
Ég þarf að nota það oftar að hóta því að setja skepnurnar hér á bæ í bjúgu ef þau gegna mér ekki hehehehehe.......Folöldin voru sko ekki lengi að koma sér inn í gær og stukku uppí stíuna sína án þess að ég þyrfti að skipta mér af þeim! Sú dökkjarpa mín ákvað að leiða hópinn inn um dyrnar og meira segja hann Hrókur varð einn eftir úti að maula í sig heyi uppúr karinu!Þvílíkir englabossar
.Mig alveg klægjar í puttana að eiga þessa dökkjörpu en er enn að pæla í því hvað ég geri.Minnsta kosti þá mátti hún alsekki fara undir hnífinn og hana nú!
Annars er ekkert svosem í fréttum,vont veður og gott að vita af útiganginum með nóg af rúllum hjá sér.Vatnið er alstaðar í lagi núna og við Hebbi minn njótum þess bara að vera til í rólegheitum þessa dagana
.
Best að skella inn myndum af Ægisíðufolöldunum,það er víst ansi mikið af spenntum eigendum útí heimi sem langar svo til að sjá myndir af þeim reglulega.
New picures of the Ægissíðufoals! Look in the albúm http://www.123.is/album/display.aspx?fn=asgardur&aid=-402418744