|
Heimasíða Ásgarðs Ásgarður er að stíga sín fyrstu spor í hrossarækt og munum við leggja áheyrslu á ræktun geðgóðra hrossa í fallegum litum. |
|
Blogg31.5.2007Skráma köstuð merfolaldi faðir Grallari frá Syðra-Kolugili![]() Skráma kastaði óvænt síðasta daginn í Maí en við bjuggumst ekki við folaldi fyrren um mitt sumarið.Þetta er áttunda folaldið í í Maí og er þetta algert met í Maímánuði hjá okkur.Magga á bæði merina og folaldið og líklega er þetta meri en liturinn er að vefjast svolítið fyrir okkur.Móðirin er rauðlitförótt og faðirinn er/var brúnlitföróttur en hann fórst af slysförum í vetur fréttum við.Folaldið er háfætt og myndarlegt og lýtur það út fyrir að vera móálótt á búkinn en kannski er það brúnt og litförótt.Einhver grár blær er á folaldinu og er spennandi að vita hvernig liturinn á því þróast. ![]() Talandi um fallega byggingu þá er hér mont mynd af Eðju-Dímonarsyni að sperra sig og teygja.Ohhhhhh........ég ætla sko að vona að hann verði litföróttur en það kemur í ljós eftir nokkrar vikur. Sabine Sebald vinkona mín var að gera ansi flott fyrir þá Dímon Glampason og Hrók Kormáksson.Kíkið á linkana hér fyrir neðan: http://www.gaedingur.com/hrokur.html og http://www.gaedingur.com/dimon-stallion.html ![]() Skjónu-Hróksdóttir er afskaplega forvitið folald og skemmtilegt.Kemur til að skoða mann og svo þýtur hún af stað með látum til mömmu sinnar! Ég er alveg á báðum áttum með hvort ég á að selja hana eða ekki.Langar afskaplega til að eiga hana en veitir kannski ef af peningnum.Ég setti mér þá reglu að ég mætti setja á 2 folöld fyrir okkur á ári en restin yrði seld og svo er folaldakjöt alveg sjúklega gott á grillið! Úffffffffffff...............nú hneikslaði ég einhvern ! Eitt í frystikistuna að hausti er flott fyrir okkur.Og ég tala nú ekki um hve hollt þetta kjöt er,ómengað af lyfjum og öðrum óæskilegum efnum.![]() Þessa fallegu mynd tók hún Magga af bakkanum hjá okkur.Garðskagavitarnir í baksýn og sjórinn sléttur á Suðurnesjunum .Já"stundum er logn á Suðurnesjum og veðrið er hreinlega búið að leika við okkur síðustu dagana.Svo loksins fór að rigna eftir alla blíðuna og sólina og var rigningin kærkomin fyrir gróðurinn sem farinn var að gulna. Æðarfuglinn er fainn að skoða hjá okkur landið og er rétt að byrja að verpa.Krían sem kom og fór kom aftur og núna er hún búin að hertaka Ásgarðinn eins og vanalega.Ég hef varið hana með kjafti og klóm fyrir ágangi fólks sem kemur hingað á vorin og veður yfir allar girðingar,brýtur staura og er með kjaft. Ég hef fengið allskonar óþverra framan í mig fyrir að vilja fá frið með mitt land og "mína" fugla og núna í vor þá var ég svolítið fegin að Krían skildi fara aftur. En þá sá ég mig í anda í friði með alt hér og ágangur fólks inná landið okka myndi minnka.En þá tók eki betra við.Mávurinn sat hér um eggin úr Aliöndunum okkar og urðum við að reka þær inní hús til að fá frið með eggin sem við höfum selt.Núna eru þær farnar að liggja á eggjum inni og fá frið þar til þess fyrir þessum fljúgjandi ruslatunnum sem vargurinn er.Hér hafa setið á hverjum staur Mávar og engann veginn fær maður frið með eitt eða neitt fyrir þeim.