|
Heimasíða Ásgarðs Ásgarður er að stíga sín fyrstu spor í hrossarækt og munum við leggja áheyrslu á ræktun geðgóðra hrossa í fallegum litum. |
||||||||||||||||||||||||||||||||
Blogg28.2.2007Reiðhrossin mín:)Hringur fór með okkur Hrók inná Mánagrund en það var námskeið í kvöld hjá Trausta Þór.Högni járnaði Hring að aftan en hann var búinn að missa undan sér afturfótaskeifu og á meðan við Hrókur voru að læra hitt og þetta hjá Trausta þá fór Eygló hring á Hring og um leið og hann var krafinn þá fann hún að hann kveinkaði sér.Þá er bara eitt um að ræða,hvíld og svo röntgenmyndir af drengnum fljótlega.Hrókur og ég stóðum okkur eins og hetjur á námskeiðinu,klárinn kann allar þessar kúnstir og má með sanni segja að hann er algjör öðlingur þessi klár.Þvílíkur lúxus að þurfa ekki að berjast við hann eins og ég þarf að gera við Biskup bróðir hans.Það er líka tími kominn til að ég fái einn rólegann sem er þægilega viljugur og gerir það sem beðið er um:)Fyrrverandi reiðhestar hafa verið upp og ofan. Funi minn fyrsti var náttúrulega bara brandari.Nenni ekki að eyða pikki í hann blessaðann hér:) Lærði samt ýmislegt af honum og þá aðalega hvað mig langar EKKI að rækta:) Næstur kom Losti og hann var bara taugaveikluð púðurtunna sem varð svo hauglatur loksins þegar að hann tamdist.Hann var skotinn á færi eftir að hafa lent manna á millum í hestakaupum. Svo kom hann Neisti sem var undan Stokkhólma-Rauð þægur hestur sem ég hafði þónokkra ánægju af en seldi og fór hann undir unglinga á sveitabæ sem tók að sér vandamála börn.Þar var hann í miklum metum í mörg ár. Síðan eignast ég Sprota undan Gáska frá Hofstöðum.Lítill,kvikur og óútreiknalegur hestur en með afbrigðum fótviss.Hann var með stag og lét ég skera það og þá fyrst varð hann vitlaus og fór að sýna hvað í honum bjó loksins þegar að ekkert hefti hreyfingar hans:)Stagið var svo slæmt að það sást vel hvernig hann hálfdró annann afturfótinn á eftir sér og risti hann rák í snjóinn.Eftir uppskurðinn bar ekki á þessu.Hann var of lítill fyrir mig og leiðinlega kvikur. Næst kemur Forkur frá Sandfelli,hreinræktaður Hornafjarðarhestur.Hörkuduglegur,góður í ferðalögin og mjög skynsamur hestur.Hann var alltaf eins og lamb þegar að við Sigrún vorum að vinna við tamningartrippin.Taumléttur,fínn og rólegur.En ef ég var td í samreið þá átti hann það til að læsa sér í beislinu og reyna að taka völdin og rjúka með mig.Hann var með tungubasl og með bólgur í baki sem ollu helti ef hann var járnaður "rétt".Annar hófurinn á afturfætinum varð að vera skakkur þá fann hann minna til í bakinu! Þorvaldur Dýralæknir fékk hann tvisvar lánaðann í ferðir Fjallabaksleið og var mikið hrifinn af klárnum og klárinn af Þorvaldi.Hann treysti honum yfir allar þær ár sem fara þurfti yfir og svokallað Nautavað sem var þá búið að taka 18 mannslíf.Ekki var hann svona ánægður þegar að frúin hans Þorvaldar skellti sér á bak honum í seinni ferðinni en þá rauk Forkur svo svakalega að aumingja Anna Lauga hélt að þetta væri sitt síðasta!Hann blindrauk með hana meðfram Láxárgljúfrum og var víst þverhnýpt niður á aðra hönd!!! Þessi roka endaði svo inní miðjum rekstri og sem betur fer varð ekki slys. Ég átti Fork í tíu ár og oft lá við að hann ryki með mig. Í síðasta Vigdísavallartúrnum okkar missti hann stjórn á sér blessaður og rauk af stað og framundan var bratt fjall og ég hafði svosem engar stóra áhyggjur og hélt mér bara fast.Hann lét sig vaða á stökki yfir Festarfjallið og áfram hélt hann og alla leið að rimlahliðinu fyrir ofan Hraun.