Litla Löpp gladdi okkur óseigjanlega með því að koma með þessa fallegu skjóttu dömu sem fer um á gormabrokki!
Sú stutta gormast um túnið einsog ballerína og gefur bræðrum sínum ekkert eftir þegar að hún flýgur af stað með látum og áhyggjufull móðirin í loftköstum á eftir folaldinu sínu. Hingað til hafa þau ekki verið svona "óþekk" skín úr augunum á mæðrunum þetta sumarið hehehehehehe.........:) Astró börnin eiga það nefnilega sameiginlegt að vera leikglöð og kát með afbrigðum.
Frétti af Astró syni í Borgarfirðinum sem er svona rosalega hress og sprettharður líkt og systkini hans hérna megin. Enn ein áhyggjufull móðir þar í loftköstum:)
Nú svo fæddist enn einn Astró strákurinn hér í Garðinum undan stórri Hróksdóttur en sá stutti var svo óheppinn að einn geldingurinn í hópnum ákvað að eigna sér hann og móðirin sat eftir súr á svip og skildi ekki neitt í neinu.
Sem betur fer sást hvað var í gangi og eigendurnir voru skjótir til að grípa inní og tóku þau mæðgin inn á hús og náðu að sameina þau svo að það ævintýri endaði farssællega.
Astró kallinn er hér niður á túni að taka á móti börnunum sínum og sinnir mæðrunum þess á milli.
Mér telst til að hann sé með 17 hryssur hjá sér í ár.
Er snöggur að þjónusta þær í réttri röð auðvitað en engin hryssa fær afgreiðslu hjá honum nema hann sé búinn að skanna hvort hún sé ekki alveg örugglega á hárréttu augnabliki til að fyljast.
Mikið afskaplega er þetta kurteis og þægilegur hestur að hafa í stóði.
Hrókur minn er atvinnulaus í sumar og ef einhver þarna úti myndi hafa handa honum nokkrar hryssur til að dunda sér í sumar gegn hagagöngu (get tekið hann heim aftur hvenær sem er:) þá veit ég að hann yrði mikið kátur með það.
Hafið samband annaðhvort í netfangið ransy66@gmail.com eða í síma 869-8192
Ég er með hestabakteríuna ógerlegu einsog svo margir aðrir.Náði mér í bónda og fór að búa með honum Hebba mínum í Ásgarði 1998.Muna að kvitta í gestabókina!Njóttu.