
Nú er Hrókur orðinn spenntur enda sagði ég honum að hryssur væru farnar að panta hjá honum pláss og núna er hann með allar græjur tilbúnar og hlaðnar í slaginn.Inga hennar Möggu gerði hann voðalega fínann í gær,spreyjaði,burstaði og fléttaði á honum taglið voða fínt
.Merunum ætti nú að lítast vel á hann þegar að þær koma ef hann verður ekki búinn að velta sér uppúr næsta moldarflagi:))Fyrsta meri kemur á húsnotkun eftir nokkra daga og þá verður Hrókur færður í heimahesthúsið þarsem friður er fyrir hann og nýju kærusturnar undir mínu eftirliti of course
.Svo fær hann að fara í merarnar niður á tún og bakka 1 Júní.
Engin hryssa er í köstunarstuði í augnablikinu en ég vildi óska þess að það ringdi því þær kasta frekar í rigningu en þurrki.Hebbi leit yfir öll hross í morgun þegar að hann gaf rúllurnar og var alltí rólegheitunum í öllum hólfum.Maður er orðinn svo spenntur að fá fleiri kríli,það er svo miklu meira gaman að sjá nokkur saman að leik.
Ég má ekki gleyma því að við fórum á svartfuglakvöld á Kjalarnesið á Laugardagskvöldið en Hebbi minn fór fyrst um morguninn í árlega Herrifflakeppni og sagðist hann ekki hafa fengið nein verðlaun en var svo að halda því leyndu að hann vann Gullið í 100 metrunum standandi með gamla Carl Gustav smíðaður 1916.Ég vissi ekki neitt um kvöldið,en samt voru allir að óska mér til hamingju með kallinn! Ég var alveg orðin kringlótt í framan
og það var ekki fyrren að verðlaunahafar voru kallaðir upp að Hebbi minn stóð upp og Gullið var hengt um hálsinn á honum og hann glotti ógurlega á frúna sína
.Sko minn mann,þetta getur hann þó svo hann hafi ekki getað æft sig nema í rúmlega klukkustund fyrir mótið og hafði þá riffillinn gamli hangið inní skáp í heilt ár frá fyrra móti
.
Fyrsti mófuglinn er orpinn í Ásgarðinum og nú er spurningin.
Hvað þið eruð klár gott fólk! Hver á þessi egg???