Tökum ekki fleiri hross að okkur í vetur! Allt orðið smekkfullt miðað við heyfeng sem er minni í ár vegna þurrkanna í sumar og svo látlausrar rigningar í haust sem olli því að ekki var hægt að klára öll túnin. Þarf því miður að láta eitthvað af mínu góða fólki fara annað með hrossin sín í vetur .
Nú fara fyrstu stóðhestarnir að koma á hús og 1 desember þau hross sem verða hér á útigangi. Er að fara í skýrsluhald og annað sem búskapnum fylgir. Forðagæsluskýrslan var að detta innum lúguna og eins skýrslurnar fyrir folöldin-afdrifaskýrslan og búskýrslan. Hafið samband í herbertp@simnet.is ef einhverjar spurningar vakna. Þangað til næst,farið vel með ykkur !
Ég er með hestabakteríuna ógerlegu einsog svo margir aðrir.Náði mér í bónda og fór að búa með honum Hebba mínum í Ásgarði 1998.Muna að kvitta í gestabókina!Njóttu.