Girðingar opnaðar fyrir dýrum: "Þau
eiga að geta bjargað sér"
Suðurland er miðstöð hestafólks og er fjöldi
bænda á svæðinu með búfénað. Mynd Sigtryggur Ari Jóhannsson.
Sunnudagur 21. mars 2010 kl 03:01
Höfundur: Einar Þór Sigurðsson (einar@dv.is)
"Það sem er gert, ef það er almenn rýming, er að það eru opnaðar
girðingar," segir Íris Marelsdóttir, hjá almannavarnardeild
ríkislögreglustjóra, aðspurð hvað verður um allan þann búfénað sem er á
svæðinu í nágrenni Eyjafjallajökuls. Suðurland er miðstöð hestafólks og
er fjöldi bænda á svæðinu með búfénað.
Þegar gaus síðast í Eyjafjallajökli árið 1821 drapst búfénaður og er
viðbúið að slíkt muni einnig gerast núna. Íris segir að í neyðarástandi
eins og nú ríkir séu allar girðingar og öll hús opnuð þannig að dýrin
geti farið sína leið.
"Þau eiga að geta bjargað sér en það er alltaf þannig að fólk er í
fyrsta sæti, dýrin í öðru sæti og svo koma eignir og tæki," segir hún.
Ég er með hestabakteríuna ógerlegu einsog svo margir aðrir.Náði mér í bónda og fór að búa með honum Hebba mínum í Ásgarði 1998.Muna að kvitta í gestabókina!Njóttu.