Þeir rífa og tæta ruslapokana fyrir utan hjá manni ef ég set þá ekki strax í tunnuna.Vonlaust er að gefa brauð útí hagann en þá flykkjast þeir að manni með þvílíkum gauragang að menn og skepnur verða hreinlega hræddir! Ég hætti semsagt við það að vera fegin að Krían fór og svo loksins þegar að hún kom aftur þá lagaðist ástandið því Mávurinn á vængjum sínum fjör að launa og Krían lætur hann sko hafa það óþvegið núna hehehehehehehe.................. Hún er miklu þrifalegri fugl og lætur ruslið í friði og hægt er að gefa út brauð án þess að verða fyrir árás frá henni við það. Heldur vil ég lifa við Kríugerið hér heldur en Mávager sem rífur allt og tætir.Ég get þó samið frið við kríuna með því að friða fyrir hana svæði og þá get ég hengt út þvott og farið út með ruslið án þess að fá hana í hausinn á mér. Krían og ég gerðum nefnilega samning okkar á milli fyrir nokkrum árum,hún fær að hafa stærsta túnið hjá okkur undir varpið og einn til tvo haga og þá fæ ég að hafa húsið mitt í friði og landið þar í kring. Ástæðan fyrir því að ég verð svo reið útí fólk sem er hér að vaða inní tún hjá mér og tína undan henni eggin er sú að þá færir Krían sig bara nær bænum mínum og ég sit eftir hér með sárt ennið öll útgogguð og reið. Fyrir utan það að fólk á ekkert með að vaða hér yfir girðingar og taka það sem því hentar! Ég gæti sagt ykkur margar ljóta sögur af því hvernig fólk hegðar sér við fuglana og náttúruna.Ég hef séð krakka koma og taka Æðaregg og setja í poka,síða var pokanum með eggjum hent utaní útíhúsin hjá okkur og skilin þar eftir mölbrotin.Til hvers??? Hebbi sá fullorðinn mann með Lóuegg sem hann sagðist hafa fundið og var maðurinn þvílíkt ánægður því hann hafði aldrei áður fundið svona STÓR KRÍUEGG!!!! Hópur af fólki kom hingað seint á sumrin og týndi stropuð Kríuegg gagngert til þess að steikja ungana með fiðri og öllu og hét þessi réttur þeirra einhverju sérstöku nafni í þeirra heimalandi. Svo urðum við vitni að ljótum leik um daginn. ![]() Við sáum bíl ekið á miklu hraða eftir veginum hjá okkur og svo virtist sem fugl hefði lent undir bílnum því fiður þyrlaðist um allt undan honum.Ökumaðurinn stoppaði og gekk aftur fyrir bílinn og bograði yfir einhverju og sneri svo bílnum við á veginum og keyrði til baka og þá sá ég að fugl hékk aftan í bílnum og hafði hann verið bundinn við bílinn.Síðan slitnaði þráðurinn og enn sneri bílstjórinn við og núna var keyrt yfir fuglinn þvers og kruss þangað til nánast ekkert var eftir af honum. Við sjáum alltof mikið af svona hegðun hér á veginum gangvart fuglalífinu og þegar að við reynum að verja þessi liltu grey sem eru að berjast við að koma upp ungum sem eru svo keyrðir hér niður í leik þá blöskrar okkur gersamlega. Seinnipart sumars hafa krakkarnir gert sér það að leik að keyra niður kríungana sem sitja á veginum og eiga sér einskis ills von. Þau keyra á ofsahraða í gegnum fuglahópana,snúa svo við og telja hræin og gefa sér stig fyrir hve mörgum þau náðu. Svona hegðun á sér stað hér á okkar vegi og Stafnesi og líka hef ég heyrt um þetta í Vogunum. Ég hef mest talið hátt í 200 hræ hér á veginum eftir svona hegðun og þykir okkur miður að horfa uppá þetta ár eftir ár. Sem betur fer þá eru þetta örfáir sem hegða sér svona. Og svo er fólk hissa á því hvernig við reynum að verja hér allt með kjafti og klóm! 30.5.2007Villimey köstuð jörpu merfolaldi undan Hrók![]() Villmey kastaði í morgun jörpu merfolaldi undan honum Hrók. Þetta líst mér vel á að fá merfolöld og er sú stutta bráðhugguleg og lappalöng eins og pabbinn.