Þar var sem betur fer bíll stopp í rimlahliðinu og ég náði að stoppa hann og stökk af baki öskuill og sagði við hann að nú væri SS framundan og ekkert annað! Þremur vikum síðar fóru pístólurnar af honum blessuðum til Ítalíu. Við mældum þessa leið eitt sinn sem klárinn rauk og eru þetta cirka 5 kílómetra roka og það sem mér fannst leiðinlegast við þetta var að fólk var að æpa á mig að vera ekki að hleypa svona innanum börnin! Ég sem var að reyna að sveigja framhjá fólki og kallaði til þeirra að fara frá!!!! Næst eignast ég Djákna frá Bakka í Vatnsdal.Hann var úr ræktuninni hans Lárusar í Grímstungu og svar sig vel í þá ætt.Harðduglegur á við 3 hesta í ferðalögum en leiðinlegt skap var í þessum hesti.Var með dynti og stæla við mann.Ég náði þó að gera hann sæmilega reiðfærann og fór á honum Hamradalinn og inní Krókamýri og þvílíkt brokk í einum hesti! Ég var með kúkabragð í munninum í marga daga á eftir!!!Vinkona mín hún Gudda verslaði hann af mér eftir að ég ákvað að ég og Djákni ættum ekki skap saman. Næst er það Mömmustrákurinn hann Biskup minn:)Ég gæti endalaust pikkað um hann en hann er sá draumahestur sem allir þyrftu að fá að kynnast.Hann var sjálftaminn,þurti ekki að gansetja hann neitt sérstaklega því hann lyfti bara hausnum í 7 unda reiðtúrnum og fór að tölta svona fallega.Frábærlega ásetugóður og þolinn hestur.Brokkið er geggjað,yfirferð mikil og draumur að sitja því maður haggast ekki í hnakknum.Óskapleg yfirferð á töltinu líka.Notaður sem reiðhestur,tamningarhestur,smalahestur og keppnishestur í léttari keppnir.Hann hefur alltaf komið heim með pening um hálsinn á kellingunni sinni:)Hann er frábær karakter og skilur meir en önnur hross. EN ég eyðilagði þennan góða hest.Hann er í dag orðinn kvíðariðinn og mun ég aldrei framar lána hann eða láta hann fara að heiman.Hann verður notaður bara við tamningar og kannski í létta reiðtúra inn á milli. Eitt ráð frá mér til ykkar.Ef þið eignist svona góðan hest þá endilega hafið hann fyrir ykkur sjálf. Skjóna er fyrsta reiðhryssan mín og var auðtamin og strax fyrir alla hvort sem það voru óvanir eða börn.Svakaleg fótlyfta á tölti og brokki og gaman að sjá fæturna á henni lyftast.Rosaleg yfirferð á töltinu og brokkinu.Frábær í allar tamningar og ekkert mál að stilla hana á annaðhvort hægt tölt,milliferð eða yfirferð.Sama átti við með brokkið.Svo gat maður bara vesenast í teymingarhestinum sem trippin voru bundin utaná.Skjóna vann áfram á þeim hraða sem hún var beðin um þangað til það kom önnur skipun frá knapanum.Hún var hrein snilld og stálörugg en því miður þá skaddaðist hún á afturfæti í ferðalagi.Núna er hún komin í folaldseignir og verður ekki sýnd eins og til stóð. Reyndar átti ég aðra hryssu á sama tíma og Skjónu en það var hún Glódís undan Halastjörnu (móður Hrings) gömlu.Glódís var ágæt og tamdist vel og hratt eins og Skjóna.Var fyrir alla en sá sem ekki var alveg vanur gat átt í basli með að láta hana tölta hreint.Brokkið var mjög gott og líklegast átti hún til rífandi skeið en það var ekki hreyft við því.Hún var undan næst hæðst dæmda Náttfarasyninum sem er löngu farinn út.