Blogg19.1.2010Kanínublogg og tölvuvesen Þá er talvan mín komin í nokkuð gott lag en ein góð vinkona mín ásamt mér rákum augun í ( ég endaði hjá augnlækni en hún uppá slysó!) frétt þarsem árás er í gangi á explorerinn en ég var einmitt með hann en er búin að fá mér Mozilla Firefox og nú þarf ég vart að koma við músina,næstum bara að hugsa á hvaða síðu ég ætla næst og hún opnast!Hér getið þið lesið fréttina um Árás á Internet Explorer þið sem eru enn að brasa við þetta hundleiðinlega vandamál.Það er bara eitt alveg ferlega fyndið með Firefoxinn,hann er allur á íslenku og ég er bara í standandi vandræðum með það í augnablikinu.En gamall nemur,ungur temur...................takk æðislega fyrir hjálpina vinkona!En nú er mál að linni,búin að blogga heilmikið á nínusíðunni minni, blogga fljótlega aftur hér en allt er á fullkum snúning í Ásgarðinum og fullt af skemmtilegheitum í gangi. Kíktu á nínusíðuna mína líka! Gerðu það...................suðsuðsuð......!
Til bakaFara á upphafssíðu
Flettingar í dag: 155 Gestir í dag: 31 Flettingar í gær: 799 Gestir í gær: 195 Samtals flettingar: 703437 Samtals gestir: 209914 Tölur uppfærðar: 22.3.2010 07:55:49
|