Það var ekki æsingurinn í þeim þegar að ég læddist að þeim með cameruna og tók myndir í gríð og erg. ![]() Hún var ekkert smá róleg og mátti ég liggja hjá henni og taka myndir og meira að segja taka í taglið á henni og kíkja undir! ![]() Þá var þeirri gömlu alveg nóg boðið og forðaði afkvæmi í burtu! ![]() Komdu hérna dóttir góð,enginn friður til að hvíla sig svona nýkomin í heiminn.Svo skrölti sú stutta á eftir mömmu gömlu á óstyrkum fótum greinilega glæný og rétt orðin þurr. ![]() Tittirnir útí veðurblíðunni í dag. Smá fréttir fyrir þá sem eru að bíða eftir að tittirnir þeirra verði geltir.Ég hringdi í dýralækninn okkar og spurði hann hvort honum þætti veðrið ekki upplagt til að gelda og þá svaraði hann því til að það væri í það minnsta blíðskaparveður þarsem hann væri. Hann sat í lest í Danmörkinni og naut útýnisins útum gluggann. Hann ætlar að hafa samband við mig á Föstudaginn og ákveða þá daginn en allt fer þetta eftir veðurspánni. Og fyrir þá sem létu Dna testa og örmerkja hér í vetur.Vinsamlegast greiðið inná reikninginn minn 1192-05-400339 Kt. 250766-4839 núna um þessi mánaðarmót.Stóri reikningurinn er kominn og ætla ég að borga hann ekki seinna en helst NÚNA .Fyrir þá sem létu bara taka Dna úr hrossinu sínu er upphæðin 3500- og fyrir þá sem létu örmerkja er upphæðin fyrir örmerkinguna 2500-. Nú sumir létu bæði taka Dna og örmerkja og þá er það 6000-. 28.5.2007Halastjarna kastaði rauðstjörnóttu merfolaldi undan Hrók![]() Ég fékk hryssu undan Halastjörnu! Nú er "amma" ánægð og vona ég að hún verði jafn glæsileg og Hel alsystir hennar var þegar að hún var tryppi. ![]() Svo er stjarna á manni og líka smá hökuskegg hehehehe..... Kannski þetta folald komist á sölusíðuna hjá Sabine vinkonu minni! Líklega kemst hún þangað vegna litarins en rautt selst ekki alveg jafn hratt og td vindóttu og skjóttu litirnir .En fallegar eru línurnar í henni og er ég himinánægð með útkomuna.Við hjónin erum ekki alveg sammála með hvenær tímabært er að fella elstu merarnar hjá okkur og er blessunin hún Halastjarna á síðasta snúning finnst mér.Hún ásamt Villimey þyrftu að fara að fá hvíldina sína því þær eru orðnar svo ragar í hóp á veturna og þarf að passa sérstaklega uppá þær í rúllu. Sé til og ákveð það í haust hvernig þær verða eftir sumarið og haustið.Þetta er það erfiðasta við ræktun,það er að kveðja gömlu merarnar eftir áralanga ræktun og ekki gaman að fella þær og þá sérstaklega þær sem hafa verið að gefa gott og eru þægilegar við mann í td ormahreinsun og öllu stússinu sem fylgir þeim. Ég vil frekar fella þær tímanlega en að láta þær snögg veslast upp ef eitthvað kemur fyrir.Það getur ýmislegt komið uppá með gömlurnar og betra að leyfa þeim að fara fyrr en seinna og muna þær þá í góðu ásigkomulagi en td veikar og vesælar á grafarbakkanum.