|
Heimasíða Ásgarðs Ásgarður er að stíga sín fyrstu spor í hrossarækt og munum við leggja áheyrslu á ræktun geðgóðra hrossa í fallegum litum. |
|
Blogg30.1.2007BloggletiMeiri letin í manni þessa dagana.Langar varla að blogga því það er búið að vera svo leiðinlegt myndavélaveður og þá er ekkert gaman að blogga.Reyndar fáið þið kanski klígju við myndinni hérna fyrir neðan nema að þið séuð svo miklir dýravinir að ykkur finnist hún sæt þessi skepna einsog einni góðri vinkonu minni þótti þegar að ég sendi henni póst um daginn með þessari hræðilegu skepnu í!
Og það er allt henni Buslu minni að þakka að ég veiddi þessa skepnu í gildruna því Buslan varð alveg óð einn daginn og lét einsog það væri stór mús undir brettum hérna fyrir utan húsið en ég hafði reyndar séð óvanalega stór "músaspor" hér fyrir utan um daginn og það staðfesti Busla mín með miklum æsing og kallaði hún ekki Úlfur Úlfur heldur Rotta Rotta! Þetta er fjórða rottan sem við verðum vör við hérna í Ásgarðinum í 10 ár.Við fengum þá skýringu á því með fyrri Rotturnar hjá Heilbrigðiseftirlitinu að þær hefðu að öllum líkindum dottið af ruslabílnum sem kemur frá Sandgerði.Hér ættu ekki að vera Rottur og leið okkur mun betur með þær upplýsingar.Núna eru þær að flýja stórvirkar vinnuvélar sem eru að gera grjótvarnargarða hér og auðvitað koma þær til okkar og eru alveg vissar um að við viljum hafa þær ojjjjjjjjjjj.........
Kallinn minn fékk lánaða Gröfu um daginn til að ýta við síðustu sköflunum svo hægt væri að sinna öllum bússtörfunum.Það er frábært að geta fengið hana lánaða þegar að mikið liggur við.Það var svo gaman hjá honum að hann gat engan skafl séð í friði hvort sem hann var stór eða lítill Nú er hann Hringur minn að koma heim líklega á morgun.Hann þurfti endilega að snúa sig svona illa á framfæti að hann er að fara í frí og dekur.Ég er búin að taka hann af sölulistanum um sinn og verður hann bara hér heima við að dingla sér í rúllu.svo sé ég til með famhaldið hvernig hann verður.Ein góð sem er svo agalega hrifin af honum spurði mig hvort hann væri ekki þá bara kominn á útsölu en ég sagðist nú fyrst verða að sjá hversu haltur hann væri hehehehehehe.Nei"svona má maður ekki segja um litla dekurdrenginn sinn Það kom hingað eldhress dama úr Skagafirðinum að versla sér Castor Rex kanínur og verslaði hún allt sem ég átti til sölu og núna er ég alveg ren og á engin söludýr eftir.Er þá ekki ráð að fara að kveikja líf í kanínunum og fara að para þær! Nú og svo vildi svo skemmtilega til að ég fékk gefins þennan svakalega fallega Loop högna og þarsem ég vissi að hann kom frá stelpunum í Framtíðaræktun þá hleypti ég honum inná búið hjá mér
Glæsir við uppáhalds iðju sína Við fórum í bæinn í dag að sækja meira sag og reyndar sótti Hebbi sag í Reykjavíkina líka í gær.Það fer alveg óskaplega mikið af undirburði undir folöldin útí húsi og stóðhestana.Þetta er fínt í bland við hálminn en sem betur fer þá á ég hálm fyrir veturinn en ég lúri á honum einsog ég get. Hvernig er þetta með fólk,ætlar enginn að kaupa síðasta folaldið í Ásgarðinum?Reyndar hef ég ekki gert mikið af því að ota henni fram en Iðunn er að blómstra út og verður ábyggilega töff reiðhryssa í framtíðinni.Best að skella inn mynd af henni sem að hún Magga tók um daginn,ferlega góð mynd hjá þér Magga!
26.1.2007Heitt á puttunum!!!!!Jæja gott fólk. Ég er farin að skammast mín að láta ykkur bíða svona lengi.Farin á fá skammir frá Kanarí hehehehehehe........Já"Boggi og Eygló þetta gengur bara ekki að þið séuð að viðra ykkur í sól og hita og fáið ekkert að vita hvað er að ske hérna uppá skerinu!
