|
Heimasíða Ásgarðs Ásgarður er að stíga sín fyrstu spor í hrossarækt og munum við leggja áheyrslu á ræktun geðgóðra hrossa í fallegum litum. |
|
Blogg31.8.2006Heljar seldur!
Heljar frá Ásgarði er seldur.Innilega til hamingju Deidrie með Heljar.I hope that he will by a great stallion in the future in Ohio:)) Loksins lægði vindinn hér á Suðurnesjum (rok á Suðurnesjum!) og í gær náðum við að rúlla 45 rúllum af melnum svokallað hjá Gulla áður en myrkur skall á og náttfallið kom í logninu:))Veðurguðirnir hér hjá okkur geta ekki ákveðið sig og er annaðhvort í ökkla eða eyra hvað varðar vindstigin þessa dagana. Í morgun kláruðum við melinn og man ég reyndar ekki hvernig talan endaði á rúlluvélinni en þetta er allt að hafast.Reyndar fékk ég svo nokkuð gott frí í dag frá traktornum sem ég þarf víst á að halda því ég tognaði á öxl um daginn við að ná múlnum af honum Hjartan kallinum.Eitthvað hefur hann lært samt af því að dingla í gúmmíkallinum góða því annars hefði hann líklega slitið af mér handlegginn en ég tel mig vera þokkalega handsterka en hann er mjög öflugur folinn.Mín varð að fara til læknis í fyrrakvöld alveg sárkvalinn af verkjum og með náldofa í þremur fingrum.Doksi hótaði mér því að ef ég lofaði ekki að vera stillt og hvíla mig framyfir helgi þá myndi hann setja handlegginn í fatla! Issss.....það er heyskapur og ég fékk svo rosalega góð verkjalyf sem heita Vóstar-S og eru þau svo góð að ég þarf ekki að taka gigtalyfin mín áður en ég fer að sofa því þau verka svona svakalega vel á gigtina líka:)) Í dag sló Hebbi Arnahól og er alveg kafagras þar núna en í sumar þegar að við vorum að rúlla og pakka fyrir Gísla við hliðina á Arnahólnum þá var varla gras að sjá á túninu sem er vel sprottið núna.Á morgun skal rúlla þar og pakka og svo rjúkum við áfram í Fuglavíkina.Hún lítur ágætlega út en mér sýnist samt að þar sé grasið eitthvað í minna lagi en í venjulegu ári.Við sjáum til hvað verður.
I have to tell people about what Dímon did today Deidrie! It was sooooo.....funny:)) Þannig var að ég Deidrie og vinkona hennar voru hér í dag að skoða sölufolöld og ég notaði náttúrulega sénsinn og gætti að öllum girðingum hvort allir væru í lagi í hverju hólfi.Þegar að við vorum búnar að skoða í hólfinun hjá Dímon og vorum að labba aftur heim þá læðist hann Dímon á eftir okkur einsog skuggi og fyrirvaralaust beit hann í buxurnar hjá Deidrie og var næstum búinn að taka þær niður um hana hehehehehehehe:)))Og ég náði þessu atviki næstum á mynd en þarna er hún Deidrie rétt búin að snúa sig útúr kjaftinum á klárnum hehehehehe.Svo eftir að hún skammaði hann þá hljóp hann til Orku og afgreiddi hana með stæl beint fyrir framan stelpurnar sem göptu af undrun yfir þessari náttúrulegu athöfn sem fór bara fram í ósótthreinsuðum haganum! Þessu eru þær ekki vanar og fannst mikið til koma:)) Ég verð samt að setja eina fallega mynd af henni Deidrie svo hún lemji mig ekki næst þegar að hún kemur í heimsókn hehehehe.This is a very good picture of her and Stórstjörnu who never let my touch her face but Deidrie was ok!