Það er mannúðlegra eða svo finnst mér. ![]() Það var sko engin smá fart á honum Hrók þegar að hann áttaði sig á því að við vorum að koma með stóran brauðpoka niður á bakka! Það kann hann vel að meta og úðar því í sig sem mest hann má. Hann er með eindæmum rólegur í merunum og mega þær vera hreinlega útum allt á kroppinu og skiptir hann sér ekki af þeim nema þegar að þær vilja fá hans þjónustu.Klárinn fitnar og fitnar! Mér er nú ekki farið að lítast á blikuna því hann er að fara í þjálfun til Agnars Þórs í byrjun Júlí og í síðsumarssýningu og mér datt bara ekki til hugar að hann Hrókur færi að bæta svona á sig kílóum um há anna fengitímann! Er ekki best að bæta á hann merum svo hann hreyfi sig klárinn og verði mátulega slimm áður en hann fer! Hér með auglýsi ég 5 pláss laus undir klárinn framtil 1 Júlí.Hann er alveg bráðduglegur að fylja,góður við merar og folöld og það er ekkert mál að bæta á hann merum þó hann sé kominn saman við stóðið.Endilega hafði samband við mig í síma 869-8192 ef þið viljið koma meri undir hann og fá með eindæmum geðgott afkvæmi,auðtamið og þægilegt við að eiga .Því get ég lofað .![]() Hann Sigurður yngri frá Norðurkoti kom ásamt Palla pabba sínum að líta á hvolpana hennar Buslu og Kubbs.Þeim leist vel á öll Buslu-Kubbsbörnin og Siggi var alveg til í að vera áfram hjá þeim í stóru stíunni og leika við þá frameftir kvöldi. Þeir feðgar eiga fyrsta val á hvolpi enda sköffuðu folatollinn en þeir eru eigendur að honum Kubbi. Margar frægðarsögur fuku yfir kaffibolla af Kubb og Buslu á víxl og var gaman að fá þá feðga í heimsókn. Góðar fréttir eru af Buslunni og skyndilega er hún fari að stíga í fótinn sinn meira og meira og erum við vongóð um að nú fari þetta að koma hjá henni.Hún er mikið ánægð með mig og mína hjálp við hvolpana en ég er farin að gefa þeim kjöt og blása þeir út og eru hinir gráðugastir í matinn.Þetta léttir verulega á tíkinni og má hún ekki léttari vera.Smá saman er hún geldast upp en ég er vön að gefa hvolpunum mat 4 vikna en ekki 3 vikna eins og ég geri núna. Við lentum í smá hasar en þannig er að Veiðibjalla verpti í hagann hjá okkur annað árið í röð og í fyrra eyðilögðum við eggin hennar og gerðum þar með vitleysu. Í ár er ætlunin að skjóta hana á hreiðrinu en hún var svo vör um sig að Hebbi náði ekki að komast í færi við hana en náði í staðinn tveimur öðrum Veiðibjöllum í einu skoti! Busla tapaði sér hreinlega í látunum við hvellinn og rauk af stað og notaði fótinn sinn óspart við að hemja aðra Bjölluna sem særðist og lagði á flótta.Hérna stendur hún í alla fjóra fætur!!!Ég verð að segja ykkur smá sögu af kallinum mínum.Þessi saga er fyrir okkur konurnar að lesa........því einhvernveginn grunar mig að flestar konur sjái sinn mann í þesssari litlu sögu hehehehehe..... Þannig er að við Hebbi minn erum stundum að berjast við svefnvesen útaf giktinni sem er að hrjá okkur í tíma og ótíma. Eina nóttina um daginn þá bylti kallinn sér óspart og svaf svo illa.Undir morguninn var hann alltaf að vakna og fannst eitthvað vera að hrjá hann innvortis og var með verk í síðunni.Hann var svo eitthvað ómögulegur í síðunni og fannst jafnvel hann finna æxli eða eitthvað torkennilegt og spann hann heila sögu í huganum um sjúkrahúslegur og uppskurð og allann bara pakkann sem því fylgir. Svo kom að kall vaknaði almennilega eftir þessa erfiðu nótt og sest upp í rúminu alveg örmagna og strýkur síðuna hel auma að hann sér að lakið er ekki í réttum lit! Það var allt rautt og brúnt akkúrat þar sem hann hafði legið! Ætli æxlið hafi sprungið um morguninn??? Svo kom skýringin! "RANSÝ".............................varstu að borða M&M uppí rúmi í nótt!!!!! 26.5.2007Eðja köstuð vindótt stjörnóttóttur Dímonarsonur Seldur/sold![]() Eðja var mikið montin með nýja soninn sinn þegar að ég kom niður