Blogg29.1.2006Letidagur
|
Þetta er nú búinn að vera meiri letidagurinn.Ég vogaði mér ekki út fyrren um 3 leytið en þá var hringt í mig til að líta á tvö hross sem að voru laus hérna rétt hjá Ásgarðinum.Ég stökk út í rigninguna og rokið til að telja hjá mér en allir voru annaðhvort í rúllu eða í skjóli að standa af sér veðrið.Það kom fljótlega í ljós hver átti hrossin og eignadinn var snöggur að koma með hestakerru og fjarlægja þau.
Þá var bara að skella sér í verkin og fór ég úti stóra hesthús og sinnti þar öllum sem að var nú ekki erfitt verk í dag vegna þess að enginn fór út vegna veðurs.Ég var einsog eldibrandur í gegnum kanínusalinn og alla fuglana.Þegar að ég kom aftur út þá tók ég eftir því að það voru leifar af flekkótta kanínuunganum sem ég sá undir gámnum um daginn.Ég veit alveg hver veiddi hann og snæddi hann en tíkurnar hjá mér voru hálflystalausar þegar að Magga bauð þeim í gær matarleifar sem að hún kom með með sér úr bænum.Þær fúlsuðu við matnum frá Möggu í fyrsta sinn og vorum við ekki að skilja hversvegna en núna skil ég það.Það er ekki gott að henda út kanínum fyrir utan búið hjá mér í von um að ég taki þær inn vegna þess að þær verða fljótlega að máltíð hjá hundunum mínum sem að eru ekki sófadýr heldur minkaveiðihundar og geta ekki gert að því þó að ein og ein kanína lendi í gininu á þeim.Þær eru að gera það sem að náttúran og eðlið segir þeim að gera.
Villi og Karen nágrannar mínir eru búin að taka inn hross og var gaman að kíkja í hesthúsið hjá þeim í dag.Það fór um mann fiðringur að sækja hann Biskup austur og reyna kannski að brölta á bak en ég geri það kannski í vor þegar að meira fer að birta og hlýna.Þá ætla ég að vera með Biskup og Vordísi Brúnblesadóttur,svakalega flott með tvö rauðblesótt saman.Svo verð ég að taka hann Þokka bróðir Skjónu minnar fyrir vorið og frumtemja hann fyrir eigandann en því var ég búin að lofa.Það verður spennandi að vita hvort að hann lyftir jafnvel og systur sínar þær Skjóna,Fríða og Díana Drottning! |
|
| 29.1.2006Folöld ormahreinsuð
|
Hér á bæ er alltaf nóg að gera og sleppti ég blogginu í gær vegna anna.Ég var bara svo dugleg frameftir öllu í gærkveldi að ég fór alveg með mig í skrokknum.En hann Hrókur fékk nýju stíuna sína og ég heitt bað og kertaljós með verkjatöflu hehehehe er maður orðinn gamall eða hvað!
Í dag var gestagangur einsog venjulega því að ég er svo skemmtileg:))) Segjum það að minnsta kosti en Magga og Inga komu um hádegið og síða Sigurjóna og dóttir.Stelpurnar skoðuðu hvolpana hennar Skvettu og var mikið gaman hjá þeim.Síðan komu Jón Steinar og Tinna og skelltum við okkur útí stóra hesthús þarsem folöldin Týr og Hemla voru handsömuð og gefið ormalyf.Tinna prófaði hann Hrók á ganginum beislilausann og berbakt og bunaði klárinn með hana fram og tilbaka þangað til að Tinna var farin að hlægja svo mikið að hún var við það að skoppa af honum.Hrók fannst þetta ekki neitt voðalega fyndið svona í restina enda fékk hann ekki mola fyrir bunurnar og skildi ekkert í því hvað Tinna hló og var hann farinn að pæla í því að hossa henni svolítið hærra upp.
Ég fékk hreingerningarkast í kvöld og er ég ekki alveg að fatta mig.En mikið líður manni miklu betur þegar að allt er orðið hreint og fínt inni hjá manni.Reyndar væri voðalega mikill tímasparnaður ef að maður gæti bara dreift spónum og hálmi yfir gólfin hjá sér og látið þar við sitja.Svo þegar að voraði bara moka út með Bobcat.Hm........kannski er það ekki sniðugt? |
|
| 26.1.2006Loksins fluttir úteftir!
|
Við Hebbi vorum rosalega dugleg í dag.Ég setti einangrun í veggina á stíunni í stóra hesthúsinu og jagaði niður plötur sem að Hebbi setti svo upp.Meira að segja er búið að sjóða upp milligerði þannig að stían hans Fönixar er líka tilbúin handa honum þegar að hann kemur úr Háskólanáminu frá Agnari og Kamillu.Folarnir fínu biðu á meðan útí rétt áður en þeir fengu að fara í stíuna og voru orðnir langþreyttir á okkur og allri smíðavinnunni.En svo kom að því að máta þá inní stíuna og ekki voru þeir í neinum vandræðum með að hoppa yfir steypuþröskuldinn sem er soldið hár.Ég smellti af nokkrum myndum og set inn á eftir.