29.8.2006Fullt af gestum og heyskapur (Buslufréttir)Í gærmorgun hófst dagurinn á því að við hjónin ætluðum að vakna snemma og taka á móti Ragga Skúla (fyrrum torfærutappa á Galdra Gul:) en hann ætlaði að sjóða eitthvað fast framan á "nýju" fínu Toyotuna okkar.Auðvitað sváfum við eitthvað frameftir aðalega ég samt en Raggi var sko búinn að vera úti að vinna hér án þess að við hefðum hugmynd um og bankaði hann uppá hjá okkur uppúr tíu í gærmorgunn.Eitthvað fannst honum skrítið með hana Buslu þarsem hún lá á teppinu sínu en annar teinninn í afturfætinum var genginn eina 10-12 cm útúr henni og stóð þarna þráðbeinn uppúr skepnnunni! Djö.....var ógeðslegt að sjá þetta! Ekki heyrðist boffs í tíkaræflinum frekar en fyrri daginn og út fór hún og pissaði.Þegar að hún kom inn aftur þá hlammaði hún sér á rassinn og beint ofaná teininn sem stakkst aftur á kaf inní beinið eina cirka 8 cm og virtist hún ekki finna fyrir þessu eða er svona svakalgega hörð af sér.Ég athugaði hvaða dýralæknir var á neyðarvaktinni en þarsem "hennar"læknar voru ekki við þá gaf ég henni verkjalyf og ákvað ég að bíða framá mánudagsmorguninn. Eftir að Raggi fór þá komu í heimsókn Hulda og Helgi frá Hellu og Gauja vinkona úr hestunum.Einnig komu Beggi og frú með sínhvora dótturina.Eftir mikið kaffiþamb og spjall þá stikaði ég niður tún í verkin mín þ.e.a.s færa strenginn hjá Hrók og merum og athuga hvort all væri í lagi í öllum hólfum.Helgi,Hulda og Gauja fóru með mér til að sjá folöldin og vakti hún Heilladís mestu athyglina með sín tvö folöld þær Sif Hróksdóttir sem er hennar eigið afkvæmi og Von Ögradóttur sem er fóstudóttir hennar.hryssan virðist mjólka þessum báðum folöldum mjög vel og er spikfeit og pattaraleg.Hún er reyndar ekkert glöð með að ég skildi taka hana frá Hrók og hinum merunum og kemur hlaupandi þegar að ég færi strenginn hjá Hrók og heldur að hún sé að missa af bestu beitinni!
Hér er Heilladís frá Galtarnesi með folöldin "sín".Ég verð að geta þess að dóttir Heilladísar Dögg Sæsdóttir frá Hellu hækkaði á yfirlitinu og er komin í 7.82 og er það nokkuð gott hjá fimm vetra hryssu sem ekki er búin að vera í margra mánuða tamningu hjá þeim "fremstu".
Stóðhestefnin hér á bæ voru heldur betur hressir í rokinu í kvöld þegar að ég gekk um hólfið hjá þeim! Það var kuldahrollur í þeim enda yfir 20 mertar á sekúndu í hviðunum.Hér er hann Glóðar Feykir Þengilsson á harðastökki.
Og þessi er sko kaldur kall! Lét sig ekki muna um að stökkva létt yfir gamla grjótgarðinn og hikaði ekki! Þekkir einhver þennan verðandi gæðing? Í dag sló Hebbi Nýja-Bæ,Móhús og Miðhúsamelinn.Vonandi fýkur ekki heyið burt í öllu rokinu en við létum það vera að rúlla því upp í rokinu í dag enda nægur þurrkur framundan.Ég afturámóti fór með Buslu mína í bæinn og var hún þá orðin einum tein fátækari því snemma um morguninn sá ég hinn bókstaflega detta útúr löppinni! Dýralæknirinn tók hinn teininn úr líka og ég get ekki betur séð en tíkinni hafi létt við að losna við þessi ósköp úr löppinni sem eru greinilega búin að vera að trufla hana allann tímann.Hún heldur áfram á pencillíninu og vonandi er beinið orðið nægilega gróið svo hún geti farið að stíga aftur í fótinn fljótlega.Hún heldur fætinu alveg á lofti og hefur nánast ekkert stigið í hann allann tímann frá aðgerðinni.Matarlystin hefur ekki verið uppá marga fiska síðustu daga en núna í kvöld loksins þá sýndi hún matardallinum mikinn og góðann áhuga.Helst vill hún fá mat frá ákveðnum aðila úr bænum en hún Magga hefur verið afskaplega spennandi manneskja hjá tíkunum hér á bæ en hún er svoooooo........góð kona finnst þeim því hún vinnur í Mötuneyti!
Hér er þessi elska að sleikja dallinn sinn og þrífa einsog hún er vön að gera en hefur ekki gert lengi.Greinilegt batamerki á Buslunni minni.ég ætla að hlífa ykkur og fleirum við myndunum sem ég tók í gær þegar að teinninn var við það að fara útúr henni.Núna hlýtur þetta að vera að takast og mun ég krossa fingur og vona að allt verði gott og tíkin hætti að finna til.