Lagsi frá Bár að hrista sig. Einsog allir vita þá höfum við verið að drukkna úr snjó.það hefur verið strembið að gefa útiganginum og höfum við þurft að kalla í Gröfumann tvívegis svo hægt væri að koma heyi í skepurnar.Núna rignir sköflunum burt og allt í drullusvaði. Það var stuð síðastliðinn Laugardag en þá var ég ein á bænum (kallinn að skemmta sér fyrir austan:) eða kannski ekki ein því að Magga kom og Ragga með börnin sín og eina dömu til og nú átti sko að taka undan 3 folöld.Allt gekk þetta svakalega vel hjá okkur stelpunum enda allt gert í rólegheitum og engir kallar til að fara að hlaupa um allt og æsa sig hehehehehe......Mann klægjar í puttana að raka af þeim feldinn en ég ætla ekki að raka eitt einasta folald strax.Það verður kannski gert við sýningarfolöldin eftir fáeinar vikur en þá verða þau tekin undan mæðrunum.
Pjakkur og Dímon að leika sér í snjónum. Allt gengur sinn vanagang hér á bæ og alltaf nóg að gera.Stóðhestarnir útí húsi eru hinir þægilegustu við mig og fara allir út saman og meira segja með folöldunum.Það er bara einn ókominn stóðhestur sem á hér pantað pláss í vetur og einn sem fer að fara.Ég er alveg búin að setja stopp á fleiri hross hingað vegna þess að það er einfaldlega ekki meira pláss og svo dauðlangar mig til að fara að vera einsog annað fólk í hestunum og ríða svolítið út.Einsog staðan er núna þá hef ég ekki tíma í það en ég veit að það fer að koma að því að fleiri hross fari héðan og þá verð ég ekki lengi að koma mér af stað aftur.Reyndar er ég búin að skrá mig á námskeið hjá Mána og er virkilega spennt að mæta með hinum stelpunum og læra einhverjar nýjar kúnstir
Folöldin sem ég er að óska eftir skiptum á skjóttir hryssu til ræktunar.Ekkert smá stórir og stæðilegir báðir tveir!!!! Enda kalla ég þá alltaf folaana! Ég fór í kvöld á frábæran Aðalfund hjá Mána.Mikið var gaman að sjá alla gömlu félagana og allt nýja fólkið líka.Grindjánar mættu vel og var mikið í gangi og gaman að heyra hljóðið í mönnum.Nýr formaður var kosinn og óska ég Begga innilega til hamingju og með ósk um farsælt starf sem framundan er.Mér líst mjög vel á fyrirhugaða Reiðhöll sem verður stutt frá nýja fína hringvellinum okkar.Það vantar ekki nema helminginn af fjárhæðinni í hana og nú er bara að vita hvernig gengur að ná rest af peningunum svo hægt verði að byrja á henni.Hún á að vera nokkuð stór eða 30x70 metrar þannig að Mánamenn og hestar ættu að hafa nokkuð gott pláss til að sprikla í. 18.1.2007Ískalt á puttunum!
Sif Hróksdóttir,Pálmi Silfrason og Vænting (Skinfaxa) Glymsdóttir.Meiri loðboltarnir þessi folöld! Þau voru spræk folöldin sem ég kíkti á í dag.Ég fór í skoðunarferð í hólfin og allt er í lagi alstaðar nema þar sem grafan tók í sundur vatnslögn á veginum en þau hross verða aðeins að bíða eftir því að við náum að þýða slönguna upp og redda vatni til þeirra aftur.Þau éta snjó á meðan og hef ég svosem ekki voðalegar áhyggjur af þeim.Allir eru með rúllur og enginn svangur og þá er ég róleg.
Busla uppá skaflinum á veginum sem var mokaður tveimur dögum áður! Það var sem ég vissi í gær! Enginn smá skafl kominn á veginn hérna fyrir utan en hann nær uppá húddið á Fagra-Blakk og ekki möguleiki að reyna við hann.Hebbi minn náði að smokra bílnum framhjá gróðurhúsinu og svo var bara allt gefið í botn og þrusað í gegnum skaflana uppá veg en það tók hann þrjár tilraunir að brjótast þetta áfram og með ægilegum látum!