Ég sé alveg svakalega eftir því að hafa selt hana en hún gjöreyðilagðist í höndunum á nýjum eigendum og fór að rjúka og vera með læti. Þetta er orðinn heillangur pistill um hrossin mín en fleiri hross hef ég átt en þetta eru helstu reiðhestarnir mínir. Engar myndir í kvöld gott fólk .27.2.2007Busla bomm!!!!![]() Silfri að koma og fá klapp hjá kellingunni sinni:) Allt gengur sinn vanagang hér á bæ.Vor í lofti og Busla búin að kubba sig saman við hann Kubb frá Norðukoti:)Semsagt orðin hvolpafull.Hænurnar fá að fara að liggja á eggjum þrátt fyrir kulda en við blásum nú bara á kuldabola og bolum honum í burtu.Fashanarnir eru líka byrjaðir að verpa og þá hlýtur að vera að styttast í vorið,segjum það. Magga og Inga voru hér allann Laugardaginn að hjálpa til við búverkin en það var útigjafadagur og þeir eru alltaf strembnari en aðrir dagar. ![]() Toppa Náttfaradóttir með vinkonum sínum.Lítur vel út sú gamla þrátt fyrir að verða 23 í vor.Smá söðulbökuð.......hva.....:) ![]() Völusteinn að prakkarast:) Það gekk heldur betur mikið á í dag þegar að Völusteinn og vinir fóru út.Ég setti stóra bróður hann Glófaxa út með þeim þremur því það er alltaf gott að hafa eldra hross sem stuðning fyrir þau yngir sérstaklega þegar að þau þekkja ekki alveg nógu vel svæðið sem þeim er hleypt inná.Völustein fannst hann ekki þurfa á svona "barnapíu" að halda og fór mikinn um allt hólfið með tvö folöld á eftir sér á harðaspretti.Sá var nú aldeilis öruggur með sig! Enda endaði það með því að hann hljóp á girðinguna og hvolfdist yfir hana og Skjóna litla hvolfdist á eftir honum og henni brá svo að hún tættist yfir girðinguna til baka þrátt fyrir strauminn á henni! Völusteinn hinsvegar spratt á fætur og tættist um allt alveg rígmontinn með þetta allt saman og nýfengið frelsi.Mér varð svo um þetta að ég náði engum almennilegum myndum enda umhugað að koma folaldinu innfyrir aftur og vonaði að ekkert amaði að því. Sem betur fer þá var það innan girðingar en ansi stórrar girðingar! Völusteinn þrammaði þarna um alveg blísperrtur með taglið uppí loftið og ég stillti cameruna á videó en titraði svo mikið að ég gat ekki tekið neitt upp! ![]() Fylgið mér.......hlaupum eins og fætur toga! Sem betur fer þá gat ég náð hinum tveimur folöldunum innfyrir réttina og lokað.Svo var að reyna að sansa hann Völustein til en nei"ekki að ræða það að láta ná sér,nú var gaman hjá kauða hehehehehe......ef ég reyndi að nálgast hann þá hljóp hann bara fjær mér.Ég fór og sótti bróður hans hann Glófaxa sem hefur áður verið mér mjög hjálplegur með folöldin og teymdi ég hann að girðingunni og lagði hana niður með tveimur þungum steinum.Ekki kom hann Völusteinn.Það var ekki fyrren að helv.......Mótorcrossari kom æðandi eftir veginum með þvílíkum óhljóðum að honum brá og þá kom hann grengjandi til okkar dauðhræddur:) Og yfir fór hann og beint inní hesthús á eftir stóra bróður:). Hann var alheill og ekki sá á honum né hinum folöldunum sem betur fer. Síðan gat ég hleypt út rest af folöldum sem biðu spennt inni að fá að spretta aðeins úr spori á meðan ég tók til í stíunum og bar hálm og sag undir þau. Allt er gott sem endar vel og dagurinn endaði á því að Busla fékk sér gott í kroppinn hjá honum Kubb sínum og heim vorum við komin um ellefuleytið.Þannig að eftir cirka 63 daga verða hér fæddir hvolpar.Vona að það verði sem mest af tíkum,mér finnst þær skemmtilegri. 23.2.2007Hrókasamræður og Völusteinn kominnLoksins fann ég tíma til að tylla mér niður og blogga smá gott fólk. Ég dreif mig á námskeiðið hjá Trausta Þór og stóð Hrókur sig vel með kellinguna sína giktveiku,hvað annað.