|
Heimasíða Ásgarðs Ásgarður er að stíga sín fyrstu spor í hrossarækt og munum við leggja áheyrslu á ræktun geðgóðra hrossa í fallegum litum. |
|
Blogg30.10.2008Ransý the Róbót:)Ransý Róbot ryksuga mætti í Ásgarðinn í dag enda veitir ekki af þegar að Ransý manneskja hangir allan liðlangann daginn í tölvunni! Nú get ég hangið alla liðlanga nóttina í tölvunni líka á meðan Ransý Róbot sér um gólfin Buslu og Súsý leist nú ekkert alltof vel á þetta apprat svífandi um öll gólf,klifrandi yfir þröskulda og rekandi sig í hundakörfuna þeirra! Nei"án gríns þá hefur mig langað lengi í svona Róbót ryksugu og sérstaklega þá útaf öllum hundahárunum. Auk þess ef að óhreinindi sitja djúpt í teppum eða mottum þá bankar hún þau upp með sérstökum bankara og fer extra vel yfir það svæði! Þetta apparat er hrein snilld! Ég sé ekki eftir þessum aurum í hana Ransý Róbót og nú get ég bara stillt hana á tíma td 10:00 á morgana og hún byrjar daginn á því að svífa yfir gólfin og þegar að hennar störfum er lokið þá fer hún sjálf í hleðslustöðin og setur sig í samband! Hér er allt um þetta frábæra tæki fyrir þá sem eru þreytt á td hunda og kattahárum eða bara með bilað bak eða bæði einsog ég: Vinkona mín hún Begga kom hér í dag.Hún ætlar að selja klárinn sinn hann Flugar en þetta er frábær hestur í bara allt! Ég mæli sterklega með þessum hesti fyrir alla sem eitthvað hafa komið nálægt hestum. 25.10.2008Restin af hrossum ormahreinsuð
Ég kláraði að ormahreinsa þau hross sem enn áttu eftir að fá ormalyf og sleppti þeim svo inná vetrarbeitina til folaldshryssanna.
22.10.2008Fjárveiting í Ásgarðinn
20.10.2008Vinda á leið út til Sweden
Ég er uppiskroppa að mestu með hross en ég ætla að biðja ykkur samt í lengstu lög um að hella ekki yfir mig meilum með hrossum og myndum heldur gerast bara dugleg sjálf og auglýsa td á Málið er að það er best að hver og einn beri ábyrgð á sinni sölu og á sínu hrossi! Djö....................er kalt núna! Mig langar ekkert út að vinna en auðvitað verður maður að harka bara af sér og skella sér í gamla góða kuldagallann og setja undir sig hausinn og út! Það rokgengur að koma upp verkstæðinu,þakið var sett á í gær og á morgun þegar að lægir ætla kallarnir að príla upp aftur til að ganga endanlega frá því. Það verður mikill munur að geta haft aðaltraktorinn hér heima við í upphituðu húsi þegar að ég fer að gefa útiganginum í vetur. Við búumst við því að byrja snemma útigjöfina og er það tilhlökkunarefni að fara að sýsla við það. Það verða fá hross hjá okkur í vetur en við tökum ekki að okkur hross fyrir aðra nema bara folöld inní hesthús á gjöf. Tveir stóðhestar eru hjá okkur í vetur og meira verður það ekki. Farin út í gegningarnar. 18.10.2008Askur fékk heimsókn:)
Þrír menn sátu saman og voru að monta sig af því hvernig þeir höfðu látið nýju konurnar sínar fá skyldur og verkefni heima fyrir. Sá fyrsti hafði gifst konu frá Colarado og hann hafði sagt henni að hún ætti að þvo upp og þrífa húsið. Annar maðurinn hafði gifst konu frá Nebraska. Hann hafði skipað konu sinni að sjá um öll þrif, uppvask og eldamennsku. Þriðji maðurinn hafði gifst konu frá Íslandi. Hann sagði henni að hennar verk væru að halda húsinu hreinu, sjá um uppvaskið, slá garðinn, þvo þvott og elda heita máltíð í hverjum matmálstíma.
Flettingar í dag: 386 Gestir í dag: 101 Flettingar í gær: 876 Gestir í gær: 165 Samtals flettingar: 702189 Samtals gestir: 209635 Tölur uppfærðar: 20.3.2010 17:40:44 |
Vafraðu umclockhere Eldra efni
Um mig Nafn: Ingibjörg Rannveig Ingólfsdóttir (Ransý)Farsími: 869-8192Tölvupóstfang: ransy66@gmail.comAfmælisdagur: 25 JúlíHeimilisfang: ÁsgarðiStaðsetning: 250 GarðiHeimasími: 422-7363Önnur vefsíða: http://www.123.is/kaninur/Um: Ég er með hestabakteríuna ógerlegu einsog svo margir aðrir.Náði mér í bónda og fór að búa með honum Hebba mínum í Ásgarði 1998.Muna að kvitta í gestabókina!Njóttu.Bankanúmer: 1192-05-400339Topplistinn Topplistinn Tenglar
|