Óðinn Hróksson datt á rassinn í látunum Ekki tók betra við útí stóðhestahúsi en þar voru kannski aðeins færri hestöfl á ferðinni en mér tókst nú samt sem áður að koma hrossunum í gegnum smá rennu á sköflunum þar og útí stóra leikhólf! Ekki var viðlit að reyna að reka þau þar í gegn þannig að ég setti tuggu þar í snjórennuna og auðvitað létu tittirnir plata sig í rennuna og þá gat ég hottað þeim í gegn Það var mikið stuð þegar að ég var búin að setja út fullorðnu stóðhestana,tittina og folöldin og allir í einum graut í snjónum.Það er alveg merkilegt hvað stóðhestarnir sem eru hérna eru rólegir og þægilegir viðureignar.Þeir snerta ekki folöldin úti heldur í mesta lagi fara að kljást við þau.Það er komin svo mikil ró í húsið hjá mér og allir svo stilltir og góðir.Ég ætla að reyna að halda þeim góðum saman áfram þessu görpum með kúlurnar og passa vel uppá það að loka þá ekki af einsog hættulega glæpa"menn" .Ef maður kemur fram við stóðhestana svipað og geldingana þá verða þeir rólegri finnst mér.Það á ekki að þurfa að loka þá inní lítlum stíum þar sem þeir sjá ekki út svo mánuðum saman og svo loksins þegar að þeir komast út og innanum önnur hross þá hreinlega springa þeir og þá verða oft slys.En auðvitað fer maður ekki frá þeim innanum mörg önnur hross og alsekki á vorin þegar að þeir fara að lifna við.Þá er einsgott að herða eftirlitið meira og passa vel uppá þá.
Yrja Prinsdóttir og Snót Prinsdóttir að gæða sér á heyinu. Þau voru sæl og ánægð folöldin þegar að þau komu aftur inní hesthúsið og fengu tuggu og pínulítið brauð ofaná heyið sitt.Það er orðið ekkert mál að setja þau aftur inní stíurnar því þau eru farin að átta sig á hvar þeirra hlið er og þegar að þar er komið inn þá eru alltaf verðlaun í formi heys og brauðs fyrir innan.Ég stend bara og opna hliðið og þá renna þau inn sem þar eiga að vera. 17.1.2007Reiðskólahross farin og skaflahlaupÞað er langt síðan ég hef upplifað svona erfiðan vinnudag einsog síðastliðinn Sunnudag.Allt á kafi í snjó og þurfti hann Hebbi minn sem átti nú að vera stilltur inni og jafna sig eftir nefaðgerðina að handmoka traktorinn okkar útúr vélageymslunni.Það var engin leið að fá gröfu á meðan bjart var til að moka hérna svo fært yrði með rúllur í útiganginn þannig að hann djöflaði bara traktornum yfir skaflana með látum.Ég náði heim merunum áður því ég þurfti að taka úr hópnum 2 hross sem voru að fara sem létu ekki ná sér útivið.Þetta var heilmikill barningur því hryssurnar voru orðnar svangar og stoppuðu þær ansi vel í hesthúsinu og voru nær ófáanlegar útúr því aftur frá tuggunni og gekk mikið á hjá okkur hjónunum að koma þeim aftur útí haga þarsem beið þeirra ilmandi tugga.Maður var allstaðar fastur í sköflum og erfitt að athafna sig.Meira að segja réttin var á kafi og hrossin rétt náðu að brölta sig í gengum skaflana þar. Valgerður kom að fá lánaða hálmrúllu og stökk ég með látum með þeim hjónum og Hafliða vini mínum að ná henni út og uppá pickupinn þeirra og gekk það furðu vel hjá okkur.Auðvitað þurfti hann Hafliði að fá að skoða alla króka og kima og guð hvað hann var spenntur þegar að ég þurfti að taka eina hænuna af eggjum sem hún lá á sem fastast og vildi ekki með neinu móti gefa okkur.Hafliði er nefnilega svo mikill bóndi í sér að hann verður alltaf að fá að sjá og helst að fá eitthvað heim með sér eftir heimsókn í Ásgarðinn Síðan komu Biggi og Sigga að sækja Reiðskólahrossin og fylltu tvisvar fjagra hestakerruna þannig að það fóru 8 hross í höfuðborgina.Alltaf gaman að hitta Bigga og Siggu og kjaftaði hver tuskan utaná okkur