Þá er hann búinn að fulvissa mig endanlega að hann sé langflottastur í ræktunina hjá mér.Traustur og þægur hestur fyrir alla.Töltið er ágætt en samt þarf að laga hann aðeins til með höfuðburð og fá hann betur á rassgatið eins og sagt er. Meðan við biðum fyrir utan Reiðhöllina með þeim hestum og kvinnum sem voru með okkur á námskeiðinu skeði svolítið krúttlegt að mér fannst.Þarna var skjóttur hestur sem stúlka hélt í sem ég þekki ekki neitt og sá skjótti var svo vinalegur við mig að ég var alveg hissa á því!Hann margtróð hausnum í fangið á mér og vildi bara vera þar og láta mig kjassa sig.Þetta var að verða hálfvandræðalegt þegar að eigandinn að hestinum kom en hún skrapp frá og önnur hélt í klárinn en þá kom í ljós hversvegna hesturinn lét svona við mig.Þetta var hann Guddu-Skjóni sem heitir reyndar Máni og var hann hjá mér í sumar og haust og þekkti klárinn mig svona vel en ég gat ekki áttað mig á því hversvegna þessi hestur lét svona við mig.Eitthvað hefur honum líkað vistin hjá mér því eftir reiðkennsluna þá teymdi ég Hrók út og Hrefna teymdi Mána í aðra átt og Máni ætlaði með okkur Hrók hehehehehe.Þannig að við Hrókur lentum í Hrókasamræðum við Mána áður en námskeiðið hófst.Hrikalega krúttlegt eða hvað! Allt gott að frétta af honum Pjakk og Glennu.Merin er farin að mjólka miklu meira og allt lítur vel út.Hún hefur aukið átið alveg svakalega og er hún flutt útí stærra hesthúsið því ég hafði ekki lengur undan að moka undan henni flórinn:) Pjakkurinn að viðra sig í dag.Hann var ekki að skilja hvar öll hin folöldin voru og enginn til að leika við? Viltu koma út að leika við mig??? Völusteinn að þenja sig útí stóra leikhólfi.Sá hljóp þegar að hann var búinn að skanna allt svæðið! Montprik......verst að cameran brást mér á ögurstundu en það var kalt og batterýið að stríða mér.Sá ljósi gat sko spriklað en ég missti af mesta spriklinu þegar að ég fór inn til að ná í fullhlaðið batterý!Svona er nú lífið. Í gær kom hann Völusteinn Álfasteinsson í Ásgarðinn og þá eiga öll hross að vera komin sem ég var búin að lofa að taka að mér.Kannski einn stóðtittur eftir:) Völusteinn var alveg hissa á öllum þessum skara af folöldum,sum voru vond við hann og á endanum var ég búin að snúast í marga hringi hvar hægt væri að hafa drenginn og á endanum var hann settur hjá jörpu hesfolaldi og henni Skjónu sem er nýlega komin frá Ægissíðunni.Þar loksins gat hann sýnt hvað í honum og bjó og belgdi hann sig allan út og þóttist vera voðalega merkilegur enda alveg hreint meiraháttar merkilegt folald ekki satt:) Ég verð bara að drífa mig niður á fjörubakkann á morgun og taka myndir af nýja fína hlaðna grjótvarnargarðinum sem kominn er hér fyrir neðann!Alveg snilld hvernig maðurinn getur raðað steinunum svona vel með gröfunni. Ekki meira í bili gott fólk,komin helgi og væntir maður þess að gestir kíki hingað í kaffi um helgina.Nú ef ég er úti að sprikla eitthvað þá farið þið bara inn og lagið kaffi handan MÉR!!!! Ein góð með sig hehehehe.......í sveitinni er alltaf nóg að gera og verðum við að nýta tímann vel ef veður er gott og þá tökum við bara gestina með okkur í útiverkin ef þau eru ekki fullkláruð.Þannig að þið sem eruð ekki alveg undir það búin að fara að slíta ykkur hér út í vinnu komið þegar að það er rigning. 20.2.2007DNA sýnataka!