27.8.2006Frigg seld
Hún Frigg er seld og fer í hendurnar á góðum eiganda en hún Magga mín keypti hana í dag.Hún bara stóðst ekki freistinguna enda folaldið virkilega fallegt og vel ættað báðumegin frá.Innilega til hamingju með hana Frigg Magga mín
Það er ekki á hverjum degi sem að heil rúta kemur í hlaðið í Ásgarðinum en það gerðist í dag og enginn venjulega flottur ökumaður um borð! Sigrún"rosalega er hún mamma þín töff á þessum trukk!!! Og það var sko bakkað eftir speglunum! Við erum klár í næsta þurrk og ef vel heppnast þá eigum við að ná einum þremur túnum eftir helgina.Það spáir þurrki og á hann að haldast í einhverja daga.Jóel vinur minn fyrir norðann er víst að verða búinn að ná öllu sínu í plast eða ég býst fastlega við því að hann sé að senda okkur hér fyrir sunnan þurrkinn svo við getum klárað líka.Takk fyrir það Jóel og Guðrún
25.8.2006Seinna gangmál hjá Dímon!
Dímon Glampasonur varð hryssunni ríkari í kvöld en hans seinna gangmál hófst með komu Pamelu Náttarsdóttur.Henni fylgdi auðvitað sonurinn Sókrates og gekk mikið á hjá henni Pamelu súperofurmömmu þegar að hún var sett í hólfið.Ekki munaði miklu að eigandinn fengi að slóðardraga allt hólfið á eftir merinni sem rauk af stað með heljarinnar látum og skeytti engu um þótt mannvera héngi á taumnum.Hún skildi sko passa uppá krílið sitt og enginn önnur meri í hólfinu fengi að þefa af því! Það bókstaflega flæðir úr henni mjólkin og sá stutti verður sko ekki stuttur lengi með svona mjólkurframleiðslu hjá móðurinni.
Hér er Sókrates frá Höfnum,ekkert smá krúttlegur með mjólkurskeggið sitt:)) Það gekk alveg ótrúlega vel að setja Glóðar Feykir út í hagann með hinum stóðtittunum 6 en mér finnst langbest að setja allt saman inn í hesthús í nokkrar klukkustundir og láta hrossin kynnast í rólegheitum og setja svo út saman undir eftirliti.Þá er mesta spennan farin úr hrossunum og nýju aðkomuhrossin hlaupa ekki alveg tryllt og á allar girðingarnar.En djö.....var hann flottur! Hann sprellaðist um allt og hélt nú aldeilis að hann ætti heiminn þar til Hrókur kom æðandi að girðingunni þá hrundi alveg veröldin og hann gapti einsog Þorskur á þurru landi og það skein úr augunum hans "ekki berja mig,ég er bara lítill foli! Eftir smá stund þá sá Hrókur að hann var ekkert að skrökva sá stutti og hélt til hryssnanna sinna og skipti sér ekki meir að tittunum.
Við hjónin vorum dugleg í dag,kallinn hamaðist við að gera sláttuvélarnar klárar fyrir næsta þurrk og ég færði til öryggislínu og setti upp á Vinkilinn en þangað ætla ég að færa hana Heilladís með folaldið sitt hana Sif Hróksdóttur og Von Ögradóttur hennar Röggu vinkonu en hún Heilladís er alveg búin að taka hana Von að sér sem sitt eigið folald.Nú er um að gera að gera vel við Heilladísina sem er orðin 16 vetra og ætlar að mjólka vel ofaní þessi tvö folöld framá haustið. Ég var alveg óð með cameruna í dag enda gott veður og gaman að taka myndir.Á ferð minni um hagana smellti ég og smellti af hinum og þessum hrossum.Hér er ein af mæðgunum Eðju og Frigg.Og Frigg er til sölu:))
24.8.2006Folar ormahreinsaðir og hrossaflutingarÞað er búið að vera nóg að gera í hrossastússi hér á bæ síðustu daga.Tvær gestahryssur fóru frá Hrók og til síns heima og Toppa gamla Náttfaradóttir fór upp fyrir veg til Rjúpu og Freistingar til að bíta þar grasið græna sem við höfum ekki nýtt okkur hingað til.Við erum byrjuð að girða þar og er alveg lúmsk beit þarna fyrir ofan veg.Toppa gamla tók vel í grasið enda mathákur mikill einsog sést á þessum myndum:))Gamla brýnið orðin 22 vetra og er aðallega uppá punt hér hjá okkur en alltaf hefur hún gaman af því að vera hjá stóðhesti á sumrin og tókum við það ekki frá henni í vor og fékk hún að vera hjá honum Hrók svona honum og henni til mikillar gleði þó hún hafi eflaust ekki fest fang frekar en síðastliðin 3 ár.
