
Mjölnir með Mjólkurhyrnu móður sinni í September
Jæja,fórum í að aðskilja gimbrarnar frá mæðrum sínum og settum mömmurnar útí rúllu.
Sumar eru enn að mjólka og eftir smá stund þá fóru kindurnar að týnast
úr rúllunni og jarma á hurðinni og nokkrar af gimbrunum inni fóru að
hágráta.
Lambhrútarnir þeim Svanur,Skúmur og Mjölnir eru farnir að
tuskast ansi mikið og slást og um daginn fékk Mjölnir blóðnasir en það
lagaðist svo.
Í fyrradag þurfti að
taka hann frá en hann var hálf vankaður blessaður og greinilega með
hausverk,lagðist niður og var slappur en í dag var hann orðinn góður.
Gáfum merunum og folöldunum líka rúllu og einnig fengu stóðhestarnir Hrókur og Náttfari sína rúllu.
Enn er auð jörð og næg beit með og veðrið alveg dásamlegt.