|
Þessi myndarlega kanína á heima fyrir austan og finnst mér hún vera ansi myndarleg og feit.Ég seldi nokkrar læður á þennan bæ og paraði þær fyrst með mínum bestu högnum sem betur fer því ég var að missa einn af þeim um daginn.Ég ætla rétt að vona að sá högni hafi parast vel við læðuna því nú langar mig að vita hvort ég geti fengið keyptann einn högna undan honum og læðunni frá mér.Það var eins gott að ég notaði bestu högnana mína en fólk hefur verið svolítið hissa á mér að gera þetta en ég hef svarað því þannig til að ég geti þá seinna meir sótt gott blóð inní mína ræktun aftur eða reddað mér ef að ég missti gott dýr einsog skeði núna.
Folöldin voru ekkert voðalega þakklát okkur í dag að fá að fara í nýja fína hólfið sem að stóðhestefnin hér á bæ eru í en þeir fóru inn í dag svo að Hrókur gæti viðrar sig og "börnin" sín og sprett svolítið úr spori.Hleyptum við þeim út í hólfið í svona cirka klukkustund og unnum róleg við annað við Hebbi.
Síðan fór ég út til að teyma Hrók inn og láta þessi 7 folöld elta hann inn en þá voru bara 5 folöld hjá honum en 2 búin að troðast undir girðinguna og lékum lausum hala um allt! Ég verð nú að viðurkenna að það er ekki komið rafmagn á girðinguna en okkur grunaði ekki að þau færu að troðast undir neðri vírinn en þeim fannst það nú ekki mikið mál.Nú voru góð ráð dýr.Sem betur fer þá er Hrókur svo innilega rólegur og þægilegur að hann bjargaði okkur alveg með þægð sinni.Setti ég múl á hann og teymdi hann inn með einhvern hlutann af folöldunum, þurfti svo að hlaupa með hann til baka því að það sem eftir varð varð alveg vitlaust og þá var að spretta aftur úr spori með hann og svo aftur út þegar að þessi 5 voru kominn inní stíurnar sínar.Þá voru þessi tvö eftir sem voru orðin hrædd og vitlaus ein úti og komust náttúrulega ekki tilbaka undir vírinn þó svo þau hafi komist undir hann og út!
Enn eina ferðina var Hrókur teymdur og hlaupið hingað og þangað með hann svo að þau myndu nú elta hann rétta leið en á tímabili voru þau mikið að spá í að láta sig bara hverfa útí buskann frá okkur.Þau komu sem betur fer með þvílíkum rassaköstum og látum að honum og eltu hann loksins inní girðinguna aftur.Alltaf hélt hann ró sinni sama hvað þau prumpuðust í kringum hann með þvílíkum sprelli og látum.Mikið er gott að eiga einn svona rólegann og stabílann hest sem smitast ekki af ólátunum í öðrum hrossum.En eitt er víst að annað folaldið sem slapp endar í frystikistunni okkar eftir örfáa daga.Enda með afbrigðum leiðinlegt og lundfúlt.Og annað er víst og það er það að á morgun verður settur enn einn vírinn á girðinguna og veiturafstöðin sett á.Þetta skulu folöldin ekki fá að gera aftur.
Nú er ég farin að éta kjúklinginn sem var að grillast í ofninum.Fer þetta ekki að verða með síðustu fuglunum sem að maður lætur ofaní sig?Hvaða bóndi fyrir austan var að slátra öllum fuglunum sínum vegna fuglaflensuótta? Eru allir að verða vitlausir? Fuglaflensan er búin að greinast hér í fuglum fyrir nokkrum árum og enn erum við Íslendingar uppistandandi.Við erum svo hraust þjóð! |