hingað til vetravistunar og þá er nú gott að það séu ekki kindur í stóðhestastíunum:) Lömbin blása út þau sem fæddust núna í haust í óþökk fyrrverandi eiganda en ég gekk á milli hnífs og skinns þegar að átti að fara að fella þau greyin:)Alveg merkilegt hvað ég er orðin viðkvæm fyrir kindum! Reyndar er fyrrverandi eigandi kindarinnar og lambanna alveg miður sín þegar að ég er að fara að fella folöld hjá mér hehehehehehe............Það finnst mér hinsvegar ekkert mál enda löngu búin að skoða ganglag,byggingu og geðslag og búin að sættast á það að viðkomamdi gripur búi yfir meiri hæfileikum sem steik í ofni:) Eftir að öll verk voru búin þennan dag þá mætti Magga á svæðið og við brunuðum útí búð og ýmislegt keypt fyrir afmælis"barnið":)Við snöruðum fram þessari líka fínu kökuveislu og reyndar gerði ég þennan flotta heita rétt í ofninum líka:)Sko mig þetta gat ég:)Uhhhhh........takk kærlega fyrir hjálpina Magga mín! 27 Október. Vöknuðum á ókristilegum tíma eða klukkan 5:45 um morguninn og nú skildi brunað vestur á Mýrar. Fyrst fóru Sabine og Valgerður galvaskar LENGST útí mýri að skoða hross en við Íris og Hörður driver sátum í bílnum funheitum á meðan:)Þvílíkar hetjur þessar stelpur! Næst var farið í Borgarfjörðinn og stoppað í Skipanesi en þar er hann vinur minn Dímon Glampasonur að stíga sín fyrstu skref með knapa. Ekki hefur veðrið leikið þar við hann né knapa hans.Allt á floti úti og allt á floti inni líka en innitamingar aðstaðan á floti vegna vatnsveðurs undafarnar vikur! En góðir hlutir gerast hægt og Dímon er að verða búinn með fyrsta áfangann og næst kemur hann í smáhvíld í Ásgarðinn:) Hlakkar til að fá drenginn til mín:) Síðan var brunað áfram og stefnan tekin á Neðra-Skarð. Þar var fríður flokkur af fólki að smala saman stóðinu sem var að koma inn í ormalyfsgjöf og hófsnyrtingu. 28 Október Vaknaði aftur á þessum líka ókristilega tíma 5:00! Reyndar var engin smá snjókoma þennan morgunn! Aumingja Sabine sem ætlaði að ná snjómyndum af hrossum var að fara og ekkert hægt að gera. Við komumst heilu og höldnu alla leið en á heimleiðinni var ég næstum farin útaf en ég fór aðeins hraðar eftir að ég varð ein og missti vald á bílnum í hálkunni en tókst að rétta hann aftur við á veginum sem betur fer! Ég skreið aftur uppí og svaf til hádegis en þá komu galvaskar dömur úr Borgarfirðinum þær mæðgur Gro og Gunnhildur frænka og ein úr Höfuðborginni hún Inga frænka. Við drifum hrossin inní hesthús og fórum svo og fengum okkur kaffi. Í dag skildi fækka Öndunum svo um munaði.Við rákum þær inní hesthús og flokkuðum það sem átti að fara til lífs og það sem á að stækka og fitna meir og svo var brunað með þær greyin útí sláturhús og þar fengu þær að hanga á meðan við fengum okkur smá meira kaffi. Ég plataði hana Gunnhildi frænku mína til að fara niður á tún að sækja hann Hrók en nú átti að setja kall inn enda gestahross farin að streyma í Ásgarðinn og ekki gott að ofra neinu með stóðhest úti þó rólegur sé. Gunnhildur átti bágt með að finna hann en hann var einsog einn af stóðmerunum að hennar sögn hehehehe....... Hrókur var rétt kominn á hús þegar að Felix hennar Huldu Geirs mætti á svæðið.Felix átti að fara niður á Vinkil en þar verða ellismellirnir í vetur. Dimmt var orðið og ekki gott að setja hann útí myrkrið á ókunnugum stað þannig að hann var settur inn við hliðina á Hróksa. Hann hneggjaði og spólaði í hringi í stíunni og varð ekki rótt fyrren Hrókur kom aftur inn og ekki var viðlit að fá hann Felix til að éta heyið sín megin heldur tróð hann hausnum í gegnum milligerðina og át svo hæstánægður tugguna með Hrók:) Bara krúttlegir vinir:) Af öndunum er það að segja að þær tíndu tölunni og voru teknar 44 þennan dag og munar um minna að fóðra skal ég segja ykkur:)
|
Um mig Nafn: Ingibjörg Rannveig Ingólfsdóttir (Ransý)Farsími: 869-8192Tölvupóstfang: ransy66@gmail.comAfmælisdagur: 25 JúlíHeimilisfang: ÁsgarðiStaðsetning: 250 GarðiHeimasími: 422-7363Önnur vefsíða: http://www.123.is/kaninur/Um: Ég er með hestabakteríuna ógerlegu einsog svo margir aðrir.Náði mér í bónda og fór að búa með honum Hebba mínum í Ásgarði 1998.Muna að kvitta í gestabókina!Njóttu.Bankanúmer: 0157-05-400339Tenglar
Eldra efni
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is