Fór með lömbin okkar í SS í dag á Selfoss og gleymdi bæði gemsanum og
lyklunum mínum þarsem við duttum inní kaffi.Ákvað að ég væri ekkert svo
ómissandi þartil á Miðvikudaginn þannig að þið þarna úti sem VERÐIÐ að
ná í mig vinsamlegast hringið í símann hjá kallinum mínum 896-4763. Er yfirleitt hengd föst við megnið af sólahringnum.......Einhver verður að stjórna honum.......:)!
Við erum búin að girða fyrir ofan veg og búin að hleypa gibbunum þar inná. Í fyrra gerðum við tilraun með nýjan áburð en það var ferskt slor frá Frystihúsi hér í nágrenninu. Þetta svæði fékk engan áburð. Það leið ekki á löngu þartil grár mosagróinn móinn fór að grænka og verða svona fallegur yfir á að líta. Hér var áður grár mói sem lifnaði við eftir slorun.
Ég er búin að fylgjast með kindunum síðustu dagana og hanga þær meira og minna í grasinu sem fékk slorið í fyrra en ganga frekar framhjá grasinu þarsem tilbúinn áburður var settur á í fyrra og í sumar. Semsagt,hér á bæ eru kindurnar að búa til hollara kjöt með heilsusamlegri omega 3 fitu. Eða það vil ég meina þartil annað kemur í ljós:)
Ég er með hestabakteríuna ógerlegu einsog svo margir aðrir.Náði mér í bónda og fór að búa með honum Hebba mínum í Ásgarði 1998.Muna að kvitta í gestabókina!Njóttu.