Frigg Ögradóttir fremst síðan kemur Tign og ein óskýrð albinóamerfolald. Öll hrossin útí Stóðhestahúsi fóru út að leika sér í snjónum þennan dag og náði ég þokkalegum myndum af þeim en ég er enn að berjast við cameruna mína hvað varðar hross á hlaupum í fjarlægð.Mig grunar að ég sé búin að stilla Iso ið alltof hátt og ætla að reyna að laga þetta á næstu dögum og gera tilraunir.Ég bar undir öll hrossin og tók til í öllum stíunum,vatnaði og gaf og setti inn stóðhestana en leyfði folöldunum að vera lengur úti en með tuggu hjá sér. Við rétt skutumst inn til að fá okkur að borða og svo út aftur þegar að við heyrðum ógurlega læti fyrir utan en þá var grafan loksins mætt og var að moka hlaðið og ná út litla bílnum fyrir okkur.Allt gekk það vel og við mikið fegin að ná bíltíkinni útúr skaflinum. Enn hentist ég útí skaflana til að ná í tvö hross sem átti eftir að sækja.Flankastaðabændur mættu akkúrat þegar að ég var að klára að binda þá við stallana.Við lánuðum þeim hestakerruna og hjálpuðum þeim að koma klárunum um borð en ég held að þeir hafi bara viljað vera hérna svolítið lengur,minnsta kosti náði annar þeirra að slíta beislið sitt og hlaupa aftur langleiðina niður að hesthúsi.En allt gekk þetta vel að lokum. Þá var bara að drífa síg útí stóðhestahús og klára þar að setja inn folöldin sem voru búin að fá alveg nóg af útiverunni.Það þurfti ekki að kalla mikið útí myrkrið,þau voru fljót að koma sér inn og í stíurnar sínar. Það voru þreytt hjónakorn sem skriðu inn að verða eitt um nóttina og veitti mér ekkert af því að fara í heitt bað eftir daginn.Og til þeirra sem hringdu þennan dag"Ég svaraði ekki vegna anna og brölts í sköflum"Sorrý en svo varð að vera. 15 Janúar. Ég vaknaði alltof "snemma"illa sofin og úrill við það að kallinn minn var að biðja mig um að draga litla bílinn okkar uppúr skafli.Aumingja Hebbi hafði ætlað til læknis í RVK og asnaðist til að fara Sandgerðismegin og festi bílinn svona rækilega að ég varð að draga hann útúr skaflinum á Fagra-Blakk.Ekkert varð af læknatímanum og verða saumarnir þá bara aðeins lengur í nebbanum á honum.Við vorum bæði svo þreytt og tuskuleg eftir öll skaflahlaupin daginn áður að við gerðum ekki nema það allra nauðsynlegasta þennan dag.Gáfum öllum skepnum að borða og skriðum svo örþreytt inn aftur. 16 Janúar. Alveg er þetta með ólíkindum,maður kvartar og kveinar yfir allri rigningunni undanfarið og vælir um að betra sé að hafa snjóinn og núna er allt á kafi í snjó og þá vælir maður enn hærra! En samt er þetta fulllangt gengið hvernig veðurguðirnir hegða sér.Það er svo mikill skafrenningur að fólk sér bara ekki útúr augum og keyrir bara útaf! Við tókum okkur til í dag og fórum í bílskúrinn að telja flöskur og flokka og svo er mér litið útum gluggann og uppá Sandgerðis-Garðveg og þar var furðulega mikil umferð.Stuttu síðar hringdi dóttir mín í mig og spurði mig hvort ég vildi gera vinum hennar greiða en þau voru föst í skafli rétt við Kanínubúið.Auðvitað hentumst við af stað og það gekk ekki átakalaust að ná bílnum úr skaflinum en þetta var á sama stað og Hebbi minn festi litla bílinn okkar á deginum á undan.Þau voru voðalega þakklát greyin,hún ólétt í framsætinu og hann strákræfillinn tók í hendina á okkur fyrir greiðann.Þau höfðu ætlað að stytta sér leið en ekki tókst betur til en þetta.Þau voru að koma úr Keflavík en Garðvegur var lokaður vegna útafaksturs. Þegar að við vorum búin að koma flöskunum á Fagra-Blakk þá drifum við okkur í Dósasel og fengum rúmar 11.000-fyrir allar flöskurna sem fóru beint í kassann í Bónus í Njarðvík.Mér var nú ekki farið að lítast á veðrið er nær dró Garðinum og var lítill Yaris á undan okkur og altíeinu þá tekur hann vinstri beygju og eltir bílför eftir bíl sem greinilega hafði keyrt útaf nokkru áður og þessi flaug útaf líka! Það var ekki verið að keyra eftir stikunum,kannski sáu þau ekki stikurnar á svona lágum bíl en við sáum vel yfir á trukknum okkar.Við keyrðum rólega framhjá þeim vegna þess að það var snjóruðningsbíll að koma og ekki vildum við vera fyrir honum.