Flottur dagur í dag,fengum góða gesti og svo fór kallinn út í gjafir og að kíkja aðeins á bílinn en hann er á leið í skoðun á morgun.
Ég er í inniverkum í dag og svona rétt fyrir sauðburð er nú ekki amalegt að skella sér í sláturgerð og hamsatilbúing. Ég átti svo mikið eftir af lifur og hömsum að ég ákvað að drífa bara allt saman uppúr kistunni og er að dunda við þetta í dag og í kvöld.
Í gær fengum við góða gesti en systur hans Hebba komu í kaffi,alltaf gaman að spjalla við þær um heima og geima. Evra frá Stað vorið 2011
Sauðburður hefst um mánaðarmótin en ég ætla að byrja að vakta kindurnar 1 maí en þá gæti hún Evra átt það til að bera. Hún er gjörn á að ganga með í 139 daga þannig að allur er varinn góður.
Ég er með hestabakteríuna ógerlegu einsog svo margir aðrir.Náði mér í bónda og fór að búa með honum Hebba mínum í Ásgarði 1998.Muna að kvitta í gestabókina!Njóttu.