Snarvitlaust veður og nálægt 30 metrar á sek í hviðum. Héldum okkur inni fyrripart dags og settum svo undir okkkur hausinn seinnipartinn og æddum útí gjafir og annað stúss. Ég fór niður í stóð og náði í gegnum hliðið þeim systrum Þrúði,Rjúpu og Mist en Þrúður er að leggja land undir fót og var sótt í kvöld. Hún var spreyjuð,burstuð og puntuð í bak og fyrir og var voða skvísa þegar að bíllinn mætti til að sækja hana í kvöld.
Hebbi fór og gaf strokugæsunum og var búrið þeirra sem á að veiða þær í
dottið um koll en þær eru barasta ekkert hræddar við það og koma
hlauðpandi á móti kallinum og æða inní búrið þegar að hann gefur þeim
brauð þar. Við verðum að fara að gefa okkur tíma til að veiða þær og
flytja þær heim blessaðar.Þær fá tvö brauð á dag en eru altaf tilbúnar í
meira þegar að kallinn mætir á pikkupnum en hann eru þær farnar að
þekkja langar leiðir.
Dánarfregnir: Ein kínversk silkihæna gaf upp öndina en
það skeður stundum og ekkert við því að gera.Annars eru silkiungarnir
farnir að verpa og lítil sæt egg farin að koma daglega frá þeim og
einnig frá þeim eldri. Busla er að jafna sig eftir minkaslaginn
um daginn en það fór alveg 5 daga orka í þennan slag og hélt ég að
tíkin væri nú að fara að kveðja. En enn eina ferðina reis hún upp og er hin brattasta.
Ég er einsog Buslan,fer stundum fram úr mér og er í 1-2 daga að jafna
mig.Bakið er búið að vera að stríða mér en um leið og ég er orðin góð þá
er ég komin á sprett aftur.Alveg einsog allt sé gleymt og ég komin
flug
Ég er með hestabakteríuna ógerlegu einsog svo margir aðrir.Náði mér í bónda og fór að búa með honum Hebba mínum í Ásgarði 1998.Muna að kvitta í gestabókina!Njóttu.