Rosalega var ég mikill snillingur í dag eða þannig sko.Ég var að fara niður að tjörn til andanna með brauð á Fagra Blakk (bílnum mínum)og hann spólaði bara í grasinu og bleytunni þannig að ég stökk út og setti lokuna á öðrumegin og Hebbi minn dreif að konunni til hjálpa og setti lokuna á hinumegin.Síða skellti ég mér inn í bílinn og spólaði og spólaði! Ég þjösnaði bílnum fram og aftur einsog Ómar Ragnarsson sýndi eitt í sjónvarpi að ætti að gera í hálku og fyrir rest kom ég loksins bílnum af stað og að girðingunni hjá tjörninni.Kallinn minn spurði hvernig stæði á því að bíllinn hefði ekki virkað betur hjá mér í fjórhjóladrifinu..............hehehehe ég gleymdi að setja það á.Algjör kelling hugsaði ég mér! |
|
| 26.1.2006Allir saddir
|
Ég var aðeins og sein að blogga og er komið yfir miðnætti en þessi færsla gildir fyrir 25.1 en ekki 26.1.Við Hebbi héldum áfram að gefa útiganginum í dag og kláruðum við það sem ég var byrjuð á í gær.Merarnar voru náttúrulega búnar með rúlluna sem ég gaf í gær en þær éta eina rúllu á dag því þær eru svo margar.Alveg er það merkilegt hvað þær geta sumar rifist og slegist útaf engu sérstöku að manni finnst.Samt hef ég tekið eftir því að þær raða sér helst saman eins á hverja rúllu eftir hvernig þær þekkjast og hversu kjarkaðar þær eru.Molda og Eðja eru alltaf hlið við hlið og eru fleiri merar sem að standa hlið við hlið í rúllunum.Heilladís og Sokkadís standa ansi oft hlið við hlið en ég er farin að taka betur eftir þessu þegar að ég mynda þær.Alveg rétt"ég tók cameruna með í dag og tók myndir í stóðhestahólfinu og merarhaganum.
Ekki komust stóðtittirnir uppí stóra hesthús í dag en ég LOFAÐI þeim því að gera það á morgun.Kerran var í útleigu og ekki teymi ég þá í hendinni uppeftir! Hebbi keyrði inn 9 rúllum í stóra hesthúsið og er það cirka 2 mánaða skammtur með rúllunni sem að nýbúið er að opna.Þægilegt að geta sett inn svona mikið magn í einu.
Núna er að lifna yfir kanínusölunni og þarf ég að fara að keyra kanínurnar uppí fóðri svo að hægt verði að para þær fljótlega fyrir kaupanda sem var að panta dýr.Hnoðri fær nýtt heimili og flyst með 3 læðum á sveitabæ rétt fyrir utan Selfoss og er hann að fara að sinna uppáhalds iðju sinni sem er dodododododododo.Fyrrverandi eigandi var orðinn pínu svekkt útí Hnoðra fyrir að klemma sig fastann á fótinn hennar og hristast allur(kannski hló hann svona mikið)?Skrítið hvað þessir högnar hristast alltaf svona mikið! |
|
| 24.1.2006Á hálfu hestafli
|
Eitthvað er maður búinn að vera skrítinn og ekki ganga nema á hálfu hestafli.Kannski að flensudrulla sé að trufla mann en ég vona samt ekki.Mér tókst að gefa nokkrar rúllur í dag og í miðju verki hringdi mína kæra dóttir og boðaði komu sína í sveitina.Auðvitað dreif maður sig heim að hella uppá fyrir krakkaskí...... (aulahúmor á milli okkar mæðgna) því hún er orðin svo fullorðin að hún er hætt að drekka mjólk.Eitthvað hefur hún saknað sveitarinnar því að hún saug næstum upp flórinn í hesthúsinum með öllum skítnum í! Öðruvísi mér áður brá,núna er flórinn bara ilmandi minning í bland við hey lyktina.
Á morgun er ætlunin að flytja fínu stóðhestefnin útí stóra hesthús og hlakkar mig mikið til að sjá þá sprikla þar um.Það ætti líka að fara enn betur um þá þar.Þeir voru úti í allann dag með opið hesthúsið og undu sér vel.Sá stóri svarti er reyndar að kalla á merarnar af og til en er voða kurteis og er einsog hann sé að tala við sjálfan sig hann hneggjar og kumrar svo lágt.Hann hneggjar líka alltaf þegar að ég opna hesthúshurðina og meira að segja líka þó að það sé hey í stöllunum.Við erum orðnir hinir mestu vinir og kanski hann fái að skoða einsog eina meri hjá mér í vor úrþví hann er svona geðgóður og indæll foli. |
|
| 23.1.2006GirðingarvinnaSkoða nánar22.1.2006Sjóða,saga og neglaSkoða nánar21.1.2006Dugleg í dagSkoða nánar20.1.2006Hesthúsa heimsóknirSkoða nánar18.1.2006Rólegheit í dagSkoða nánar18.1.2006GjafadagurSkoða nánar16.1.2006Hestar koma og hestar faraSkoða nánar11.1.2006hestaglerauguSkoða nánar9.1.2006Dimmt og blauttSkoða nánar7.1.2006Amma gamla!Skoða nánar4.1.2006Fráhvarfseinkenni!Skoða nánar3.1.2006Dúna seldSkoða nánar2.1.2006HrossaflutningarSkoða nánarFara á upphafssíðu
Flettingar í dag: 13 Gestir í dag: 7 Flettingar í gær: 876 Gestir í gær: 165 Samtals flettingar: 701816 Samtals gestir: 209541 Tölur uppfærðar: 20.3.2010 01:10:44
|