Þá flautuðu þau á okkur og Hebbi bakkaði í skyndi og skrúfaði niður rúðuna og þá GARGAÐI konan á hann"ætlarðu ekki að draga okkur upp? Jú" rétt strax við verðum að hleypa snjóruðningsbílnum framhjá okkur fyrst! Svo drógum við þau upp með herkjum en bíllinn þeirra ætlaði varla að nást uppá veginn og tókst ekki að draga hann þangað fyrren Hebbi batt hann í á öðrum stað í bílnum okkar.Þá loksins náðum við honum uppá veginn. Ég var svolítið hissa á framkomu þessarar konu við okkur sem var með frekju og ókurteisi og stóð svo með hendur á mjöðmum á meðan Hebbi var að binda í bílana og sagði ekki orð við hann! Hún þakkaði ekki fyrir heldur en maðurinn hennar gerði það þó.Þetta sýndi mér tvær hliðar á mannfólki í dag og núna verð ég að segja það að unglingurinn sem við drógum upp var ekkert nema þakklætið en fullorðna konan ekkert nema dónaskapurinn.Og svo er verið að tala um að unglingarnir séu alltaf verstir! Við sjálf komust heim með herkjum en á þessum klukkutíma sem við vorum í burtu var kominn stærðarinnar skafl þarsem við keyrðum í gegn þegar að við fórum í Keflavík.Öll vinnan sem grafan vann var farin á einni klukkustund og verðum við að reyna að fá hana aftur til okkar á morgun.Þið sem ætlið að kíkja í heimsókn í Ásgarðinn vinsamlegast leggið bílunum ykkar uppá vegi og labbið rest
13.1.2007Týr að fara og Rjúpa í tamningu
Týr ánægður hjá Rjúpunni. Í dag fórum við Hebbi með Týr og Rjúpu í bæinn en Týr er að fara til Þýskalands og Rjúpa í tamningu.Ég stökk inn eitt augnablik að kíkja á Hringinn minn hjá Sigga Matt en hann er þar bara í dekri svei mér þá.Hann lítur vel út og er ánægður með vistina sem fer nú senn að ljúka en ég tek hann líklega heim um næstu mánaðarmót.Ég sá þarna ekkert smá flotta stóðhesta og verð að ná tali af Sigga og forvitmnast um einn alveg sérstaklega kunnuglega þvílíkt vel fextann stóðhest brúnann að lit.Kem honum ekki alveg fyrir mér en líklega er þetta einn af þessum frægu.Talandi um fræga!
Ég sá hann Töfra frá Selfossi hjá Gunnari og Krissu og var hann þarna að bíða eftir því að fara af landi brott.Ekkert smá flottur og vinalegur hestur! Auðvitað fékk ég að smella mynd af kappanum
Litli sæti bíllinn minn að týnast! Við erum hreinlega að drukkna úr snjó hérna þessa dagana.Á morgun verðum við að panta Gröfu hingað því við náum ekki traktornum út úr húsi vegna þess hve stór skafl er fyrir dyrunum.Nú og þó við náum honum út þá komumst við ekki að heyrúllustæðunni fyrir sköflum niðurfrá! Ég ætla líka að taka folald/folöld undan á morgun og klára að flokka þau hross sem eiga að fara héðan.Reiðskólahestarnir eru að fara aftur í vinnu strax eftir helgina og eru þeir búnir að hvíla sig vel og njóta þess að vera útí rúllu allan sólarhringinn.Einhver fleiri hross eru að fara og léttir það alveg rosalega á mér og kannski maður geti farið að koma sér á bak eða þó það væri ekki nema að frumvinna trippi.Það væri nú ekki leiðinlegt Flettingar í dag: 579 Gestir í dag: 143 Flettingar í gær: 680 Gestir í gær: 154 Samtals flettingar: 703062 Samtals gestir: 209831 Tölur uppfærðar: 21.3.2010 18:39:32 |
Vafraðu umclockhere Eldra efni
Um mig Nafn: Ingibjörg Rannveig Ingólfsdóttir (Ransý)Farsími: 869-8192Tölvupóstfang: ransy66@gmail.comAfmælisdagur: 25 JúlíHeimilisfang: ÁsgarðiStaðsetning: 250 GarðiHeimasími: 422-7363Önnur vefsíða: http://www.123.is/kaninur/Um: Ég er með hestabakteríuna ógerlegu einsog svo margir aðrir.Náði mér í bónda og fór að búa með honum Hebba mínum í Ásgarði 1998.Muna að kvitta í gestabókina!Njóttu.Bankanúmer: 1192-05-400339Topplistinn Topplistinn Tenglar
|