Falleg mynd sem Ragnheiður Elfa tók hér eitt sumarið:) Jæaja gott fólk. Við erum búin að vera svo iðin og dugleg síðustu daga að það hálfa væri nóg.Hesthúsið að vera miklu fínna en til stóð útfrá en við skelltum okkur í málningargalla líka og máluðum veggi þannig að folöldin og stóðhestarnir héldu að þetta væri allt annað hesthús en þau voru vön að labba inní. Glenna er meira að segja mætt þangað með hann Pjakk sinn en það var alveg orðið tímabært fyrir þauu að komast innanum fleiri hross áður en Pjakkur væri orðinn fullviss um að hann væri maður en ekki folald:) Núna í byrjun Mars kemur Halla Eygló frá Búnaðarsambandi Suðurlands til að taka DNA sýni úr ræktunarmerunum hér á bæ og flestum folöldunum.Þeir sem eiga hér folöld eru beðin um að láta mig vita hvort þeir vilji taka þátt í þessari sýnatöku en þetta er nauðsynlegt að gera við að minnsta kosti merfolöld og merar sem verða notuð í framtíðinni sem ræktunargripir.Nú þeir sem eiga hér stóðhesta eða ungfola (punga:)þurfa ekki frekar en þeir vilja að láta taka strokusýni því að þegar að folarnir þeirra verða td byggingardæmdir eða sýndir þá þurfa þeir hvort sem er að fara í blóðprufu sem send verður út til Svíþjóðar til að staðfesta rétt faðerni.Hér eru allar upplýsingar um skýrsluhald í hrossaræk ef þið viljið lesa ykkur betur um það: Skýrsluhald í hrossarækt Bændasamtök Íslands halda utan um miðlægan gagnagrunn á netinu um íslenska hestinn. Þessi gagnagrunnur hefur fengið nafnið WorldFengur enda aðgengilegur öllu áhugafólki um íslenska hestinn hvar sem er í heiminum. Gagnagrunnurinn hefur að geyma upplýsingar um alla kynbótadóma, ætterni, kynbótamat, uppruna, ræktendur, eigendur, afdrif og einstaklingsmerkingar. Inn í þennan gagnagrunn senda hrossaræktendur upplýsingar um sín ræktunarhross gegnum skýrsluhald í hrossarækt. Í dag eru öll aðildarlönd FEIF aðilar að WorldFengnum, að Frakklandi, Færeyjum og Kanada undanskildum. Skýrsluhald í hrossarækt er lykilatriði í ræktun íslenska hestsins en með því er haldið utan um mikilvægustu upplýsingarnar, ætternið. Án þeirra væri ekki um neitt ræktunarstarf að ræða. Bændasamtök Íslands hafa yfirumsjón með skýrsluhaldinu í samvinnu við búnaðarsamböndin. Hvað þarf til að gerast þátttakandi? Hvað segir fæðingarnúmerið okkur? Hvað má lesa úr eftirfarandi númeri IS1999187106?
Hvað má lesa úr eftirfarandi númeri IS2001285810?
Gæðaskýrsluhald
Hafi þessar þrjár skýrslur skilað sér á réttum tíma fær folaldið gæðavottun á ætternisupplýsingar og er það tekið fram á upprunavottorði ef til útflutnings kemur. Haustið 2002 fengu öll A-vottuð folöld útprentað eignarhaldsskírteini en það skírteini á að fylgja hrossinu sé það selt. Er hægt að fá gæðavottun eftir öðrum leiðum?
Við Hrókur erum að fara á námskeið á morgun og var ekki seinna vænna að príla á bak drengnum í kvöld en hann hefur ekki verið notaður sem reiðhestur í bráðum 2 ár.Auðvitað fann ég ekki eitt eða neitt og fyrir rest lá mér svo á að ná að komast á bak fyrir myrkur að ég var að fara að þræða band í mélin sem taum en sem betur fer var ég ekki búin að því þegar að tveir Jónar duttu inní hesthús skælbrosandi með hest sem ég var að fá til mín.Auðvitað ákvað ég að fá annann Jóninn í hnakkinn en nei"........ekkert svoleiðis stóð til boða ég skildi fyrst fara á bak Hrók til að sýna þeim að hann myndi nú eftir öllu saman Ég er enn að jafna mig á því sem ég sá um daginn og því sem ég sá í dag! Daginn eftir að það kom frétt í RUV um Hrafnager í RVK þá komu þessis svörtu hrægammar fljúgandi hér yfir í flokkum og settust á kindur vinafólks okkar og byrjuðu að kroppa ullina af bakinu á þeim! Ég hringdi strax í þa og þegar að féð var komið á hús þá voru 3 svona kropaðar en ekki tókst þeim þó að blóðga þær. Í dag var ég að keyra út rúllum í merarnar og þá komu þessir andsk...ar og gerðu sér lítið fyrir og settust á bakið á merunum,fikruðu sig svo alveg aftast á þær og reyndu hvað þeir gátu að kroppa í endagörnina á skepunum!!!!! Einn hékk í taglinu á Snót gömlu sem var nú ekkert að hreyfa sig mikið enda öllu vön úr Reiðskólanum en hann rann alltaf niður taglið á henni en upp flaug hann ítrekað aftur og reyndi allt hvað hann gat til að gogga í hana undir taglinu!