
Úpps.......þessi mynd er alltof stór!Blogga meir í dag þegar að ég hef tíma til að bulla og minnka þá myndina af drengnum honum Hrók.En afhverju er hann bara með 8.5 fyri prúðleika? Næst vil ég fá 9 á hann
.
Komin minni mynd
.
Já þá er að reyna að muna eftir hvað hefur á daga okkar drifið.
Við Hrókur ákváðum það að hann ætti að fara inn svo að álagið á kellinguna minkaði hvað varðar alla þessa þeytinga með rúllur í mörg hólf en þegar að Hrókur var farinn úr sínum hryssum þá gat ég sameinað þær við annan hryssuhóp.Við löbbuðum útí stóðhestahús í myrkrinu og ég hreinlega hékk í faxinu á klárnum í hálkunni! Það var gaman að fá hann aftur í húsið en það er alveg með eindæmum hvað hann þarf alltaf að tjá sig og biðja um hitt og þetta hehehehe.Hann td veit að heyið sem hann fær og hin hrossin í húsinu er ekki eins verkað einosg kanínuheyið.Í kvöld einsog svo oft áður þá hætti hann að éta sitt hey og kumraði eftir kanínuheyi.Auðvitað fékk hann smá tuggu og svo aftur smá tuggu hehehehe.Ég hleypti honum framá gang með öllum Ægissíðufolöldunum og skipti hann sér ekkert af þeim heldur stóð í ströngu við að koma sér í kanínurúlluna.Hann er með afbrigðum geðgóður við önnur hross og þá sérstaklega folöld.Næsta dag þá setti ég hann út með þeim og þau voru að fara út í fyrsta sinn og það var ekki auðvelt að koma þeim útum dyrnar en þröskuldurinn var svo svakalega hættulegur! En loksins létu þau sig vaða yfir hann og það var sko sprett úr spori!Svo svakalega að hún Sssól Hróksdóttir datt um koll í hálkunni og fleytti kellingar eftir jörðinni.Það voru móð en sæl folöld sem komu inn aftur með Hróknum.

Við færðum stóðtittina uppeftir þannig að þeir eru komnir á sinn stað.Ekki var gaman að hafa þá greyin í heimahesthúsinu sem er með steyptu gólfi og gúmmímottum á.Eitthvað eru lærin á þeim skítug orðin en núna ættu þeir að hreinsast aftur.Ég þoli ekki flórlæri arg arg........

Hér eru ljóskarnir þeir Stóri Dímon frá Markaskarði (til sölu á http://www.gaedingur.com/youngsters.html ) og Glófaxi Parkerson.

Hér eru þeir Týr frá Hvammi en hann er til sölu og Hjartan frá Markaskarði.Hann Týr er brúnskjóttur að lit og er undan Tón frá Auðsholtshjáleigu og er hann Tónn undan Keili frá Miðsitju.Óska eftir tilboði í Týr fyrir hönd eiganda hans.