Rjúpu minni fannst ekkert smá sport að fá þá gömlu til sín og fór í loftköstum um allt hólfið:))
Í fyrradag þá tók ég inn ungfola og ormahreinsaði,ekki voru þeir mjög hrifnir af þessu uppátæki hjá kellingunni og þurfti að hafa meira fyrir sumum en hafði ég bara gaman af að slást pínulítið við þá.Þetta má nú ekki allt saman standa grafkyrrt,það verður að vera smá fútt í þessu! Ef þið mætið þessu tveimur perrahrútum leitið þá skjóls á öruggum stað og bíðið uns þeir eru horfnir.Gimbrarnar mínar eru alveg búnar á því og erum við hér í Ásgarðinu búin að setja upp Gimbra athvarf niður í hesthúsi.Tara fór ekki varhluta af árás þeirra og stoppaði ég för þeirra á eftir tíkinni þegar að hún kom hlaupandi innum dyrnar með þá á hælunum og inn allann ganginn og skondraði hún á annari hliðinni inní stofu! Tíkarræfillinn þarf líklega að fara í klippingu því hún er nú einu sinni Puddle-Terrier blendingur og gæti alveg verið grá gimbur.En hvað um það þá eru þessir spræku heimalningar frá næsta bæ ástsjúkir á eftir lömbunum okkar og bíð ég nú bara spennt hve lengi fram eftir hausti þeir fá að lifa,kannski verða þeir settir á! Hjálp!!!!! Við hjónin fórum í bæinn í dag og skildi kallinn mig eftir í Kringlunni með gjafabréfin frá systkinum hans og nú skildi mín sko kaupa sér föt! Ekki fannst mér ég fá merkilega þjónustu í fyrstu tveimur búðunum þannig að ég sneri mér annað og hætti ekki fyrren ég fann buxur einsog ég vil hafa þær og lágu þrennar í valnum þegar að ég gekk út.Boli fann ég líka og er ég alsæl með þetta,komin með þessar fínu buxur á mig sem ég er sátt við.Ég er svo agaleg þegar að ég fer að versla mér föt.Ég vil helst að ég geti keypt mér svipuð eða eins föt ár eftir ár.Ég þoli td afar illa þessar víðu buxur sem allir eru með á hælunum,það er einsog ungdómurinn sé enn með bleyju og gleymst hafi að skipta um í marga daga! Í kvöld kom afskaplega fallegur foli til mín í pössun og er hann undan hinum fræga Þengli frá Kjarri sjálfum.Ég tók bara andköf þegar að ég sá litinn á folanum,auðvitað var hann glófextur EN rauði liturinn á búknum er algert æði! Ég held að þarna sé bara Þengill heitinn kominn aftur og verður spennandi að fylgjast með þessum fola í framtíðinni:)
Flettingar í dag: 237 Gestir í dag: 66 Flettingar í gær: 799 Gestir í gær: 195 Samtals flettingar: 703519 Samtals gestir: 209949 Tölur uppfærðar: 22.3.2010 10:08:31 |
Vafraðu umclockhere Eldra efni
Um mig Nafn: Ingibjörg Rannveig Ingólfsdóttir (Ransý)Farsími: 869-8192Tölvupóstfang: ransy66@gmail.comAfmælisdagur: 25 JúlíHeimilisfang: ÁsgarðiStaðsetning: 250 GarðiHeimasími: 422-7363Önnur vefsíða: http://www.123.is/kaninur/Um: Ég er með hestabakteríuna ógerlegu einsog svo margir aðrir.Náði mér í bónda og fór að búa með honum Hebba mínum í Ásgarði 1998.Muna að kvitta í gestabókina!Njóttu.Bankanúmer: 1192-05-400339Topplistinn Topplistinn Tenglar
|