Þá veit maður það cirka 99% hvað eru mörg lömb í kindunum eða það fullyrða þeir sem að fengu hingað á Suðurnesin hann Gunnar fósturtalningarmann og konu hans að sóna í fjárhúsunum hjá okkur ofurspenntu fjárbændum.
Ég er ánægð með útkomuna en svona er staðan hjá okkar 18 kindum:
3 einlembur (tvævetlur að bera í fyrsta sinn)
13 tvílembur (Karen kind er með tvö en annað fóstrið er dautt)
2 þrílembur (Sibba Gibba sjálf þrílembingur og Forysta)
Nú er maður farinn að telja niður dagana í sauðburð og á ég ekki til snefil af þolinmæði í meiri bið. Hrútarnir Frakkur Forkson og Toppur Sindrason voru teknir endanlega á hús og Frakkur sem var að missa allt niður um sig var færður úr ullinni. Hrikalega ljótt að sjá ullina flaksandi laflausa á kroppnum á kallinum..........! Enn verra að sjá hann blessaðann eftir meðferðina hjá frúnni en ég fann bara venjuleg skæri í verkið og dundaði mér við þetta en það tók voðalegann tíma. Toppur Sindrason var afar áhugasamur með þetta allt saman.
Nú ekki gat ég stoppað úrþví ég var komin í klippistuð og næsta fórnarlamb varð hann Sprelli Angóra högni en hann var kominn langt frammúr áætluðum klippidag og veitti ekki af snyrtingu.
Hann var klipptur í þremur hollum svo að hann fengi nú ekki kuldasjokk og svo setti ég upp hjá honum gotkassa að kúra sig í fyrst á eftir á meðan að hann er að jafna sig á nýfenginni nekt.
Ég er með hestabakteríuna ógerlegu einsog svo margir aðrir.Náði mér í bónda og fór að búa með honum Hebba mínum í Ásgarði 1998.Muna að kvitta í gestabókina!Njóttu.