|
Heimasíða Ásgarðs Ásgarður er að stíga sín fyrstu spor í hrossarækt og munum við leggja áheyrslu á ræktun geðgóðra hrossa í fallegum litum. |
|
Blogg30.12.2009Örmerking+dna testi lokið:)Gleðilegt nýtt ár!
Ég er nefnilega korterí manneskja (oft korter yfir:) en nú hef ég snúið vörn sókn heldur betur. Það sem ég er að montast með er að ég er búin að skila inn öllum stóðhestaskýrslum,láta örmerkja öll folöldin og í dag kom Gísli dýralæknir og tók dna sýni úr þeim. Búin að láta sprauta gimbrarnar í leiðinni við Garnaveiki og hundana við Parvó og ormahreinsa þá. Hvað á ég eiginlega að gera eftir áramótin Á morgun verður sett vel af rúllum út fyrir útiganginn því södd hross eru alltaf rólegri gagnvart flugeldaprumpinu sem stundum heyrist hingað. Ég hef ljós um nóttina bæði í hesthúsinu og kanínusalnum og útvarpið aðeins hærra stillt. Krossa svo puttana og vona að allir verðir stilltir og prúðir meðan að tvífætlurnar fara hamförum í púðurreyk og svælu. Fariði varlega þarna úti og góða skemmtun annað kvöld:) 28.12.2009Bóka+Konfekt Jól
Ég fékk fullt af bókum og fullt af súkkulaði!!! Þá eru jólin hjá mér Þessi jól verða lengi í minnum höfð vegna þess hve allt gekk smurt og vel fyrir sig,ekkert stress í gangi og fólk svo rólegt og þægilegt allstaðar í viðmóti. Ég var með skötuna á borðum deginum fyrir Þorláksmessu og græddi heilan dag fyrir vikið! Var ég sniðug eða var ég sniðug hehehehe............ Á Þorlák fórum við í bæinn og keyptum gjafir,pökkuðum inn og útbýttum í mestu rólegheitum. Fengum okkur meira að segja kaffi,konfekt og spjall hjá vinum og nutum okkar alveg í botn. Ég var meira að segja svo nett á taugunum að ég hló þegar að kallinn læsti bíllyklana inní bílnum með öllum pökkunum og matnum. Hann æstist allur greyið upp og beið eftir ræðunni frá kjellunni sinni en mér var gaman skemmt enda vissi ég að það myndi leysast með bílinn. Til hvers að vera að æsa sig upp yfir einhverju svona ómerkilegu,það hefði kannski sett mig úr jafnvægi ef við hefðum við fjarri byggð í vondu veðri og enga hjálp að fá. En svona fyrir ykkur hin sem þolið illa svona uppákomur,þá kostaði þetta litlar 7000-krónur að fá mann til að opna bílinn sem tók allt í allt 1 og hálfa mínútu með undirskrift frá kallinum að það mætti opna bílinn. En að Aðfangadegi,þá eyddum við stórum parti í skepnurnar og átti ég friðsæla og skemmtilega stund útí stóði með cameruna mína. Hrossin hafa það alltof gott,svo gott að þau eru farin að losa hár! Meira að segja folöldin eru farin að losa hár og ég sem hef bara verið að gefa fyrninarhey. Þetta hefur skeð hér áður í kringum áramótin og er svosem ekkert til að hafa áhyggjur af. Fín leið til að sleppa algerlega við hnjúska er að gefa aðeins fyrr út rúllu og svo er miklu ódýrara að fóðra feit hross heldur en þau grennri. Allir eru feitir og flottir og vel undirbúnir undir vetur konung. Skellti inn albúmi með hrossunum fyrir þá sem vilja sá hestana sína sem hér eru í pössun í vetur. Here is brand new albúm of the gueshorses this winter on our farm. Hestarnir í Ásgarði desember 2009. 24.12.2009Gleðileg Jól20.12.2009Kuldablogg
12.12.2009Hross að seljast
Flettingar í dag: 237 Gestir í dag: 66 Flettingar í gær: 799 Gestir í gær: 195 Samtals flettingar: 703519 Samtals gestir: 209949 Tölur uppfærðar: 22.3.2010 10:08:31 |
Vafraðu umclockhere Eldra efni
Um mig Nafn: Ingibjörg Rannveig Ingólfsdóttir (Ransý)Farsími: 869-8192Tölvupóstfang: ransy66@gmail.comAfmælisdagur: 25 JúlíHeimilisfang: ÁsgarðiStaðsetning: 250 GarðiHeimasími: 422-7363Önnur vefsíða: http://www.123.is/kaninur/Um: Ég er með hestabakteríuna ógerlegu einsog svo margir aðrir.Náði mér í bónda og fór að búa með honum Hebba mínum í Ásgarði 1998.Muna að kvitta í gestabókina!Njóttu.Bankanúmer: 1192-05-400339Topplistinn Topplistinn Tenglar
|