á bakka til að aðgæta lit og kyn.Mér sýnist hann vera með sama vindótta litinn og hún mamma sín og svo er bara spurningin hvort hann verður líka litföróttur eins og hún! Merin var ósköp róleg og mátti ég snerta soninn og gat ég lyft taglinu svo að það er alveg öruggt að hann er strákur en ekki stelpa. Hann væri nefnilega seldur ef hann væri merfolald og var búið að handsala hann í vetur. Dímon Glampasonur pabbinn fór um daginn í ungfolamat og stóðst það með prýði. Ég hvet þá sem eru spenntir fyrir ræktun og eru að hugsa sig um undir hvaða hest þeir eiga að leiða hryssuna sína að hafa samband við Sigurð Arnar í síma 848-5099 og panta undir hann Dímon frá Neðra-Skarði en það eru laus 2-3 pláss undir hann í sumar. Þetta er foli með bjarta framtíð og gaman verður að fylgjast með framvindu mála næsta vetur og vor og vita hvernir hann kemur út í tamningu.Stefnt er með hestinn alla leið í kynbótabrautina og á hann fullt erindi þangað.Hann er fimmgangshestur og toltið verður ekki vandamál hjá honum því hann rúllar það auðveldlega frjáls og brokkar auðvitað og svo hef ég séð hann skeiða líka. Ég er minnsta kosti vorðalega spennt fyrir þessum folöldum sem ég fæ undan honum og ligg á bæn að folaldið undan sokkudís og Dímon verði hryssa .Það eru komnir tveir strákar og núna viljum við fá hryssu/r en það eru tvær ókastaðar enn sem fengu við Dímoni í fyrra.Nú er bara spennan hvort Eðjusonur sé efni í framtíðarstóðhest eða? .Ætla að hugsa málið með hann en set hann samt inná sölusíðuna hjá Sabine fljótlega.Ef hann selst ekki þá hef ég hann með kúlunum og sé til hvernig hann þróast.![]() Svo er maður með stóra fallega stjörnu í þokkabót! Ég tók miklu fleiri myndir í dag í góða veðrinu og eina geggjaða af vindótta merfolaldinu! Verð að hætta þessu bulli gott fólk og fara að huga að skepnunum á bænum .Smá viðbót 27 maí. Það er sko aldeilis líf í tuskunum hér á bæ..............Dímonarsonur er seldur! 23.5.2007Vindótt merfolald fætt! Seld/sold!![]() Folöldin bókstaflega hrynja úr hryssunum þessa dagana og var þriðja merfolaldið í röð að fæðast í dag.Gullfallegt vindótt merfolald úr gestahryssu sem er hér í nokkrar vikur. Þarna sýnist mér vera á ferðinni spennandi hryssa og ættin skemmir ekki en hún er undan hryssu af gamla Uxahryggja kyninu og fola sem er undan Gauk frá Innri-Skeljabrekku og ef ég man rétt þá er hann faðir hans Glyms frá sama bæ. Ég fékk alveg firðring í magann en má ekki bæta við mig skamm skamm á mig! ![]() Díana Drotting að skoða hana Silfru litlu.Ég gaf mér það leyfi að skýra dömuna Silfru og er hún frá Víðihlíð þó hún sé fædd hér í Ásgarðinum. Er maður ekki flottur!!!! Seld/sold................ Flettingar í dag: 13 Gestir í dag: 7 Flettingar í gær: 876 Gestir í gær: 165 Samtals flettingar: 701816 Samtals gestir: 209541 Tölur uppfærðar: 20.3.2010 01:10:44 |
Vafraðu umclockhere Eldra efni
Um mig Nafn: Ingibjörg Rannveig Ingólfsdóttir (Ransý)Farsími: 869-8192Tölvupóstfang: ransy66@gmail.comAfmælisdagur: 25 JúlíHeimilisfang: ÁsgarðiStaðsetning: 250 GarðiHeimasími: 422-7363Önnur vefsíða: http://www.123.is/kaninur/Um: Ég er með hestabakteríuna ógerlegu einsog svo margir aðrir.Náði mér í bónda og fór að búa með honum Hebba mínum í Ásgarði 1998.Muna að kvitta í gestabókina!Njóttu.Bankanúmer: 1192-05-400339Topplistinn Topplistinn Tenglar
|