Ógeð!!!! Svo eru þessi kvikindi á Válista!!!!! En endilega að senda mér póst þeir sem vilja fá DNA test á hrossið sitt.Eina sem þarf að vera er að hrossið sé skráð og örmerkt.Örmerkingarmanneskja verður sama dag á svæðinu.Hér er netfangið okkar herbertp@simnet.is Þeir sem vilja fá Höllu Eygló í sín stóð eða hesthús endilega láta líka vita og ég kem þeim upplýsingum til hennar. 17.2.2007Busla að lóða
Þá er ballið að byrja,vorið á næsta leyti og Buslan farin að lóða.Hún hefur það svakalega gott og er öll hin brattasta.Eftir helgina fer hún í læknisskoðun og röngten og þá verður það ákveðið hvort henni er ekki óhætt að kynnast honum Kubb frá Norðurkoti sem er mjög gæflyndur og góður hundur þrátt fyrir að breytast í hið svakalegasta veiðidýr þegar að hann er á minkaveiðum.Hann er með mjög svipaða kosti og hún Busla en bæði eru afar þrjósk og finna minkinn á miklu dýpi og þá er best að hlýða og fara að moka.Bæði eru mjög geðgóð og þægileg í umgengni.Þannig að það verður mjög líklega got í vor.Þeir sem vilja fá hvolp er bent á að panta sem fyrst.Hvolparnir koma til með að kosta einhverja peninga einsog vanalega.Reyndar eru tveir líklega strax pantaðir en dýralæknirinn hennar Buslu sem reddaði henni alveg fær tíkarhvolp og svo verður náttúrulega eigandi hans Kubbs að fá folatoll fyrir lánið á Kubb.Hann á fyrsta val og vonandi að það komi fleiri en ein tík því ég vil endilega að dýralæknirinn hennar Buslu fái tík undan henni Kubbur kom í heimsókn í dag með eiganda sínum svona rétt til að Busla fengi að sjá herrann áður en að alvörunni kæmi en hún getur verið erfið með að parast við hvaða hund sem er.Buslu fannst Kubbur ekkert voðalega hættulegur hundur og verður spennandi að vita hvort þetta smellur ekki allt saman þegar að hún er alveg tilbúin.
Tobba Anna alltaf á öðru hundraðinu!!!!Kubbur alveg steinhissa á látunum í henni:) Kubbur vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið þegar að hann sá allar tíkurnar fjórar á bænum! Sú sem mest hafði gaman að leika við hann var hún Móna sem breytti um nafn nýverið.Hún hlýddi ekki nafninu sínu þannig að við urðum að breyta aðeins hvolpakallinu sem hún hlýðir svo vel.Við höfum alltaf kallað í hvolpana á sama hátt en við köllum "poppana"og þá koma allir popparnir (poppy) hlaupandi.Þannig að við endurskýrðum hana upp og núna heitir hún Tobba Anna.Alveg snilld því að hún kom frá Tobba og Önnu:)
Skvetta Busludóttir tók ekki vel á móti Kubb greyinu sem tókst á loft þegar að hún rauk í hann!Flott moment hehehehehehehe........Kubbur lifði það nú af:) Annars er allt við það sama hér.Enn verið að moka út skít en á morgun klárast hesthúsið ef það verður ekki gestagangur mikill.Nú ef það koma gestir þá er bara að virkja þá einsog ein góð sagði og láta þá hafa skítagaffla í hönd Núna sit ég og bíð eftir að frétta hvernig Suðurnesjadömunum gekk á svellkaldar konur en það fóru minnsta kosti 4 af Suðurnesjunum á svellið.Tinna Rut,Sunna Sigga, Ólöf Rún og Elva Björk.Ef einhver hefur fréttir þá endilega láta vita hérna fyrir neðan!!!! Flettingar í dag: 150 Gestir í dag: 30 Flettingar í gær: 680 Gestir í gær: 154 Samtals flettingar: 702633 Samtals gestir: 209718 Tölur uppfærðar: 21.3.2010 03:56:41 |
Vafraðu umclockhere Eldra efni
Um mig Nafn: Ingibjörg Rannveig Ingólfsdóttir (Ransý)Farsími: 869-8192Tölvupóstfang: ransy66@gmail.comAfmælisdagur: 25 JúlíHeimilisfang: ÁsgarðiStaðsetning: 250 GarðiHeimasími: 422-7363Önnur vefsíða: http://www.123.is/kaninur/Um: Ég er með hestabakteríuna ógerlegu einsog svo margir aðrir.Náði mér í bónda og fór að búa með honum Hebba mínum í Ásgarði 1998.Muna að kvitta í gestabókina!Njóttu.Bankanúmer: 1192-05-400339Topplistinn Topplistinn Tenglar
|
|||||||||||||||||||||||||||||||